Vísir - 07.05.1963, Qupperneq 1
Það hefur nú komið fram við
réttarhöldin í Millwoodmálinu
að mr. Wood, eigandi togarans,
hafði samband við herskipið
'Palliser, eftir að John Smith,
togaraskipstjórinn, hafði verið
fluttur þar um borð, og ýmist
krafizt þess að Smith yrði flutt
ur til Skotlands með togaranum
Juniper, ellegar hvatt Smith til
að gefa sig fram í Reykjavík
og mæta þar fyrir dómi.
Helgi Hallvarðsson, staðfesti
þann framburð mr. Wood, að
hann hafði hvatt Smith til að
fara til Reykjavíkur, í réttar-
höldunum f morgun. Kvaðst
Helgi hafa heyrt orðaskipti Mr.
Wood við Hunt skipherra eða
J3hn Sipith, í talstöðinni, þar
sem Mr. Wood hefði hvatt
Smith til þess arna.
Grímur Jónsson loftkeytamað
ur á Óðni, lagði fram í réttinum
í morgun, segulbandsupptöku,
þar sem væntanlega verður
hægt að heyra þau samtöl sem
heyrðust í talstöð Óðins og
fram fóru manna á milli varð-
andi þennan atburð. Verður það
eflaust mikilvægur stuðningur f
málinu, þótt segulbandsupptök
ur sem þessar séu ekki teknar
sem fullgildar sannanir.
Á myndinni sést Grfmur Jóns
son, loftskeytamaður, með
segulbandsupptökuna en fyrir
aftan hann til vinstri stendur
Þórarinn Bjömsson skipherra.
Ágætar aflasölur
y
Segulband í réttinum
VISIR
53. árg. — Þriðjudagur 7. maí 1963. — 100 tbl.
Tveir togarar seldu f Bretlandi
í gær og einn i Þýzkalandi. Tals-
verður hluti aflans var ýsa og án
efa er það hátt verð á henni, sem
af leiddi, að þetta reyndust mjög
góðar sölur.
Röðuli seldi 142 tonn fyrirl3.364
sterlingspund og var aflinn mest
ýsa, en Kaldbakur seldi 144 tonn
fyrir 12.580 sterlingspund og var
mikill hluti aflans ýsa, en nokkuð
af þorski, og skýrir það verðmun-
inn. Báðir seldu í Grimsby.
Þá seldi Þorkell máni f Bremer-
haven samtals 135 tonn og var
það ekki allur aflinn, sem togarinn
var með. Af hinu selda magni
munu hafa verið 15 tonn af sfld
og 48 tonn af ýsu og mun það
ýsuaflanum að þakka að verulegu
leyti að minnsta kosti, að ágætt
verð fékkst fyrir ofangreind 135
tonn eða samtals 124.900 mörk.
Framhald á bls. 5.
Vegir færir
til Húsavíkur
Vegasamband er sæmilegt frá
Reykjavfk og allt norður tii Húsa-
vfkur og hvergi teljandi snjór á
vegum, að því er fréttaritari Vfsis
á Akureyri tjáði f morgun.
1 Skagafirði var nokkur snjó-
koma f gær og einhver skafrenning
ur, en ekki talið þó að vegir hafi
teppzt á aðalieiðum norður. i
1. stýrimaður Óðins staðfestir fyrir rétti:
Hunt skipherra lofaði að
koma John Smith til fsiands
Réttarhöldum í Mil-
wood málinu var haldið
áfram í morgun og kom
fyrstur fyrir réttinn,
Helgi Hallvarðsson 1.
stýrimaður á Óðni. Stað
festi Helgi m. a. að Hunt
skipherra á brezka her-
skipinu, hefði í viðtali
við Þórarin Bjömsson,
sagt að hann skyldi sjá
til þess að John Smith
yrði fluttur til Reykja-
víkur.
Átti þetta samtal þeirra skip-
herranna sér stað í brú Óðins,<r
eftir að John Smith, skipstjóri
á Milwood hafði verið fluttur
yfir f togarann Juniper. Þórar-
inn hafði mótmælt þeirri ráð-
stöfun og spurt hverju hún
sætti og hafði Hunt þá sagt að
hann skyldi sjá til þess að Juni-
per yrði snúið til Islands með
Smith. Helgi kvaðst hafa hlýtt
á þetta samtal þeirra Hunt og
Þórarins.
Ekkert varð úr þessu loforði
Hunt eins og kunnugt er, en
John Smith fluttur um borð í
herskipið Palliser, skip Hunt’s.
Eftir það, kvaðst Helgi hafa
heyrt í talstöð varðskipsins,
samtal Hunt skipherra við ein-
hvern mr. Wood í Skotlandi,
sem hafði krafizt þess að Hunts,
að Smith yrði fluttur aftur um
borð í Juniper og með honum
Framhald á bls. 5.
HELGIHELGAS0N AÐ SLÁ
METIÐIVERTIDARAFLA
Þa8 þykir nú ljóst, að fiskibátur-
Inn Heigi Helgason sem gerður er
út frá Patreksfirði ætli að slá ls-
landsmetið f aflamagni á vetrar-
vertfð. Þegar hann kom f höfn f
fyrrakvöid var hann með 40 tonn
og við það komst heildarafli hans
á vetrarvertíðinni upp í 1340 tonn.
Hið núgiidandi íslandsmet setti
Binni f Gröf á Gullborginni fyrir
nokkrum árum, þegar heildarafli
hans komst upp í 1363 og vantar 1
Helga Helgasyni
að slá metið.
því 23 tonn til
Helgi Helgason fór aftur út f
gær og mun hann koma til hafnar
eftir tvo til þrjá daga. Þá má bú-
ast við því að hann verði kominn
! upp fyrir hið gamia met. Skip-
Siglt á bryggjuna
/ þriðja sinn
stjóri á Helga Helgasyni er
bogi Magnússon,
Enskur togari sigidi s.l. sunnu-
dagskvöld á olíubryggju Esso á
Akureyrarhöfn og olli á henni tals-
verðum skemmdum. Togarann
sjálfan sakaði ekki neitt.
Togarinn heitir Ross Stalk og
kom þeirra erinda til Akureyrar að
taka olíu. Hvassviðri var og lét
togarinn ekki nægilega að stjórn
þegar honum var rennt upp að
bryggjunni. Rakst stefnið inn í
bryggjuna og braut stórt skarð I
hana.
Sjópróf fóru fram í málinu í
gærmorgun og að þeim loknum
sigldi togarinn heimleiðis, eftir að
hafa sett 600 þús. kr. bótatrygg-
ingu. Tjónið hefur þó enn ekki
verið metið.
Bryggjan, sem togarinn rakst á,
hefur orðið fyrir tilsvarandi
skakkaföllum áður, en það var í
fyrrasumar þegar skip rakst tví-
vegis í sama skiptið á bryggjuna
og olli þá á henni verulegum
skemmdum. Var viðgerð nýlokið
þegar óhappið bar að í fyrrakvöld.
Bjarni Ólafsson
slifnaði upp
B.v. Bjarni Ólafsson slitnaði
upp frá legufærum f 'gærdag, þar
sem hann lá inn á sundum Rak
togarann fyrst upp á sker fyrir
framan Vatnagarða, losnaði síð-
an og var að reka upp í fjöru,
þegar dráttarbáturinn Magni
kom á vettfang og dró hann út
og síðan inn í Reykjavíkurhöfn,
þar sem hann liggur nú við
Ægisgarð.