Vísir - 19.03.1963, Blaðsíða 8

Vísir - 19.03.1963, Blaðsíða 8
V1SIR . Þriðjudagur 19. marz 1963. VÍSIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði, 1 lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. IIII.1111,1 IWTMBriW—— Óttinn við útlönd Þórarlnn Þórarinsson framsóknarmaður hefir borið fram tillögu á Alþingi sem hann kveður eiga að koma í veg fyrir það að útlendingum verði kleift að eignast hér fyrirtæki. Þessi tillaga er síðasta innleggið i herferð framsókn- armanna á þeim vettvangi að reyna að telja fólki trú um að ríkisstjórnarflokkarnir vilji opna landið fyrir erlendum auðmönnum. Fyrst var Efnahagsbandalagið lengi notað í þessum sama tilgangi. Slegið var á strengi þjóðerniskenndarinnar og sjálfstæðishugsjónarinnar og reynt að læða þeirri hugmynd inn hjá almenningi að engir væru skeleggari málsvarar frelsisins en fram- sóknarmenn. Því skal ekki á móti mælt, að tvímæla- laust er þeim flokki annt um að varðveita frelsi þjóð- arinnar, ekki síður en öðrum lýðræðisflokkunum. En skörin er tekin að færast allmjög upp í bekkinn þegar því er slegið föstu í sömu andránni, að framsókn sé eini flokkurinn sem treystandi sé til þess að gæta sjálf- síæðishagsmuna íslenzku þjóðarinnar. Það er þýðingarlaust fyrir framsókn að ætla að skapa sér eitthvert kosningamál úr þessum efniviði. Það vita allir sem blöð lesa og hlusta á útvarp að það sem hindraði það að ríkisstjórnin vildi sækja um fulla aðild að EBE voru einmitt ákvæði Rómarsamningsins um innflutning erlends f jármagns. Þau taldi ríkisstjóm- in ekki samræmast íslenzkum hagsmunum. Þetta ætti ekki að þurfa að rifja enn einu sinni upp. En samt skal það gert, því að framsóknarmenn geta snúið stað- reyndunum við á skemmri tíma en einu ári. Ráðherrar núverandi ríkisstjórnar sitja ekki í sætum sínum með umboð frá þjóðinni til þess að afhenda útlendingum auðlindir landsins. Hlutverk þeirra er ein- mitt að tryggja hagsmuni landsins sem bezt á fjár- málasviðinu sem öðmm sviðum. En framtíð þjóðar- innar verður ekki björt ef óttinn við eðlilega samvinnu við aðrar þjóðir og þátttöku í bandalögum vina og ná- grannaþjóða okkar verður heilbrigðri skynsemi yfir- sterkari. Hagstæð samvinna Það er ánægjulegt framtak, er fjögur fyrirtæki hyggjast stofna nýja niðursuðuverksmiðju hér í borg og framleiða fyrir erlendan markað. Norskt ffrma sel- ur vöruna. Einmitt þetta samstarf sýnir hver ávinn- ingur er af því að hafa skynsamlega samvinnu við erlenda menn og félög - samvinnu, sem báðum er til hags. Margt er enn ógert á sviði gernýtingar sjávar- afurða. Þar hlýtur erlend reynsla og erlend samvinna að auðvelda okkur sóknina. Glæpafíokkur norskra nazista afhjúpaiur Lögreglan í Osló hefur verið önnum kafin síð- ustu daga við að afhjúpa glæpaflokk ungra pilta í borginni, sem hafði m. a. komið sér upp furðulega miklu vopnasafni. I flokknum voru piltar á aldr- inum 18—20 ára og litu þeir á sig sem leynilegan nazistaflokk. Kölluðu þeir sig SS-deildina í Osló, höfðu búið sér til nazista- fána og merki og unnu haka- krossinum eið með sama hætti og SS-menn gerðu á dögum nazista. Tveir piltar eru foringj- ar flokksins, en grunur leikur á því að eldri menn, gamlir nazist ar standi að baki hreyfingunni. ★ Það vekur megtan óhugnað hve piltunum hefur tekizt að safna sér miklum vopnabirgð- um. Miklum fjölda af rifflum, nokkrum Iéttum vélbyssum og auk þess talsverðum birgðum af dýnamitl, vítisvélum og hand- sprengjum. Þegar norska lögreglumenn- irnir fundu dýnamítbirgðir þeirra kom í ljós, að þær voru mjög hættulegar, þar sem hluti dýnamítisins, er svo sprengihætt að það getur sprungið hvenær sem er. Flokkurinn hefur tekið þátt í ýmis l^onar afbrotum, aðallega í Osló og nágrenni, en fram að þessu hefur hann ekki beitt vopnum við afbrotin. Þó hafa piltarnir notað dýnamít við að sprengja upp peningaskápa. Lögreglan er þegar búin að handtaka tíu þessara pilta og kom í ljós, að sumir þeirra gengu með skammbyssur á sér. Vopnabirgðir fundust á heimil- um þeirra og I klefa einum sem þeir notuðu sem aðalbækistöð. Þar fannst og mikill fjöldi naz- istamerkja og ýmissa gagna um félagsskapinn, 1 herbergi eins piltsins fór lögreglan að skoða bækur. Tóku lögreglumenn nið- ur úr hillu þykka bók, en þegar þeir opnuðu hana urðu þeir þess vísari að skorið hafði verið úr síðunum til þess að geyma þar skammbyssu. ★ Lögreglan hafði sýningu á vopiiasafninu og segja blöðin sem Iýsa henni, að sýningin hafi verið all óhugnanleg. Þar var fjöldi af vélbyssum, hermanna- rifflum og skammbyssum, stórir hlaðar af skotfærum, m. a. hlað in vélbyssumagasln. Þá voru þar einnig þýzk skrautsverð og Frh. ð bls. 13 1 plöggum sem fundust I bækistöð piltanna var mikið af nasista- merkjum. Hér er teikning sem á að sína rísandi sól yfir norskum fjöllum og nazistamerkið yfir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.