Vísir - 07.05.1963, Síða 16
ISIR
Þriöjudagur 7. maf 1963.
Eldsupptök í
rannsókn
Samkvæmt upplýsingum frá
rannsóknarlögreglunni í morgun er
ennþá ekkert upplýst upp upptök
eidvoðans í Gamla kompanlinu.
Magnús Eggertsson varðstjóri
sagði að unnið væri að rannsókn
málsins og m. a. væri Rafmagns-
eftirlit ríkisins að athuga hvort
hugsanlegt væri að eldsupptökin
stöfuðu út frá rafmagni. Annars
sagði Magnús að mjög erfitt væri
um alla rannsókn vegna þess hve
allir hlutir í húsinu væru kol-
brunnir. Það væri heldur ekki
unnt að átta sig á hvar i salnum
eldsupptökin hafi verið því hæðin
var öll alelda þegar að var komið
og að heita má allt jafnbrunnið
bar inni.
Ekki kvað Magnús að vitað væri
að nokkurt rafmagnstæki hafi ver-
ið skilið eftir í sambandi þegar
húsið var yfirgefið, en það var kl.
7 á laugardagskvöldið og ekki vitað
um neinar mannaferðir þar sfðan.
Vetromki t SKLUFIRDI í mal
15 ÞÚS. KW. JARDCUFU-
STÖD IHVCRA CCRDI
Dr. Gunnar Böðvars-
son, forstjóri jarðhita-
deildar Raforkumála-
skrifstofunnar, sagði í
viðtali við Vísi í morg-
un, að eins og sakir
stæðu liti helzt út fyrir
að næsta stórfram-
kvæmd í virkjunarmál-
um landsmanna yrði
jarðgufustöð í Hvera-
gerði.
Þetta yrði fyrsta jarðhitavirkj
un hér á landi til raforkufram-
Ieiðslu með almenningsnot fyr-
ir augum, og hefir verið reiknað
út að vinnslukostnaður
raf-
magns frá slikri jarðhitastöð
yrði um 25 aurar á kílóvatt-
stund, sem er svipaður kostnað
ur og á rafmagni framleiddu I
meðalstórum vatnsaflsstöðvum
en rúmlega helmingi minni fram
leiðslukostnaður en á rafmagni
frá olíukyntri gufustöð, eða
dieselstöð I Reykjavík Frá oliu-
kyntri stöð yrði vinnsluverð
raforkunnar 50—60 aurar á kfló
vattstund. Ekki er óliklegt að
--------------------------------
Alit Neytendasamtakanná
á tillögum um lokunartíma
Neytendasamtökin hafa birt grein
argerð út af þeim tillögum og
breytingum á lokunartíma sölu-
búða, sem borgarráð hefur nú til
athugunar. Þar er skýrt frá því
að stjórn Neytendasamtakanna sé
tillögunum samþykk I öllum þeim
atriðum þar sem þær miða að
rýmkun og auknu frjálsræði, en
andvig þeim að þvi leyti sem þær
takmarka þjónustu við neytendur
að nokkru marki umfram það sem
almenningsheill sannarlega krefji.
Neytendasamtökin halda því
fram að reglur um lokunar-
tima sölubúða hafi 1 langt árabil
verið í augljósu ósamræmi við
hagsmuni borgarbúa og réttarmeð-
vjtund og er nefnt sem dæmi lok-
unartími allra almennra verzlana
á laugardögum á sumrin, sem auk
annarra óþæginda skapar beinlínis
umferðaröngþveiti í borginni.
Það sem samtökin gagnrýna eink
um í tillögunum er að þau segja
að frá sjónarmiði neytenda sé ekki
þörf á svo glöggri verkaskiptingu
milli verzlana, söiutuma og veit-
ingahúsa sem þar sé gert ráð fyrir.
Myndi það takmarka til muna þá
þjónustu við neytendur sem ætlun-
in með tillögunum er að auka.
Segir I greinargerðinni að það
brjóti í bága við réttarmeðvitund.
Þá er það gagnrýnt að I tillög-
unum er gert ráð fyrir að kvöld-
sölustöðum verði Iokað kl. 22 I
stað 23,30. Segja þeir að slík tak-
mörk séu ósanngjörn.
Loks benda neytendasamtökin á
það, að mikið hagræði væri af því
fyrir borgarbúa að allar þær mat-
vöruverzlanir, sem uppfylla skil-
yrði heilbrigðisnefndar fái að selja
mjólk í hyrnum, svo lengi sem þær
em opnar og þá einnig út um sölu-
op. Segja samtökin að mikillar
tregðu mjólkursamsölunnar hafi
gætt í þessu efni, jafnvel þó verzl-
anir vilji selja mjólk án nokkurrar
þóknunar.
framkvæmdir við 15 þúsund kiló
vatta jarðgufustöð I Hveragerði
hefjist I byrjun næsta árs, sagði
Gunnar Böðvarsson.
Hann tók það fram að ekki
hefði þó endanlega verið ákveð
ið að byggja næsta orkuver í
Hveragerði, en eins og stæði
væri reiknað með því. öllum
frumáætlunum fyrir slíka virkj
un er lokið, kostnaðaráætlanir
hafa einnig verið gerðar og út
frá þeim reiknað vinnsluverð raf
magnsins, sem fyrr var sagt.
Einnig hefir verið leitað tilboða
í aðalvélar í jarðhitaorkuver í
Hveragerði, og öllum tæknileg-
um undirbúningi lokið. Helzt
gæti það breytt þessari ráða-
gerð um virkjun I Hveragerði,
ef við nánari samanburðarrann-
sóknir, sem alltaf er unnið að,
væri talið hagkvæmara að ráð-
ast næst i 60 þúsund kilóvatta
virkjun i Þjórsá við Búrfell, sem
áður hefir verið minnzt á.
En meiri likur eru til að næsta
sporið í virkjunarmálunum verði
stigið í Hveragerði.
Lengi fram eftir vetri undr-
uðust menn það óvenjulega blíð
viðri sem rikti hér um Iand allL
En seinni hluta vetrar og þegar
liður fram á vorið hefur vetur-
inn loks gengið t garð og með
þelm ósköpum, að menn óttast
um ailan gróður.
Á Norðurlandi rflcja nú, þegar
komið er fram i maí hálfgerðar
vetrarhörkur. Um siðustu helgi
var stórhrið á Siglufirði og er
nú allt þakið i fönn hvert sem
Iitið er í þessum norðlenzka bæ,
eins og myndin sýnir.
Eyðilagði maf
fyrir 5 0 manns
1 gærkveldi var kært til lögregl-
unnar yfir manni sem komið hafði
inn i veitlngahús, neytt veitinga,
en þegar hann var krafinn greiðslu
varð hann óður, olli skemmdum
og hljóp við sv.o búið á brott.
Þegar maðurinn hafði neytt
veitinga þeirra sem fyrir hann voru
bornar var hann krafinn greiðslu
svo sem venja er til. Brást hann
þá við reiður, kvaðst ekki borga,
en I æðiskasti sem greip hann
braut hann glerplötu í afgreiðslu-
borðinu með þeim afleiðingum að
glerbrotin hrundu niður á mat,
sem var I borðinu og ætlaður var
50 manns.
Þetta skeði á tiunda timanum 1
gærkveldi, og hljóp maðurinn út
úr húsinu að Ioknu þessu afreki
sínu. Hann þekktist og verður
væntanlega sóttur til saka.
Ungllngnr í Vestmnnnneyjum fú:
3-5 þúsund fyrir vikuna
Þegar unglingar í Vestmanna-
eyjum opna launagreiðsiuum-
slögin, eftir páskahrotuna höfðu
flest þeirra að innihalda milli
þrjú og fimm þúsund krónur
eftir vikuna.
Sem kunnugt er af fréttum er
og hefur verið undanfarið mikill
skortur á vinnuafli í Vestmanna
eyjum og i páskahrotunni unnu
nær allir nemendur gagnfræða-
skólans í frystihúsunum. En
nemendur í skólunum eru um
tvöhundruð og sjötiu. Þessa dag
ana standa yfir vorpróf i skólan
um að lýkur síðasta prófi 13.
maí. Má þá gera fastlega ráð
fyrir að unglingamir hefji strax
vinnu, því alltaf eykst mann-
eklan i Vestmannaeyjum. Fjöldi
fólks hefur hætt í frystihúsun-
um að undanfömu til þess að
sinna ýmsum vorönnum land-
búnaðarins.
I