Vísir - 07.03.1963, Page 1
HeimsmarkaBsöflun Is-
kmds og grattttþjóBaima
Einn kunnasti útgerð- Gerðum, leggur til að ingár myndi með sér
armaður landsins, Finn- íslendingar, Svíar, Norð samtök til þess að vinna
bogi Guðmundsson í menn, Danir og Færey- að markaðsöflun fyrir
* síld til manneldis.
Kort af fyrirhuguðu skipulagi aðaivega ofan við Reykjavík.
Vegur undir og yfir:
NYSKIPAN ADAL VECA I
NÁCRENNIREYKJA VlKUR
Borgin stækkar óðfluga og
það krefst mikillar fyrirhyggju
og skipulagningar. Ökutækjum
fjölgar með hverjum degi og hin
stóraukna umferð krefst úr-
Iausnar nýrra vandamála. —
Helztu umferðaræðar í bænum
hafa verið skipulagðar, næsta
viðfangsefnið er skipulagning
aðalvega út úr borginni og í
nágrenni hennar. Vegamála-
stjórnin hefur nú gert ákveðnar,
tillögur um aðalvegakerfi innan
og ofan við Reykjavíkurborg.
Samvinnunefnd samgöngumála
hefur haft þær til meðferðar og
samþykkt fyrir sitt leytl, og nú
hafa þessar vegatillögur verið
sendar til umsagnar ráðunautar
Reykjavikurborgar f skipulags-
málum, prófessors P. Bredsdorff
í Kaupmannahöfn. Prófessor
Bredsdorff er væntanlegur hing
að til skrafs og ráðagerða urn
hið fyrirhugaða vegakerfi f ná-
grenni bæjarins, og fleira, um
páskaleytið.
í þeim tillögum, sem fyrir
liggja, er gert ráð fyrir vega-
brúm á krossgötum ofan við bæ
inn, sem er algert nýmæli í
samgöngumálum hér á landi en
alþekkt víða erlendis. Við það
vinnst tvennt: 1 fyrsta lagi er
engin hætta á árekstrum á slík-
um gatnamótum þar sem annar
vegurinn er byggður yfir hinn,
þar sem tveir vegir skerast. I
öðru Iagi verður umferðin miklu
greiðari við þetta, engar tafir
á vegamótum. (Með vegarbrú er
átt við að umferð einnar götu
er hleypt yfir aðra eftir brú).
Framh. á bis. 5
Setur Finnbogi þessa nýju
hugmynd fram í nýjasta hefti
blaðs S. H., Frost, sem út kom
í gær. Finnbogi leggur til að
myndaður verði Markaðsöflunar
sjóður til þess að nota fyrir
framgang þessa máls.
„Tekna til hans mætti meðal
annars afla með því að viðkom-
andi þjóðir legðu einhverja litla
prósentu á útflutning síldar.
Stofnað yrði hlutafélag með
nokkuð stórum höfuðstól, sem
aflað væri með hlutafjárútboði
í öllum viðkomandi löndum.
Félag þetta ætti að annast mark
aðsöflunarframkvæmdir á við-
skiptalegum grundvelli.
Til þess að hlutafjársöfnun
yrði auðveldari, væri eðlilegt, að
starfseminni fylgdu nokkur sér-
réttindi, t. d. einkasöluaðstaða
um nokkurra ára bil á mörkuð-
um, sem algjörlega væru byggð-
Framh. á bls. 5
HLÝTT
LOFT
Lægðirnar, sem komu
fyrir nokkru, hafa fjar-
lægzt og grynnzt, en hlýja
loftið, sem þær fluttu, er
enn yfir landinu. Svo milt
hefur verið hér syðra all-
an Þorrann og það sem af
er Góunni, að fátítt er, svo
að það getur talizt til tíð-
inda, að í morgun snjóaði
niður undir miðjar hlíðar
í Esjunni. í görðum er allt
að springa út og sá bragur
er á leik barna og unglinga
í frímínútum, að minnir á
maí, þegar ólga vorsins er
komin í blóðið.
Og má það einnig til tiðinda
teljast, að nú á Góunni eru birt-
ar aðvaranir varðandi vegina úti:
á landi, ekki ósvipaðar þeim,
sem stundum eru birtar í maí
Framh. á bls. 5
Akureyringar vilja hefja
smíBi stáiskipa
Þessi mynd sýnir vel hvemig vegamótin innan við Reykjavík eru
hugsuð með vegabrúm og vegaslaufum.
Slippstöðin á Akureyri
hefur í hyggju að hefja
smíði stálskipa. Eru í
undirbúningi stækkanir
á stöðinni, til að hún
geti annazt þessa smíði.
í sambandi við þann
undirbúning hefur Jón-
as G. Rafnar, alþingis-
maður, flutt frumvarp á
Alþingi um heimild fyr'
ir ríkisstjómina til að á-
byrgjast 5 milljón króna
innlent eða erlent lán til
endurbóta á skipasmíða
Framh. á bls. 5