Vísir - 19.03.1963, Blaðsíða 1
1111
WflÉk
iii
•. 1
:
iiíÍiÍÍÍ
máám
.
iiiii
m mtg£
t
••
var tekin í morgun af íbúðablokk, sem íslenzkir aðalverktakar hafa reist við Kapláskjólsvég, og
hún einnig framkvæmdir víð aðra blokk, sem sama félag er að byrja á. Gert er ráð fyrir að Reykja-
VISIR
53. árg. — Þriðjudagur 19. marz 1963. — 64. tbl.
FLUGMENNIRNIR TVEIR
SEM SAKNAÐ ER
islenzku flugmennirnir tveir
sem nú er leitað að á hafinu
milli Nýfundnalands og Græn-
lands hafa báðir starfað sem
Piper Apache flugvél, af sömu gerð og týndist.
flugmenn hjá Loftleiðum og
báðir verið í áliti sem góðir
flugmenn.
Stefán Magnússon er 37 ára
og er einn af elztu og, reynd-
ustu flugmönnum félagsins, hóf
starf þar í ársbyrjun 1947. Hann
er sonur Magnúsar Stefánsson-
ar, og hafa þeir feðgar ásamt
fleirum rekið flugfélagið Flug-
sýn. Hinn flugmaðurinn, sem
saknað er, Þórður Úlfarsson, er
yngri maður, aðeins 23 ára.
Hann er sonur Úlfars Þórðar-
sonar augnlæknis.
Flugvélin, sem þeir voru að
koma með heim, var fjögurra
farþega vél af gerðinni Piper
Apache. Hafði Flugsýn keypt
hana til að annast kennslu og
leiguflug, en í fyrrasumar ann-
aðist félagið viðtækt ieiguflug,
einkum til Vestfjarða. En þá
vildi það óhapp til, að ein flug-
vél félagsins af Norseman-gerð
eyðilagðist í bruna á flugvellin-
um á Gjögri Og önnur flugvél
af Stinson-gerð skemmdist svo
mjög, er bifreið ók á hana á
Keflavíkurflugvelli, að ekki hef-
ur enn tekizt að gera við hana.
Átti nýja flugvélin að bæta úr
vaxandi flutningaþörf og virtust
verkefnin mikii með sumrinu.
Stefán Magnússon
ÁRANGURSLAUS LEIT AÐ
FLUGVÉtmm
Sennilegast er talið að
ísing hafi grandað Piper
Apache flugvélinni TF-
AID, sem var á leið til
islands, undir stjórn
Stefáns Magnússonar,
flugstjóra, og aðstoðar-
flugmannsins, Þórðar
Úlfarssonar. Hefur víð-
tæk leit reynzt árangurs
laus fram að þessu.
Um fimm klukkustundum eft
ir að þeir félagar lögðu upp frá
Gander heyrði loftskeytastöð á
Lake Eon, langt inni í. Labrador
skaga, til flugmanna, sem sendu
út neyðarköll á neyðarbylgjum.
Sögðust flugmennirnir verða að
nauðlenda þar sem vélarafl færi
dvínandi. Veðurskipið Bravo var
statt um 27 sjómílur frá staðn-
um (ekki 35 sjómílur, eins og
sagt hefur verið í fréttuín), sem
flugmennirnir gáfu upp, og hélt
skipið þegar á vettvang, var
komið þangað rúmum tveim
klukkustundum síðar, en fann
ekkert. Þegar var skipulögð leit
frá stjórnstöðvum í Torþay á
Nýfundnalandi, en skipstjórinn
á Bravo tók að sér leitarstjórn
á svæðinu, sem var 120 sjó-
mílna hringur út frá áætluðum
slysstað. Nokkrar flugvélar fóru
frá Nýfundnalandi, en nærstödd
skip voru beðin að taka þátt
í leitinni. Hún hefur hingað til
engan árangur borið, og hafa
menn gefið upp alla von um
nokkurn árangur, en leitinni
verður þó haldið áfram í allan
dag og kannski lengur. Allt,
sem í mannlegu valdi stendur,
er gert í leitarskyni.
I stuttu máli er þetta vitað
um ferðir vélarinnar: Eftir að
Stefán Magnússon, fl'ugstjóri,
hafði athugað veðurfréttir og
kannað fiugskilyrði óskaði
hann eftir leyfi til að mega
fljúga til Goose Bay á Ný-
fundnalandi í stað þess að
lenda á Ganderflugvellinum, en
frá Goose Bay er styttri flug-
leið yfir hafið til Narssarssuaq,
en þaðan átti svo að fljúga
beint til Reykjavíkur. Stefáni
var neitað um leyfið, þar sem
flugvöllurinn í Goose Bay er
ekki opnaður nema veðnr
hamli lendingum í Gander. Var
þá ekki um annað að ræða en
að fljúga þangað. En vegna
veðurs varð að Ienda vélinni á
Sidney-flugvellinum á Cape
Breton Island, á Nýfundna-
landi, 278 sjómílur suðvestan
við Gander. Þaðan lá svo leiðin
til Gander.
Frá Gander lögðu þeir félag-
ar upp klukkan 02.33 I gær-
Þórður Úlfarsson
nótt, eftir að hafa gert nauð-
synlegar athuganir á vélinni og
tækjum hennar og kannað flug-
skilyrði gaumgæfilega. Áætlað
var að fljúga með 125 sjómílna
hraða á klukkustund. Fimm
Framh. á bls. 5
Reykjavíkurborg leysir bragga vanda-
málib meb stórátaki/ byggingamálum
Snjór á Snæ-
fellsnesi
Stykkishólmi í morgun.
Veður versnaði á norðanverðu
Snæfellsnesi um helgina og á
sunnudagsmorgun snjóaði talsvert
svo alhvítt varð milli fjalls og
fjöru.
Jörð var þar enn í morgun al-
hvít og í nótt var frost en hlýrra
aftur á móti og batnandi veður í
morgun.
/Vegir eru yfirleitt góðir og fært
tím allt Snæfellsnes. Skógastrand-
arvegur var um skeið þungfær og
erfiður yfirferðar, en hefur þornað
og umferð um hann auðveldari
orðin.
Á tímabili var flugvöllurinn hjá
Stykkishóimi ófær sökum aur-
bleytu, en nú hefur hann þornað
upp og er orðinn góður til lendiíig-
ar.
Borgarráð Reykjavíkur sam-
þykkti á síðasta fundi sínum að
gera stórfellt átak f bygginga-
málum í því skyni fyrst og fremst
að útrýma herskálaibúðum og
öðru heilsuspillandi húsnæði í
borginni og til endumýjunar á
leiguhúsnieði borgarinnar. Gert
er ráð fyrir, samkvæmt þessari
samþykkt, að borgin byggi sam-
tals 168 íbiiðir á þremur stöð-
um og eigi sjálf og leigi út a. m.
k. 117 þessara ibúða, en Ieigu-
húsnæði hefir Reykjavikurborg
ekki reist síðan Skúlagötuhúsin
Þ
s:
víkurborg neyti forkaupsréttar að 48 íbúðum þama og leigi a. m. k. helming þeirra út.
voru byggð. í bröggum, eða her-
skálum, eru nú taidar 143 íbúðir
og eru allmargar þeirra eins
manns íbúðir. Það átak, sem nú
er fyrirhugað, á að nægja til þess
að leysa i eitt skipti fyrir öll
braggavandamálið, búa a. m. k.
öllum barnafjölskyldum, sem þar
eru nú, framtíðarhúsnæði. Bragg-
arnir verða rifnir jafnóðum og
úr þeim verður flutt, eins og
venjan hefir verið undanfarin ár.
Auk þeirra 168 íbúða, sem borg-
in ætlar að reisa og leigja út,
eða selja eiristaklingum, sam-
þykkti borgarráð, að heimilað
verði að lána til einstaklinga, er
búa í heilsuspillandi húsnæði, 60
—100 þúsund krónur á ibúð úr
Byggingarsjóði Reykjavikur-
borgar, svo að þessir einstakling-
ar geti lokið við íbúöarhúsnæði,
sem þeir kunna að eiga í smíð-
um, eða fest kaup á íbúðum. Lán
þessi verða til 10—15 ára.
Þær 168 íbúðir, sem bærinn
Framhald á bls. 5
i