Vísir - 28.01.1963, Side 5
V í SIR . Mánudagur 28. janúar 1963.
5
Bþróttir —
Framhald af bls. 2.
arar tóku fljótt frumkvæðið og
voru aldrei í hættu. K.R. hefur
undanfarið sýnt framfarir í leik
sínum, en þótt Ieika full hart og
ruddalega. Nú brá svo við, að lítið
sást til þeirra af þvf tagi og ber
að fagna því. Framarar léku aftur
á móti fast og ákveðið, fjölbreyttir
í leik sínum með falleg langskot
og skemmtilegar sendingar inn á
línu. Er leikur liðsins sá bezti og
fjölbreyttasti sem sázt í 1. deild
á þessu móti.
í hálfleik hafði Fram náð ör-
uggri forystu, 18—11, en þann
síðari unnu þeir með aðeins
tveggja marka mun. Endanleg úr-
slit urðu 33 — 24, eða 57 mörk í
það heila. Þetta er mikill marka-
fjöldi, en ósköp venjulegur nú
orðið í klukkutíma leikjum. Þess-
ar tölur eru í rauninni allt of háar
og bera vott um slæman varnarleik
beggja aðila, enda virðist svo sem
liðin yfirleitt leggji meiri áherz'iu
á sókn og skothríð en traustan
varnarleik. Sumir hafa gaman af
að sjá mikið af mörkum, en þetta
gerir leikina oft lélega og til-
breytingarlausa, þar sem Iitlu hug-
myndaflugi og skemmtilegum út-
færslum þarf að beita til að skora
mark.
Lið Fram var í þessum leik, eins
og undanfarið, mjöf jafnt, en einna
beztir voru Erlingur og Sigurður
Einarsson, Hjá K.R. var beztur
Sigurður Óskarsson, sem er að
verða okkar bezti varnarleikmað-
ur, en K.R.-ingar nýta ekki sem
skyldi hæfileika hans í sókn, þar
sem hann er mjög hættulegur á
linu, en of lítill gaumur gefinn af
stórskyttunum, sem hæglega geta
sent honum knöttinn 1 opnu færi
mun oftar en þeir gera.
Dómari var Daníel Benjamíns-
son, og dæmdi hann vel.
Kormákr.
Skylda okkar —
Framhald aí hls. 1
því eftir megni að draga úr
þeirri áhættu. Skynsamleg lög-
gjöf, löggæzla og dómgæzla eru
mikilvægir þættir í þeim efnum.
Sömuleiðis verklegar fram-
kvæmdir á sviði vegagerðar og
ýmiss konar fræðslujtarfsemi. Á
öll þessi atriði ber að leggja
aukna áherzlu, en það kemur þó
ekki að fullu haldi nema hver
borgari geri skyldu sína, fari
eftir settum reglum og sýni
árvekni og aðgæzlu í umferð-
inni.
| skammdeginu er ástæða til
að brýna fyrir öllutn veg-
farendum sérstaka varúð vegna
erfiðra umferðarskilyrða. Lög-
rcglan vill enn einu sinni beina
þeirri áskorun til almennings að
vera vel á verði gagnvart slysa-
hættu umferðarinnar. Hver ein*
asti gangandi eða akandi veg-
farandi verður að gæta þeirrar
skyldu sinnar að sýna fyllstu
varúð. Með þvi geta þeir dregið
úr slysahættunni.
Hlutaveltu-
huppdrætti KR
Dregið var hjá Borgarfógeta í
hlutaveltuhappdrætti í KR í gær
og komu upp eftirtalin númer:
7873 (Færeyjaferð), 1462 (úttekt
kr. 1000) og nr. 2504 (úttekt kr.
1000). Ávisana má vitja til Gunn-
ars Sigurðssonar, Tryggvagötu 23
Sameinaða).
Sjálfstæðismenn og Framsókn af-
greiða fjárhagsáætlun HafnarfjarSat
Á laugardaginn var haldinn
fundur í bæjarráði Hafnarfjarð-
ar og var þar samþykkt með at-
kvæðum Sjálfstæðismanna og
Framsóknarmanna að halda á-
fram afgreiðslu fjárhagsáætlun-
ar. Voru þar einnig samþykktar
nokkrar breytingatillögur fra
bæjarstjóra Hafsteini Baldvins-
syni. Á fundinum bar Kristinn
Gunnarsson, fulltrúi Alþýðufl.,
fram tillögu um að fresta afgr.
fjárhagsáætlunar með þvi að
allt væri í óvissu um stjórn bæj
arfélagsins. Þessi tillaga var
felld með 2 atkv. gegn 1. Þá til-
kynnti fulltrúi Alþýðuflokksins
að hann myndi ekki leggja fram
neinar breytingartillögur við
fjárhagsáætlunina fyrr en á bæj
arstjómarfundi.
Við lok fundarins bar fulltrúi
Alþýðuflokksins fram tillögu,
þar sem hann skoraði á bæjar-
stjórann að hefja undirbúning
nýrra bæjarstjórnarkosninga og
yrði það þýðingarmest til und-
irbúnings þeirra að bæjarstjór-
inn segði af sér. Fulltrúi Fran:-
sóknarmanna, Jón Pálmason,
bar fram frávísunartillögu og
var hún samþykkt.
Fjárhagsáætlunin verður síð-
an rædd á bæjarstjómarfundi á
morgun og benda allar líkur til
að hún verði samþykkt með at-
kvæðum Sjálfstæðismanna og
Framsóknarmanna.
Tónverkií ,Flökt'
á alþjóðahátið
Ætfleiðing —
Framh aí öls lb.
af fósturforeldrum þegar þeim
sýnist, eins og nú er hægt.
Virðist Kvenréttindafélagið
fremur hallast að því að börn
séu tekin í fóstur en ættleidd
undir flestum kringumstæðum,
en vill þó ekki girða fyrir ætt-
| leiðingar, sem fyrr segir.
Athyglisvert er að ekki er starf
andi sérstök nefnd eða stofnun
sem foreldri ber að snúa sér
til áður en ættleiðing fer fram.,
og telur Kvenréttindafélagið
nauðsynlegt að slíkri stofnun
sé komið á fót en nú má hvaða
foreldri sem er, sem hefir for-
ræði barns, gefa það gegn vilja
hins foreldrisins sem í flestúm
tilfellum er faðirinn. Framan-
greint er samkvæmt upplýsing-
um sem komu fram í viðtali
við Sigríði J. Magnússon for-
mann Kvenréttindafélagsins.
Systkin voru trúlofuð
Blaðið hefur aflað sér óyggj-
andi sannana fyrir slysalegum
tilvikum úr daglega lífinu f sam
bandi við ættleiðingar, sem
mjög eru famar að tíðkast hér
á Iandi. Það var ekki alls fyrir
löngu að piltur og stúlka trú-
lofuðust, sem út af fyrir sig
er ekki í frásögur færandi. En
þá gerðist það að faðir stúlk-
unnar kom að máli við piltinn
og kvað óhjákvæmilegt að rifta
þessari trúlofun þar eð hann
(pilturinn) vaeri sonur sinn og
þá bróðir stúlkunnar, en piltur
inn hafði verið ættleiddur og
kjörforeldrar ekki Iátið honum
í té vitneskju um kynforeldra
hans. í ályktunum Kvenréttinda
félagsins er það einmitt átalið
að kjörforeldrar láta slíkt und-
ir höfuð Ieggjast, en til viðbótar
má benda á að kjörforeldrum
er ekki ætíð kunnugt um hina
eiginlegu kynforeldra barnsins,
a.m.k. oft alls ókunnugt um
föður þess og er þá fyrir hendi
sá möguleiki að systkin geti
gengið í hjónaband áður en kyn
foreldrum þeirra hefur gefizt
ráðrúm til að koma í veg fyrir
það.
Kjörfaðir kvæntist
kjördóttur.
Þess eru einnig dæmi hér á
Iandi að kjörfaðir hefur kvænzt
kjördóttir sinni, en það er eigi
bannað með ættleiðingarlögun-
um heldur upphefst aðeins ætt-
leiðingin í slíkum tilfellum og
maðurinn, sem áður var kjör-
faðir stúlkunnar, varð eigin-
maður hennar. Það mun áreiðan
lega fleirum en kvenréttinda-
ko....m þykja tfmi til komin að
afnema þessa lagaheimild svo
mjög sem hún stríðir gegn
heilbrigðri velsæmi^tilfinning-
um.
Hæstaréttardómur.
Þess eru allmörg dæmi að
verðandi mæður heiti tilteknum
hjónum því að gefa þeim böm,
sem hcer ganga með gegn ein-
dregnum vilja barnföðursins.
Dómur hefur fallið fyrir hæsta
rétti í slíku máli. Vanfær stúlka
hafði heitið miðaldra hjónum
þvf að gefa þeim barnið, sem
hún gekk með. Þegar barns-
faðirinn frétti þetta bað hann
barnsmóður sína þess lengst
allra orða að gefa barnið ekki,
en hún sat við sinn keip og
þessi miðaldra hjón fengu barn
ið og ættleiddu það. En að fáein
um árum snérist barnsmóður-
inni hugur og vildi hún nú upp
hefja ættleiðinguna og taka
barnið til sín. En hún tapaði
þessu máli fyrif hæstarétti. Þyk
ir þetta gott dæmi um það hve
varhugavert það er að selja
ungum og óreyndum barns-
mæðrum sjálfdæmi um það með
lögum að gefa frá sér börn
sín, og það gegn eindregnum
mótmælum barnsföðurins eins
og í fyrnefndu tilfelli, þvf að
oft getur ungum mæðrum snú-
izt hugur og þær dauðsjá eftir
öllu saman svo lengi sem þær
lifa.
Víðtæk leif —
Framh. af bls. 1
var, rigning og hvassviðri. Ekki
er hægt að segja með vissu í
þessu tilfelli hvort hundurinn
hefur verið á slóð mannsins.
Þegar þessari leit Iauk var far-
ið með Nonna heim til sín.
Var hann orðinn allslæptur eft-
ir mikið starf síðasta sólar-
hring. En eftir að hann hafði
fengið að éta sofnaði hann.
Marino Guðmundsson, gæzlu
maður. Nonna sagði að þessi
leit að manninum hefði verið
erfið vegna þess, að hann
myndi hafa fyrir sið að ganga
um svæðið og kunni hundur-
inn að liafa rekið gamla slóð
hans. Um það er ■ annars ekki
vitað með vissu, þar sem slóð
- mannsins í nótt er ekki þekkt.
Ég er þess nú fullviss, sagði
Marino, eftir þær æfingar og
leitir, sem fram hafa farið, að
hundurinn er 100% öruggur.
Kommúnistar —
I- amhald at 16 sfðu:
kjörskrána. Tóku þeir á kjörskrá
menn sem mjög hæpið er að úr-
skurða’ hefði mátt inn en Iýstu
hins vegar ógilda atkvæðaseðla,
sem báru með sér greinilega vilja-
vfirlýsingu um stuðning við lista
lýðræðissinna. Þar sem atkvæða-
munur er lítill má vera að vald-
níðsla þessi hafi numið því sem
munaði.
Dómnefnd sú, er valdi tónverk
til flutnings á næstu tónlistarhátíð
„Alþjóðasambands nútímatónlist-
ar“ (International Society for
Contemporary Mucic), sem hald-
in verður í Amsterdam dagana 8.
til 15. júní næstkomandi, kaus m.
a. til flutnings hið nýja verk Þor-
kels Sigurbjörnssonar „Flökt", er
flutt var hér nýlega á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitarinnar f Reykja-
vík.
Alþjóðaliátfðir þessar eru haldn-
ar árlega víðs vegar um heim til
að kynna nýjustu og nýtízkuleg-
ustu tónlist. Tónskáldafélag Is-
inu, sem heldur hátíðimar, og hafa
Hundurinn —
Framh. af bls. 1
Maður sá, sem saknað var hét
Sveinn Bjarnason til heimilis
að Köldukinn 30 í Hafnarfirði.
Hann var iðnaðarmaður og var
á laugardagskvöldið að vinna í
húsi' einu uppi á Hrauni skammt
fyrir norðan Hafnarfjörð. Fór
hann af vinnustað um kl. 7 á
laugardagskvöldið en kom ekki
fram.
Á sunnudagsmorgun um ellefu
leytið var lýst eftir manninum
og sneri lögreglan sér til Hjálp-
arsveitar skáta rétt eftir hádeg-
ið. Það vildi þá svo vel til, að
hjálparsveitin var að fara af
stað með sporhundinn Nonna í
smáæfingu og var nú bmgðið
við og farið með hundinn á
vinnustaðinn. Þar var hann lát-
inn þefa af nærskyrtu og ytri
buxum af hinum týnda manni.
Hundurinn tók þegar á rás yfir
hraunið f áttina að verkamanna
bústöðunum við Álfaskeið. Var
greinilegt að hann þræddi slóð
mannsins, en þegar fór að nálg
ast Álfaskeið vildi hann fara
upp bratta kletta meðfram girð
ingu og þar sem stjórnendur
hundsins töldu ólíklegt að mað-
urinn hefði gengið þar upp
stöðvuðu þeir hann. Fóru. þeir
nú að leita i gömlum fjárhúsum
sem þarna standa, en á meðan
þeir voru að því, hafði hópur
unglinga og skáta sem þarna
var fundið manninn þar sem
hann lá dáinn á hói rétt við
húsið Álfaskeið 35. Hundurinn
sótti allan tíman eftir að komast
í þá átt þar sem maðurinn Iá.
Þorkell Sigurbjörnsson.
þar áður verið flutt íslenzk tón-
verk eftir Jón Leifs (1934), Karl
Runólfsson (1952), Leif Þórarinsson
(1956) og Fjölni Stefánsson (1961).
Þorkell Sigurbjörnsson er fæddur
1938 í Reykjavík, stundaði nám
við Tónlistarskólann hér og síðar
í Bandaríkjunum 1957 til 1961 og
á námsskeiðum í Frakklandi og
Þýzkalandi. Tónverk hans hafa ver
ið flutt í Bandaríkjunum, Frakk-
landi og Þýzkalandi. Hann er nú
kennari við Tónlistarskólann í
Reykjavík og við Barnamúsíkskól-
ann.
Yfirlýsing
Vegna auglýsingar Elíasar
Hannessonar c/o Stjörnuljós-
myndir f Morgunblaðinu þ. 27.
þ. m., mótmæli ég eindregið
þeirri staðhæfingu hans, að
hann einn geti framkvæmt Iit-
ljósmyndatöku á stofu. Ég Ieyfi
mér að fullyrða, að allflestir
atvinnuljósmyndarar geti fram-
kvæmt litljósmyndatöku með
betri árangri heldur en Elías
1-Iannesson.
Hann hefur engan lagalegan
rétt eða hæfni til að auglýsa
neina sérstöðu f ljósmyndatök-
um, hvorki í Iit eða svart-hvftu.
PÉTUR THOMSEN, a.p.s.a.
konungl. sænskur hirðljósm.
ir 1