Tölvumál - 01.09.1990, Blaðsíða 4
September 1990
Frá formanni
Halldór Kristjánsson
formaður SÍ
Frábær ráðstefna um
stefnumótun
Ráðstefha félagsins um stefhumótun
var haldin 6. september síðast-
liðinn. Nú var í fyrsta sinn í
nokkur ár fenginn hópur erlendra
sérfræðinga, auk íslenskra, til þess
að flytja erindi á ráðstefnu okkar.
Var því tekin nokkur áhætta vegna
kostnaðar.
Er skemmst frá því að segja að
ráðstefhan tókst mjög vel. Hana
sóttu 150 manns og var góður
rómur gerður að fyrirlestrunum og
skipulagi öllu sem var með miklum
ágætum. Þátttakendur höfðu
greinilega mikiim áhuga á efhinu
og ekki síst að heyra af reynslu
þeirra sem gengið hafa í gegnum
stefhumótun hér á landi. Þá er
alltaf fróðlegt að heyra sjónarmið
þeirra sem starfa við önnur og
umfangsmeiri skilyrði en við eigum
að venjast hér á landi.
Þegar hafa komið fram hugmyndir
að svipaðri ráðstefhu um annað
efni sem er mjög ofarlega á baugi
um þessar mundir. Er stjóm að
athuga möguleika á því að fá
hingað erlenda sérfræðinga til að
fjalla um það mál.
Eg vil fyrir hönd stjómar þakka
öllum þeim sem aðstoðuðu SÍ við
að útvega erlendu fyrirlesarana,
IBM, Hagvangi og Emu
Ragnarsdóttur. Án þeirra hefði
þetta ekki tekist. Þá má ekki
gleyma nefhdarmönnum sem lögðu
nótt við dag til þess að þetta mætti
takast - þeim verður seint
fullþakkað.
Tölvusýning
tölvunarfræðinema
Dagana 3.-7. október næst-
komandi mimu tölvunarfræðinemar
gangast fyrir tölvusýningu í Þjóðar-
bókhlöðunni. í tengslum við
sýninguna er haldin ráðstefha og er
umfjöllunarefhið netkerfi.
SÍ er stuðningsaðili þessa framtaks
en nemar í tölvunarfræði em
félagar í SI án endurgjalds.
Ástæða er til að hvetja félaga SÍ til
þess að sækja ráðstefhuna og
sýninguna en tölvunarfræðinemar
veita félögum SÍ aflsátt af þátt-
tökugjaldi á ráðstefnunni. Á
næstunni verður félagsmönnum
sent boðskort frá tölvunarfræði-
nemum þar sem þeim er boðið á
sýninguna. Ber að þakka tölvunar-
fræðinemum þennan velvilja f
okkar garð. Þakklæti okkar sýnum
við í verki með því að fjölmenna á
sýninguna og ráðstefhuna.
Stjórnarfundur ISIDU hér á
landi
Stjómarfundur, NDU, Sambands
norrænu skýrslutæknifélaganna, var
haldinn hér á landi 7. september
síðastliðinn. Var fjallað um mörg
mál en efst á baugi vom stöðlunar-
mál og þátttaka í evrópskum og
alþjóðlegum samtökum skýrslu-
tæknifélaga.
Það vakti athygli hinna erlendu
stjómarmanna hversu vel hefur
verið staðið að stöðlun á
hnappaborðum og táknrófum hér á
landi en svo virðist sem frændur
okkar séu enn að glíma við þennan
vanda.
Umfjöllunin um þátttöku í alþjóða-
samstarfi var ákaflega fróðleg
og gagnleg og ljóst að við þurfum
að hyggja að henni á næstu ámm.
Verður þetta mál til áframhaldandi
umfjöllunar í stjóm SÍ á næstu
vikum.
Lumar þú á áhugaverðu
efni?
Það verður vart kallað pennaleti,
fremur tölvuleti, að félagar SI
em tregir til að tölvurita greinar í
Tölvumál. Þarf ritstjóm
oft að beita nokkmm fortölum til
að fá menn til að rita greinar
í blaðið. Getur það verið að ekkert
merkilegt sé að gerast hér á
landi í tölvumálum? Nei, það er
margt að gerast, en tímaskortur
eða hæverska koma í veg fyrir að
skrifað er um það.
Ef þú lumar á áhugaverðu efhi
hafðu þá samband við ritnefndina,
stjómarmenn eða skrifstofuna.
Eitthvert okkar getur, ef ekki
vill verkast betur, þá ritað grein um
efhið. Tölvumál á að halda
þeim sessi að vera áhugavert og
framsækið tímarit um tölvumál!
4 - Tölvumál