Tölvumál - 01.05.1990, Side 9
Tölvumál Maí 1990
Menn hafa lœrt afreynslunni og
búið er áð gera útgáfu tvö af
stöðluðuforritunarmáli. Sá staðall
ber nafnið ADA.
Skil við notendur eru t.a.m.
skjámyndakerfi og skýrslugerðar-
kerfi.
Skjámyndakerfi eru ekki í staðlinum
þannig að hugbúnaðarframleiðendur
búa til eigin skjámyndakerfi eða
nota skjámyndakerfi frá
framleiðendum tölvanna. Það leiðir
til þess að forrit verða ekki færanleg
á aðrar tölvur með öðru
skjámyndakerfi.
Skil við stýrikerfi eru lítið stöðluð.
Hugbúnaðarkerfi nota þau m.a. til
að fá upplýsingar frá umhverfi sínu
vegna öryggisþátta, bestunar o.fl.
Skil við gagnageymslur eru nokkuð
vel skilgreind í COBOL, enda
var málið hannað fyrst þegar
runuvinnslur voru alls ráðandi og
forrit þurftu einungis að eiga
samskipti við gögn en ekki fólk.
Nú mega menn ekki taka þessi orð
þannig að stöðlun COBOL hafi
mistekist algerlega. Til að mynda
eru menn búnir að læra af
reynslunni og búið er að gera útgáfu
tvö af stöðluðu forritunarmáli. Sá
staðall ber nafnið ADA.
Stöðlun hefur gert það að verkum
að COBOL nám er óháð
tölvutegundum og þýðendum og
þess vegna er það vel fallið til
skólanáms. Maður sem kann
COBOL getur forritað á hvaða tölvu
sem er með mjög litlum fyrirvara.
Þá eru flestar kennslubækur
skrifaðar óháð vélartegundum.
Að lokum má geta þess að
hugbúnaðarframleiðendur, sem
hanna sinn hugbúnað með varúð og
nýta sér aðeins þann hluta COBOL
málsins, sem gengur á þá þýðendur,
sem þeir hafa í huga, geta gert
færanleg forrit.
Forritunarumhverfi
9