Vísir - 24.11.1962, Blaðsíða 6

Vísir - 24.11.1962, Blaðsíða 6
6 % VIS I R . Laugard^gur 24. nóvember 1962. Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík Kieópatra I Lido „Hér kemur Kleópatra", sagði Mr. Herbrich þegar Björk Guð- mundsdóttir gekk inn á sviðið i Lido s. 1. fimmtudagskvöld. Mr. Herbrich er sérfræðingur £ hárlitunum og er hér á landi til að kynna Clairol hárlitunarvörur, sem Heildverzlun Árna Jónssonar hef- ur umboð fyrir. Efnt var til tízkusýningar í Lidó og komu þar fram nokkrar stúlkur úr tízkuskóla Sigríðar Gunnarsdóttur, með hárið litað með Clairol hárlit og £ fötum frá Markaðnum. Liturinn á hári Bjarkar var brúnn og mjög eðlilegur. Hárgreiðslukona Bjarkar var Árdís Pálsdóttir, hárgreiðslustofunni „Femína". Aðalfundur Bandalags kvenna var haldinn £ Reykjavi'k dagana 12.—13. nóvember s. 1. Mörg mál voru tekin fyrir og birtist hér úrdráttur úr þeim ályktun- um og tillögum, sem gerðar voru. Bamagæzla: Fundurinn minnti borgarstjóm Reykjavfkur á hina brýnu þörf, sem væri á dvalar- stað fyrir börn, sem eru komin yfir aldurstakmark barnaheim- ilanna, en geta af ýmsum ástæð um ekki notið nauðsynlegrar aðhlynningar heima. í þvl sam- bandi var bent á þá leið, að Konur í fréttum Þær fréttir hafa borizt frá Belgfu, að samtök vefnaðarverk smiðja þar f landi hafi lýst því yfir, að engin belgfsk kona, sem ber virðingu fyrir sjálfri sér, vilji nota mjaðmabelti eða brjóstahaldara, sem saumaðir era í vél. Slíkir hlutir eiga að tekið verði á leigu húsnæði f nágrenni nokkurra skóla bæjar ins, og þar rekin dagvistarheim- ili fyrir 6—9 ára börn og hefðu börnin þar alla þá aðhlynningu og eftirlit, sem þeim er nauðsyn legt. Áfengismál: Fundurinn telur, að ekki megi verða við óskum veitingamanna um að lengja vfn veitingatímann um klukku- stund og leggja niður „þurra daginn“, slíkt muni aðeins auka drykkjuskap. Gengið verði rfkt eftir þvf við starfsfólk Áfengis- verzlunar ríkisins, að selja ekki vera gerðir af mikilli vandvirkni og tilfinningu — segja þeir. * 1 Bretlandi, eins og svo víða annars staðar, er mikill skortur á hjúkrunarkonum. Gert er ráð fyrir að fjórði hluti þeirra, sem nú stunda sjúkragæzlu, hafi ekki hlotið neina menntun til slíkra starfa. Þær útlærðu segja þegar gangastúlkur fá næstum að ekki sé að undra, að ungar stúlkur vilji ekki læra hjúkrun, því sömu laun og útlærðar hjúkrunarkonur. öðrum áfengi en þeim, sem rétt hafa til þess að kaupa það. Einnig verði gengið rfkt eftir þvf að unglingum verði ekki selt áfengi á skemmtistöðum eða á útsölustöðum Áfengisverzlunar- innar. Skorar fundurinn á borgar- stjórn að taka upp sama hátt og bæjarstjórn Akureyrar að láta loka sjoppum á sama tíma og öðrum verzlunum. Nauðsyn- legt sé þó að hafa nokkrar mat- vöruverzlanir opnar fram eftir á kvöldin. Tryggingamál: Fundurinn fagn ar því, að ríkisstjórnin lætur nú fara fram heildarendurskoðun á almannatryggingalögum og Ieggur hann áherzlu á, að í lög verði tekin ýmis atriði, er þýð- ingarmikil eru, m. a. að greidd- ur sé lífeyrir með barni látinnar móður á sama hátt og nú er með barni látins föður. Barna- lífeyrir vegna munaðarlausra barna sé greiddur tvöfaldur. Fjölskyldubætur;;;séu 'greíddar jafnt vegna allra barna. Ófeðr- uð börn fái sömu réttindi og feðruð. Bamalífeyrir eða meðlag verði hækkað svo að það verði % af ellilífeyrisupphæð. Skólaheimili og skólamál: Fundurinn telur að stofnun og starfræksla skólaheimilis fyrir stúlkur sé mjög aðkallandi og treystir biskupi og þjóðkirkj- unni til að taka málið í sínar hendur til úrlausnar. Hraðað verði byggingu skóla, svo að hægt sé að útrýma þrí- setningu í kennslustofum barna skólanna og tvísetningu í ungl- inga- og gagnfræðaskólum. Fundurinn fagnar því, að tekin hefur verið upp sala á mjólk í skólum bæjarins en vill, að jafn framt verði tekin upp sala á inn pökkuðum brauðsamlokum. Skorað var á borgarstjórn Reykjavíkur að auka sálfræði- þjónustu þá, sem hafin er í skól um bæjarins og að skapa sem fyrst viðunandi aðstöðu til kennslu afbrigðilegra barna. Heilbrigðismál: Fundurinn lýsti ánægju sinni yfir vakandi áhuga Krabbameinsfélagsins til útrýmingar krabbameini. Skor- að er á heilbrigðisyfirvöldin að hlutast til um, að sala á sígar- ettum í stykkjatali verði bönn- uð, þar sem mikil hætta er á þvf, að börn læri að reykja á þann hátt, ennfremur stafi mikil smitunarhætta af óhreinum höndum afgreiðslufólks. Verðlags- og verzlunarmál: Fundurinn skorar á skókaup- mannasamtökin að beita sér fyr ir að framleitt verði innanlands og innflutt meira af skófatn- aði, sem hentar íslenzkum stað- háttum og veðurfari. Að skórnir séu smíðaðir svo að þeir fari vel með fæturna. Að góðir barnaskór séu ávallt fáanlegir og einnig hlífðarskár kvenna. Skorað var á Alþingi að beita sér fyrir, að verðlag á ínýjum og þurrkuðum ávöxtum lækki stórlega frá því sem nú er, svo að þeir geti orðið dagleg fæða almennings. Fundurinn lýsti á- nægju sinni yfir þvf sem áunn- izt hefur með byggingu íbúða á vegum borgarinnar, en álítur þó nauðsynlegt, að Reykjavíkur- bær hafi forgöngu um áfram- haldandi byggingu íbúða, sem seldar verði eða leigðar með góðum kjörum. Skorað var á stjórnarvöld landsins og löggjaf arþing að aflétta að verulegu leyti söluskatti og innflutnings- gjöldum af brýnustu nauðsynja- vörum. Fundurinn telur nauðsynlegt, að afgreiðslufólk hafi þekkingu á þeim vörum, sem það er að selja. Á þetta einkum við um fatnaðarvörur. Æskilegt væri að verzlanir borgarinnar gefi fólki kost á að gera innkaup sín eftir venjulegan vinnutíma, t. d. með því að sérverzlunarhópar skipt- ist á um að hafa opið eitt kvöld í viku. Fundurinn beinir að lokum þeirri ósk til foreldra og ann- arra uppalenda að þeir temji sér kirkjuferðir með böm sín, sjálfum sér og þeim til and- legrar uppbyggingar. Stjörn bandalagsins skipa nú: Aðalbjörg Sigurðardóttir, for- maður, Guðlaug Bergþórsdóttir, varaformaður og gjaldkeri, og Eygló Gfsladóttir ritari. Sýning á bnznr- munuin Hringsins Kvenfélagið Hringurinn mun halda bazar 2. des. n.k. til á- góða fyrir Barnaspítalasjóð félagsins. Nú um helgina verða bazarmunir til sýnis í glugga verzlunarinnar Álafoss á homi Þingholtsstrætis og Bankastræt- is. Haraldur á biðilsbuxum? Mikið er um það rætt f Nor- egi um þessar mundir, að Har- aldur rfkisarfi kunni senn að fastna sér konu. Er talað um, að Irene, 21 árs gömul dóttir Grikkjakon- ungs, kunni að verða drottning f Noregi, þegar Haraldur tekur við eftir föður sinn. Haraldur er um þessar mundir á skemmti siglingu á Miðjarðarhafi með grísku konungsfjölskyldunni. Hvernig ætli að karlþjóðinni yrði við ef þið kæmuð í kvöldsam- kvæmið í þessum skálmavíðu síðbuxum, sem eru úr appelsínurauðu silki? Þessi búningur kom fram á tízkusýningu í London, en hvernig honum var tekið af áhorfendum vitum við ekkl. Stírsááa

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.