Vísir - 24.11.1962, Blaðsíða 7

Vísir - 24.11.1962, Blaðsíða 7
V1SIR . Laugardag 24. nóvember 1962. lifr’áa '/Wám&//(ámZZ?/y//£ fcu—] Z////////Æ int huitjuitt Laugardagur 24. nóv.: Haustmót í badminton. Keppt í nýliða og kvennaflokki. Keppt í Valshúsinu og hefst keppni kl. 16,20. Um næstu helgi verður keppt í meist- araflokki karla og 1. flokki. Keppn ; in er forgjafarkeppni. Handknattleiksmót Reykjavíkur j (yngri flokkar) í kvöld kl. 8,15 að Hálogalandi. Margir spennandi leik ir, enda úrslit að skýrast í flestum flokkum. Sunnudagur 25. nóv.: Handknatt leikur að Hálogalandi kl. 16,00. Leika þá Evrópubikarliðið Fram og FH. Er þetta hiklaust íþróttavið- burður helgarinnar, enda margir óskað eftir að sjá þessa aðila leika saman eftir að Framarar léku við Skovbakken, þar eð margir telja Fram orðið sterkara en FH. Leik- urinn er fyrsti leikur FH á þessu keppnistimabili. Handknattleiksmót Reykjavikur er svo kl. 20,15 um kvöldið að Hálogalandi, en þá eru yngri flokk arnir við völdin, að undanskildum leik Víkings og Ármanns í mfl. kvenna. © Atletica vann Benfica í hand- knattleik með 13:6 í Evrópubik- arnum í handknattleik og kemst þar með áfram í keppninni og mætir næst frönsku meisturun- urn PUC í tveim Ieikjum, heima og heiman. Áhorfendur að leik Ateltico og Benfica voru yfir 8000, en leikurinn fór fram í íþróttahöll Madrid. Á röksfólum Um helgina fara fram þrjú þing íþróttasambanda, Knattspymusam- bandsins, Körfuknattleikssambands ins og Frjálsíþróttasambandsins. Þing KSf hefst í dag kl. 2 og er haldið í húsakynnum SVFÍ við Grandagarð. KKÍ-þingið kemur sam an í félagsheimili Vals að Hlíðar- enda á morgun kl 2, en FRÍ-þing hefst í dag kl. 4 í samkomusal Sambandshússins, en heldur áfram kl. 2 á sunnudag. Sagt verður frá þingurn þessum eftir helgina. FRIMERKI og SAFNARAR Frönsk málverkafrímerki I' fyrra tóku Frakkar upp á því að gefa út frfmerki með myndum af frægum frönskum málverkum. Þessi frímerki eru alveg sérstök í sinni röð, fyrir það hve þau eru vandlega prent uð í náttúrlegum litum og til þess að málverkin komi vel fram 'eru frímerkin talsvert stærri en venjulega og komast þó sæmilega fyrir á meðalstór- um umslögum. Fyrstu fjögur frímerkin af þessari gerð komu út 1961 og sýndu þau myndir eftir Bra'que, Matisse, Cesanne og de la Fres- naye. Þetta voru þannig módern istar og eðlilegt myndi nú hafa verið talið að Picasso væri í Málverk Manets. hópnum, en einhvern veginn er það svo, að þó hann hafi starf- að alla sína ævi i Frakklandi, geta Frakkar ekki gleymt því að Picasso er Spánverji að fæð- ingu. ★ Nú þann 12. nóvember gáfu Frakkar út þrjú ný málverka- frímerki og að þessu sinni velja þeir nokkuð annan handlegg, eða fræg natúralistísk málverk. 'é Það er óhætt að segja að öll þessi þrjú málverk eru heims- : fræg, þekkt í listasögunni. Á ; 65 centima merki er mynd af málverki Courbet: „Komið þér : sælir herra Courbet“, á 65 i centima merki er málverk Man- jj ets „Frú Manet í bláum sófa“, ; og 1,00 franka merki er rnál- verk Gericaults „Riddaraliðsfor ingi á hestbaki“. Það er auðséð að svona frí- merkjaútgáfa er auðveldust þjóð eins og Frökkum, sem hef ur gegnt forustuhlutverki í mál aralist heimsins og menn um allan heim kannast samstundis við þær heimsfrægu myndir, sem þar birtast. En væri nú ekki hægt þrátt fyrir það að heimsfrægð skortir að gera þetta sama á íslenzkum frí- merkjum og velja t. d. einhvern tíma í frímerkjaseríu sitt hverja myndina eftir þá meistarana Ásgrím, Jón og Kjarval? ★ Hin frönsku frímerki eru sér- stæð í sinni röð fyrir það hve vel til þeirra er vandað og þau prentuð í fullum litum. En það er víðar en í Frakklandi, sem málverk meistaranna eru látin skreyta frímerki. Þar ganga Spánverjar nú lengst allra, en þeir hafa á síðustu árum gefið út hverja málverkaseríuna á fæt ur annarri, en frímerkin eru öll prentuð í einum lit. Árið 1958 , gáfu þeir út seríu með tíu mál- verkum éftir Goya, 1959 komq út 10 frímerki með málverkum eftir Velasques, 1960 enn 10 frí merki með máiverkum Murillos, 1961 komu 10 málverk E1 Gre- cos og í ár komu enn út 10 málverkafrímerki nú með verk eftir Zubarban. Hollendingar hafa lítillega farið út á þessa braul, gefið út frímerki með myndum eftir Rembrandt. Þá hafa Austur- Þjóðverjar gefið út þrjár seríur með frægum málverkum af lista söfnum í Dresden og eru sex málverk í hverri seríu og ekki bundið við að málararnir hafi verið þýzkrar ættar. ★ Flestir þeir sem safna frí- merkjum einbeita sér að því að safna einstökum Iöndum, hitt er k-t ><. ! f h vNC^iSJE, œ*? Þessi mynd sýnir vígvöllinn að afloknum leik Fram og FH, síðast þegar liðin mættust, en þá vann Frant og krækti með því í fslandsmeistaratignina. Aðdáendur Framara þyrpast inn á völlinn til að fagna kemp unum. Leikur liðanna að þessu sinni er stórt spurningarmerki. Tekst Fram að sigra að þessu sinni og þar itieð viwna'Sér álmenningsálit sem bezta handknattleiksfélagið, eða tekst FH að sigra í sinni fyrstu orustu á þesSu keppnistimabili. Ur þessu fæst skorið á morgun þegar Iiðin mætast að Hálogalandi. Deilt um keisarans skegg - tolla- og viðskipta- samningur þið sama og aukaaðild — fórnir eru óumflýjanlegar. !: Málverk Courbets. ekki síður skemmtilegt að safna ákveðnum viðfangsefnum og þá kannski við hliðina á einhverju landi. Það verður oft meira fræðandi. Einn möguleikinn er að safna málverkamerkjum. Þau eru enn tiltölulega fá, en Iíkur benda til að slíkt fari að breiðast út með bættri prent- tækni,^ ||g Skýrsla ríkisstjórnarinnar ura Efnahagsbandalagið var á dag- skrá í Sameinuðu þingi I gær. Tveir töluðu, þeir Eysteinn Jónsson og Bjarni Benediktsr son. Eysteinn talaði á undan, og þótt nokkuð sé búið að rekja rök Framsóknarflokksins hér í dálkinum áður og varla þess virði að gera rnikið úr mál- flutningi þess flokks, þá er réit að telja fram þau atriði, scm veigamest voru í ræðu Ey- steins. 1) Miðstjórn Framsóknar- flokksins hefur ályktað að bezt sé að tengjast EBE með tolla og viðskiptasamningi, en ekki aukaaðild, þar sem um gagn- kvæma tilslökun verði að ræða. 2) Framsóknarflokkurinn trú- ir því ekki, að hinn vestræni heimur sé að kljúfa sig niður í bandalög, til að 'setja höft á hvert annað, og að flokkurinn treystir því að ráðamenn F.BE sýni okkur skilning og vináttu þegar á reynir. 3) Eysteinn leggur mikla á- herzlu á, að sannfæra stjórn- arflokkana um að Framsókn sé ekki á móti þeim, hún vilji einmitt fa aðra þá Ieið, sem ríkisstjórnin hefur bent á, að l'ærar séu. 4) íslendingar verða að fara varlega í þessum málum, flýta sér ekki, bíða og sjá hverju fram vindur. 5) ísland á aðeins að hugsa um viðskiptasamning, við höf- um ekki hagsmuna að gæta annars staðar, og þar eigurn við að reyna að ná eðlilegum viðskiptum. 6) Hætta skal öllum ;viðræð- um. íslendingar eiga ékki að ræða við erlenda aðila fyrr en búið er að taka ákveðna nf- stöðu i.-. heima. Bjarni Benediktsson gerði bæði ræðu Eysteins og ræðu Þórarins, sem talaði um málið í fyrradag, nokkur skil. Hann kvað það hafa komið fram hjá Framsókn uð þeir vildu við- skipta- og tollasamning. ekki aukaaðild. Á þessu er þó eng- inn .Jlismunur. Viðskiptasamn iqgar eru nánast ein útgáfan af aukaaðild, hér væri aðeins um orðaleik að ræða. Þarna er deilt um keisarans skegg. Sú full- yrðing að aukaaðild sé sama og full aðild, vegna þess áð aukaaðildarsamningur Grikkja mælir svo fyrir, að af tilteknum tíma liðnum verði um fulla að- ild að ræða, er einnig rangur. Það sést bezt á því, að hin svo kölluðu hlutlausu ríki í Evrópu, Svíþjóð, Sviss og Austurríki hafi sótt um aukaaðild, sem mun standa um allan aldur ó- breytt. Þá er það ilit verk Framsókn- armanna að fullyrða að hægt sé að fá hagkvæma lausn, með því að gera tolla- og viðskipta- v samning. Málið er ekki svo auð velt, veröldin er ekki ennþá svo blíð, að hún láti okkur allt í té, en vilji ekkert fá í stað- inn. Það fer ekki eftir formi um sóknar okkar um hvað ráða- menn EBE vilja tala um, og vilja semja _m, og þótt þeir séu vinveittir okkur og sýni skilning, þá verður alls ekki hlaupið að því að koma þeim í fullan skilning um málefni íslands. Þeir vilja að sjálfsögðu eitthvað fá fyrir snúð sinn. Ráðherrann tók undir þau orð Framsóknarmanna, að það væri nauðsynlegt og óhjákvæmi legt fyrir íslendinga, að ná samningum við Efnahagsbanda lagið. Og það um fleira en tolla mál. Ákvarðanir bandalagsins f sjávarútvegsmálum geta orðið íslendingum afdrifaríkar — þær geta ráðið öllu um afkomu okkar. Við verðum því að vera í að- stöðu til að láta í okkur heyra. nctttMKiiw-a '• ! -janh.-a-..

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.