Vísir - 18.03.1963, Page 16

Vísir - 18.03.1963, Page 16
Fáklætt ungharn fannst á götunni Klukkan rúmlegá hálftíu í gær- kveldi fannst ungt barn á náttföt- unum úti á götu á Bergstaðastræti. Lögreglunni var gert aðvart um þetta og komst hún fljótlega á snoðir um hvar barnið átti heima. Þegar hún kom inn í íbúðina var enginn fullorðinn þar fyrir, en þrjú börn á aldrinum 1—4 ára höfðu verið skilin ein eftir og al- gerlega gæzlulaus. Eitt barnanna hafði komizt út á náttklæðunum og það var það sem fannst á göt- unni. Einn lögreglumanna var látinn gæta barnanna unz móðirin kom heim hálfri klukkustundu eftir að barnið fannst. Barnaverndarnefnd hefur verið gefir skýrc)- i>- málr NÝ FLUCVÉL 1 kvöld bætist flugvél í íslenzka flugflotann. Þá er væntanleg hing- að til lands tveggja hreyfla flug- vél, sem flugfélagið Flugsýn hefur keypt. Er það fjögra farþega vél af tegundinni Piper Apache. Tveir íslenzkir flugmenn eru nú á leiðinni heim með hana, þeir Stefán Magnússon óg Þórður Úlf- arsson. Eru þeir óragir við að fljúga henni frá Ameríku, þó lítil sé, þar sem flugþol hennar er meira en nægilegt. Annars hafa þeir hreppt slæmt veður. Þeir lögðu af stað frá Nevv York á laugardaginn og ætluðu þá að fljúga viðkomulaust til Gander, en veðrið var svo vont, norðanrok, að þeir neyddust til að lenda á flugvellinum við Sydney á Nova Scotia. Á sunnudaginn flugu þeir svo frá Sydney til Gander og var enn á norðanrok. Síðan lögðu þeir af stað frá Gander kl. 2,30 í nótt og voru væntanlegir til Nars- arssuak á Suður-Grænlandi um kl. 10 i morgun. Þar munu þeir aðeins tefja skammt en koma til Reykjavíkur í kvöld, Það er ætlun Flugsýnar, að nota flugvél þessa bæði til kennslu og leiguflugs. I fyrra annaðist flug- félag þetta m. a. leiguflug til Vestfjarða en þá kom sér illa að ein flugvél þess brann á flugvell- inum á Gjögri og á þessi nýja vél sem er mjög hentug, að koma í staðinn fyrir hana. VÍSIR Mánudagur' 18. marz 1963. f Louis til Isiunds Frægasti jazzleikari vorra tíma, Louis Armstrong, er væntanlegur til íslands. Louis er nú sem stend- ur á ferðalagi um Ástralíu, Nýja Sjáland, Kóreu og Japan en að því loknu fer hann til Bandaríkjanna, þar sem ákvörðun verður tekin um væntanlega Evrópuferð á þessu ári. Er í ráði að hann komi m. a. til íslands og verður það á vegum Péturs Péturssonar en að því er Pétur tjáði Visi £ morgun er ekki ennþá ákveðið hvenær það verður. Sumar- tízkan í Lído Hér kemur Bryndís Schram f fisléttum sumarkjól úr hvítu silki með rauðum rósum. í hendi hefur hún fallegan strá- hatt. En Bryndís á ekki þennan fallega kjól, hún er aðeins að sýna hann — myndin er nefni- lega tekin á tízkusýningu Kven- stúdentafélags íslands í Lido í gær. Fimm kvenstúdentar sýndu þar vor-, sumar- og kvöldtízk- una frá verzluninni „Hjá Báru“ í Reykjavík. Kvenstúdentafélag- ið hefur gengizt fyrir slíkum sýningum áður og hafa þær,náð svo miklum vinsældum, að er forsala aðgöngumiða að kaffi- sölunni og tízkusýningunni hófst á Iaugardag, voru allir aðgöngu- miðarnir rifnir út á hálftíma. Og ef dæma má af andlitum áhorfenda, BÍLLINN FLAUG Samningafrestur framlengd- ttr að nýja tíl 1. apríl I gærdag var bifreið ekið út af Suðurlandsbraut móts við Lækj- arhvamm en þar lenti bifreiðin 30—40 metra út af veginum og sumt af þeirri leið fór hún í loft- köstum, að því er lögreglan tjáði Vísi. Atvik þetta skeði með þeim hætti að bifreiðin R 3212 s'em var á Ieið austur Suðurlandsbraut, ætl- aði að taka fram úr annarri bif- reið, en sú bifreið beygði inn á ...................:..........■ '■ götu til hægri, Til þess að forðast lifshættulegan árekstur tók öku- maður á R 3212 þann kostinn að sveigja bifreið sinni út af veginum og stöðvaðist hún ekki fyrr en hún var komin 30—40 metra spöl út fyrir hann. Slys á mönnum urðu ekki og bifreiðin sjálf skemmdist furðu lítið miðað við aðstæður. Þó lenti hurð bifreiðarinnar vinstra megin á steini og skemmdist illa. (Ljósm. Vísis B. G.) Frestur til samninga um kaup og kjör opinberra starfs- manna hefur aftur verið fram-- lengdur um hálfan mánuð, eða til 1. apríl n. k. Kjararáð BSRB og samninganefnd ríkisstjórnar innar hafa verið á stöðugum sampingafundum undanfarið, en samningaviðræðum þeim stýrir Torfi Hjartarson, sáttasemjari ríkisins. Nefndirnar voru á fundum á laugardaginn og I gær, og enn verður fundur haldinn £ kvöld. Upphaflega var gert ráð fyrir að launamál opinberra starfs- manna færu til kjaradóms 1. marz, hefðu samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. En samningafrestur var þá tekinn til 15. marz og nú aftur til 1. april. Enn er haldíð áfram að raða fólki niðúr í launaflokka, en gera má ráð fyrir að kjara- dómur fjalli um endanlegar nið- urstöður launamála hins opin- bera og taki til starfa 1. apríl, ef samningafrestur verður ekki framlengdur I þriðja sinn. Nið- urstöður kjaradóms eiga að gilda frá 1. júlí n. k., en þar með er ekki sagt að þær þurfi að liggja fyrir hinn 1. júlí. í kjaradómi eiga sæti fimm fulltrúar, þrír tilnefndir af Hæstarétti, Sveinbjörn Jónsson, formaður, Bénedikt Sigurjóns- son varaformaður og Svavar Pálsson. Ennfremur Eyjólfur Jónsson frá BSRB og dr. Jó- hannes Nordal tilnefndur af ríkisstjórninni.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.