Vísir - 09.11.1962, Síða 10

Vísir - 09.11.1962, Síða 10
w □SS32 V í SIR . Föstudagur 9. nóvember 1902 ari listgrein. Nokkrum dögum síð ar keýpti hann sér fullkomið log- suðutæki, og nú vinnur hann ein- göngu úr steypujárni og ryðfríu stáli. — Þessi efni eiga sér ekki langa ævi innan listasögunnar, segir hann, en það, sem réttlætir tilvist þeirra, er, að þau búa yfir svo miklum einkennum þessarar aldar: krafti, formfestu, hreyf- ingu, hörku o. s. frv. Járn og stál eru iðnaðarefni, og það verður að vinna þau í samræmi við það. Á sama hátt og ég sæki efni mitt til iðnaðarverksmiðjunnar, þannig eru verkefni mín einnig hin sömu og þar eru notuð. David Smith, sem býr fjarri stór borgum og tæknilífi þeirra, velur sér verkefni úr hinu hversdags- lega lífi og býr til myndir byggð- ar á Iandslagi, kyrralífsmyndir (Stilleben) og hugarflugsmyndir. List hans ber stundum keim þjóð- félagsvandamáia, en er einnig táknræn, súrrealistísk eða blátt áfram byggð á leik frjálsra lína og forma. En það er alveg sama, hvað hann tekur sér fyrir hendur að gera, verk hans — með örfáum undantekningum — eru alltaf lík vélum, Mannsandlit hans, sem bú in eru til úr vélahlutum, likjast vélum úr fjarska. í fyrstu freistaðist David Smith oft til að sýna tæknikunnáttu sína, en nú leitast hann við að hafa verk sín sem einföldust í sniðum. Tjáningarform hans er hreint og hnitmiðað, og það verk- ar stundum á mann með rudda- legri áleitni, af því hann skapar ekki til að verða mönnum til geðs, heldur til að ýta harkalega við áhorfanda sínum langt inni í sál hans. KAUPMENN og KAUPFÉLÖG Hurðarskrár og húnar ýmsar gerðir aftur fyrirliggjandi. TRÉSKRÚFUR teknar upp í þessum mánðui. HEILDV. SIG. ARNALDS Stýrimannastíg 3 . Sími 14950 TIL SÖLU H jólbarðaverkstæði Til sölu er hjólbarðaverkstæði á góðum stað, mjög hentugt fyrir þá, sem vilja skapa sér sjálfstæða atvinnu. Góðir greiðsluskilmálar. Tilboð sendist af- greiðslu Vísis fyrir 17. þ. m., merkt: „Hjól- barðaverkstæði“. - BÍLAVAL - Nýi sýningarbíllinn DKV (Das Kleine Wunder) frá Mercedes Benz-verksmiðjunum er til sýnis og sölu ó sölusvæði okkar í dag. Kynnið yður hina hagstæðu skilmála. BÍLAVAL Laugavegi 90—92 . Símar 18966, 19092 og 19168 Hfolbarðaverkstæðið Millan Opin tlb daga trá 'U 8 að morgni til Kl 11 að kvöldi Viðgerðii á ails konai njólbörðum - Seljum einmg allai stærðii hjólbarða — Vónduð vinna — Hagstætt ve.ð - Gróska — Frh. af bls. 7. til að tjá sig á listrænan hátt, lírddi það til þess, að hann „fann upp“ hinar svokölluðu „hreyfan- legu“ höggmyndir. Aðrir hinna yngri bandarísku framúrstefnumanna, t. d. Stankie- wicz og Chamberlain, byggja höggmyndalist sína á alls kyns hlutum, sem fleygt hefur verið. Þessi listtjáningaraðferð hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að „hafa flutt öskuhaugana inn í lista heiminn". Þessari gagnrýni munu „skranhaugalistamennirnir" senni lega svara á þá lund, að skran- haugarnir séu partur af banda- rísku þjóðlífi rétt eins og Frelsis- styttan og Hvíta húsið. Frá málarapensli Hl logsuðutækja. Þætti tækninnar í framúrstefnu- iist Bandaríkjamanna verður kann ski bezt lýst með sögunni um David Sjmith. Hann gekk ungur í skóla fyrir listmálara í New York, en sakir styrjaldarinnar varð hann að hætta námi og hefja starf sem logsuðumaður I verksmiðju, sem framleiddi skriðdreka. Þegar hann að stríði loknu tók aftur til við listnám sitt, hvarf hann ósjálf- rátt frá málverkum til högg- mynda. — Litirnir urðu að fjall- háum haugum á léreftinu, segir hann. Einn góðan veðurdag rakst hann á nokkrar myndir af járn- höggmyndum Picassos, og hann tók sjálfur að spreyta sig á þess- •7' ií. >-• í<'\\ i i ■ . Lesandabréf: Fá óprestlærð- ir vígslu? Nýlega var smágrein í Vísi frá kirkjuþingi, sem þá'stóð yfir með fyrirsögninni, Fá óprestlærðir vígslu? Vissulega er hér um athyglis- verða hugmynd að ræða, sem er full ástæða til að gefa gaum þó fyrr hefði verið. Um tuttugu ára skeið hefi ég velt fyrir mér þessu atriði hvers vegna hefur ekki verið hægt fyrir trúhneigða leikmenn að fá aðgang að Guðfræðideild Há- skólans og öðlast vígslu á einfald- an hátt sem meðalgangar milli Guðs og manna, nema með löngu námi, sem verðandi fræðimenn. Margir eru þeir sem bera þá þrá I hljóði að verða opinber þjónn Guðs, en hafa ekki haft aðstöðu til skólanáms af fjárhagslegum ástæð um sem öðrum ástæðum. Það er óhætt að fullyrða að all- margir leikmenn á meðal þjóðarinn ar, innan kirkju og utan vildu ná því takmarki í lífi sínu að öðlast opinbera vígslu í húsi Guðs og verða síðan leiðtogar kristindómsins, án langrar skóla- göngu, en fá beinar aðgang að Guðfræðideildinni sem veitir þeim rétt sem undirprestar héraðs- prófasts, sem er lærðui á venju- legan hátt. Það fer ekki á milli mála að oft heyrist um það rætt að kirkjusókn sé mjög í hnignun sem veldur áhyggjum hjá kirkj- unnar mönnum, svo ekki verður um villzt. Við þetta vaknar sú spurning hvað kemur hér til að fjöldinn sinnir ekki kirkjunum nú sem fyrr, þegar guðþjónustur voru sem græðandi Iyf á athöfnum og lífi þjóðarinnar um aldir. Mér er nær að halda að veilan sé fólgin í því að það hefur ekki verið leitað eftir að gefa meðlimum kirkjunnar kost á að gerast predikarar sem óska af frjálsum vilja að glæða þar með starf kirkjunnar með beinni þátttöku leikmanna í predik unarstarfi sem er vísir að aukinni kirkjusókn til framtíðar blessunar í þessu sambandi verður að opna Guðfræðideild Háskólans fyrir þeim j almenningi sem vill eiga kost á I kennslu í Guðlegum fræðum með j það í huga að verða kirkjunnar | þjónar, sem gefur réttindi til prests vígslu og inni af hendi venjulega guðsþjónustu auk venjulegra at- hafna. Hin vökuli biskup landsins, ætti að gangast fyrir þessari nýbreytni ( hjá kirkju vorri, sem og gerist á meðal nágrannaþjóðanna og gefa hinum ómenntaða borgara tækifæri á hæfilegri menntun til boðunar kristninnar í landinu. Komið verði j í veg fyrir að trúhneigðir leikmenn leiti í sértrúarflokka. Kirkjan á að vinna að því að hinn trúhneigði borgari verði kyndilberi trúar og kærleika með frjálsri menntun sem skapar réttindi til helgrar þjónustu. Guðm. Guðgeirsson rakaram. Hafnarfirði. Bíla & búvélasalan SELUR: Chevrolet ’55, station. Mercedes Benz ’57-’60. Opel Capitan '61. Opel Caravan ’61 Consul ’62 VÖRUBlLAR: Volvo ’63 5 tonna. Mercedes ’60-’61. Chevrolet ’55-’61. Volvo ’55. Lóð í Kópavogi undir einbýlis- hús: Skipti á bíl. Blla & búvélasalan við Miklatorg. Shni 23136 Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum dögum niður við höfn er verið var að skipa upp vör- um, og í baksýn sést stolt okkar Reykvíkinga Esjan. ECópavogskirkia — Fran.hald aí bls. 1. arnir eru gefnir af Kvenfélagi Kópa vogs og bæjarsjóði Kópavogs. Kirkjuklukkur eru engar til enn, en þjóðminjasafnið hefur lánað klukkur til bráðabirgða, sem sett- ar verða upp fyrir utan kirkjuna. Síðar meir er ætlunin að byggja klukkuturn nálægt kirkjunni. Þá hefur verið pantað pípuorgel fyrir kirkjuna. Verður það byggt af Davies orgelverksmiðjunum í Eng- Iandi og verður 26 radda. Er von á því: í næsta júnímánuði. Höfundur kirkjuhússins er Hörð- ur Bjarnason, húsameistari ríkisins. Fyrsti aðstoðarmaður hans við upp drátt kirkjunnar er Ragnar Emils- son arkitekt. Ráðunautur um inn- réttingu og litaval er Hörður i Ágústsson listmálari. Alla verkfr,- | þjónustu við bygginguna hefur Almenna byggingafélagið annazt. en þetta er fyrsta húsið hér á landi, sem byggt er úr bogasteinsteypu. Raflagnir annaðist Jón Gauti raf- magnsfræðingur og byggingarmeist ari er Siggeir Ólafsson. Formaður byggingarnefndar er séra Gunnar Árnason og gjaldkeri nefndarinnar er Jósafat Líndal. For maður safnaðarnefndar er frú Hulda Jakobsdóttir. Aðsiíenningur — Framnalö aí bls 1 fleygt í sjóinn vegna ó- samkomulags þessara tveggja aðila. Almenn- ingur hlýtur að ætlast til þess og kref jast þess að endir verði bundinn hið bráðasta á þessa deilu. Þá spurði Vísir ráðherrann hvort ríkisstjórnin mundi ræða hina uggvænlegu þróun sem orð ið hefir i máli hessu nú síðasts sólarhringinn á fundi sínum í dag. — Ég tel það víst, sagði ráð- herrann. I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.