Vísir - 02.02.1963, Blaðsíða 6

Vísir - 02.02.1963, Blaðsíða 6
mr BE3 V I S IR . Laugardagur 2. febrúar 1963. jens Otto Krag forsætisráðherra og kona hans, Helle Virkner, við komuna til Lundúna. Ámítmmj fyrsr sjálfstæfa skoSun Rússneski rithöfundurinn Vic- tor Nekrasov fékk að ferðast um Bandaríkin haustið 1960 i rússneskum ferðamannahópi. — Síðustu vikur hefur eitt helzta bókmcnntatímarit Sovétríkj- anna, Novi Mir, verið að birta ferðaþætti hans. En þá grípa valdhafarnir allt í einu inn í og setja ofan í við rithöfundinn fyrir það að hann skuli leyfa sér að segja óhlutdrægt frá ýmsum atriðum, sem honum fannst til um i Bandaríkjaförinni. Nekrasov heimsótti m. a. Chicago. Þar lýsti hann för sinni um hina stórkostlegu bílabraut Lake Shore Drive, horfir á röð nýtízkulegra skýjakljúfa með- fram Michigan-vatni og segir: „Svo sannarlega er þetta fal- Iegt.“ Hann segir um heimsókn sína til New York, að vissulega séu fátækrahverfi og niðurnidd hús á Manhattan, en hann lýsir því einnig, að i hverju hótelherbergi séu sjónvarpstæki með 20 tommu skermi og hann fer að- dáunarorðum um listasöfnin, er séu full af fjársjóðum. Hann er mjög ánægður með förina, aðeins eitt skyggði á ánægju hans og það var örygg- islögreglumaðurinn, sem gegndi hlutverki fararstjórans og þurfti stöðugt að vera að smala ferða- fólkinu saman eins og fjárhóp. Nekrasov lýsir hlutverki farar- stjórans með fáeinum orðum í ferðalýsingu sinni: — Hann var i stöðugu uppnámi, segir hann, og þurfti alltaf að vera að telja okkur eins og við værum hænsni. bað hræðiiegasta, sem hann gat hugsað sér var, ef við sögðum „Mig langar ekki til að skoða National Galfery, ég ætla að fara í Guggenheim-safnið, eða ef maður sagði: — Ég ætla Nekrasov, rússneski rithöfund- urinn, sem vogaði sér að skrifa óhlutdrægt um Ameríku. bara að ganga niður Broadway. — Það var þetta „bara að ganga“, sem hann óttaðist mest. Þannig leyfði hinn rússneski rithöfundur sér að sýna örlitla og sjálfstæða hugsun og gagn- rýna lítillega fáránlegt skipulag og eftirl. með rússneskum ferða mönnum. Svarið hefur hann fengið núna í harðorðri áminn- ingu í stjórnarblaðinu Isvestia. Þar er hann sakaður um móðg- andi athæfi við fararstjórann og þá ósvinnu að sýna bæði svarta og hvíta hlið á hinu bandaríska þjóðfélagi, í stað þess að leggja áherzlu á stétta- mismuninn og hernaðaræðið, sem heimsvaldasinnarnir æsa upp. Sýnir þetta atvik glöggt að þrátt fyrir loforð um aukif frelsi horfir auga stórabróðu: stöðugt á hvern mann í hinu sovézka þjóðskipulagi. NEI VIÐ FRAKKA — segir Krag forsætisráðherra Dana Jens Otto Krag forsætis- ráðherra Dana hefur sagt brezkum blaðamönnum að eftir að Frakkar meinuðu Bretum inngöngu í Efna- hagsbandalagið komi ekki til mála að Danir gangi í það. Þessa yfirlýsingu gaf hann á blaðamannafundi í London, en þar var hann staddur til að ræða við brezka ráðamenn um efna- hagsmáiin. I byrjun vikunnar var Krag í París og ræddi þá við de Gaulle Frakklandsforseta. Vakti það þá feikilega athygli, að de Gaulle bauð Dönum að ganga í Efnahagsbanda- lagið. Kom það boð mjög á óvart og vissu forystumenn hinna ríkj- anna í Efnahagsbandalaginu ekkert um það að de Gaulle ætlaði að gera Dönum slíkt tilboð. Krag forsætisráðherra er í Lon- don ásamt Per Hækkerup utan- ríkisráðherra. í fyrradag rættu þeir við Macmillan forsætisráðherra og Home lávarð utanríkisráðherra og í gær ræddu þeir við forystumenn brezka verkamannaflokksins, með- al annars Georges Brown og Har- old Wilson. Þá hafði Krag og tæki- færi til að ræða við þýzka jafnað- armannaleiðtoga, þá Ollenhauer og Brandt ,en allir voru þeir komnir 1 til Lundúna til að vera viðstaddir útför Gaitskells. För Krag forsætisráðherra til Parísar og Lundúna hefur orðið mjög þýðingarmikil vegná þess að samningaumleitanir um inngöngu Breta í EBE fór út um þúfur. Við þau mistök er hugsanlegt að hug- myndin um Fríverzlunarsvæði sjö Evrópuríkja vakni að nýju og mun þetta tækifæri Macmillans til að ræða við einn forsætisráðherra EFTA-ríkjanna hafa verið honum kærkomið. Hefir mestan áhuga á heitum hverum í gærkvöldi byrjaði danski danski söngvarinn, gítarleikar- inn og sjónvárpsstjarnan Eugen Tajmer að skemmta í Sjálfstæð- ishúsinu. Tajmer, sem er Kaup- mannahafnarbúi, kom hingað til lands í fyrrakvöld ásamt konu sinni, Annelise Larsson. Tajmer er mikið uppábald bæði í Dan- ■mörku, No^gi,' * Sviþjóð og Þýzkalandi, og nú bætast ís- lendingar áreiðanlega í hópinn. Hann er svotil nýbyrjaður að syngja, aðeins tvö og hálft ár síðan. Áður en hann byrjaði á söngnum prófaði hann ýmis störf sér til gamans og eru titl- arnir bæði margir og mismun- andi, svo sem sendisveinn, picc- olo, lyftuvörður, þjónn, leigu- bílstjóri og eldhússveinn. Þetta er aðeins nokkur hluti þeirra embætta, sem hann hef- ur gegnt, en það yrði of langt að telja allt upp og látum við því staðar numið. Og svo núna syngur hann og spilar, leikur í sjónvarpi og sem ur lög. Já, hann hefur líka sam- ið nokkur lög, allt frá jólasálm um og niður í „tvist rhythm". Sú plata hans, sem náð hefur mestum vinsældum er „Lone- some“, lag og texta samdi hann sjálfur, en auðvitað var það áð- ur en hann giftist Annelise. Annelise er mjög lagleg, svo að það á eflaust vel við hana að vera fegrunarsérfræðingur. Þau Eugen hafa aðeins verið gift í hálfan mánuð, svo að þetta mætti kallast brúðkaups- ferð. Músik er Eugens líf og yndi, og það ber víðar á því í fjölskyldunni, Eru tveir af fjórum bræðrum hans við nám jg £ tónlistarskóla. Afi hans Emil f Nielsen, sem var Meþódista prestur, var einnig mikill tón- listarmaður, og eftir hann erfði Eugen orgel, ævagamalt, sem hann spilar mikið á, en varla er mikið líkt með hans músik Framhald á bls. 5. Eugen Tajmer.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.