Vísir


Vísir - 08.03.1963, Qupperneq 16

Vísir - 08.03.1963, Qupperneq 16
Skilið kópunni HÓTCL 06 HCIISUHjBJ IHVíRAGíRD! WKHAB Síðastliðinn miðvikudag, á tíma- bilinu kl. 9—21, hvarf úr fata- geymslu í anddyri fæðingardeildar Sólvangs í Hafnarfirði kvenkápa. Kápan er bláyrjótt úr ullarefni með víðum, stórum kraga og ljós- um, stórum tölum. Þess er óskað að handhafi káp- unnar skili henni til sama staðar og hún var á, eða til lögreglunnar í Hafnarfirði. Þeir, sem lesa þessa tilkynningu, eru beðnir að veita aðstoð sína til að hafa uppi á kápunni. Búnaðurþingi slitið Búnaðarþingi var slitið miðviku dag sl. Afgreidd voru 36 mál þá 26 daga, sem þingið starfaði, en eitt mál náði ekki afgreiðslu og eitt var dregið til baka. 1 stjórn Búnaðarfélags íslands voru endurkjörnir Þorsteinn Sig- urðsson bóndi á Vatnsleysu, for- maður, Pétur Ottesen og Gunnar Þórðarson, en í varastjórn Einar Ólafsson, Ásgeir Bjarnason og Kristján Karlsson. Myndin sem hér birtist sýnir líkan að hóteli og heilsuhæli f Hveragerði, sem Gísli Sigur- bjömsson forstjóri hefur Iátið gera. En Gísli segir, að aðstaða til að reka slíkt heilsuhæli sé mjög góð í Hveragerði. Teikn- ingu og módel af húsinu hefur Guðmundur Samúelsson arki- tekt gert. Guðmundur er frá Akranesi og hefur stundað nám i húsagerðarlist í Þýzkalandi og starfar nú að afloknu prófi við háskólann .f Hannover. Hefur Guðmundur að undan- förnu ferðast um í Þýzkalandi og kynnt sér rekstur og fyrir- komulag slíkra heilsuhælisbygg- inga og byggir teikningu sína á þeim rannsóknum. Er það ætl- unin að hótelið geti tekið 100 dvalargesti. í aðalbyggingunni eru setustofur og salir og vist- herbergi. í lágu útbyggingunni til vinstri út úr aðalbygging- unni er borðsalur. í lágu fer- köntuðu byggingunni hægra megin eru lækningastofur og böð og sundlaug þar fyrir utan. í löngu álmunum fyrir framan eru vistherbergi. Öllu yrði fyrirkomið þarna eins og bezt gerist í baðstöðum á meginlandi Evrópu og telur Gísli víst, að fjöldi fólks bæði innlendra og erlendra myndiB leita sér heilsubótar í Hvera-| gerði, þegar byggingin væri uppj^ komin. Henni hefur þegar verið| ætlað land skammt frá Reykj-| um efst í Hveragerðiskauptúni. I Enn er þó óákveðið hvenærí! bygging þessi rís. Það er að | Framh. á bls. 5 ijSPwwwj tnn~í rr-m-T”~-*r~-r',7n -m -rrr m w-4 T't r;?< N;';í ' ’tmtmmwimmÍMlf..~ .. .. íif*"tfTi xæ. Smyglvörur að vermætí yfír há/fa millj. kr. upptækar í nóvembermánuði 1960 hófst rannsókn f mjög flóknu og um- fangsmiklu smyglmáli hér f Reykjavfk og fyrst nú fyrir nokkr- um dögum var kveðinn upp dóm- ur f þvf í sakadómi Reykjavíkur. Alls voru lögð fram 70—80 mál- skjöl áður en dómur féll, og dóm- urinn sjálfur er 43 vélritaðar foliosfður. Það var Gunnlaugur Briem sakadómari sem kvað dóm- inn upp. Þrír menn voru ákærðir í máli þessu. Einn þeirra var sýkn- aður með öiiu, annar dæmdur f 80 þús. kr. sekt fyrir tolllagabrot, en vörur gerðar upptækar hjá þriðja aðila, að verðmæti rúmlega hálfri milljón króna. Samkvæmt upplýsingum frá sakadómara, Gunnlaugl Briem, eru málsatvik á þessa leið: Við uppskipun úr M.s. Lagar- fossi, sem kom til Reykjavíkur frá New York þann 3. nóvember 1960, fundu tveir tollverðir fjóra tré- kassa, alla nokkuð stóra, en tvo þeirra þó stærri, í lest skipsins. Vakti það strax grunsemd toll- þjónanna að þeir voru merktir með svartkrít, enda næsta óvenjulegt þegar um vörusendingar er að ræða. Þeir voru merktir tveim upp- hafsstöfum og síðan Reykjavfk, Iceland, ásamt númerum á tveim beirra o. fl. 1 öðru lagi þótti toll- vnróunum kassarnir grunsamlegir sem merki það, sem á köss- unum var (þ. e. þessir tveir upp- hacsstafir), var ekki til yfir neina vií-usendingu samkvæmt farm- skránni, Hins vegar var á farm- skrá skipsins vörusending til á- kveðins kaupsýslumanns í Reykja- vík, sem kassar þessir gátu átt við. Þó voru þar aðeins tilgreindir tveir kassar — í stað fjögurra — og væru 500 ensk pund á þyngd. Tilgreint var ennfremur við vöru- sendingu þessa að hún væri merkt með upphafsstaf móttakanda og föðurnafni. Kassarnir voru allir fluttir upp í tollbúð, þar sem innihald þeirra var skoðað oð reyndist mestmegn- is vera tilbúinn barnafatnaður. Aðalvarningurinn, sem var í báð- um stóru kössunum, var að fob- verði 3569 dollarar, samkvæmt yf- irmati er síðar fór fram. Varning- urinn í tveim minni kössunum var að verðmæti metinn á 533.08 doll- ara. í íslenzkum peningum nam fob-verð alls varningsins — sam- kvæmt yfirmati og samkvæmt því gengi sem var hér fyrri hluta árs 1961 — samtals kr. 156.289.29. Kostnaðarverð varningsins var metið á kr 439.061.48, heildsölu- verð kr. 478.583.48 og smásölu- verð að meðtöldum söluskatti kr. 616.175.35. Brúttóvigt stóru kassanna nam 1058 enskum pundum, og litlu kassanna 4915 pundum eða sam- tals 1549.5 enskum pundum. Rúm- mál stóru kassanna tveggja — en farmgjald er oftast reiknað eftir rúmmáli þegar um vefnaðarvöru er a ðræða — nam 90.3 rúmfetum, en minni kassanna 66.58 rúmfetum. Eftir að rannsókn málsins hófst barst dómaranum í hendur afrit af farmskírteininu, þar sem kassarn- ir í sendingunni voru taldir 93.4 rúmfet. Um þetta atriði var þó ekkert getið á farmskrá skipsins, sem tollgæzlan fékk í hendur við komu þess hingað til Reykjavíkur. í kössunum fundust gögn, sem bentu til þess að ákveðið fyrirtæki í New York væri sendandi kass- anna, enda var það tilgreint á farmskrá sem sendandi vörunnar. Hins vegar hafði verið reynt að Framhald á bls. 2 Hrólfi boð- in stuðun í gærkvöldi komu þeir full- trúar sem niynda meiri hluta bæjarstjómar á Seyðisfirði sam an til fundar, en það eru tveir Vinstrimenn, Framsóknarfull- trúi, kommúnisti og Alþýðu- flokksmaðurinn Gunnþór Bjöms son. Samþykktu fimmmenningarnir á þessum fundi endanlega að bjóða Hrólfi Ingólfssyni frá Vestmannaeyjum að taka að sér bæjarstjórastarfið. Er þá eftir að vita, hverju Hrólfur svarar endanlega, en hann hefur látið líklega. Seyðisfjörður hefur nú verið bæjarstjóralaus næstum eitt ár. Af þessu má sjá, að nokkurs misskilnings gætir f frétt Morg- unblaðsins í morgun, þar sem því er haldið fram að enn hafi ekki verið samið um bæjar- stjóra á Seyðisfirði. Harðar deilur ú Seyðis- fírði um bæjarstjóraefni Fyrir nokkru skýrði Vísir frá því að sam- komulag hefði tekizt hjá meirihluta í bæjarstjórn á Seyðisfirði um að ráða Hrólf Ingólfsson frá Vestmannaeyjum bæj- arstjóra. Frétt þessi var höfð eftir öruggum heim ildum m. a. frá þeim full- trúa Alþýðuflokksins, sem ákveðið hafði að styðja Hrólf og var þá samkomulag orðið um þetta, aðeins eftir að samþykkja það form- lega. A fundi, sem haldinn var í Alþýðuflokksfélaginu á Seyðis- firði fyrir nokkru var aðalum- ræðuefnið, hvort veita bæri þessu bæjarstjóraefni vinstri manna stuðning. Greiddu allir þar atkvæði á móti þvf nema Gunnþór Björnsson. annar bæj- arfulltrúi flokksins. Nokkru síðar var þaö almælt og staðfest af samtölum við bæj arfulltrúa, að fullt samkomulag hefði tekizt um meirihluta að baki Hrólfs. Hann hafði þá stuðning fimm fulltrúa af níu, en þeir voru þessir: Af svoköll- uðum vinstri mönnum: Kjartan Ólafsson og Emil Emilsson, Framsóknarfulltrúinn Jón Þor- steinsson, kommúnistinn Steinn Stefánsson og Alþýðuflokks- maðurinn Gunnþór Björnsson. Fréttin í Vísi um etta bæj- arstjóraefni vinstri manna vakti rnikla athygli austur á Seyðis- firði og hefur verið mikið um væringar þar einkum í Alþýðu- flokknum vegna stuðnings Gunn Framh. á bls. 5

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.