Tölvumál - 01.05.1990, Blaðsíða 4
Tölvumál Maí 1990
Frá
formanni
Halldór Kristjánsson,
formaöurSÍ
Höfundarréttur og afritun
Ungur piltur sem var að vinna að
útgáfu á fréttabréfí fyrir íþróttafélag
hringdi í mig á dögunum og bað um
að fá að nota geislaprentara hjá
okkur. Piltinn þekkti ég ekkert en
fyrir góð orð manns sem ég þekki
leyfði ég honum aðgang að
prentaranum.
Þegar pilturinn kom þurfti ég að
aðstoða hann lítilsháttar vegna þess
að hann hafði notað eldri útgáfu
umbrotsforrits og þurfti því að
breyta skjalinu lítillega.
Þegar pilturinn var að fara sagði
hann: “Ætlarðu að gefa mér afrit af
nýju útgáfunni áður en ég fer?” Mér
varð orðfall - ekki síst vegna þess
hversu eðlilegt piltinum þótti að
biðja mig, bláókunnugan manninn,
um þetta.
Ég útskýrði fyrir piltinum hvað
hann væri í raun að biðja um og
lýsti furðu minni á þessari ósk.
Skildu svo leiðir.
Samskipún við þennan unga
menntaskólapilt hafa orðið mér
mikið umhugsunarefni og tilefni til
vangaveltna um það hvort ungt fólk
telji það almennt sjálfsagt að afrita
forrit? Er að alast upp kynslóð sem
telur það sjáfsagðan hlut að afrita
handbækur og forrit? Ég vona að
svo sé ekki.
Tölvukennslaí
grunnskólum
Starfshópur á vegum
Skýrslutæknifélagsins hefur verið
að fjalla um tölvukennslu í skólum
að undanfömu. Hefur verið fjallað
um hana frá mörgum sjónarhomum
og margt athyglisvert komið fram.
Stjóm SI mun á næstunni fara í
saumana á þessu máli og fylgja því
eftir með aðgerðum ef þurfa þykir.
Vel heppnuð heimsókn í
Landsvirkjun
Hinn 16. maí síðastliðinn heimsóttu
35 félagar SÍ Landsvirkjun til að
skoða nýjan kerfíráð stofnunarinnar.
Undirbúningur allur og
viðurgjömingur var til fyrirmyndar
og var fróðlegt að sjá hvemig
tölvutæknin er notuð við
raforkuframleiðslu- og dreifingu hér
á landi.
Landsvirkjun færum við bestu
þakkir fyrir höfðinglegt boð og
frábærar móttökur.
Frumvarpumstöðlun
Nú er til umfjöllunar hjá stjórn
Skýrslutæknifélagsins frumvarp til
laga um stöðlun. Þar er m.a. fjallað
um Staðlaráð íslands sem við höfum
tilnefnt fulltrúa í. Hafi félagar áhuga
á að sjá þetta frumvarp, eða koma
athugasemdum á framfæri, skal
þeim bent á að hafa samband við
skrifstofu okkar.
Sumariðframundan
Nú fer sumar í hönd og þá dregur úr
starfsemi flestra félagasamtaka.
Sama á við SÍ þó að starf stjórnar
verði mikið í sumar. Mörg mál eru
til umfjöllunar og í september verða
tvær ráðstefnur hér á landi unt
upplýsingatæknimál.
Félögum SÍ og fjölskyldum þeirra
óska ég gleðilegs sumars og
velfamaðar.
Gleðilegtsumar!