Vísir - 19.03.1963, Blaðsíða 10

Vísir - 19.03.1963, Blaðsíða 10
JO V í S I R • Þriðjudagur 19. marz 1963. Veiðiár — ,/ fnunhald af bls. 4. rétt til Iangs tíma af Hafnar- fjarðarkaupstað, sem er eigandi vatnsins. Hér hefur f höfuðdráttum ver ið greint frá öllu helztu laxveiði ám landsins svo og siiungsvötn um og silungsám, sem til greina koma til stangveiði. Ætti þetta að vera til nokkurrar glöggvun ar fyrir þá veiðimenn sem langa til að renna einhvers staðar færi í poll á ferðum sínum um landið í sumar. Til gamans er einnig birt sam anburðarskýrsla á laxveiði í nokkrum ám á s. 1. sumri og sumrinu næsta áður, ásamt meðalþunga laxanna í hverri á fyrir sig. Ár Eliiðaár Laxá í Kjós Bugða Norðurá Laxá í Dalas. Viðidalsá Laxá í Aðaldal Vatnsdalsá Laxa- fjöldi 19611962 769 856 1047 995 140 132 983 1011 743 423 1227 1329 880 955 1203 Meðal þ. í pundum 1961 1962 4.96 5.35 6.08 6.94 6.25 5.93 5.37 5.53 6.20 8.14 8.11 7.93 8.18 9.57 8.92 Ofangreind skýrsla er að þvi leyti athyglisverð að hún sýnir a. m. k. f sumum tilfellum hví- líkar sveiflur geta orðið í lax- veiðinni frá ári til árs, en þar er Laxá í Dalasýslu gleggsta dæm- ið. Þar veiddust allt að þvf helm ingi færri laxar í fyrrasumar heldur en sumarið næsta á und an. Hins vegar er meðalþungi laxanna mun meiri I fyrra held ur en 1961. Af framantöldum ám hefur Laxá í Aðaldal staðið sig hvað bezt, bæði hvað aukingu laxa- fjölda snertir og eins aukningu þunga hinna veiddu laza. Listsýningar — Framhald af bls. 7. árs. Það má fara nokkuð nærri um, að forsprakkar Félags fs- lenzkra myndlistarmanna muni vilja sitja einir að þeirri fúlgu — ekki sizt af því, hvað hún er rausnarleg. Við getum aðeins vonað, að aðrir taki í taum- ana, og svo verði um hnútana búið, að þessu mikla fé verði varið til að bregða upp mynd af allri íslenzkri list en ekki aðeins litlu vafasömu broti hennar. Það er okkar skoðun, að svo langt hafi verið gengið í of- beldinu, að Alþingi verði að taka í taumana! Við vonum, að menn — innan Alþingis og ut- an — átt sig á því, þegar þeir hugsa þetta mál til hlitar. Annað væri ekki vanzalaust." • Vísir vill taka undir þessi orð hins ágæta listamanns, Finns Jónssonar, formanns Myndlist- arfélagsins. Enginn getur látiö sér á sama standa um það, hvers konar mynd er brugðið upp af íslenzkri list erlendis .— sfzt þegar almannafé er var- ið til slikrar listkynningar. Sú klfka, sem öllu hefir fengið að ráða i þessum efnum að und- anfömu, hefir beitt aðra órétti alveg nógu lengi. Alþingi verð- ur að sýna, að það telur nógu Iangt gengfð og nú skuli breyt- ing á verða. Hafi þessir menn þá enn í hótunum um að taka ekki þátt í sýningum erlendis, ber ekki að amast við þvi. Þeir hafa þá dæmt s’g og list sfna sjálfir ef þeir þora ekki að sýna hana við hlið verka frá öðrum Þa8 yrði þungur áfellisdómur en naumast óréttmætur. Stúdentarnir — Framhald af bls. 9; virtist sem Ghana ætluðu að hafa við Búlgörunum. Þá komu lögreglumennirnir og stöðvuðu leikinn. Þeir gerðu enga tilraun til að finna Búlgarana sem áttu upptökin en handtóku Ghana- mennina. Fjórir af þessum sex Ghanamönnum meiddust I átök- unurn. Var þeim sleppt úr haldi næsta dag, en sendir þegar f stað heim til Accra með flugvél að beiðni Ghanastjórnar. Hinir tveir sem voru ómeiddir urðu að dúsa í fangelsi í heilan mán- uð áður en mál þeirra kæmi fyr- ir dómstól. Einu vitnin i máli þeirra voru Búlgarar, sem höfðu verið áhorfendur að aðförinni gegn þeim. Annar stúdentinn George Ammah var dæmdur f eins árs fangelsi, hinn E. A. Att- iga í þriggja mánaða fangelsi. En að kröfu Ghanastjórnar voru þeir Iátnir lausir og sendir heim Jjetta atvik olli miklum óróa meðal afrískra stúdenta í Búlgaríu. Við áttum að vísu enn vini meðal Búlgara, en búlgar- ska stjórnin gerði engar ráðstaf- anir til að koma í veg fyrir of- sóknir gegn okkur. Af þessu drógum við þá ályktun, að yfir- völdin styddu ofsóknirnar gegn okkur. Fram að áramótum 1961—2 voru afrísku stúdentarnir í Búlg- aríu tiltölulega fáir, aðeins nokkrir stúdentar frá Mali, Súdan og Gíneu. Þá var heldur engin þörf fyrir þá að mynda samtök með sér. En þegar við stúdentarnir frá Ghana komum þangað vildi svo til, að við bjuggum allir á sama stúdenta- garðinum. Við ákváðum að stof- na félag Ghanastúdenta til þess að koma saman og ræðast við og var ég kjörinn formaður þess. Okkur kom aldrei til hugar að fara að biðja um leyfi til að mega stofna slíkt félag og var heldur ekkert sett út á það. 'yið vorum komnir til Búlg- aríu til að Iæra, en ekki til að skipta okkur af stjórnmálum. 1 byrjun vorum við mótfallnir því að stofna sameiginlegt félag allra Afríkustúdenta af ótta við að það myndi blandast inn í stjórnmál. En nú kom að því, að við komumst á þá skoðun að slík félagsstofnun væri nauðsyn- leg, ekki til að skipta sér af stjómmálum heldur til að vem- da hagsmunni okkar, koma fram sameiginlega fyrir okkar hönd, þegar Iögregluvernd brygðist og ennfremur til að stuðla að vin- áttu og kynnum milli búlgar- skrar æsku og Afríkumanna. I desember s.l. höfðum við gert uppkast að lögum félags Afrikustúdenta og um leið og við ákváðum að stofna það gen- gu stúdentar frá 22 Afríkulönd- um í það. í stjórn voru kjömir fimm stúdentar og var formað- urinn Tetteh Tawiah, heimspeki- stúdent frá Ghana. Þegar við höfðum stofnað félagið buðu við tveimur mönnum að gerast verndarar félagsskaparins sendi herra Ghana í Búlgaríu og menntamálaráðherra Búlgaríu og snerum við okkur til hans í vináttuskyni við Búlgaríu. Við urðum því undrandi, þeg- ar íormaðurinn Tawiah var skömmu síðar kallaður á fund menntamálaráðherrans, sem til- kynnti honum að við yrðum ap leysa félagskapinn tafarlaust upp, þar sem hann strlddi ð móti búlgörskum reglum. Camtímis þessu fórum við að ^ heyra orðróm um að búl- \ gölsk stjórnarvöld héldu að fé- Iagið ætti að vera pólitísk samtök fjandsamleg búlgörsku stjóminni. Þess vegna ákváðum við nú að gera sendinefnd út á fund menntamálaráðherrans afhenda honum lög félagsins og skýra út hinn ópólitíska tilgang félagsins. Hann tók við lögun um, en svaraði engu, bað okkur aðeins um að koma síðar og tala við sig. Það næsta sem gerðist var, að þann 6. febrúar var for- manni félagsins Tetteh ’l'awiah vikið úr háskólanum og voru ástæðurnar sagðar þær, að hann hefði sótt illa kennslu- stundir og ekki tekið próf á rétt um tíma. Sannleikurinn var, að allir stúdentar í Búlgaríu fá ástundunarskírteini, þar sem tímasókn þeirra er skráð. Allir prófessorarnir höfðu undirritað skfrteini hans og lýst sig á- nægða með ástundun hans. Og próf hans hafa dregizt vegna þess, að kennslubók, sem hann átti að lesa var ófáanleg og hafði prófessorinn gefið honum frest eins og sjálfsagt var. Sakargiftirnar voru þannig falsaðar, en þó hefði verið erf- itt að fullyrða að um ofsóknir hefði verið að ræða, ef það hefði þá ekki gerzt um leið, að varaformaður félags afrískra stúdenta, Amlak frá Eþíópíu hefði ekki líka fengið áminn- ingu um að honum yrði vikið úr skóla, ef hann fylgdi ekki reglunum. Þá var það fyllilega Ijóst, að brottvikningin var ekki af persónulegum ástæðum held ur eingöngu vegna þess, að búlg ölsku stjórnarvöldin voru fjand samleg félagi okkar. Jj ^augardaginn 9. febrúar var J Tawiah skipað að verða á brott úr landinu innan 12 klst. Þegar fréttir af þessu bárust söfnuðust um 150 afrískir stúd- entar saman á stúdentagarðin- um og gengu síðan Lenin-stræti til skrifstofu forsætisráðherr- ans. Við ætluðum að biðja hann um að veita Tawiah að nýju inngöngu í Háskólann. í ráðu- neytinu var fyrir svörum for- ingi Kosomol, æskulýðsfylking ar kommúnista. Hann sagði að forsætisráðherrann væri ekki við, en hann myndi vilja ræða við tokkur kl. 9 á mánudags- morgun. Á mánudaginn fór sjö manna sendinefnd okkar til forsætis- ráðuneytisins og kom þar á réttum tíma. En þegar hún hafði beðið í biðstofunni f fimm klst. kom ritari forsætisráðherr ans fram og tilkynnti henni að ráðherrann yrði ekki til viðtals fyrr en síðar um daginn. * Seinna um daginn kom lög- reglustjóri borgarinnar á stúd- entagarðinn til okkar og til- kynnti okkur, að „kröfugöng- ur“ eins og við hefðum farið til skrifstofu forsætisráðherr- ans væru bannaðar en við höfð um gengið skipulagslaust eftir götunni. Hann benti okkur á að refsingin við þessu væri 3 árá fangelsi og jafnvel 15 ára fang- elsi, ef það væri gert þrátt fyrir aðvörun og bað hann okkur um að skilja orð sín nú sem að- vörun. Við svöruðum að við hefðum ekki verið í neinni kröfugöngu, hefðum aðeins vilj að fá áheyrn hjá íorsætisráð- herranum. Þá benti hann okkur á það, að ef við vildum fá við- tal við forsætisráðherrann ætt- um við að leggja beiðni um það fyrir innanríkisráðherrann. Ákváðum við nú að fara til innanríkisráðherra á þriðjudags morgun. y^n áður en það gæti orðið gerðist alvarlegri atburður. Sterkt lögreglulið, a.m.k. hundr að lögreglumenn komu að stúd entagarðinum kl. 3 aðfaranótt briðjudagsins og umkringdu hann. Við vorum auðvitað allir í fasta svefni, en lögreglumenn irnir gengu til þeirra herbergja þar sem stjórnarmeðlimir stúd entafélags okkar bjuggu. Við vorum svo heppnir að búlg- arskir vinir okkar höfðu varað okkur við, að við mættum eiga von á heimsókn lögreglunnar, Þess vegna höfðu fimm stjórn armeðlimir falið sig í öðrum herbergjum. En tveir þeirra voru í rúmum sínum, Matthews frá Togolandi og Daniel Orfah frá Nigeríu. Handtók lögreglan þá og sagði þeim að hafa hljótt um sig er þeir voru leiddir burt með valdi. En Matthews hróp- aði hástöfum er hann var leidd ur burt: — Ég hef verið hand tekinn og er leiddur burt, en ég stend sem fyrr með afríska stúdentafélaginu. „Við hróp hans vöknuðum við og þegar við litum út um gluggann og sáum að húsagarðurinn var full ur af lögreglumönnum. Lögreglan leitaði ekki í öðr- um herbergjum, en það má í- mýnda sér, að okkur varð ekki svefnsamt það sem eftir var nætur. Ijegar kom fram á morgun á- kváðum við í sameiningu, að okkur væri orðið óvært í Búlgarfu. Þess vegna ákváðum við að pakka niður í ferðatösk ur okkar og skyldum við síðan ganga allir í hóp með ferðatösk urnar til menntamálaráðuneyt- isins og sýna þar með að við værum staðráðnir í að fara úr landi. Við ætluðum að krefjast þess í ráðuneytinu að félögum okkar yrði sleppt úr fagelsi þeg ar í stað, ef það fengist ekki fram ætluðum við að krefjast þess að fá þegar vegabréf og farmiða burt úr Búlgaríu. Við héldum saman sem eimt maður og lögðum af stað rúmlega 200 afrískir stúdentar frá 21 Af- ríkulandi. Þar var snjókoma og skaflar á Lenin-stræti. Við höfðum farið langleiðina, þegar við sáum allt í einu mörg hundruð jeppabíla koma að okk ur úr öUum áttum og út úr þeim stukku sennilega 6—7 hundruð vopnaðir lögreglu- menn, sem umkringdu okkur. Öll umferð stöðvaðist en lög- reglumennirnir og flokkur ó- einkennisklæddra borgara réð- ist að okkur með kylfuhöggum og barsmíðum. Þeir börðu af- rísku stúlkurnar í hópnum engu siður en piltana. Stúdína ein frá Togolandi fékk slíkt högg á andlitið að blóðið streymdi úr nefi og munni hennar, marg ir aðrir stúdentar meiddust sumir alvarlega. Síðan var gengið að því að handtaka okkur og sérstaklega stjómarmeðlimi félags okkar. Búlgaskir stúdentar komu og bentu Iögreglunni á stjórnar- meðlimina og þeir voru hand- teknir hver á fætur öðrum. En þegar þeir bentu á Tawia var okkur nóg boðið og við mynd uðum þétta skjaldborg honum til verndar. Sú skjaldborg rið- laðist ekki fyrr en lögreglan rauf hana með miskunnarlausri atlögu. AIls voru 50 afrískir stúdent ar handteknir og lokaðir í fang elsi, en næsta dag var öllum sleppt nema stjómarmeðlimun- um , Eftir að Allen W. Dulles dró v sig í hlé sem yfirmaður leyni- . þjónustunnar hefur hann ekki * hikað við að Iáta sfna skoðun , á hlutunum í ljós — og hann hefur sérstakt dálæti á að tala | um Kúbu-vandamálið, sem hann átti þó sinn þátt f að :l gera. En Bandaríkjamenn eru ekki > sérlega hrifnir af siðasta spá- dómi hans: — Kúbuvandamálið? segir. hann. Bjartsýnismenn halda : að við þurfum að burðast með það i hálft ár, bölsýnismenn reikna með sex árum en ég geri ráð fyrir 60 árum. X Richard Nixon fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna virö ist ekki geta verið án þess að koma opinberlega fram .Eftir kosningaósigurinn í Kalifomíu sagði hann að nú væri öllu því Iokið hjá honum sem héti að koma fram opinberlega — en nú segir hann að hann sé fús til að haida fyrirlestra um stjómmálaleg og efnahagsleg vandamál. Og hann var tekinn á orðinu. Eitt af hinum stóru sjónvarps félögum í New York hefur ráð ið hann til að tala um stjóm mál í vinsælasta þætti sjón- varpsins. X Nýlega var sjónvarpsviðtal í BBC við Paul Getty, olfukóng- inn og ríkasta mann hcims. — Hvað ætti maður eigin- lega að gefa manni, sem hefur allt í þessum heimi?, var spurt. — Tja, svaraði Getty, smá- grein í mannkynssögunni væri ágæt gjöf. Annars er mfn heit- asta ósk að ég væri ekki alveg svona leiðinlegur. Ef til viil er það vegna þess að það virð- ast allir þekkja mig og taka eftir mér. Ég öfunda litla kaup sýslumanninn sem er óþekkt- ur. \. — Og hvað kallið þér „lit- inn“ kaupsýslumann, herra Getty?“ — Mann, sem græðir um 10 milljónir á ári. (Það er það sem Getty græðir á einum degi). — Og þegar maður hefur nú svona miklar tekjur — hvernig er þá hægt að eyða þeim? — Það hugsa ég aldrei um. Ég hugsa bara um að græða melra. — En er nú ekki sagt: „Þú getur ekki tekið það með þér“ — Jú, og það er alveg á- gætt. Auramir yrðu þokkateg byrði hinum megin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.