Vísir


Vísir - 28.03.1963, Qupperneq 9

Vísir - 28.03.1963, Qupperneq 9
V í S IR . Fimmtudagur 28. marz 1963, • -I jjga TjAÐ er mjög vel til fundið hjá Þjóðleikhúsinu að frum sýna Andorra eftir Max Frisch á hinum alþjóðlega leikhúsdegi. Leiklistin er alþjóðleg listgrein og Andorra er gott dæmi um stefnu hinnar nýju kynslóðar leikritahöfunda sem sífellt leit- ast við að ávarpa allt mannkyn ið í verkum sínum, draga heims myndina saman í hnotskurn. Þeir sneiða hjá allri staðfærslu, leikrit þeirra gerast raunar hvar sem er. Tilgangur þeirra er ekki fyrst og fremst sá að segja á- horfendum ákveðna sögu heldur verða orðin og athafnirnar leið- sögn til nýrrar víðáttu sem birt ist handan sögunnar i leiknum og gerir hann ^ð ákveðnum boðskap. Nútímaleikritun er meðvituð tilraun höfundar- ins til þess að hafa áhrif á manninn, mannkynið, til hins betra. Þannig er leiklistin orð- in áhrifamikið afl í baráttunni fyrir bættum heimi. Leikhúsið er predikunarstóll nútímans. j Andorra er tekið fyrir eitt- hvert alvarlegasta vanda- vandamál mannkynsins: kyn- þáttafordómar. Ungum dreng er sagt að hann sé Gyðingur. Af þeim sökum er hann ofsóttur, hrakinn og smáður. Þetta verð- ur honum veruleiki og óum- breytanlegur sannieikur: hann er Gyðingur. Þegar drengurinn fær svo loksins að heyra sann- leikann um sjálfan sig er það orðið of seint. „Hversu marg- an sannleik hafið þið?“ segir hann þegar honum er sagt að hann sé ekki Gyðingur heldur sonur kennarans. Hann er orð- inn Gyðingur í hjarta sínu og því verður ekki breytt. Prestur- inn kaþólski hafði áður sagt honum að hann yrði að taka það á sig að vera Gyðingur, nú segir pilturinn við prestinn að hann verði að taka Gyð- inginn á sig. Sjálfur getur hann ekki breytzt úr þessu. Hin forna lygi er orðin að veruleika. pRESTURINN kaþólski tekur ekki á sig Gyðinginn frem- ur en aðrir. Þegar pilturinn er sakaður um morð er presturinn sá eini sem getur sannað sak- leysi hans en hann bregzt og kýs að þegja. Hann þorir ekki að ganga í berhögg við almenn- ingsálitið. Eftir á þegar piltur- inn hefur verið drepinn vitna borgararnir um sakleysi. sitt. Þeir harma mjög að þetta skyldi gerast en segjast einungis hafa effir Max Frisch leikstjóri Walfer Firner verið áhorfendur og ekkert get- að gert. En biturleiki höfund- arins birtist í því að þeir harma atburðinn raunverulega aðeins vegna þess að drengurinn var þrátt fyrir allt ekki Gyðingur. Annars hefði þeim svo sem stað- ið á sama. 'dúi TVf'enn hafa ugglaust tilhneig- ingu til þess að áiykta sem svo að Max Frisch sé þarna að ritið alþjóðlegt og varanlegt gildi meðan kynþáttafordómar eru til í veröldinni. En snilld verksins kemur fyrst og fremst fram í því hversu beitt ádeilan er og óhugnanlega lifandi. And- orra er hreint meistaraverk og sá maður sem ris ósnortinn á fætur að sýningu lokinni hlýtur að bera stein í hjarta stað. Og höfundur nær áhrifum sínum þótt hann geri ekkert til þess að koma á óvart, þvert á móti segir hann áhorfendum fyrir- fram hvað muni gerast. Gildi verksins er nefnilega ekki fólg- ið í atburðarásinni heldur þung- anum, veruleikanum og þeirri ljóðrænu fegurð sem höfundi tekst að birta þrátt fyrir ó- hugnanlegt raunsæi. Höfundur- inn varpar fram spurningum sem hver og einn verður að svara fyrir sig: hvernig hefðum við brugðizt við? Hefðum við tekið á okkur Gyðinginn? Hefð- um við gætt bróður okkar? Eða hefðum við beygt hjá eins og Pétur Gautur og kosið auðveld- ari leiðina: að horfa á, hafast ekki að, vera nytsamur sakleys- ingi, lenda ekki í vandræðum? Hefðum við þorað að mótmæla eða hefðum við fylgt fjöldanum, þessu samfellda flóði af hug- ieysi einstaklinganna? 1 ariÍEbne! lií 5* .ri a:r:oA T eikstjórn próf. Walters Firners er mjög styrk, ör- ugg og vandlega unnin. Andi hans svífur alls staðar yfir beina spjótum sínum gegn naz- istum en ádeilan er miklu víð- tækari en svo. Gyðingahatur er miklu eldra fyrirbæri í veraldar- sögunni en nazisminn þótt hans hlutur sé verstur. Auk þess er Andorra árás á alla kynþátta- fordóma þótt dæmi sé tekið af Gyðingi. Þess vegna hefur leik- vötnunum og hann blæs lífi i hvert atriði og nýtir möguleika verksins til fulls. Það er ekki siður hinna nýrri leikritahöf- unda að einskorða túlkun verka sinna og þar af leið- andi hafa leikstjórar mikið frelsi. Þetta frelsi notar Firner mjög skemmtilega með Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörg Kjeld. atriðum sérri vifðast srriá en hvessa , ádeilu - höfundarins til muna eins og til dæmis þegar hann lætur prestinn hætta við að gera krossmark fyrir Andra — því vitanlega getur kaþólskur prestur ekki gert krossmark fyrir Gyðingi, að minnsta kosti ekki maður sem er „kristinn að atvinnu" eins og faðir Benedikt. Ég get- varla hugsað mér að hægt sé að setja Andorra á svið hér með meiri árangri en Walter Firner nær en ætti ég að finna að ein- hverju væri það helzt, að ef til vill mætti segja að ná hefði mátt meiri ógn í Gyðingaskoð- unina. Þá má deila um val í tvö hlutverk. Verður vikið að því síðar en raunar er það ó- hægt um vik af því maður veit ekki að hve miklu leyti hann Á torginu i Andorra: Gisli Alfreðsson, Bessi Bjarnason, Róbert Arnfinnsson, Lárus Pálsson, Gunnar Eyjólfsson, Baldvin Halldórsson og Jón Sigurbjörnsson. hefur ráðið hlutverkaskipun. En ég vil undirstrika ótvíræð- an sigur leikstjórans. ^ndri, hinn ógæfusami pilt- ur, er afbragðsvel leikinn af Gunnari Eyjólfssyni, sem leikur af ógleymanlegri hlýju og ást á viðfangsefni sínu. Honum tekst fullkoml,ega að ná aldri piltsins og skilur örlög hans. Og honum tekst að setja sig svo í spor Andra að hann lifir hann á sviðinu. Leikur hans er sönn list. Hitt er svo annað mál að svo lítur út sem Þjóðleikhúsið ætli hreinlega að ganga af Gunnari dauðum á þessum vetri. Hann hefur far- ið með hlutverk Péturs Gauts sem er eitt erfiðasta' hlutverk sem til er. Jafnframt setur hann Dimmuborgir á svið og nú bætist Andri við. Auk þessa setti hann „Frænkuna" á svið og lék í „17. brúðunni". Þjóð- leikhúsið má ekki níðast þannig á beztu iistamönnum sínum. Það á að vaka yfir heill ■ þeirra í stað þess að reyna að eyði- leggja þá. Kristbjörg Kjeld leikur Bar- blin einnig af mikilli list en henni tekst kannski ekki eins að ná unglingsaldrinum og Gunnari. Hún verkar þroskaðri en hann. Leikur hennar nær há- marki i lokaatriðinu þegar Barb lin í geðveiki sinni reynir að kvitta yfir syndir landa sinna. Innlifun hennar er þá slík að sjaldgæft er að sjá þvílíkan 'leik hér. Ég hygg að Kristbjörg hafi hér náð lengst í list sinni til þessa. ^ndorrarnir eru sundurleitt fólk og misjafnlega skapað af höfundi sínum. Skemmtileg- asti náunginn meðal þeirra er vafalítið héraðslæknirinn og Lárus r ' -,on túlkar þennan dæmigerða hugleysingja og kjaftaskúm af dæmafárri leikni. Framhald á bls. 10. Þióðleikhúsið: ANDORRA

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.