Tölvumál - 01.05.1990, Síða 11
Tölvumál Maí 1990
Pascal staðallinn er langt á eftir
þróun íþýðendum.
Frá
Orðanefnd
Sigrún Helgadóttir
Niðurstaða:
Úreltur staðall
Eins og ég sagði í upphafi, þá er
ljóst að stöðluð forritunarmál eru af
hinu góða. Það auðveldar samstarf
ólíkra aðila að geta gengið út frá
sameiginlegum grunni. En það
réttlætir ekki að menn vinni með
báðar hendur bundnar fyrir aftan
bak.
Pascal staðallinn er það langt á eftir
þróun í þýðendum, að ekki kemur til
greina að beita honum við nein
stærri verkefni. Ef vinna ætti að
grundvallast á staðlinum, yrðu menn
Nokkurt hlé hefur orðið á pistlum
orðanefndar. Þar sem þetta er
síðasta tölublað fyrir sumarleyfi hef
ég hugsað mér að hafa þennan pistil
í lengra lagi og geta um ýmislegt
sem orðanefndin hefur fjallað um
seinni hluta vetrar.
Client, server
í Tölvuorðasáfni var gefin þýðingin
miðlari fyrir server. Mér finnst það
enn besta þýðingin sem fram hefur
komið og þeir sem nota orðið
miðlari komast jafnan vel frá því.
Það er þjált í samsetningum.
Auðvelt er að tala um gagnamiðlara.
gagnasafnsmiðlara. skráamiðlara.
prenuniðlara og póstmiðiara. Client
er eins konar viðskiptavinur
miðlarans, þ.e. sá sem biður um
þjónustu. Komið hefur fram sú
tillaga að nota orðið biðlari fyrir
client. Ég hef einnig verið spurð að
því hvemig eigi að þýða client-
server technology. Ég mun hafa
bent viðmælanda mínum á að skrifa
sig frá vandanum með því að
umorða í stað þess að þýða beint.
fyrst að koma sér saman um einhver
frávik frá honum, eða hreinlega að
taka einhverja nútíma kennslubók
sem staðal.
Nú er það nokkuð auðskilið að
staðlamál eru þung í vöfum, og þá
ekki síst þegar verið er að reyna að
koma á alþjóðlegum stöðlum.
Þrátt fyrir skilning á þessu
vandamáli, þá sé ég ekki fram á að
nokkur leið sé til að réttlæta það að
þessum staðli verði beitt.
Nýr staðall þarf að koma til, eða
hreinlega að Pascal verður útilokað
sem forritunarmál í alþjóðlegu
samstarfi.
En á fundi orðanefndar kom fram sú
tillaga að client-server technology
gæti heitið neUniðlunartækni.
Backup, restore, verify
í Tölvuorðasafninu var backup
copy þýtt sem varaeintak og
backup file sem varaskrá. Þessi orð
eru góð og gild en þá vantar
samstæða sögn. Nýlega kom því
fram sú tillaga að nota sögnina
bakrita. aðgerðin væri bakritun og
það sem út kemur, þ.e.
öryggisafritið eða varaeintakið, héti
bakrit. Þá má búa til samsetningar
eins og bakritsdiskur og
bakritsband. Þegar búið er að
bakrita er framkvæmd aðgerð sem á
ensku kallast verify. Er bakritið þá
borið við frumgögnin. Þetta má
kalla á íslensku sannrevna og
aðgerðina sannrevnd. Stundum þarf
að sækja gögn af bakritsdiskum eða
bakritsböndum og kallast það á
ensku restore. Okkur finnst að vel
færi á að þetta héti á íslensku
endurheimta og aðgerðin
endurheimt.
11