Vísir - 29.04.1963, Side 3
V í S IR . Mánudagur 29. apríl 1963.
75
Rætt við Landsfundarfulltrúa:
Fjörmikið athafnaiíf um alit land
Á laugardaginn birtust í Vísi
nokkur stutt viðtöl við athafna-
menn utan af landi, fulltrúa á
Landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins. Þar lýstu þeir í fáum orð-
um helztu framkvæmdum, sem
stóðu yfir í héruðum þeirra,
voru fyrirhugaðar eða nýlega
var lokið við. Fréttamaður Vís-
is hitti fjóra Landsfundarfull-
trúa nokki-u síðar og ræddi
stuttlega við þá um sömu efni.
Bar þar allt að sama brunni og
f hinum fyrri samtöium: í hér-
uðum þeirra og bæjum er mikil
atvinna — miklar framkvæmdir.
Árni Jónsson.
Stórbyggingar
á Akureyri
Fyrst var rætt við Árna
Jónsson, tilraunastjóra á Akur-
eyri. Hann drap á framkvæmdir
í höfuðborg Norðurlands og
sveitinni í kring.
— Þar er feiknarlegur hug-
ur í mönnum hvað byggingar-
mál snertir. Úthlutað hefur ver-
ið fleiri lóðum á Akureyri, frá
áramótum, en nokkru sinni fyrr.
Ýmsar stórbyggingar eru í
smíðum og má þar m. a. nefna
nýtt Sjálfstæðishús, samkomu-
og veitingahús, sem væntanlega
verður opnað um miðjan júní.
Á vegum bæjarins eru einnig
miklar byggingarframkvæmdir.
Nefna má viðbyggingu við
gagnfræðaskólann, elliheimili,
sem var tekið í notkun á sl. ári,
það er fyrir 30 vistmenn. Nú
um páskana var opnað skíða-
hótel í Hlíðarfjalli og dvöldust
þar um hátíðarnar nær 200
gestir.
Úr héraðinu f kring er ýmis-
legt að frétta. Mjólkurframleiðsl
an þar jókst á sl. ári um 5—6%.
Þar er meira um framkvæmdir
en undanfarin ár. Vélakaup
verða meiri hjá bændum þetta
ár en áður. Búin eru orðin stór
og góð og véltækni þar mikil.
Árni vék aftur að Akureyri,
að iðnaðinum þar sérstaklega:
Merkasti iðnaðurinn, sem stofn-
að hefur verið til á Akureyri á
undanförnum árum er niður-
suðuverksmiðja Kristjáns Jóns-
sonar & Co. Hjá þessu fyrirtæki
hafa starfað allt að hundrað
manns. Það er í stöðugum
vexti. Verksmiðjan fékk nýja
vélasamstæðu fyrir þremur ár-
um og hefur gengið mjög vel.
Aðalhráefnið er smásild, sem
veiðist á Pollinum. Önnur iðn-'
aðarfyrirtæki á Akureyri hafa
einnig keppzt við að endurnýja
hjá sér.
En hjá okkur eins og annars
staðar er vinnuaflsskortur mik-
ill. Það vantar bæði verkamenn
og faglærða. Stundum tefst
uppskipun við höfnina vegna
þess að verkamenn vantar.
Þetta stendur auðvitað margri
framkvæmdinni fyrir þrifum.
Hafnnrbætur
á Sigiufirði
Baldur Eiríksson, forseti bæj-
arstjórnar á Siglufirði varð
næst á vegi okkar: Miklar hafn-
arbætur hafa átt sér stað á svo-
kallaðri Innri Höfn, svo ég
nefni einkum opinberar fram-
kvæmdir. Endurbætur á Síldar-
verksmiðjum ríkisins hafa verið
stöðugar, f þessu sambandi má
geta endurbóta á síldarverk-
smiðju Rauðku. Mikill bygging-
arhugur er í mönnum. Fyrirhug-
að er að reisa verkamannabú-
staði og verið er að byggja nýtt
sjúkrahús. Þá má geta fyrsta
áfanga eins konar ráðhúss fyrir
Siglufjörð, en í þessum áfanga
verður bókasafn bæjarins.
Bærinn heldur áfram ræktun-
arframkvæmdum sínum á Hóli,
kúabúi, sem hann rel^ur.
Baldur Eiríksson.
Siglfirðingar binda miklar
vonir við Strákaveg. Nú er bú-
ið að ákveða fjárveitingar til
hans, svo að það mál er sem
sagt á lokastigi.
Loks má geta þess að atvinna
hefur verið góð og tekjur manna
eftir því.
Hermann Þórarinsson.
Fólk vill flytja
til Blönduóss
Hermann Þórarinsson, útibús-
stjóri á Blönduósi er einn af
frambjóðendum Sjálfstæðis-
manna f Norðurlandskjördæmi
vestra. Hann gat fyrst um ýms-
ar framkvæmdir á Blönduósi.
— Félagsheimilið er ein
stærsta framkvæmdin hjá okk-
ur. Verið er að byggja brú með
tvöföldunft akreinum yfir
Blöndu. Fyrri helmingnum var
lokið sl. sumar og verður brúin
væntanlega fullgerð í haust.
Fyrirhugað er að byg^ja sam-
eiginlega byggingu fyrir útibú
Búnaðarbankans og skrifstofur
Blönduósshrepps og héraðs-
bókasafn. Kaupfélagið er byrjað
á nýju verzlunarhúsi. Kaupfé-
lagið ætlar að reisa verksmiðju
til að vinna úr úrgangi frá nær-
liggjandi sláturhúsum. Það verð
ur þarflegt fyrirtæki. Loks má
geta þess að kaupfélagið hefur
sett upp fóðurblöndunarvélar.
Tvö vélaverkstæði eru á Biöndu
ósi og voru þau bæði stækkuð á
þessu ári. Plastverksmiðja var
reist í fyrra. Rekstur hennar
gengur vel, mikil eftirspurn er
eftir framleiðslu hennar.
Tilfinnanlegur húsnæðisskort-
ur er á Blönduósi, hélt Her-
mann áfram. Nokkur íbúðar-
hús eru í smíðum, en það er
alltaf að koma nýtt fólk,, sem
vili setjast að hjá okkur. At-
vinna er næg — en húsnæði
vantar fyrir fólkið, eins og ég
sagði.
Þvl næst vék Hermann að
framkvæmdum bænda með
nokkrum orðúm. Hann gat þess
að þeir hefðu lagt í allnokkur
vélakaup, nýrækt væri talsverð
og yfirleitt blómlegt í sveitinni
og grózka mikil.
Merkilegar
lagqsetningar
Loks hittum við Sigurð
MöIIer, erindreka Sjálfstæðis-
flokksins á Suðurlandi.
Hann bar mikið lof á Ingólf
Jónsson landbúnaðarráðherra,
sem hann kvað hafa undirbúið
og fengið samþykktar ýmsar
lagasetningar er væru bændum
ómetaniegar, ekki aðeins bænd-
um á Suðuriandi heldur um alit
land. — Þær snerta þjóðarhag,
sagði Sigurður, og eru mjög
þýðingarmiklar sem slíkar.
— Þá hefur hið opinbera
haldið áfram að auka við-
vatnsaflsstöðvarnar, sem fá
orku sína úr vatnsaflsstöðvum
Árnessýslu. Verið er að bæta
við einni vatnsaflvélinni ennþá
í Sogsvirkjunina, við Irafoss.
Framsóknarmenn eigna sér
þessar framkvæmdir allar sam-
an, sagði Sigurður, einnig þessa
nýju viðbót, en öllum má vera
ljóst að það var Sjálfstæðis-
flokkurinn sem hrinti þessari
síðustu framkvæmd af stað og
hefur iengst af öllum flokkum
á íslandi og bezt barist fyrir
rafvæðingu landsins.
Sigurður Möller.
Farfuglar fá háseignma Víði■
velli fyrir
Það mun fyrir nokkru hafa verið
afráðið að Farfugladeild Reykjavík
ur fengi húseignina Víðivélli við
Sundlaugaveg til afnota fyrir gisti-
heimili í sumar.
Áður hafði komið til tals að
Farfuglar fengju ásamt Æskulýðs-
ráði Reykjavíkur, húseignina Höfða
til umráða, en af því varð þó ekki
og þess í stað hafa borgaryfir-
völdin látið Farfuglum Víðivelli í té
a. m. k. um óákveðinn tíma.
Hér er þó aðeins um tímabundna
lausn að ræða, því að þetta hús-
næði á að rífa áður en langt um
líður. Það hefur því komið mjög
til álita að félagið festi kaup á hent
ugri húseign, þar sem það verður
erfiðara með hverju árinu sem
líður að notast við bráðabirgðahús
næði. Þetta mál er nú til athug-
unar hjá Farfuglum. Þeir munu eiga
skuldlausa eign að ’verðmæti um
14 millj. kr. og tekjuafgangur s.
1. árs nam um 43 þús. kr.
Starfsemi Farfugladeildar Reykja
víkur hefur aukizt mjög hröðum
skrefum undanfarin ár. Þá hefur
þátttaka í ferðum og skemmtunum
félagsins og fjöldi gistinátta er-
lendra manna á vegum þess farið
ört vaxandi. En gistingar útlend-
inga eru orðnar svo margar á
sumrin að Farfuglar hafa orðið að
ráða fastlaunaðan umsjónarmann
við gistiheimilið, sem það hefur til
þessa haft I Austurbæjarskólanum.
Á s. 1. sumri efndu Farfuglar til
21 ferðar víðs vegar um land, en þó
einkum um nágrenni Reykjavíkur.
Þátttakendur voru rúmlega 560, og
svarar það til þess að 2? þátt-
takendur hafi verið í hverri ferð til
jafnaðar.
Gistingar útlendinga í gistiheim-
ili Farfugla í Reykjavlk voru sam-
tals 204Ö á s. 1. sumri, og er það
300 gistingum fleira en sumarið
1961. Það sumar gistu I’slendingar
1600 nætur I erlendum farfugla-.
heimilum.
I nágenni Reykjavíkur á Farfugla
deild Reykjavíkur tvö gistiheimili,
Heiðarból skammt frá Lögbergi og
Valaból I nágrenni Kaldársels. Þau
i hafa hvort um sig verið starfrækt
l um 20 ára skeið.
i Farfugladeild Reykjavíkur hefur
j nýlega sent frá sér áætlun um
sumarferðir^, en samkvæmt henni
1 eru rúmlegá 20 ferðir áætlaðar um
: helgar, og þrjár langferðir fyrir
sumarleyfisfólk. Sú fyrsta verður
' dagana 13.—21. júlí I Þórsmörk.
Þar verður dvalið I viku, og efnt til
gönguferða um nágrennið. Dagana
20.—-28. júlí verður farið I Arnarfell
hið mikla og gengið á Arnarfell,
Arnarfellsmúla, I Nauthaga og gæsa
i verin. Ennfremur verði farið á Há-
I göngur, I Eyvindarkofaver, og að
| Hrauneyjafossi ef tími vinnst til.
Síðasta sumarleyfisferðin verður 7.
— 18. ágúst I óbyggðirnar vestan
, Vatnajökuls, I Veiðivötn, Tungár-
botna á Keriingar og Sveinstindum
Fögrufjöll I Grasver að Útfalli.Gert
er ráð fyrir að dvelja 3—4 daga við
Langasjó, en síðan haldið I Eldgjá
og loks um Fjallabaksveg syðri 'til
Reykjavíkur.
Formaður Farfugladeildar Reykja
víkur er Ragnar Guðmundsson.