Vísir - 07.05.1963, Síða 2

Vísir - 07.05.1963, Síða 2
2 V í S IR . Þriðjudagur 7. maí 1963. n Frá leik Þróttar og Fram í gær. Sést hér hvernig annað markiB var sett. Markmaðurinn lengst til hægri kemst ekki að. Framari lengst t. v. reynir að bjarga á línu en hitti ekki og boltinn fer í mark. Sigurmörkin tvö komu á tveim síðustu mínútunum A r\ l -• rt'ýl'i-r ■ ‘y> Jk -eaissit^AiSSatíSÍ?Stiíx:.\-'' Þróttur Frum 2-0 í Reykjavíkurmótinu Enn vann Þróttur sigur yfir íslandsmeisturunum Fram, en leikur liðanna fór fram í norðann garra, sem gerði þegar á fyrstu 30 mínútunum útaf við 4 leik- menn, 3 úr Fram og einn úr Þrótti. Allir kenndu þeir meiðsla, tognana o. s. frv. og sýnir \liklega fram á þjálfunarskort. Þróttararar unnu verðskuldað, en ekki leit lengi vel út fyrir að sigur ætlaði að hafast, en er aðeins voru 2 mínútur eftir skoraði Þróttur markið og hið síðara strax á eftir. HELLAS í B0Ð.I ÁRMENNINGA Leikurinn í gærkvöldi var annars sem leikur KR og Vals á sunnudag, mjög háður fimbulkuldanum, sem norðanáttin blés inn á „leiksviðið". Þróttarar náðu í fyrri hálfleik betri leik en Fram, þótt á móti vindi væri að sækja og voru oft allnærri að skora, en Framarar sjaldnar. Axel Alexsson v. útherji hefði t. d. átt að geta skorað eftir 3 mín- útur en Geir varð hlutskarpari og náði boltanum frá honum með úthlaupi. Geir kom síðan aftur verulega við sögu, þegar hann varði fallegt skot Hauks Þorvalds- sonar um miðjan hálfleik. Framar- Staðon Staðan í Reykjavíkurmótinu f knattspyrnu: Valur 4 3 1 0 7 7:3 Þróttur 4 2 1 1 5 10.7 KR 2 1 0 1 2 5:3 Fram 4 0 0 4 0 1:10 Markhæstir: Jens Karlsson, Þrótti, 5, Berg- steinn Magnússon, Val, 4, Axel Axelsson, Þrótti, 2, Gunnar Felix- son, KR, 2. ar áttu fyrstu verulegu tilraunina á 35. mín. Ásgeir Sigurðsson, sókndjarfasti Framararinn þetta kvöld, skaut þrumuskoti rétt yfir þverslá Þróttarmarksins. í síðari hálfleik bjuggust menn vip að Þróttur tæki forystuna, sem varð þó mun seinna en búast mátti við. Haukur átti þó gott skot f þverslá, geysifast og faliegt, en þvaga upp úr þvf var mjög hættu- ieg. Tveim mínútum síðar verður mikil bilun á vörn Þróttar en Baldur Scheving fór illa með all- gott færi á vítapunkti og sendir laust f órafjarlægð framhjá. Er eftir voru 5 mfnútur lyfti Jens Karlsson yfir Frammarkið úr sæmilegu færi, nálgaðist boltann á sinn gamla hátt, með löngum þungum skfefum, og teygði sig að lokum eftir honum, f staðinn fyrir stuttu skrefin, sem hafa reynzt honum vel að undanförnu og gefið honum góð skot. Héldu menn að þar hefði Jens lyft sfðasta tæki- færinu yfir þverslá. % Svo var ekki, 88. mín. leiks- ins færði loks mark, og reyndar var þar að verki Jens Karlsson. Hornspyrna, ein af fjölmörg- um, var tekin frá vinstri, góður bolti sem skapaði hættu, þvaga myndaðist æðisgengin og «a—— meira en hálft Þróttarliðið pressaði á marklínu. Það var Jens sem gekk ötullega fram að vanda og þrælaði boltanum í netið. • Mfnútu síðar var boltinn enn kominn að Frammarklnu. Skot, og boltinn hrekkur af Geir fyrir fætur Ómars Magn- ússonar, h. útherja Þróttar, sem lendir á móti Geir, sem sparkar á móti. Ómar hafði betur í við- ureigninni og boltinn þaut í netið. Dómari var Einar Hjartarson og hefur oftast dæmt betur, en auð- vitað kemur slæmt veður illa niður á dómurum ekki síður en leik- mönnum. Sund- og íþróttafélagið Hellas er eitt af öflugustu íþróttafélögum Svíþjóðar og hefur margar fþrótta- greinar á stefnuskrá sinni, svo sem knattspyrnu, fimleika, sund, frjáls- ar fþróttir, skíðaíþróttir, tennis, skautahlaup, skylmingar o. fl. Handknattleikur er mjög f há- vegum hafður í félaginu, og eru handknattleiksmenn Hellas nú Sví- þjóðarmeistarar í handknattleik ut- anhúss. Félagið er stofnað um sfðustu aldamót. Um 1930 tekur Hellas að iðka handknattleik og nær skjótum árangri í íþróttinni. Þegar á árinu 1936 vinna Hellas-menn sænska meistaratitilinn í handknattleik og næsta ár einnig. Hellas hefur æ sfðan verið f hópi beztu handknatt- leiksfélaga Svíþjóðar og leikur nú 'í „Allsvenskan". í fyrra var Hellas í fjórða sæti, en f ár var keppnin ákaflega hörð og hafnaði Hellas í sjötta sæti með 17 stig. Þriðja liðið f röðinni hlaut aðeins einu stigi meira. 1 útihandknattleik hefur Hell asmönnum gengið mun betur, og sigruðu þeir á sænska meistaramót- inu í útihandknattleik 1962. Hellas sannaði það á nýloknu keppnistímabili að félagið á mjög sterkt handknattleikslið. Aðeins „Heim“ tókst að vinna Hellas á heimavelli f Eriksdalshöllinni í Stokkhólmi. Liðið er skipað fljót- um og sterkum mönnum, sem geta sýnt mjög góðan handknattleik. 1 þau 29 ár sem „Allsvenskan" hefur verið háð, hefur Hellas verið það í 17 ár. Ef litið er á leikafjölda félagsins og skoruð og fengin m,örk, kemui- í ijós, að félagið hefur staðið sig mjög vel á löngu tímabili. Það er sjöunda í röðinni meðal sænskra félaga frá upphafi hvað árangur snertir. 1 267 leikjum hefur Hellas fengið 260 stig, unnið 110 leiki, gert 31 jafntefli og tapað 126. Hellas hefur alltaf átt góða for- ystumenn, sem hafa stjórnað fé- laginu með ágætum. Má þar nefna Allan Adolfsson, sem er gjaldkeri sænska handknattleikssambandsins og mikill sérfræðingur f öllu er lýtur að reglum og lögum hand- knattleiksins. Liðsmenn Hellas í Islandsferðinni eru: (Þess ber þó að gæta, að ekki kemur nema annarhvor þeirra Christian Laurent eða Jan Hodin. Laurent kemur ef hann fær orlof úr herþjónustu, annars Hodin). Hans Friborg, markvörður, 32 ára, prentari. Varamaður Lennart {Ung í A-liði Hellas. Hefur leikið 20 Ieiki f A-liðinu. Mjög efnilegur, og fær nú verulega eldskírn. Alf Gustafsson, varamarkmaður, 17 ára, námsmaður. Mjög efnileg- ur. Nils-Georg Hornhammer, hægri bakvörður, 32 ára, bankalögmaður. Hefur leikið einn landsleik. Form. handknattleiksdeildar Hellas. Mjög virkur leikmaður með gott keppn- isskap og hefur frábæra hæfileika til að hvetja liðsmenn sfna. Rickard Johansson, vinstri bak- vörður, 24 ára, rafvirki. Hefur leik- ið 6 landsleiki. Mjög góð skytta og lýkur aldrei leik án þess að skora. Hann er flokksstjóri liðsins. Skor- aði 76 mörk f 18 leikjum í „All- svenskan" í ár. Bert Johansson, miðvörður, 33 ára, embættismaður. Fyrirliði liðs- ins. Hefur í 10 ár verið traustur varamaður í A-liði Hellas og bætir frammistöðu sína með hverju ári. Hættuleg vinstrihandarskytta. Sven Thelander, hægri framherji, 29 ára, trésmiður. Hefur leikið einn landsleik. Hefur stöðugt verið í A- liðinu sfðan hann var 17 ára. Sókn- harðasti maður liðsins og ein bezta skyttan. Skoraði 50 mörk f „All- svenskan" í ár. Lcnnart Eriksson, miðframherji, verzlunarstjóri. Fjölhæfasti Ieikmað Framhald á bls. 5. I dag HELLAS — Reykjavíkur- úrval að Hálogalandi kl. 8,15 í kvöld. Ekki er ólík- legt að Svíarnir reynist máttugri en síðast, enda er það vandi erlendra liða að fara mjög vaxandi í litla Hálogalandssalnum eftir því sem þau keppa fleiri leiki þar. HANDKNATTLEIKSLIÐIÐ HELLAS. Aftari röð frá vinstri: Bertil Sárneman þjálfari, Bert Johannsson, Per Gullström, Björn Gullström, Gustaf Andersson (á bak við), Lennart Eriksson, Ragnar Arve, og Björn Wedelin. — Fremri röð frá vinstri: Nils Georg Hornhammer, Roland Mattsson, Lennart Ring, Rickard Johansson og Sven Thelander. wmmmxvœiaisBBBnm* i n im wb«mwiiimwm«iI,iw»[jii—i—g—— ■1 ’-r;:: íl.ipn «!!1i

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.