Vísir - 07.01.1963, Blaðsíða 11

Vísir - 07.01.1963, Blaðsíða 11
VÍSIR . Mánudagur 7. janúar 1963, NO AAATTER HOW BAP THINSS ARE, VOU MUST NEVER ----- PO ANYTHINO UKE . THAT/ ___1 ' PIEASE, YOU PON'T a,.KNOW... stjörnuspá morgundagsins Hrúturinn, 21. marz til 20. aprfl: Þér mun\reynast nauð- synlegt að beina ðskiptri at- hygli þinni að heimili þfnu og hinu daglega athafnasviði þínu. Bjóddu vinum þfnum heim til þín í kvöld. Nautið, 21. aprfl til 21. maí: Þér ættu að áskotnast góð tæki færi til þess að koma skoðun- um þínum á framfæri í dag sér- staklega við nágrannana eða nána ættingja. Smá ferð er hugsanleg í þessu sambandi. Tvíburamir, 22. maí til 21. júní: Áherzla er á fjármálun- um hjá þér í dag og því hag- stætt að leita nýrra og hald- betri aðferða til að auka við tekjustofn sinn. Varastu skeyt- ingarleysi í þessum efnum nú. Krabbinn, 22. júní til 23. júlf: Þú ættir að gera þér umhugað um útlit þitt og framkomu f dag, þar eð aðrir hafa nú tals- verða tilhneigingu til að taka meira eftir þér heldur en að vanda lætur. Ljónið, 24. júlf til 23. ágúst: Þú ættir fremur að halda þig f skugganum f dag þar eð straum arnir kunna nú að reynast þér í mörgu tilliti andsnúnir. Hafðu ekki hátt um þau samtöl sem þú kannt að eiga við aðra nú. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept. Hafðu samband við vini þína ef þú skyldir eiga við erfið vanda- mál að stríða núna, ráðlegg- ingar þeirra mundu reynast þér haldgóðar. Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Þú ættir að halda þig að göml- um öruggum aðferðum við vinnu þína og vera samvizku- samur. Gættu þess að aðhafast ekkert það, sem getur skaðað mannorð þitt. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Allt bendir til þess að þú eigir í vændum óvænta aðstoð vina þinna og kunningja síðla dags- ins. Þú ættir að forðast að skeggræða mikið trúarleg og stjórnmálaleg efni. Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Þú ættir að hafa allt á hreinu varðandi þau fjármál, sem þú átt sameiginleg með öðrum. Ekki ósennilegt að þú fáir einhverjar snjallar hug- myndir á sviði fjármálanna. Steingeitin, 22. des. til 20. jan.: Straumarnir eru þér nú fremur andsnúnir og það er annarra að hafa frumkvæðið við framkvæmd hlutanna. Þú skalt þvf leitast við að sýna fullan samstarfsvilja. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.: Horfur eru á að þú kunn- ir að vera fremur illa fyrir kall- aður til vinnunnar að minnsta kosti fyrri hluta dagsins, en þú ættir að geta bætt það upp seinni hlutann. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz: Þú getur framfylgt á- hugamálum þfnum bezt með því að leita ráða og samstarfs annarra, sem komið geta þér að haldi undir þessum kringum- stæðum. Hagstætt að skemmta sér i kvöld. „Kenton lætur ekki á sér standa. Hann hefur þegar hitt Tashiu“. „Og hann heldur að hún kenni f brjósti um hann.“ „Það er gott að ég aðvaraði hana.“ „Hversu illa sem allt gengur hjá yður megið þér aldrei gera neitt líkt þessu.“ 9oo Þér skuluð endilega gefa yður góðan tfma — ég tók mér frí á skrifstofunni til hins sama. I Slysavarðstofan I Heilsuvemdar- stöðinni er opin allan sólarhring inn. — Næturlæknir kl. 18—8, sími 15030. Neyðarvaktin, sími 11510, hvern virkan dág, nema la. ^ardaga kl 13-17 Næturvarzla vikuna 5.— 11 jan- úar er f Reykjavíkur apóteki. Ctvarpið Mánudagur 7. janúar. Fastir liðir eins og venjulega. 13.15 Búnaðarþáttur: Á nýju ári (Dr. Halldór Pálsson búnaðarmála- stjóri). 13.35 Við vinnuna, tónleik- ar. 14.40 Við, sem heima sitjum": Jóhanna Norðfjörð !es úr ævisögu Grétu Garbo. 17.05 Tónlist á atóm öld (Þorkell Sigurbjörnsson). 18.00 Þjóðlegt efni fyrir unga hlustend- ur (Ingimar Jóhannesson). 18.30 Lög úr kvikmyndum. 20.00 Um daginn ög veginn (Páll Kolka lækn ir). 20.20 Sinfóníuhljómsveit ís- lands leikur íslenzka tónlist. 20.40 Á blaðamannafundi: Arinbjörn Kol beinsson formaður Læknafélags Reykjavíkur svarar spurningum. Spyrjendur: Baldur Óskarsson, Haukur Hauksson og Þorsteinn Ó. Thorarensen. Stjórnandi: Dr. Gunn , ar Cchram. 21.15 Tónleikar: Gítar lei’karinn Laurinde Almeida o. fl. leika og syngja. 21.30 Otvarpssag- an: Felix Krull eftir Thomas Mann, 22.10 Hljómplötusafnið (Gunnar Guðmundsson). 23.00 Skákþáttur fGuðmundur Arnlaugsson). 23.35 Dagskrárlok. Wemer Schrimpf frá Wiesbad- en í V-Þýzkalandi, sem er þekktur kappsiglingamaður á vélbátum ,setti nýlega heims- met á Spandau-skipaskurðinum í Vestur-Berlín í hraðsiglingu báta með 350-500 rúmsenti- metra strokki. Náði hann 122,61 km. hraða á kist. en eldra metið fyrir þennán flokk véibáta átti Finni að nafni Fagerström og var það 116,67 km. á klst. Vél sú, sem Schrimpf notaði, var af venjulegri gerð utanborðs- véla, og hafði ekki á neinn hátt verið breytt með það fyrlr aug- um, að unnt væri að nota hana til að setja met. Ýmislegt Tekid á móti tilkynningum i bæjarfréttir i sima 11660 Kvenfélag Háteigssóknar. At- hygli skal vakin á því að öldruð- um konum í Háteigssókn er boð- ið á jólafund félagsins í Sjómanna skólanum þriðjudaginn 8. janúar kl. 8. Þar verður m.a. kvikmynda- sýning (Vigfús Sigurgeirsson), Upp lestur (Emilía Jónasdóttir), kaffi-1 drykkjd. . ; Kvenfélag Laugarnessóknar held-, ur nýársfund í kvöld (mánudag) kl. 8.30 í fundarsal félagsins. Spil- i að verður bingó. Mætið stundvís- lega. ; >' ! Blaðið hefur verið beðið að ; geta um að hinn árlegi fundur j „roskinna stúdenta“ 50 ára og eldri, verði 9. þ. m. kl. 3 á 2. hæð í austurenda Elliheimilisins Grund Forseti íslands, hr. Ásgeir Ásgeirs son, einn af yngstu stúdentunum, 2 elztu stúdentarnir, Karl Einars- son, fyrv. bæjarfógeti og Halldór Júlíusson fyrrv. sýslumaður, sömu leiðis sr. Bjarni Jónsson vígslu- biskup og fleiri munu væntanlega minnast þar á minningar sínar frá Latínuskólanum. 50 ára stúdentar og eldri hafa verið 55 til 70 undanfarin ár og langflestir búsettir í Rvík. 36 stúd entar „frá fyrri öld“ sóttu fyrsta fundinn ,sem haldinn var 1950 á Elliheimilinu. Forseti Islands, hr. Sveinn Björnsson var í þeim hópi. Fimm árum síðar voru þessir stúd entar alls 69 og 40 þeirra frá fyrri öld. Nú eru þeir ekki nema 4 eftir frá 19. öldinni ,þeir tveir, sem þegar eru nefndir (frá 1895 og 1896 og tveir frá 1897: sr. Sigur- björn Á. Gíslason og Jóhannes Jóhannesson, læknir vestur í Kali- forníu. Um þessar mundir eru 50 ára stúdentar og eldri um 50 og þriðjungur þeirra frá 3 síðustu ár- unum (1910-1912.). ., ^íiBBaMMSM«BaaaaE^aaEtaaB8aHMg5SB5f ~ - • > Um sex-leytið er torvelt að aka á aðalbrautum, því umferðin kemst þá í hámark í Reykjavík. En verst er ef bilarnir víxlast á vegunum blautum, þá voðinn er búinn, er umferðin geysar slík. Néi, þá er nú betra að tölta á tveimur fótum, þá tekst mönnum oftast að komast jafngóður heim. Þótt stundum sé vegurinn alsettur grjóti og grjótum, með gætni má oftastnær komast fram hjá þeim. G. Ág. certainly WORKS FAST.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.