Vísir - 07.05.1963, Blaðsíða 10
10
V I S I R . Þriðjudagur 7. maí 1963.
vurimi
íór i mat
hugasemd mína við allra fyrsta
tækifæri
Sandgerði 1. maí 1963.
Guðjón Pétursson,
fiskmatsmaður.
------------ ---------------T----
Þriðjv.daginn 5. marz s. 1. var
ég staddur um borð í m.s. Víði
II, þar sem hann lá við bryggju
í Sandgerði. Víðir Sveinsson
skipstjóri var að skýra mér frá
því, á hvaða hátt skipshöfnin
gengi að jafnaði frá fiskinum,
svo hann yrði sem beztur. Komu
þá um borð til okkar fréttamenn
frá dagblaðinu Vísi og óskuðu
upplýsinga af stóra kastinu, eins
og þeir orðuðu það.
Fréttamennirnir spurðu meðal
annars hvort fiskurinn úr hinu
stóra kasti á nótaveiðunum hafi
ekki allur verið fyrsta flokks.
Skipstjóri svaraði því þannig, að
mat hefði ekki verið framkvæmt
á fiskinum, þar sem þess hefði
erici verið óskað af kaupanda.
Þar næst spurðu fréttamenn mig
hvernig mér hefði líkað fiskur-
inn.
I svari mínu taldi ég fiskinn
góðan miðað við aðstæður, þar
sem um svo óvenju stórt nóta-
kast væri að ræða. Hefði betta
svar verið rétt eftir mér hafl.
þá þurfti það ekki frekari skýr-
inga við Allir sem þekkja til
meðferðar á nýjum fiski vita, að
í slíkum tilfellum sem þessum
þá er aldrei hægt að skila jafn
góðum farmi á land eins og þeg-
ar um meðal afla er að ræða,
þrátt fyrir að skipshöfnin vandi
til allrar meðferðar eftir 'föng-
um.
Þegar fréttamenn segja frá
þessu viðtali í blaðinu, þá er
það á þennan veg. Fréttamenn-
irnir hafa orðið:
„Og hvernig líkaði þér við
fiskinn, Guðjón?“
„Þetta var allt fyrsta flokks
fiskur. Hann var svo góður, að
Búðar diskur
og GLER-SÝNINGARSKÁPAR úr ljósri eik,
notað, selst ódýrt.
Uppl. í síma 36579 og 35335.
Blaðburður
Börn óskast til að bera blaðið í þessi hverfi:
HRINGBRAUT
RAUÐARÁRHOLT 2
MIKLUBRAUT
Dagblaðið Vísir
ISordens VÖRUR
Kakomalt - Kakó — Kaffi — Kartöflumus.
KIDDABÚÐ
Tækifærisverð!
vegna flutnings seljum við næstu daga eftirfarandi á sér-
lega hagstæðu verði:
Eldhússett (borð og 4 stólar) á aðeins kr. 2.800.00
Eldhúsborð
3 teg. af eldhússtóium frá kr. 350.00
Eldhúskolla
Úlvarpsborð á kr. 495.00
Þetta eru allt vandaðar vörur á tækifærisverði. — Notið
tækifærið og verzlið við okkur.
Stólstólar
BRAUTARHOLTl <t, 2. hæð Sími 36562 og 24839 á kvöldin
hann kom ekki einu sinni til
mats. Það var alger óþarfi, því
fiskurinn var glænýr“.
Þetta er birt sem mitt svar
við spurningu fréttamanna, en
því mótmæli ég. 1 fyrsta lagi set
ég engan fisk í ákveðna gæða-
flokka nema að undangengnu
mati. En í þessu tilfelli var skip
stjóri Víðis II. búinn að skýra
fréttamönnunum frá því, að
mats hafi ekki verið óskað af
kaupanda, og þvl ekkert mat
farið fram. I öðru lagi, þá getur
fiskur verið gallaður þó glænýr
sé, hafi hann ekki fengið rétta
meðferð, og er það á vitorði
allra fagmanna, sem um þessi
mál fjalla. En þar með er ég
ekki að segja, að meðferðin á
þessum fiski hafi verið slæm,
heldur er það álit mitt, eins og
fram kom I hinu rétta svari
mínu, að fiskurinn hafi verið
svo góður eins og frekast hafi
verið hægt að búast við, eftir
aðstæðum. Enda er það álit mitt
að fiskur veiddur I nót lagður
á Iand I Sandgerði á þessari
vertíð hafi yfirleitt verið vel
með farinn og reynzt vel í
vinnslu. En það þýðir ekki það
sama og að hann hafi allur verið
fyrsta flokks, því þar er talsvert
bil á niilli. {
Þegar menn í Sandgerði lásu
viðtalið í Vísi, þá undruðust
þeir að vonum að ég hafði þar
sett heilan skipsfarm af fiski í
fyrsta flokk án þess að mat væri
framkvæmt, og lái ég þeim það
ekki, og bið ég Vísi þvf allra \
vinsamlegast að birta þessa at-1
S^úsíkdoktor —
Framhala al bls 9:
jarðvegi, þar sem fyrir eru
hundrað eða þúsund litlir meist-
arar — þeir undirbúa jarðveg-
inn. Skólarnir verða að kenna
börnunum undirstöðuatriði tón-
fræðinnar og láta þau læra að
syngja eftir nótum eins og þau
læra að lesa bækur“.
„Þurfa þau ekki líka að læra
að hlusta á góða tónlist og njóta
hennar?"
„Jú, það er nauðsynlegt að
læra að hlusta, en þó held ég, að
enn þýðingarmeira sé að læra
að skilja sjálft nótnaletrið, læra
undirstöðu tónkerfisins, eins og
það er skráð, byrja á byrjun-
inni. Þannig er farið að í öðrum
löndum, sem hafa þróaða tón-
Iistarmenningu“.
„Hafið þér nokkrar sérstakar
framtíðaráætlanir, dr. Hallgrím-
ur?“
„Já, mikil ósköp, áætlanirnar
skortir aldrei, og alltaf kemst
eitthvað af þeim I framkvæmd.
Ég er stöðugt að fá boð um að
flytja fyrirlestra I ýmsum lönd-
um, en ég vil helzt taka marga
staði í einu, ef ég fer á annað
borð. Það er nauðsynlegt að
komast til útlanda sem oftast og
fylgjast með nýjum straumum.
Ég hef verið að hugsa um að
fara til Bandaríkjanna, kynnast
músíklífinu þar vestra og halda
fyrirlestra í amerlskum háskól-
um. Það er um að gera að
staðna aldrei, heldur vera slfellt
opinn fyrir öllu nýju. Á þann
hátt get ég líka hjálpað landi
mínu bezt“. — SSB.
Stúlkur óskast
Stúlkur óskast til eldhússtarfa.
Kjötbúðin Borg, Laugaveg 78.
Kaupmenn og kaupfélög:
HURÐASKRÁR
HIIL9V. SIC. DRVBLDS
Stýrimannastíg 3 - Síiai 14950
Ýmsar gerðir aftur fyrirliggjandi.
Frægt
j< fólk
Okkur hafa borizt þær frétt
ir að Greta Garbo, sem und-
anfarið hefur verið uppistaðan
í mörgum slúðursögum Róma-
borgar, hafi nú ákveðið að
Greta Garbo
snúa sér aftur að kvikmynda-
leik. Um þessar mundir er hún
að lesa handritið að „Síðasta
ástin“, kvikmynd, sem henni
hefur verið boðið að leika að-
alhlutverkið í. Ef hún segir já,
hefst kvikmyndatakan innan
skamms.
Leikstjóri verður David
Lean, sem nýlega fékk Oscars-
verðlaun fyrir mynd sína,
„Arabíu Lawrence“_
*
Orson Welles var nýlega í
„kokkteilpartíi" í Paris og
ræddi þar m. a. við stjóm-
málamann sem sagði:
— Kvikmyndirnar hljóta að
Orson Welles
(§ vera líí yðar, hr. Velles? •
— Yfirleitt stendur mér al-
veg á sama um kvikmyndir,
svaraði snillingurinn_
— En þér lifið þó á kvik-
myndum?
— Það geri ég reyndar, en
ég þekki margt fólk sem alls
ekki er hrifið af stjórnmálum,
en Iifir samt á þeim.
Eftirfarandi saga gengur nú
manna á niilli í Madrid:
Sovét-njósnari er nýkominn
heim úr njónaferðalagi til
: Madrid og gefur Krúsjeff
skýrslu sína:
— Spánn er nú alveg á
barmi byltingar. Fólk rífst á
| hverju götuhorni og það ligg-
; ur við að menn sláist. Það
skipar sér aðallega í tvo
; flokka, næstum því jafn stóra.
Annar fylgir Di Stefano og
hinn fylgir Kubala.
— Hverjir eru nú það? spyr
1 Krúsjeff.
— Tveir frægustu fótbolta-
; kappar Spánverja.
— En. væni minn. Hvað um
;| Franco?
— Franco? Ég heyrði engan
í minnast á Franco Hann hlýtui
að tilheyra þriðja flokknum.