Vísir - 08.03.1963, Síða 1
Skíðahótelið /
auglýst víða
Miðaríjalli
umheim
<- < J
53. árg. — Föstudagur 8. marz 1963. — 56. tbl.
LÍKAMSÁRÁS
/ HAFNARFIRÐI
Aðfaranótt miðvikudags-^
ins 6. þ. m. kærði maður í
Hafnarfirði líkamsárás á
sig til lögreglunnar þar.
Var hann þá illa leikinn og
talsvert slasaður eftir á-
tökin, en meiðsli hans
munu ekki vera fullkönn-
uð ennþá.
Maðurinn ,sem fyrir árásinni
varð, heitir Ólafur Sigurjónsson
til heimilis að Hellisgötu 20 í Hafn
arfirði og er 34 ára að aldri.
Skýrði Ólafur lögreglunni frá
því að aðfaranótt miðvikudagsins,
um kl. 2,30, hafi þrir menn komið
í bifreið heim til sín og knúð dyra.
Ólafur fór út og hafði tal af mönn
unum. Vildu þeir fá hann inn í
bifreiðina til sín, en Ólafur þver-
skallaðist við. Réðist þá einn þre-
menninganna á hann og barði
hann unz Ólafur hneig niður. Við
það munu þeir félagar hafa orðið
óttaslegnir og höfðu sig á brott,
en Ólafur komst af sjálfdáðum á
fætur og skreiddist inn til sín. Það
an kærði hann svo árásina til lög-
Framh. á bls. 5
Akureyri f morgun.
Svo virðist sem hið nýja
skíðahótel i Hlíðarfjalli hjá Ak-
ureyri ætii að vekja á sér
óskerta athygii, þvf nú stendur
til að auglýsa það víða erlend-
is, Flugfélag íslands býður sér-
staka fargjaldalækkun erlendis
frá til Akureyrar og loks kepp-
ast ferðaskrifstofumenn að
panta upp pláss I því fyrir gesti
sína á komandi sumri.
Nýlega komu tveir fulltrúar
frá Flugfélagi Islands norður til
að skoða skíðahótelið f Hlíðar-
fjalli og ræddu þá jafnframt við
forstöðumenn þess og forráða-
menn bæjarfélagsins á Akur-
eyri.
Flugfélagsmennirnir buðust
til að gefa út sérstakan auglýs-
ingapésa um skíðahótelið og um
hverfi þess, sjá um dreifingu
á honum víðs vegar erlendis og
loks buðust þeir til að senda
forráðamenn ýmissa helztu
ferðaskrifstofa frá Englandi og
Norðurlöndum þangað norður
til að kynna sér skfðamöguleika
og aðrar aðstæður til móttöku
gesta á hótelinu. Allt yrði þetta
gert á kostnað Flugfélags Is-
lands og skíðahótelinu alger-
lega að kostnaðarlausu.
Þá skýrðu fulltrúar Flugfé-
lagsins frá þeirri nýlundu að
þeir hafi fengið á alþjóða ráð-
stefnu IATA í Arizona á s. 1.
hausti leyfi fyrir sérstökum
skíðafargjöldum milli Bretlands
og íslands, er gildir fyrir næstu
tvö ár. Þarna er um verulega
lækkun á fargjöldum að ræða
og er þá hægt að afgreiða far-
seðla frá Glasgow eða London
alla leið til Akureyrar eftir ósk-
um. Möguleikar eru miklir til
Framh. i bls. 5.
Myndin er af skíðahótelinu
glæsilega í Hlíðarfjalli, sem
útlendingar munu sækjast eft
ir sem íslenzku fjallahóteli.
Bylting í Sýrlandi—herínn
tek mU«" *«■» ÍAuðveldasta leiðire
Bylting var gerð á Sýr-
iandi í nótt. Herinn stend-
ur að henni og er markið
sagt vera: Socialismi og
þjóðareining og samstarf
við aðrar „frjálsar arabisk-
ar þjóðir“. — Ríkisstjórn-
irnar í Bagdad og Kairo
voru fljótar að lýsa yfir
fullum stuðningi við bylt-
ingarstjórnina og í Kairo
var tilkynnt, að litið yrði
á árás á Sýrland sem árás
á Arabiska sambandslýð-
veldið.
Sagt var í útvarpsfréttum frá
Dama6kus, að flugvöllum, höfnum
og landamærum hefði verið lokað.
Framh. á bls. 5
til sósialsima
Frumvarp um nýskipan
ferðamála væntanlegt
SI. sumar skipaði Ingólfur
Jónsson, samgöngumálaráðh.,
nefnd til að semja frumvarp um
ferðamál almennt og endur-
skoða lög um Ferðaskrifstofu
rlkisins. Nefnd þessi mun vera
um það bil að Ijúka störfum og
leggja til að afnuminn verði
einkaréttur Ferðaskrifstofu rík
isins til að taka á móti erlend-
um ferðamönnum, sem almennt
mun vera talið sjálfsagt og eðli
legt eins og ferðamálin hafa
þróast. Frumvarp nefndarinn-
ar um nýskipan ferðamálanna í
Iandinu verður væntanlega lagt
bráðlega fyrir Alþingi, en í
henni eiga sæti Brynjólfur Ing-
ólfsson .ráðuneytisstjóri, Sig-
urður Bjarnason, ritstjóri og
Þorleifur Þórðarson, forstjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins.
Eins og drepið var á hér I
Framh. á bls. 5
I kvöld fiytur Einar Olgeirs-
son erindi I Sósíalistafélagi R-
vikur og ræðir um efnið: „Leið
in til sósfalisma“. Nákunnugir
telja að Einar muni benda á
njósnir fyrir Rússa sem höfuð-
Ieiðina og jafnframt þá greið-
færustu. Sú leið var farin af
kommúnistaflokkum Tékkósló-
vakíu, Ungverjalands, Rúmeniu
og Búlgaríu með ágætum ár-
angri. Sjálfur segir Einar I Þjóð
viljanum í morgun að sósíalist-
ar hafi aldrel viljað byltingu
með valdi. Hann er líkiega bú-
inn að gleyma æsingarræðun-
um sem hann hélt á fundunum
á Akureyri upp úr 1930. Þar
hrópaði hann með sinni víð-
þekktu fögru rödd: Stormsveit-
ir verkamanna munu gera á-
hlaup á vígi borgarastéttarinn-
ar og brjóta þau niður.
.VAW.V/.V.V.V.V.V.V.V.V,
En góður kommúnisti verður
að geta brugðið sér I allra kvik
inda líki og afneitað öllum sín
um fyrri ummælum, ef flokkur-
inn krefst þess. Það heitir
dialektisk barátta. Og Einar hef
ir tekið á sig eina myndbreyt-
Framh. á bls. 5
Einar Olgeirsson
V.V.V.V.VW