Vísir - 02.02.1963, Side 4
lEMKirÍEC&ÍSfö'-
r.vKr.V.i.-HsV'r.'Si:
«6sDig»j5Kj
W0H<:íix!
r.V.V:7:
... t I ; I . r .
v..'
Ev^iV/ÍVAW.V.VV/.'r/
ív . ;. '..vAY|\'i
D.VV.WÍ
^O.v;Ay«AÖ.vi«vXw>.«
K‘/.ySi,*.ySnv«iv/,-5yiy,’
L:,V.'.1 .•V/.'•.->A>•:
l‘1 'V'i.'-.’
v.:
‘VV.V.-vl'.Vur V-jSÍ
KiViVSftKr-.O.V.ÍfV-V-;;?
v '.v.y."r' '-‘i ;. y (,
awswfflœs'.wí'íí
v,'...-,'-. 'V ".'.
.Í’.V ' ' ."
7.9(7' ,.r:'-' ■'ÍÍ'.V Vr ,y'Vl5ÍV?
. r. } •
..;.• ■
RW.y .VrVr. V.VíMW
'v?!v! !>.•.' :.’/.',•'.v.'.v.J
Vi:'J,'.'r-".'/W/m
' !’> 'V' J
9B
‘itiiihim'.tnm
VÍSIR . Laugardagur 2. febrúar 1963.
Varalitur getur
exemi
getur eiusiig verið vörn gegn því
Varalitur er ein af al-
gengustu orsökum ex-
ems á vörum og í kring-
um munninn — en til
hughreystingar þeim,
sem við slíkt eiga að
stríða, ska! þó tekið
fram, að sérhver kona á
að geta fundið varalit,
sem hún þolir.
Danskur læknir, dr. med.
Niels Hjort, hefur rannsakað
þetta mál mikið og hefur hann
skýrt frá niðurstöðum sínum.
Það, sem hér fer á eftir, er úr-
dráttur úr viðtali, sem haft var
við hann um þetta mál.
og hefur notkun þeirra í vara-
lit farið stórum minnkandi.
í þriðja og síðasta lagi eru
það litarefnin í varalitnum, og
munu þau algengasta orsökin.
Ýmiss konar litarefni í sam-
bandí við eosin hafa sérstakan
hæfileika til að lita húðina. Þau
ganga í efnasamband við viss
efni í yzta lagi húðarinnar,
hornlaginu, og kemur þar fram
litur, sem vatn vinnur ekki vel
á og er hann oft nefndur „koss
ekta“. Þessi litarefni eru mjög
algeng orsök exems og hafa því
margir varalitsframleiðendur á
boðstólum varalit, sem inniheld-
ur ekki eosin. Eitt fyrirtæki hef
ur t. d. 2 teg., annað 14.
83 tilfelli rannsökuð.
Dr. Hjort hefur haft til með-
ferðar 83 varaexemssjúklinga,
og komið hefur í ljós að þessir
sjúklingar hafa notað 23 tegund
ir af varalit. Af því má sjá, að
ekki er unnt að benda á neinn
einn varalit, sem er skaðlegur
eða annan, sem er óskaðlegur.
14 þessara sjúklinga þoldu vel
aðrar tegundir af varalit en þá,-
sem hafði orsakað exemið. 17
sjúklingar höfðu ofnæmi fyrir
fleiri en einni tegund af varalit.
% sjúklinganna þoldu vel vara-
lit, sem ekki innihélt sérstök
litarefni.
Þarna er um að ræða mismun-
andi viðkvæmni fyrir mismurí-
andi efnum og því eru það í
rauninni einstaklingar en ekki
varaliturinn, sem orsaka exem-
ið.
Vörn gegn exemi.
Varalitur getur sem sagt vald
ið exemi — en hann getur einn
ig verið vörn gegn því. Exem
getur orsakazt af því að fitu-
lagið í vörunum hverfur og var
irnar þorna, t. d. þegar fólk
sleikir mikið varirnar. Vatnið
eyðir sérstökum efnum í húð-
inni og þar með eyðileggst eig-
inleiki húðarinnar til að halda
í sér raka. Húðin skorpnar og
springur og það getur komið í
hana exem. Á þessu má ráða
bót með ýmiss konar varasalva,
þ. e. a. s. hjá börnum og karl-
mönnum — hjá kvenfólkinu get
ur varaliturinn gegnt hlutverki
varasalvans.
Einkenni exemsins.
Sjúkdómseinkennin eru, að
varirnar verða þurrar og springa
og í einstaka tilfellum bólgna
þær og vökvi seytlar úr þeím.
Stundum er kláði eina sjúkdóms
einkennið. Exemið er yfirleitt
aðeins á vörunum en getur þó
breiðzt út um hökuna. Það erii
aðallega konur á aldrinum 35—
55 ára, .sem fá exem af varalit.
rK
Hvers vegna veldur Á leib á grimudansleik?
varalitur exemi?
1 fyrsta lagi eru það fituefnin
í varalitnum, en þau eru m. a.
vax, lanolin og olíur. Ofnæmi
fyrir lanolini er ekki óalgengt.
í öðru lagi eru það lyktar-
efnin. Þau eru samsett úr mörg-
um mismunandi efnum og geta
sum þessara efna orsakað ex-
em. Vitað er um mörg slík efni
Þessar stúlkur eiga aðeins að minna ykkur á, að tími grímudans-
leikja er ekki langt iindan, og því ágætt að fara að hugsa fyrir þeim.
Stúlkurnar eru nú reyndar ekki að fara á grímudansleik heldur eru
þetta sýningarstúlkur franska hárgreiðslumeistarans Roger Pasquier,
og sýna hér hvernig tillaga hans um að leysa hatta og hárkollu-
vandamálið er. Úr hefilspónum bjó hann tii þessar „hárkollur“ en
okkur finnst þær eiga betur við á grímudansleik eii tízkusýningu
— og því birtum við þessa mynd í þeirri von að þcir, sem eiga
spýtu og hefil, geti notað hugmyndina.
Kvennasíöa
Þessi dömulega hárgreiðsia '||
hæfir vel á hvaða tfma dags |
sem er, fyrir og eftir hádegi,
í vinnunni, s.kólanum og á dans
leiknum. Hún lengir hnakkann
dálítið og gerir hálsinn lengri
og grennri. SI
Það sem þið þurfið fyrir utan
greiðu eru spennur, ,,clips“ og
nokkrir litlir kambar.
Þið byrjið með því að skipta
hárinu í fjóra hluta: A og B,
hvor á sinni hlið, C í hnakk-
anum og D á hvirflinum. Takið
nú A og B saman með „clips"
og festið þá fyrir framan ■ eyr- •
un, svo að þeir séu ekki fyrir
þegar C er greitt. C setjið þið
í „pylsu“ og festið niður með
litlum kambi (ef hann er ekki
fyrir hendi má nota venjulegar
spennur).Ef þið eruð ekki mjög
mikið að flýta ykkiir rúllið þið
D upp á tvær stórar rúllur og
látið þær vera í 20 mínútur.
En áður en þið setjið rúllurnar
greiðið þið D upp frá enninu
(um það bil ei'na handarbreidd)
og festið niður með kambi
(mynd 1).
Nú greiðið þið A og B aftur
og upp og festið þeim niður
á hvirflinum með litlum kömb
um (mynd 2).
Þið takið rúllurnar úr — lát
ið kambinn vera áfram — túb-
erið D dálítið og greiðið til
hliðar og aftur (mynd 3). Að
Iokum „krækið" þið nokkrum
lokkum úr D og greiðið í topp
fram yfir ennið.
i.