Tölvumál - 01.05.1990, Síða 6
Tölvumál Maí 1990
Gunnar Páll Þórisson:
Markvissari
rekstur meö
upplýsinga-
tækni
- Forsendurog nálgun-
Höfundur er rekstrarhagfræðingur
og er starfandi rekstarráðgjafi hjá
SKÝRR
Rekstarhagrœði kallar á breytta
starfshœtti.
Markmiðið er aðfólk nái samstöðu
um skynsamlegar breytingar og ný
vinnubrögð.
Hlutverk stjórnandans felst fyrst og
fremst íþví að stýraferlinu með
þeim hætti að starfsmönnum finnist
breytingar sjálfsagðar og rökréttar.
Það eru alltof mörg fyrirtæki sem
tölvuvæðast án þess að ná nokkru
hagræði eða rekstrarlegum
ávinning. í stað þess að losa
fyrirtækið úr klóm skrifræðis, koma
í veg fyrir margskráningu, leggja af
pappírinn og breyta ómarkvissum
vinnubrögðum, þá viðhelst
óhagkvæmni sem fylgir
ótölvuvæddri vinnslu og miðlun
upplýsinga.
Rekstrarlegt breytingaferli
Það sem gerist er í raun það að
ekkert markvert breytist í
starfsemi fyrirtækisins. Með þessu á
ég við að ný tækni er innleidd, en
öllu öðru haldið óbreyttu.
Ef það er ósk og vilji stjómenda að
gera rekstur fyrirtækisins
markvissari og auka hagræði þá
verður að skoða tölvuvæðingu sem
rekstarlegt þróunarferli en ekki
tæknilegt viðfangsefni.
Möguleikar tölvutækninnar til
rekstrarhagræðis felast fyrst og
fremst í því að með tækninni má
breyta fyrri forsendum varðandi
vinnugang, skipulag, samskipti og
starfshætti innan fyrirtækisins. Hér
er ég t.d. að tala um að fækka
millilögum í stjómskipulagi þannig
að millistjómendur taki virkari þátt í
verðmætasköpun fyrirtækisins.
Annað dæmi gæti verið fólgið í því
að sameina vinnuferli og útvíkka
ábyrgðarsvið í því skyni að
samnýta bæði vinnuafl og aðbúnað.
Hugmyndafræðilegur
jarövegur
Það sem fyrst og fremst stendur í
vegi fyrir því að við sjáum slíkt
gerast er að ómeðvitað lítur fólk á
eigin viðhorf og skoðanir sem
órjúfanleg lögmál. Fólk hefur
fastmótaða afstöðu og skoðanir á
ýmsum stjómunarlegum fyrirbærum
(ákvarðanatöku, eftirliti,
stjómunarhlutverkinu, samskiptum
fólks ofl.), sem segja til um
réttmæti hugmynda og hegðunar.
Það er með öðmm orðum
“hugsunarháttur fyrirtækisins” sem
ræður ferðinni.
Hugmyndir sem brjóta í bága við
iikjandi viðhorf em sjálfkrafa taldar
óskynsamlegar og í sumum
tilfellum beinlínis hættulegar.
Árangursrík tölvuvæðing byggist á
því að menn séu tilbúnir til að
endurskoða þennan
hugmyndafræðilega jarðveg
fyrirtækisins.
Forsenda þess er almennur vilji til
að koma á breytingum og víðsýni
þannig að unnið sé með ný
sjónarmið og róttækar hugmyndir.
Samstaða um aðgerðir
Það verður að hefja þróunarferlið
með þátttöku á breiðum grundvelli,
þar sem meðvitað eða ómeðvitað á
sér stað endurskoðun á fyrri
stjómunarhugmyndum og
starfsaðferðum. Markmiðið er að
fólk nái samstöðu um skynsamlegar
breytingar og ný vinnubrögð.
Upphaflegar hugmyndir
stjómandans geta breyst því ekki er
mögulegt að þröngva nýjum
viðhorfum og nýrri hugmyndafræði
upp á fólk. Það verður sjálft að
þroska með sér breytinguna. Ef
hugmyndafræðilegurjarðvegur
fyrirtækisins er í andstöðu við
fyrirætlanir stjómandans þá er
stefna hans dæmd til að mistakast.
Nýjar hugmyndir og skoðanir sem á
þennan hátt verða að
sameiginlegum ásetningi fólksins,
endurspeglast í breyttri framkomu
og áþreifanlegum framkvæmdum.
Hlutverk stjómandans felst fyrst og
fremst í því að stýra ferlinu með
þeim hætti að starfsmönnum finnist
breytingar sjálfsagðar og rökréttar.
Þannig ræðst fyrirtækið í
framkvæmdir sem eru í samræmi
við óskir, getu og hæfni
fyrirtækisins. Stefnan hefur þannig
festu í hugmyndafræðilegum rótum
fyrirtækisins.
6