Vísir - 14.02.1963, Side 13

Vísir - 14.02.1963, Side 13
V í SI & . Fimmtudagur 14. febrúar 1963. }3 ER æ VAR NO. VERÐUR Reiknivélor PLÚS MÍNUS MARGFÖLDUN DEILING Lougovegi 178 Sfmi 38000 BtKHALUS- «« S K B I F ST OHJVÍLAB Rýmingarsala Vegna þess að rífa á húsið, sem við erum í, seljum við ýmsar vörur á stórlækkuðu verði. Ljós og hiti Laugaveg 79. Bíla- og varahlutasala Höfum kaupendur m. a. að Dodge Weapon ’54 og Landrover, einnig VW ’60—’62. — Hjá okkur er mikil eftirspum að 4 og 5 manna bilum. Ef þér ætlið að selja, þá skráið bílinn sem fyrst. Seljum og tökum í umboðssölu bfla og bílparta- /eíBd-Tjl Bílo- og bílportosalan Hellisgötu 2 Hafnarfirði. Sími 50271. H00VER tækin fást hjá okkur. Ljós og hiti Laugaveg 79. íleikhúsinu — Framhald at bls. 9 ekki skilja eða skilur ekki þá hættu, sem fólgin er í dug- leysi hans. Hér hefur ekki verið reynt að brjóta neina leikhús- stefnu til mergjar, heldur að- eins bent á nokkur verk, sem eru okkur nálæg í síma og rúmi. Tilgangurinn hefur ein- faldlega verið á að benda á nýja kynslóð leikritaskálda, sem gengizt hefur undir þá kvöð að axla samvizkubyrð- ar mannkynsins. Þessi nýja kynslóð stendur á móti múg- sefjun, sker upp herör gegn holum blikkdósarhlátri logn- mollufarsanna. Hún fordæmir nashyrninga, hversu fjölmenn ir sem þeir eru. Hún er mann leg rödd mitt í forheimskandi dægurlagaöskri fjöldadýrk- unar. Hún virðist bera því vjtni, að leikritaskáldin hafi gengið fram fyrir skjölr’- og tekið forystuna um skeið sem alvarlegustu. listskapend ur nútímans. Hitt er eftir að sjá, hver árangurinn verður. Það byggist á því, hversu hóp mennskan og lagermennskan hefur náð að þrengja sér langt inn í þær sálir, sem áð- ur bjuggu í einstaklingnum. (Fyrsti hluti greinarinnar er sóttur í tímaritið Scala). Njörður P. Njarðvík. Tízkuskólinn — Frh. at b).s. 7. stúlkur og pilta. Margir eru á sömu skoðun. En meðan skólarnir láta sitt eftir liggja f þessum efn- um, er ekki nema gott eitt um það að segja, þótt aðrir annist kennsluna. Fréttamanni er líka nær að halda, að það skipti ekki máli hvort nemandinn í tízkuskól anum hefur raunverulega lært svo mikið, aðeins ef hann trúir því að hann hafi lært þar. Þá kemur frekari kunnátta af sjálfu sér. Allavega má hann vera á- nægður með að hafa bætt fram- komu sína, þótt ekki sé nema um agnarögn. Það er ekki allir sem fá þvf áorkað, reyna jafnvel ekki til þess og veitir þó kannski ekki af. Fréttamaður er sammála frétta- fraukunni sem sagði: „Sjáðu allar þessar sætu stelpur ... Það er staðreynd, að á götunum sjást nú fleiri þokkalegar ungar stúlk- ur en áður. Ekki svo að skilja að hér hafi ekki verið laglegar stúlkur að sjá áður en tízku- skólamir tóku til starfa. Á það hafa þessir skólar víst engin á- hrif. En fegurð stúlknanna og yndisþokki fær að njóta sín betur eftir stutta stund í tízkuskólan- um. Nú er ekki með þessu sagt að allar stúlkur eða konur þurfi að leita sér fræðslu og aukinnar þekkingar í tízkuskólana. Þær eru sem betur fer svo af guði gerðar að þær hafa tilfinninguna fyrir öllu því sem kennt er í tízku- skóla, annað hvort í blóðinu eða í heilanum. Gáfur þeirra eða sér- stakir hæfileikar gera þeim unnt áð þroska þessa góðu eiginleika sína svo að framkoma þeirra og snyrting verða til fyrirmyndar. En þessar konur teljast til undan- tekninga. Auðvitað hafa þær svo ekki kunnáttu sína um snyrtingu frá blautu barnsbeini, heldur lesa þær úm slíkt í kvennablöðum eða öðrum ritum. Það er þeirra tízku- skóli. ■JJTm karlmennina gegnir ná- kvæmlega sama máli, utan það að þeir þurfa ekki að læra förðun eða sérstaklega um hár- greiðslu. Rakarinn sér yfirleitt um það. Hins vegar geta þeir lært sérstaklega margt um fram- komu og umgengni, handsnyrt- ingu, fótsnyrtingu og annað því um líkt, sem karlmenn annars velta ekki svo mikið fyrir sér. Þótt þeir Iæri vel og noti sér kunnáttuna út í æsar, er ekki þar með sagt að þeir séu teprulegir, pjattaðir eða smámunasamir. Ef hagnýting hinnar nýju kunnáttu fer ekki út í öfgar, er hún ekki annað en það, sem flestum þykir til fyrirmyndar. Fari hún hins veg ar út í öfgar, verða hinir sömu að læra meira. Að öllu þessu upp töldu, skal látið staðar numið og þeim óskað til hamingju, sem eitthvað hafa bætt framkomu sína og snyrti- mennsku með því að sækja tízkuskólana, jafnframt því sem mönnum og konum, er telja sig ekki meðal beztu snyrtimenna eða þeirra, sém hafa fáguðustu framkomuna, er ráðlagt að auka þekkingu sína og kunnáttu á þessu sviði. Það skaðar að minnsta kosti ekki. Önnumst kaup og sölu á hvers konar fasteignum. Þið. sem ætlið að kaupa eða selja fyrir voriö, hafið samband við okkur sem fyrst. Tjarnargötu 14. Sími 23987. SKÓÚTSALAN SNORRABRAUT 38 Mikil verðlækkun á skófafnaði: kr. 150.00 (áður kr. 219.45) Kvenkuldaskór Kvenkuldaskór Kvengötuskór Kventöflur Kventöflur Herraskór Herraskór Herrasandalar Barnainniskór Barnainniskór Flókainniskór, lítil númer - 200.00 ( - - 356.00) - 150.00 ( - - 252.00) _ 57.00 ( - - 115.00) - 100.00 ( - - 188.25) kr. 250.00 (áður kr. 417.00) 295.00 ( - 250.00 ( - 25.00 ( - 35.00 ( - 45.00 ( - 457.00) 381.00) 46.75) 77.75) 101.00) Herraskóhlífar kr. 75.00 Drengjabomsur kr. 95.00 Telpnabomsur kr. 65.00 Herrastígvél kr. 65.00 Auk þess margs konar annar skófatnaður með miklum afslætti. SKÓÚTSALAN SNORRABRAUT 38 ÚTSALA UTSALAN SNORRABRAUT 38 SELUR SMÁVEGIS GALLAÐAR VÖRUR MEÐ 40-60% AFSLÆTTI. Herracrepsokkar 6 pör kr. 195.00 Kvenleistar 6 pör kr. 160.00 Barnasokkar 6 pör kr. 95.00 Ungbarnabolir kr. 13.00 Ungbarnanáttföt kr. 25.00 Skriðbuxur kr. 15.00 Herrabolir lítil nr. kr. 10.00 Kvenbolir kr. 15.00 Vinnuskyrtur kr. 98.00 Herrabindi kr. 40.00 Vattfóðraðar telpnaúlpur stærðir 6—14 kr. 395.00 Telpnasíðbuxur kr. 95.00 Kvenpeysur lítil nr. kr. 50.00 Kvennáttkjólar kr. 123.00 Herratreflar kr. 25.00 Kvenslæður kr. 15.00 Herrafrakkar kr. 695.00 Sérlega vandaðar herraskyrtur, síslétt efni kr. 200.00 Notið tækifærið, aðeins fáeinir dagar eftir. SNORRABRAUT 38 ..x&mw&mm&m

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.