Vísir - 07.05.1963, Blaðsíða 15

Vísir - 07.05.1963, Blaðsíða 15
V1S IR . Þriðjudagar 7. maí 1963. 75 ©O tramhaldssago eftir Jane Blackmore stjörnuskin og sku — Bíddu andartak, sagði hún við drenginn, meðan ég sæki þá. Hún bankaði á dyrnar. Enginn svaraði og hún gekk inn. Tann- læknirinn hafði brugðið sér frá. Það var því enginn og hvað var eðlilegra en að hún tæki sanzkana og færi út aftur? Hvernig gat hana rennt grun í, að með því tefldi hún sér í mikla hættu — með þvi að vera nokkrar sekúndur ein í tannlækningastofunni. Og þcgar þau voru sezt og voru að leggja af stað datt henni í hug, að kaupa glas með Kölnar- vatni. Hún ætlaði að gefa það frú Vane, sem henni var farið að þykja svo vænt um, og svo var hún móð- ir mannsins, sem hún elskaði. Og hún nam þv£ staðar fyrir utan verzlun nokkra, fór inn og keypti glasið. En þetta reyndist líka hættulegt uppátæki. 14. kapíuli. Sorrei hikaði dálítið áður en hún fór inn í herbergi frú Vane, vegna þess að kliður af manna- máli barst til htnnar þaðan. Henni vatð órótt, því að það var karl- mannsrödd, sem hún hafði heyrt Davíð gat ekki verið kominn til baka. Það gat enginn annar verið en Rupert, en hvers vegna hafði hann litið inn til hennar á þessurn tíma dags. Hún hafði haldið, að hann væri á skrifstofunni. Hún opnaði hurðina snögglega og renndi augunum yfir stofuna. Þau litu bæði þegar I áttina til hennar. Rupert sat á stól við rúm- ið og lyfti brúnum, er hann sá hana en vottur beygs var á andliti gömlu konunnar. — Ég hélt, að þér væruð á skrifstofunni, Rupert, sagði hún. Hann brosti, en það var eins og augu hans kipruðust saman. — Ég fékk höfuðverk, enn einu sinni. Hún ieit hvasst á hann. Hann hafði líka fengið höfuðverk daginn sem ,,óhappið“ kom fyrir. Þá beind ist grunurinn að Díönu, sem hafði drukkið frá sér allt vit. Var hann kominn þarna til þess að leiða grun frá sér, ef eitthvað gerðist? Hún gekk að rúminu. — Þérf fáið oft höfuðverk í seinni tíð, sagði hún þurrlega. — Já, stundum þjáist ég af hon- um dögunum saman, sagði hann og andvarpaði. Það var auðséð á honum að hann var óstyrkur á taugum og eitt hvað öðru vísi en hann var vanur. Það gat hann ekki dulið með flá- ræðislegu brosi sínu. Hann starði á hana rannsakandi augum. ' — Þetta hefir gehgið vel? spurði frú Vane. — Ágætlega. Jónatan hlakkar til þess að sýna yður tönnina. Og 'hérna er dálítið handa yður, bætti ■hún við hlýlega. — Gjöf, sagði frú Vane og eins og birti yfir henni, það var eins- taklega vinsamlegt af yður, Sorrel. Sorrel fórst heldur klaufalega að taka umbúðirnar utan af glasinu, vegna þess að hún gaf um leið gætur að Rupert sem sat hinum megin við rúmið og fylgdist með hverri hreyfingu hennar — og vissulega bar hann það ekki með sér nú, að hann væri með slæman höfuðverk. — Kölnarvatn, sagði frú Vane glöð, er glasið kom í Ijós. Og sú tegund, sem ég helzt vil. Kærar þakkir, Sorrel. — Kölnarvatn, endurtók Rupert silkimjúkri röddu — hin fullkomna' gjöf. Sorrel rann eins og kalt vatn milli skinns og hörunds. Það var ekki hægt að lesa í hug hans, en henni fannst hvert orð, sem kom af vörum hans, hafa sömu áhrif, og hún væri snert köldum gómum — og henni fanst illmennskulegr- ar sjálfsánægju gæta í lymsku- legu augnatilliti hans, — eins og hann þættist viss um að sigra í einhverju tafli, sem hann hafði flækt hana inn í. Hvernig skyldi hann hugsa sér að reyna að nota sér það, að hún gaf frú Vane glas með Kölnarvatni? Hvað leik var hann að leika? — Hún reyndi að stappa í sig stálinu, reyndi að bægja frá löngun til þess að líta undan, henni fannst, að hún mætti til að stara á móti og reyna að lesa úr köidu tilliti þessara biáu augna, hver áform hans voru, en hún varð óstyrk — henni fannst, að hún væri að komast á það stig, er hún stóð hjálparvana við rúm Peters kvöldið áður en hann dó og horfði l augu hans og reyndi að lesa hugsanir hans. Og þá fannst henni, að hún hefði brugðizt honum. Hún var að þvi komin að bugast, en þá heyrðist hlaupið að dyrunum og inn kom Jónatan og bjargaði henni. Hann kom eins og eldibrandur. — Amma, hrópaði hann, hér er tönnin mín. Viltu sjá hana? Rupert hafði horft á Sorrel einni sekúndu lengur en hann hefði átt að gera. Það var sem koma Jóna- tans með þessum hætti slægi hann út af laginu. Hann leit undan og bar hönd að enni sér. — Þarftu að koma svona þjót- andi og æpandi, drengur? kallaði hann skerandi röddu. Hugaræsing drengsins hjaðnaði á andartaki. Gamla frú Vane eins og sökk til hálfs niður í rúmið, Ónotahrollur fór um Sorrel, því að þetta var allt jppgerð hjá Rupert. Rupert ýtti harkalega aftur á bak stólnum, sem hann sat á, um leið og hann stóð upp. — Ó, höfuðið á mér, — þessir verkir eru alveg að drepa mig, — Eruð þér viss um, að það séu höfuðverkirnir, sem valda yður- kvölum, Rupert. spurði Sorrel. — Auðvitað er ég viss um það, sagði hann hryssingslega. Hver þremillinn ætti það að vera? — Það var nú það, sem ég var að hugsa um, sagði Sorrel hægt. Hún varð þess vör, að frú Vane horfði á hana undrandi, en hætti ekki að horfa á Rupert. Hann ieit á hana rannsakandi augum, en snéri sér svo frá og sagði. — Ég held ég fari að hátta, sagði hann. Mig grunar, að þetta kast verði langvarandi. Hann var kominn út að dyrunum þegar frú Vane sagði vingjarnlega: — Ég vona sannarlega, að svo reynist ekki, Rupert, og að þetta iíðffijótt hjá, — Þökk, Felicity, sagði hann lágH, hlýrri röddu, eins og þegar hann lagði sig allan fram til þess að vera sem nærgætnastur og vinsamlegastur. Sorrel hafði kreppt hnefana svo fast, að neglurnar skárust inn í hörundið. Aldrei hafði henni verið eins ljóst og nú, að Ruper var vondur maður, hættulegur maður, og helzt hefði hún viljað æpa svo hátt, að allir mættu heyra, að hann væri hættulegur maður, sem allir ættu að varast. En hún stóð þarna eins og hún gæti ekki hreyft sig úr sporum — nú skelfd og ráðþrota. Rupert leit enn sem snöggvast á Sorrel. Hann sá glöggt, að hann hafði skotið henni skelk í bringu. Hún var blátt áfram dauðskelkuð og hann naut þess, að sjá hana kveljast. Hann var nú ekki í nein- um vafa um, að hún vissi að það var uppgerð hjá honum, að þykjast þjást af höfuðverk. En hún vissi ekki ástæðuna. Hún gat ekki vitað hana. Og jafnvel þótt hún gæti Veggfesfing IVlælum upp Setjum upp 5 t MI 13743 LINíDARGÖTU 2.5 sér þess til var ekkert, sem hún gat gert. Og þess vegna var sjálfs- ánægja hans enn meiri en ella. Hann hafði komið fyrr heim en vanalega til þess að geta verið einn með förnarlambi sínu. Til þess að stæla hugrekki sitt, — prófa það því að hann varð að vera viss um, að það bilaði ekki, er verst gegndi. Þetta hafði verið lærdómsríkur hálftími, fyrir mann eins og hann, sem svo var komið fyrir, að sálar- líf hans var allt afskræmilegt orð- ið. Hann taldi sig búa yfir miklu valdi og var i þann veginn að beita því — án þess að nokkuð væri hægt að sanna á hann sjálfan. Þegar Sorrel kom með Kölnarvatns glasið fanst honum, að ef nokkuð hefði vantað til að hann gæti fram- kvæmt áformið, þá væri það nú fengið það hafði verið næstum skoplegt allt saman, er þau voru þarna þrjú í svefnherberginu, hann, Sorrel og gamla konan. Hann með morðáform í hug. Tengdamóðir hans, fávfs í tiltrú sinni á honum. Og Sorrel, sem átti að gjalda skuld hans við þjóðfélagið. Hann var viss um að hún var ekki í vafa um hvað hann ætlaði sér, en jafnframt að hún gerði sér ekki grein fyrir hvaða hlutverk það var, sem hann ætlaði henni í þessum hroðalega leik. Þegar hann var kominn í svefn- herbergi sitt varpaði hann af sér klæðum. Hann var £ mikilli hugar- æsingu yfir að finna til þess valds, sem hann hafði. Og enn um stund — í nokkrar klukkustundir, ætlaði hann að njóta þess að vita af þessu valdi. Þetta var yndisleg iifinning, fannst honum. Seinna, þegar stund in kæmi, yrði hann að vera alveg rólegur. Nú gat hann látið öldur tilfinninganna rísa hátt og notið þess, að þær hrifu hann með sér. Hann varð óþolinmóður, óeirinn, jafnvel löngun hans efir Marlene gat ekki vakið slíkar kenndir með honum. Hún gat bara látið hann njóta þess að lifa ástalífi. Felicity T A R Z A N Snemma næsta morgun bjugg- ust Tarzan og Pace til að skilja. Þakka þér einu sinni enn fyrir EAKLY the kiext s—\ ^ MOKNINSiTARZAW AN7 J V 57 PACS F’REPAREP’ TO tK, “' krTF1! - -----------FAKT C0/A7Akiy. "THANK YOU AGAIN FOFE. ALL VOUK HELI’ TAKZAN,'5AI7 PAC£. allt sem þú hefur gert fyrir mig, sagi Pace. Siðan hélt hann í átt- ina til strandar og heim. Skyndilega flaug apamanninum í hug, að Pace vissi hvert hann væri að fara og hvað hann ætti A THOUSHT SUPP’ENLy 0CCUKEE7 TO THÉAPS- AN— PAC5 K.NEW ’VHERE HE WAS SOINS, 3UT WHAT OF HI,V\SELF- WHER.E TO NOW?.. að gera En hvað með hann sjálf- an? Hvert átti nú að halda ... Vane hafði gefið honum tækifæri til þess að öðlast vald. Hann hugs- aði líka til hennar með þakklæti. Þakklæti hans var svo mikið, að honum fannst það vera elska svo mikil, að hann hafði aldrei getað trúað því fyrr, að hann hugsaði þannig til hennar. Snann /y- ■& sr ,r , Í7 SAMEINAR MARGA KOSTi: ' FAGURT ÚTLIT, ORKU, TRAUSTtEIKA RÓMAÐA AKSTURSHÆFNI OG LAGT VERÐ! TÉKHNESHA BIFREIÐAUMBOÐIÐ VONAMTMTI 12. ÍÍMI J7Í8I ^ 5ELUR VVV ’62 Opel Record ’60—’63 Opel Caravan ’60 Moskwitsh ’55—’60 Dodge ’öO__’59 Scoda 1200 St. ’56 Citroen ’53. Vill skipta á Land- rover eða Gipsy. Ford Taunus ’50—’63 Reno Daulphin ’62 Corabella ’62, 3 dyra. Samkomu iag. Chevrolet ’55—’59 VW ’56 kr. 65 þús. Góður bíll. Opel Varavan ’62 kr. 160 þús. Vörubílar: Mercedes Benz ’55_’61 Volvo ’55—’62 Ford ’47—’55 International ’57. Fallegur bíll Ford 28 manna rúta ’54 með nýuppgerðum Mercedes Benz dieselmótor. Verð 180 þús. Mótorhjól: Harley Davidson í góðu standi. Verð: samkomulag Gjörið svo vel skoðið bilana. Borgartúni 1. Sfmar 18085 og 19615 S t r e t c h kvenbuxur SfiS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.