Vísir - 08.03.1963, Síða 6
6
VISIR . Föstudagur 8. marz 1963.
Fréttamenn fangekaðir
vegr.a þagnarskyldu
t gær var farlð með tvo brezka
blaðamenn f fangelsi þar sem þeir
eiga að afplána nokkurra mánaða
fangelsi fyrir að neita að skýra
frá þvi fyrir rétti hverjir væru
heimildarmenn að fréttum sem
þeir birtu varðandi Vassall-njósna
málið. Annar þessara manna er
blaðamaður við Daily Mail og
hlaut hann misseris fangelsi, hinn
frá Daiiy Sketch og hlaut hann
þriggja mánaða fangelsi.
Vísindamnð-
ur lótinn
Fyrir nokkru andaðist í Vestur-
Þýzkalandi einn mætasti vísinda-
maður Þjóðverja, sem einnig var
heimspekingur og stjórnmálamað-
ur, Friedrich Dessauer prófessor,
81 árs að aldri. Líkami hans var
eyðilagður vegna starfs hans við
geislanir, en andinn var vakandi og
stæltur, og hugrekkið og viljaþrek
ið óbilandi þrátt fyrir alla þá sjúk-
dóma, sem hann hafði hlotið vegna
tilraunastarfsemi sinnar. Dessauer
varð m. a. fyrstur manna til að
taka röntgen-myndir af hjartslætti
(1909—10) og var lengi frumkvöð-
ull þjóðar sinnar á ýmsum sviðum.
Dessauer barðist gegn nazisman-
um eins og drepsótt, og sat I sex
mánuði í fangabúðum nazista, en
síðar flutti hann fyrirlestra í Tyrk
landi og Sviss, og sneri loks heim
aftur 1951.
Neitað var um leyfi tii áfrýjun-
ar til lávarðardeildar þingsins, en
talið að blöðin — Daiiy Mail og
Daily Sketch — myndu fara þess
á leit við innanríkisráðherrann, að
þeir yrðu náðaðir.
Þetta er í fyrsta sinn í brezkri
réttarfarssögu, sem blaðamenn
eru fangelsaðir fyrir að neita
að láta í té slíkar upplýsingar
fyrir rétti sem að ofan greinir.
Hér er í rauninni um stórmál að
ræða, sem mikið er rætt. Hvorki
útgefendur blaða né blaðamenn
halda því fram, að sömu lög eigi
að gilda um þá og aðra borgara,
en ef stéttin ætti að eiga fangelsis
dóm yfir höfði sér fyrir að neita
slíkum upplýsingum myndi erfitt
eða ógerlegt að afla oft og tíðum
mikilvægra frétta, sem væri í al-
menningsþágu að birtar væru, en |
ef aðeins væru opinberar heimildir
að fá, myndi margt aldrei koma í
ljós, sem almenningur ætti heimt-
ingu á að fá vitneskjum um og
nauðsyn, að hann fengi að vita, og
stuðlar slíkt ekki að því, að heil-
brigt almenningsálit fáiaðnjótasín.
Mál þetta er til meðferðar í Pressu
ráðinu (Press Council), sem bæði
útgefendur og blaðamenn eiga sæti
í, og það verður aðalmálið á aðal
fundi blaðamannasambandsins í
næsta mánuði.
Blaðamennirnir heita Brendan
Joseph Mulhalland frá Daily Mail
23 ára og William Foster frá Daily
Sketch, 58 ára.
Finnskur fyrirfcsarl hér
Finnskur fyrirlesari, Per-Erik
Lundberg, rektor frá IMATRA í
Austur-Finnlandi er á ferð hér á
landi um þessar mundir, og heldur
hann erindi á vegum Norræna fé-
lagsins.
Rektor Lundberg er formaður
deildar Norræna félagsins í Imatra,
en þar er hann nú rektor við
menntaskóla. Árin 1935—’55 var
hann skólastjóri við lýðháskóla í
Finnlandi og hafa nokkrir ísienzkir
nemendur notið skólavistar við
þann skóla,.............
Rektor Lundberg flutti erindi á
vegum Norræna félagsins á Hvann-
eyri í Borgarfirði á þriðjudag, á
miðvikudag flutti hann erindi í
Samvinnuskólanum að Bifröst og í
Hótel Borgarnesi á vegum Norræna
I félagsins í Borgarnesi. í gærkvöld
talaði hann á skemmtifundi Nor-
ræna félagsins í Reykjavík í Giaum
bæ. í kvöld mun rektor Lundberg
flytja erindi í Flensborgarskóla á
, vegum Norræna félagsins i Hafn-
[ arfirði.
Áður fyrr var humarinn, sem veiddist við S.-Afríku, nær eingöngu
soðinn í dósir og seldur þannig, en nú hefir frysting Ieyst niður-
suðuna af hólmi að verulegu leyti. Humarinn, sem er ljúffengur og
stór (mikið stærri en sá, sem veiðist hér við Iand), er aðallega seldur
til Bandaríkjanna.
Suður-Afríka eyk-
ur fiskveiðar sínar
Stjórn S.-Afríku hefir lagt mikla
áherzlu á að auka fiskveiðar sinar,
og á síðasta ári mun fiskaflinn
hafa orðið um 900,000 lestir.
Undanfarin fjögur ár hefir fisk-
aflinn farið jafnt og þétt í vöxt'og
verið metafli á hverju ári. Hefir
helzti vandinn þess vegna verið
Pompidou og De GauÍle eru
nú / vanda, en galiharðir
Tilkynnt var í París í
gær að Pompidou for-
sætisráðherra mundi á-
varpa frönsku þjóðina
Þessir höfuðleiðtogar þjóðarinn-
ar eru í vanda. Þeir hafa hótað
sektum og fangelsunum og ekki
dugað. „Það er ekki hægt að sekta
Sveinn Björnsson
formaður BHM
Bandalag háskólamanna kaus ný
Iega á aðaifundi nýjan formann,
Svein Bjömsson verkfræðing, í
stað Ármanns Snævarr, rektors,
sem baðst undan endurkjöri, ásamt
varaformanni samtakanna, Sveini
S. Einarssyni verkfræðingi, og var
Stefán Aðalsteinsson ráðunautur
kosinn i hans stað. Voru fráfarandi
stjómarmönnum þökkuð góð störf
í þágu bandalagsins.
Þá var á aðalfundi þessum rætt
um starfsemi bandalagsins. Á síð-
asta starfsári voru gerðar ítrek-
aðar tilraunir til að fá samnings-
rétt fyrir hönd starfsmanna
viðurkenndan í lögum um opinbera
starfsmenn, en án árangurs. Þá
kaus bandalagið launaráð, sem
gerði samræmdar tillögur um niður
röðun háskólamanna í launaflokka
og flutti mál þeirra fyrir kjararáði
BSRB.
Aðalfundurinn kaus þriggja
manna nefnd til að kanna hvað
bandalag háskólamanna geti gert
til stuðnings við framhaldsnám
kandidata. Einnig voru skipulags-
mál bandalagsins til umræðu. Loks
var samþykkt að ráða framkvæmda
stjóra fyrir bandalagið, en Jóhann
es Helgason lögfræðingur hefur
starfað fyrir bandalagið að ýmsum
málum.
eða fangelsa 200.000 verkfalls-
menn“, sagði brezkur fréttaritari,
staddur í kolanámubænum Lille
f fyrrakvöld.
En hvorugir vilja slaka til,
hvorki verkfallsmenn eða de
Gaulle. Verkfallsmenn krefjast
11% kauphækkunar, fjögra vikna
sumarleyfis f stað þriggja og 40
stunda vinnuviku. Og nú snýst
Alþingi
baráttan að auki um réttindi til
þess að gera verkföll. Og harðni
hún fá þeir stuðning annara verka
lýðsfélaga.
Á hinn bóginn er vitað að de
Gaulle hefir gagnráðstafanir á
prjónunum, en hverjar þær eru
vita menn ekki, fyrr en hann og
Pompidou hafa komið fram fyrir
alþjóð f sjónvarpinu.
fólginn í að koma aflanum f verð,
því að samkeppni er hörð á þessu
sviði, eins og íslendingar mættu
vita manna bezt.
Fiskimenn S.-Afrfku veiða bæði
á grunnmiðum og djúpmiðum. Á
grunnmiðum veiða menn einkum
sfldartegund eins og skelfiSk, sem
er mjög stör, Ijúffengur og eftir-
sóttur. Fiskur úr togurum, sem
stunda veiðar á djúpmiðum, er
fyrst og fremst seldur á heima-
markaði, en það, sem fer ekki á
matborð landsmanna nýtt úr sjón-
um, er soðið niður eða breytt f
fiskmjöl, og eru fiskafurðir þessar
fluttar til 60 landa. Telja J S.-Af-
ríkumenn, að þeir standi sig vel
í samkeppninni við aðrar þjóðir á
þessu sviði.
S.-Afríkumenn eiga um sex
hundruð fiskiskip af ýmsum teg-
undum, og eru formenn eigendur
margra hinna smærri skipa, en af-
koma þeirra er ekki eins góð og
stóru skipanna sem flest eru eign
fyrirtækja, er hafa mikið fjármagn
að baki.
Stofnlánadeild landbúnaðarins — Ríkisábyrgð fyrir
Slippstöð.
Frumvarp rfkisstjórnarinnar
um breytingar á lögum um
Stofnlánadeild landbúnaðarins
var aðalumræðuefni á fundi
neðri deildar í gær. Jónas Pét-
ursson gerði grein fyrir áliti
meirihluta landbúnaðarnefndar
um málið. Mælti hann með sam
þykkt frumvarpsins, sem felur
í sér aukinn stuðning sjóðsins
við landbúnaðinn, í frumvarpi
þessu er gert ráð fyrir þvf, að
framlag til frumbýlinga á ný-
býlum verði greitt á fyrstu 15
hektarana, sem ræktaðir eru á
eftir Ásmund Einarsson
býlunum í stað 10 áður og að
býlum í byggðarhverfum verði
afhentir 15 hektarar af véltæku
túni, er ábúendur taka við býl-
unum.
Gert er ráð fyrir hækkun á
framlagi samkv. 27. gr. 650 þús-
und krónur til að standa straum
af þessarri auknu ræktun.
Þá er gert ráð fyrir, að þeim
byggðum nýbýlisjörðum, er nú
hafa tún undir 15 hekturum,
verði veitt tilsvarandi framlag
og verið hefur „þar til túnstærð
hefur náð þessu márki,“ eins og
segir í greinargerð um frum-
varpið.
Ágúst Þorvaldsson ræddi
nokkrar breytingartillögur
minnihluta landbúnaðarnefndar,
sem Jónas Pétursson hafði kall-
að „yfirboð" og gagnrýndar
voru af Ingólfi Jónssyni, land-
búnaðarráðherra í ræðu, sem
hann hélt, vegna þess að dómi
ráðherrans væru þær fyrst og
fremst óraunhæfar yfirborðstil-
lögur fluttar í tilefni væntan-
Iegra kosninga.
Þá var rætt um tillögu Jón-
asar Rafnar, um ríkisábyrgð fyr
ir Slippstöðina á Akureyri. Er
farið fram á heimild fyrir stjórn
ina til að ábyrgjast 5 milljón
króna lán vegna þess að fyrir-
tækið hefur áhuga á að færa
út kvíarnar og gera sér mögu-
legt að hefja smíði stáiskipa.
..sra*