Vísir - 07.05.1963, Side 5
VlSIR . Þriðjudagur 7. maí 1963.
5
Smith neitaSi enn að koma
— Ég á hér skip, sem kostar
kostar fyrirtæki mitt stórfé að
láta það liggja hér. Ég er kom-
inn hingað til að afla mér upp-
Iýsinga um þetta mál, og reyna
að fá togarann afhentan, segir
Mr. John Wood, útgerðarmaður
togarans Milwood, en hann kom
til Reykjavíkur í gærkveldi.
Ég reyndi að fá John Smith
með mér, en hann þverneitaði.
Lögfræðilegur ráðunautur minn
talaði við hann á sunnudag, en
tókst ekki að fá hann til að
láta af ákvörðun sinni.
— Er John Smith enn þá í
þjónustu yðar?
— Nei, hann vinnur ekki fyr-
ir mig núna.
— Fær hann annað skip hjá
yður?
— Ég hef ekkert skip handa
honum.
— Hvöttuð þér Hunt skip-
herra á Palliser til að hjálpa
John Smith aftur um borð á
Juniper.
— Ég man það ekki. Ég hef
verið svo utan við mig vegna
þessa atburðar að ég man lítið
hvað ég sagði, í einstökum at-
riðum. Ég man ekki nákvæm-
lega hvenær ég talaði við skip-
herrann á Palliser.
Wood verður hér a. m. k. í
Ferðafélag íslands efnir til síð-
ustu kvöldvöku sinnar á þessu
starfstímabili í kvöld í Sjálfstæðis-
húsinu.
Kvöldvakan verður helguð Kerl-
ingarfjöllum sérstaklega, en þar er
ætlunin að reka allviðtæka starf-
semi í sumar með skíðanámskeið-
um, sem standa yfir samfleytt um
sex vikna skeið, frá 7. júlí til 14.
ágúst. Hvert námskeið stendur yfir
í viku og verður efnt til vikulegra
ferða, þangað á vegum Ferðafélags-
ins á meðan námskeiðið stendur
yfir. 1 fyrrasumar, var efnt til hlið-
stæðra námskeiða við mjög góða
aðsókn og almennar vinsældir þátt
takenda.
En auk þess sem Kerlingarfjöll
eru hið ákjósanlegasta skíðaland,
jafnt að sumri sem aðra tíma árs-
ins, eru þau einnig tilvalin fyrir
gönguferðir. Þar er margt að sjá
og mörgum náttúrufyrirbærum
unnt að kynnast. Þar eru mikil
hverasvæði, sérkennilegar bergteg-
undir, jöklar og ísheliar, falleg
fjöll og hrikagljúfur. Af fáum fjöll-
dag og á morgun. Hann var
ekki viðstaddur réttarhöldin í
morgun. Var hann á skrifstofu
Mynd þessi af John Wood,
útgerðarmanni var tekin á Hótel
Borg í morgun.
um á Islandi gefur meira né feg-
urra útsýni en einmitt af Kerlingar
fjöllum.
Á kvöldvökunni í kvöld segja
þeir Valdimar Örnólfsson og Eirík-
ur Haraldsson skíðakennarar frá
skiðaiðkun og skíðanámskeiðum
Ferðafélagsins í Kerlingarfjöllum,
dr. Björn Sigurbjörnsson sýnir lit-
skuggamyndir og Magnús Jóhannes
son sýnir kvikmynd af þessu svæði.
Á eftir verður myndagetraun og
að lokum stiginn dans til miðnætt-
is.
Þetta verður síðasta kvöldvaka
Ferðafélagsins þar til á n. k. hausti.
Aflnsölur —
Framhaid af bls. 1.
Verð á ýsu hefur verið hátt á
brezkum markaði að undanförnu
og mun hátt á vestur-þýzkum lfka,
þar sem fremur lítið hefur borizt
á markaðinn af ýsu, og einkum
munu enskir togarar hafa aflað lít-
ið af ýsu.
Geirs Zoéga, umboðsmanns
brezkra togaraeigenda. Um kl.
10 fór hann þaðan niður á
Hótel Borg, þar sem hann býr,
og athugaði ýms gögn, sem
hann hafði fengið um málið.
Hellas —
Framhald af bls. 2.
ur liðsins og er jafnvígur í öllum
stöðum.
Bjöm Danell, vinstri framherji,
21 árs, brunavörður. Hefur Ieikið
einn Iandsleik. Vann sig nú í ár
upp í hóp beztu handknattleiks-
manna Svíþjóðar. Álitinn hraðasti
og viðbragðsfljótasti leikmaður
Svía. Staðsetningar hans eru frá-
bærar. Mjög skotharður.
Christer Laurent, hægri fram-
herji, 20 ára, stúdent. Afar efni-
legur leikmaður. Skæður línu-leik-
maður og vinstrihandarskytta.
Per Olaf Nordn, miðherji, 19
ára, stúdent. Ekki sterkur en mjög
tekniskur leikmaður.
Allan Malmsten, framherji, 22
ára, stúdent. Góður línu-leikmaður
og hefur mjög góðan samleik.
Jan Hodin, vinstri framherji, 20
ára, stúdent. Hættuleg vinstrihand-
arskytta og mjög skotharður.
Sven Hellstadius, bakvörður, 21
árs, stúdent. Mjög efnilegur leik-
maður. Verður væntanlega fastráð-
inn í A-liðið á næsta keppnistíma-
bili.
Bo Johansson, bakvörður, 24 ára,
benzínstöðvarstjóri. Miðvörður f B-
liðinu. Árangursríkur unglingaleið-
togi.
Þjálfari: Bertil Sárneman, þjálf-
ari, 54 ára, embættismaður. Var
frárfilíerji og afbragðsgóður leik-
maður á árunum 1930—1940. Var
kunnur fýrir snjöll vinstrihandar-
skot.
Fararstjóri: Gösta Hakanson, 48
ára, forstjóri. Hann er gjaldkeri
aðalstjórnar félagsins. Kunnur
frjálsíþróttamaður á yngri árum.
Sænskur meistari f 4x400 m. boð-
hlaupi 1943.
Þrátt fyrir ýtrustu viðleitni, reynd
ist Hellas ókleift að senda hingað
tvo af beztu mönnum liðs sfns, þá
Lennart Ring, markvörð og Björn
Gullström. Þeir, ásamt Björn Dan-
ell og Sven Thelander, voru af
sænska handknattleikssambandinu
kvaddir til sérstakra æfingabúða
1.—5. maí til undirbúnings lands-
leiks Svfþjóðar og Sovétríkjanna í
handknattleik.
Robeson —
Framhr Id af bls 8
— Ég var Iengi sannfærður
um að þjóðernisminnihlutarnir í
Sovétríkjunum lifðu f fullkomnu
frelsi. En dag nokkurn uppgötv-
aði ég, að þetta er ekki satt
Kerlingarfjalla-
kvöldvaka F.í.
Dominikanska Ifðveldið
kært fyrir öryggisráðm
Duvalier forseti Haitilýðveldisins
hefir kært Dominikanska lýðveldið
fyrir viðbúnað til ofbeldisaðgcrða
og fhlutunar með liðssafnaði við
landamærin og öðrum ráðstöfunum
og værl friðinum stefnt f voða
með þessum viðbúnaði.
Sfðar birtíst frétt um það í út-
varpi Haitilýðveldisins, að flótta-
menn þeir, sem teknir voru í sendi-
ráði Dominikanska lýðveldisins, og
fangelsaðir, fengju að fara frjálsir
ferða sinna, en það var út af inn-
rásinni í sendiráðið og töku flótta-
mannanna, sem hótað var innrás.
í Washington var litið svo á, að
Duvalier væri að reyna að snið-
ganga Stofnun Vesturálfulýðveld-
anna með því að snúa sér til Ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna, en
Stofnun Vesturálfuríkjanna hefir
einmitt það meginhlutverk, að
varðveita friðinn f Vesturálfu, og
framkvæmdastjórn þess hefir setið
á stöðugum fundum f Washington
út af ófriðarhættunni á Karibahafi.
Til átaka á landamærunum hafði
ekki komið, er síðast fréttist, enda
beið forseti D. L. ákvarðana frá
framkvæmdaráði Vesturálfurfkj-
anna.
Leikklúbburinn Grfma sýnir einþáttunga Odds Björnssonar í fimmta
sinn miðvikudagskvöld kl. 9. Mjög góð aðsókn hefur verið að sýning-
unum og var uppselt á síðustu sýningu. — Myndin er af Valdimar
Lárussy.ii og Sveinbirni Matthíassyni í hlutverkum kyndaranna f þætt-
inum „Við Iestur framhaldssögunnar“
Gyðingar, Armenfumenn og aðr
ar þjóðir voru að vísu ekki skyld
aðir til að fara í sín eigin leik-
hús eða veitingahús, en þeir
voru neyddir til að taka upp
sovétlífshætti. Þeim var sagt að
menning þeirra væri á lægra
stigi en rússnesk menning. Einu
miklu rithöfundarnir voru rúss-
neskir. Þá var þvf haldið fram
að vestræn list væri spillt. Ég
varð fyrir vonbrigðum því að
hér fann ég annað form kúgun-
ar, sem var hættulegra vegna
þess, að hún var framkvæmd f
nafni frelsisins.
Ákvörðun Robesons um að
segja skilið við kommúnismann,
er örlagarík ákvörðun í lífi hans,.
persónulegur harmleikur, en hjá
henni varð ekki komizt.
Huiit —
Framnald at hls 1
tafarlaust til Skotlands. Þessu
hafði Hunt svarað til, að hon-
um væri það óheimilt án fyrir-
mæla yfirmanna sinna f landi.
Aðspurður upplýsti Helgi og,
að hann hefði sfðar heyrt f tal-
stöðinni, þennan mr. Wood aft-
ur að tali við annað hvort
Hunt skipherra eða John Smith,
þar sem Wood hefði lagt að
Smith að fara til Reykjavíkur
og koma þar fyrir dóm.
Réttarhöldin hófust kl. 10.15
i morgun, og þegar yfirheyrslu
yfir Helga Hallvarðssyni var
lokið, kom Grímur Jónsson
loftskeytamaður, aftur fyrir
dóm, og lagði nú fram segul-
band það, sem hefar að geýma
þau samtöl sem heyrðust f tal-
stöð Óðins og getið hefur verið
um í réttarhöldunum. M. a.
mun þar heyrast samtal það
sem mr. Wood átti við herskip-
ið og skipherra þess.
Cleymdi að slökkva
Maður sem býr f kjallaraher-
bergi ætlaði að hita sér morgun-
kaffi laust fyrir kl. 10 í gærmorg-
un og kveikti í þvf skyni á raf-
magnshellu. Allt f einu mundi
maðurinn eftir því að hann þurfti
að skréppa til Hafnarfjarðar og
til þess að ná strætisvagninum í
tæka tíð þurfti hann að hafa hrað-
ann á.. Flýtti hann sér af stað en
gleymdi að slökkva á hellunni.
Um kl. 5 í gær kom maðurinn
í herbergi sitt aftur. Hafði hellan
þá brennt sig í gegnum fótskemil,
sem hún stóð á og' sömuleiðis í
gegnum gólfið á herberginu. Ekki
hafði eldur þó kviknað að ráði,
sem mun hafa stafað af þvi að loft-
laust mjög var inni og súrefnis-
laust.
Kosningaskrifstofa
Sjólfstæðisfiokksins
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins fyrir utankjör-
staðaatkvæðagreiðslu hefir verið opnuð í Valhöll við Suð-
urgötu. Skrifstofan er opin alla daga kl. 10 f. h. til 6 e.h.
Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins er beðið að hafa sam-
band við skrifstofuna og gefa henni upplýsingar varðandi
cosningarnar. Gefið skrifstofunni upplýsingar um fólk sem
erður fjarveranjli á kjördag, innanlands og utan. Utan-
kjörstaðaatkvæðagreiðsla hefst sunnudaginn 12. maí.
Símar skrifstofunnar eru: 23118 og 22136.