Vísir - 08.03.1963, Side 2

Vísir - 08.03.1963, Side 2
2 VISIR Föstudagur 8. marz 1963. y///á. W//////Æ Stór átökfranwndan í starfí Ármenninga Félagslífið er með miklum blóma Félagsllf Glímufélagsins Ármanns stendur með miklum blóma, og eru mörg átök framundan í starfi Ár- menninga. N. k. sunnudagskvöld verður árshátíð félagsins haldin i Þjóðleikhúskjallaranum, og munu yngri og eldri félagar mætast þar við góða skemmtun. Glfmufélagið Ármann starfar I 10 félagsdeildum, og hjá félaginu æfa fleiri en hjá nokkru öðru íþróttafélagl á landinu. Árshátíð fé Iagsins hefur þann tilgang m. a. að tengja fþróttafólkið úr hinum ýmsu deildum traustari böndum og efla félagsleg tengsl deildanna. Á skemmtuninni í Þjóðleikhúskjallar- anum verða ýmls skemmtiatriði, sem bæði Ármenningar og aðrir skemmtikraftar annast. Aðgöngu- miðar eru afhentlr f verzluninni Hellas, Skðlavðrðustfg 17, og f bókabúöum Lárusar Blöndals á Skðiavðrðustfg og í Vesturveri. HÁTÍÐ 1 JÓSEFSDAL. Nú um helgina verður haldin hin árlega „gamaimennahátíð" í skfða- skála Ármanns f Jósepsdal. Þessi skemmtun er fastur, árlegur þáttur f félagsstarfinu, sem sklðadeild Ár- manns annast. Til þessarar skemmt unar á fjöllum uppi koma jafnt yngri sem eldri Ármenningar. Það er jafnan glatt á hjalla f Jósefsdal þegar þessi hátfð fer fram enda margbreytt skemmtidagskrá. ÍÞRÓTTASÝNING ÁRMANNS. Um næstu mánaðamót verður haldin hin árlega íþróttasýning Ár- manns að Hálogalandi. Kemur þar fram fþróttafólk úr öllum deildum félagsins og sýnir listlr sinar og gefst áhorfendum þarna kostur á að sjá ágætt sýnishorn af þvf fjöl- breytta starfi, sem unnið er innan vébanda Glfmufélagsins Ármanns f æfingum og leik. í lok þessa árs verður Glímufé- lagið Ármann 75 ára og er það eizta fþróttafélag landsins. Ármenn ingar byrja að minnast þessa merk isafmælis þegar á þessu ári, en að- alafmæ.lishátíðin fer fram í byrjun næsta árs. í maímánuði n. k. kem- ur sænska fyrstudeildar liðið „Hell as“ hingað f boði Ármanns og kepp ir f handknattleik við fslenzk hand knattieikslið f tilefni afmælisins. „Eðlisfræðing- IÐNÓ amir" í Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir | þarna væri tekið til meðferðar á leikritið „Eðlisfræðingarnir“ n.k. skemmtilegan og skiljanlegan hátt sunnudagskvöld. „Eðlisfræðingarn- ir“ er gamanleikur í tveimur þátt- um eftir svissneska leikritaskáldið Diirrenmatt. Friedrich Diirrenmatt er fædd- ur í Sviss árið 1921. Hann samdi fyrsta leikrit sitt árið 1947, en alls hefur hann samið 7 leikrit, auk Ut- varpsleikrita og ritgerða, „Eðlis- fræðingarnir er nýjasta leikrit Dur- enmatts, var frumflutt í Zurich fyrir rúmu ári. Vakti Ieikritið feikna mikla athygli og hafa leik- hús keppzt að fá sýningarétt á því. Hefur það t. d. verið sýnt á öllum Norðurlöndunum og f London var það frumsýnt fyrir einum mánuði. Er leikstjórinn, Lárus Pálsson, ræddi við fréttamenn um „Eðlis- fræðingana" í gær sagði hann, að Stór veiðarfærageymsla byggð í Bolungarvík Bolungarvfk, 21/2 1963. S.l. vor mynduðu trillubátaeig- endur f Bolungarvík með sér sam- tök um stofnun félags, er nefnist sameignarféiagið Árvakur, félag trillubátaeigenda, og er markmið þess að vinna að bættri aðstöðu fyrir trillubátaútgerðina og gæta hagsmtma triliubátaeigenda t hvt- vetna. Skömmu eftir stofnun félagsins hófst það handa um byggingu beit- ingahúss og veiðarfærageymslu, og er smfði þess nú að mestu lokið. Er húsið 42 metrar á lengd og 10 metra breitt, hlaðið úr holsteini og einangrað með frauðplasti. 1 þvf eru 17 beitingakrær, 4x6 metr- ar og 4x4 metrar, auk salerna. Ennfremur eru í öðrum enda húss- ins kæli- og frystiklefar, þar sem geyma má beittar lóðir og frysta beitu. Má fá 10 stiga frost í kæli- klefanum en 25 stig f frystiklef- anum. Olfuofn til upphitunar er f hverri beitingakró. S.l. sunnudag fóru fram skipti á húsinu milli eigenda þess, og dró lögregiustjórinn, Friðrik Sigur- björnsson, um hverjir hljóta skyldu hverja kró. Með tilkomu þessa myndarlega húss skapast trillubátáeigendum mjög' bætt aðstaða, en þeir hafa að undanförnu verið á hálfgerðum hrakningi með útgerð sína, þar eð þeir hafa orðið að víkja með hina gömlu skúra sína og kofa fyrir breyttu skipulagi og ýmsum fram- kvæmdum við höfnina. Hér eru nú milli 30 og 40 trillu- bátar, sem róa með færi og lóðir á vorin og sumrin, og sumir jafn- vel allt árið, og má segja að þessi smábátaútgerð sé allsnar þáttur í atvinnulífinu hér, þótt margir líti hana að vísu óhýru auga og telja öfugþróun í slfkri smáútgerð, á meðan erfiðleikar eru á að manna hina stærri báta og hörgull á fólki til að vinna afla þeirra f landi. Innan félagsins Árvakurs hefur verið stofnaður styrktar- og lána- sjóður, sem á að hafa það hlutverk að lána trillubátamönnum fé í rekstur sinn og styrkja þá, sem fyrir skakkaföllum kunna að verða í útgerð sinni. Hafa trillubátaeigendur sýnt mikla framtakssemi og dugnað við að koma þessu húsi upp, og unnið mikið sjálfir að byggingu þess. Aðalfundur félagsins var haldinn fyrir skömmu og skipa stjórn þess Vagn Hrólfsson, form., Elías Ketilsson, gjaldkeri, og Karl S. Þórðarson, ritari. Finnur. mál, sem hver einasti maður hugs- ar um f dag, kjarnorku, eyðilegg- ingarvopn og vígbúnaðarkapp- hlaupið. Þarna væri þó ekki um að ræða átök eða kjarnorkustyrjöld, heldur ábyrgð alls mannkynsins á heiminum. Leikritið væri tvímæla- laust mjög skemmtilegt frá hendi höfundar, en það hefði verið leikið á ýmsan hátt og tekizt misjafnlega. Friedrich Diirrenmatt. Lárus Pálsson sagði, að sér fynd- ist skemmtilegt að L.R. skyldi taka til meðferðar leikrit, sem er á döf- inni, leikrit, sem enn hefur ekki ^engið á sig nokkurn „stimpil". Það er erfitt að skrifa svona leikrit, sagði Lárus, og það er á- reiðanlegt að mörg leikritaskáld hafa reynt það, en mér vitanlega er Diirrenmatt sá eini, sem hefur heppnazt það. Halldór Stefánsson hefur þýtt leikritið og með aðaihlutverk fara Guðmundur Pálsson, Helgi Skúla- son og Gísli Halldórsson, sem leika eðlisfræðingana, Regína Þórðardótt ir og Þorsteinn Ö. Stephensen. „Eðlisfræðingarnir" eru síðasta viðfangsefni L.R. á þessu ári, en enn standa yfir sýningar á „Hart í bak“, sem virðist ætla að slá öll met hvað vinsældir snertir. Smyglið — Framhald at bls. 16 afmá nafn fyrirtækisins af merki- miðum, sem lfmdir höfðu verið á umbúðir innan í kössunum. Þegar kassarnir fundust, var kaupsýslumaður sá sem þeir voru sendir til, staddur í Bandarfkjun- um og hafði verið þar frá þvf í októberbyrjun um haustið. Hann kom til landsins um miðjan nóv- erbermánuð og hófst þá þegar rannsókn í málinu. Kom þá m. a. f ljós að ameríska fyrirtækið, sem sent hafði vöruna, var f eigu Is- lendings, er búsettur er f New York og hefur fyrirgreiðslu um út- flutning. Mun eigandinn starfa að mestu leyti einn við fyrirtæki sitt. Þessi maður kom til íslands f des- emberbyrjun 1960 og gaf þá skýrslu fyrir sakadómi. Framburður kaupsýslumannsins fyrir dómi var mjög á reiki með hvaða hætti varan hefði verið send frá New York. Hélt hann ýmsu fram, sem síðar kom f ljós að ekki fékkst staðizt. Hann vildi heldur ekki gefa upplýsingar um sumt, sem hann var spurður að. Þ6 mátti mega ráða það af fram- burði hans að lokum með hvaða hætti varan hafði verið sehd hing- að til lands. Þó hefur ekki tekizt að upplýsa til fullnustu með hvaða hætti kassarnir komust inn í vöru- skemmu við New Yorkhöfn. Framburður sendanda vörunnar hefur verið nokkuð á reiki. Hann hefur m. a. haldið því fram að hann hafi ekki vitað fyrr en eftir á með hvaða hætti varan var send frá New York, þar sem banda- rískir pökkunarmenn hafi annazt innpökkun og síðan komið köss- unum áleiðis til skips. Á síðara stigi málsins breytti kaupsýslumaðurinn verulega fram- burði sínum og bar honum og send anda vörunnar mikið á milli hvað gerzt hefði. Hélt kaupsýslumaður- inn því fram, að sendandinn hefði vitað með hvaða hætti kassarnir fóru út í skipið. Að rannsókn lokinni fór mál þetta til saksóknara ríkisins. Sak- sðknari höfðaði mál til refsingar á hendur sendanda vörunnar fyrir tolllagabrot. Einnig höfðaði hann mál gegn skipstjóranum á m. s. Lagarfossi fyrir að hafa vanrækt að gæta þess að umræddir kassar væru færðir á farmskrá, en það er skylda skipstjóra samkvæmt toll- lögum. Loks var mál höfðað á hendur kaupsýslumanninum til að þola upptöku á öllu innihaldi kass anna fjögurra, en hins vegar var ekki gerð krafa um refsingu á hend ur honum. Dómur gekk f máli þessu fyrir nokkrum dögum, eins og áður seg ir. Var skipstjórinn sýknaður af ákærunni á þeim forsendum, að ábyrgð hans á farmskrárskyldu flutts varnings væri aðeins til vara. Skyldi ákvæðum tolllaganna ekki beitt gegn skipstjóranum, þar sem tekizt hafi bæði að hafa upp á sendanda og mótttakanda vör- unnar og báðir sæta íslenzkri lög- sögu. Hafði og ekki komið fram neitt um það að skipstjórinn hafi vitað um eða haft nokkra aðstöðu til að fylgjast með því hvaða varn ingur fór út f skipið meðan á lest- un þess stóð í New York. Við rannsókn málsins þótti sann að að sendandi vörunnar hafi vit- að að merking kassanna var ekki f samræmi við skipsskjölin og enn fremur að þyngd kassanna var ranglega uppgefin. Það kom einnig fram í framburði sendandans, að hann hafi komizt að því að kass- arnir i sendingunni voru helmingi fleiri en vera átti eftir að skipið fór frá New York. Samt sem áður aðhafðist hann ekkert — að því er fram kom í málinu — til þess að leiðrétta þetta, enda þótt hon- um væri það f lófa lagið. Taldi dómaranum að sendandan- um hafi borið skylda til að gera þetta, og með atferli þvf sem að framan greinir, hafi hann gerzt brotlegur gegn lögum um tolleftir- lit. Hlaut hann 80 þúsund króna sekt til ríkissjóðs, auk þess sem honum var gert að greiða sakar- kostnað. Við rannsókn málsins hafði kaup sýslumaðurinn afhent dómnum reikninga yfir vörusendinguna, en hún átti að greiðast í banka f sam- ræmi við þá. Þegar varan í köss- unum hafði verið talin og niður- staðan borin saman við það er greindi á um innihald sendingar- innar samkvæmt vörureikningun- um, kom í ljós að nokkurt mis- ræmi var þar á milli. Samkvæmt vörureikningunum var verðmætið talið 3052.62 dollarar, en yfirmats- menn mátu fob-verð vörunnar hins vegar á 4102.08 dollara. Kaupsýslumaðurinn hélt því fram, að skipsskjölin ættu við stærri kassana eingöngu, en í þeim var aðalverðmætið. Máli sínu til sönnunar benti bæði hann og eins sendandi vörunnar á það, að á stóru kössunum stæði sama númer og á hafnarkvittuninni frá New York. Einnig bentu þeir á það, að j rúmmál stóru kassanna væri í sam ræmi við það rúmmál sem tilgreint er á hafnarkvittuninni og einnig á afriti farmskírteinisins. Þegar uppskipunin úr m.s. Lag- arfossi fór fram, höfðu tollverðir ekki þessi gögn í höndunum. Toll- gæzlan hefur og lýst því yfir að númer þau, sem hér að framan eru greind, hafi enga þýðingu við störf hennar, enda sé farmskráin það eina sem töllgæzlumenn géti farið eftir. Þess má hins vegar geta, að þegar vörusendingin var borin sam an við farmskrána, kom í ijós, að merking kassanna, þyngd þeirra og fjöldi var ekki f samræmi við það sem á farmskránni greindi. Samkvæmt því sem nú hefur verið rakið, leit dómarinn svo á að mikið bresti á að vörusendingin væri í samræmi við farmskrána. En uppgjöf vörunnar þótti verða miða við það er á skránni greindi. Þrátt fyrir þetta var talið mega líta svo á að merkingunni á minni kössunum væri ekki það áfátt, að telja mætti að farmskráin gæti átt við þá, enda kæmi þyngd þeirra næstum heim við hana. Var kaupsýslumaðurinn sam- kvæmt. framansögðu sýknaður af ákærunni um upptöku minni kass- anna, en dæmdur til að þola upp- j töku á innihaldi þeirra stærri, en útsöluverðmæti þess nemur rösk- lega hálfri milljón króna.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.