Vísir - 13.05.1963, Page 10

Vísir - 13.05.1963, Page 10
22______________ ■■■■■■■■nnnBranHÐnEBHianBnsEKgKn^^ssiæs V í SIR . Mánudagur 13. maí 1563. Efri myndin er af Oleg Penkovsky, hin neðri af GreviIIe Wynne, teknar við réttarhöldin nú í vikunni. ia / MOSKVlt C a t a I i n a skyrtur tala sínu eigin móli. Fallegir nýtízku litir, sem smekkmenn einir kunna aö meta. Ný snið, þrengri um mittið, víðari um brjóstið. Góðar skyrtur þurfa ekki að kosta meira-, það sýna C a t a 11 n a skyrtur og allur só fjöldi smekkmanna, sem kjósa sér Catalina skyrtur. FATAVERKS M I Ð 3 A N F f F A Saksóknari Sovétríkjanna krafðist fyrir helgina lífsláts- dóms yfir kjarnorkuvisinda- manninum Oleg V. Penkov- sky og að brezki kaupsýslu- maðurinn Greville Wynne yrði dæmdur til 10 ára „frels- issviftingar“. Brezkir fréttaritarar segja, að blaðið Isvestia hafi sagt frá því, að krafizt yrði líflátsdóms yfir Penkovsky, áður en krafa sak- sóknara var borin fram í rétt- inum. Þeir voru leiddir fyrir hina hemaðarlegu deild hæstaréttar Sovétríkjanna og hafa báðir ját að sekt sína. Greinilega kom fram þegar við réttarhöldin, að litið var á Penkovsky sem aðal- sökudólginn og Wynne sem að- stoðar- eða milligöngumann. Wynne sagði fyrir réttinum, að brezkum embættismönnum væri um að kenna, að hann hefði flækzt inn í þetta. Hann hefði tekið að sér hlutverk, sem hann taldi viðskiptalegt, en er hann komst að því hvers eðlis þetta var, hefði hann viljað hætta, en þessir sömu embættismenn þá haft í hótunum við sig, og m. a. sagt, að það mundi bitna á við- skiptum hans, ef hann hætti. Wynne ferðaðist títt til land- anna fyrir austan tjald og m. a. 4 sinnum til Sovétríkjanna, en hann var handtekinn í Budapest í nóvember s. 1. og afhentur sovézkum stjórnarvöldum. Hann er 42 ára að aldri. Kona hans er viðstödd réttarhöldin með sérstöku leyfi og lögfræðingur hans, svo og tveir sendiráðs- menn brezkir. Ekki fékkst leyfi til að brezkir sendiráðsmenn ræddu við Wynne allan tímann frá því hann varð fangi Rússa 4. nóv. s. 1. og voru kröfur um það margoft endurteknar, en þeim var ekki anzað. Penkovsky játaði á sig allar sakir, sem á hann voru bornar, m. a. um landráð. Hann lét m. a. í té upplýsingar um eldflaug- ar og eldflaugastöðvar. Hann er 43 ára. Sheila Wynne við komuna til Moskvu. Húnavaka — Framhald af bls. 15 af húnvetnsku þjóðerni er lagið að veita. Daginn eftir þyrptist fólk á leiksýningu. Gömul hjón leiddust bröttu brekkuna niður af sýslumanns- setrinu og fóru mikinn. Blanda var íshröngluð og kyrrlát. „Ég er alltaf að horfa á ána núna", sagði kona, sem stóð við benzínafgreiðslu BP. Trippi lék sér á árbakkanum og kom nú rásandi beint á móti ljósmyndavélinni. Skjaldar- merki sýlunnar — tveir húnar og birna með tvo húna trónuðu á hliðstólpum við sjúkrahúsið. ■Dlönduós er framfarapláss •— þar er ráðizt í hvert fyrir- tækið af öðru: trefjaplastverk- smiðju, úrgangsverksmiðju banka og bókasafnsbyggingu, glæsilegan veg í sambandi við nýju brúna, skógrækt í Hrútey. Þar er nýtízku sjúkrahús, nýtt bílaverkstæði af fullkominni gerð, ný skólabygging og þann- ig má lengi telja. Valdsmaður plássins leið- sagði. „Héðan hefur aldrei verið neinn flótti", sagði sýslu- maður. Hann sýndi góðfúslega trefjapiastverksmiðjuna, þar sem aátar eru smíðaðir og verkefnin gerast fjölbreyttari; benti á, hvar nýi vegurinn á að liggja, eða beint af augum, þegar komið er yfir brúna á suðurleið, sýndi, hvar stórhýsið nýja undir banka, bókasafnið og skrifstofur hreppsins, á að rísa; ennfremur benti hann á sæðingarstöðina, sem er ein ný- tizkulegasta stofnun sinnar teg- undar í landinu. Andstæðingar einstaklings- hyggju kaila Blönduós mesta íhaldspláss á íslandi. (Hlutföll: 130/170). Sannanir eru fyrir því, að rekstur á einka- og sameignarfyrirtækjum og bæjar- eða sveitarfélaginu í heild er ó- víða í betra horfi en þar. Húnavöku átti að ijúka þá um kvöldið eða nóttina. Komið var þurrviðri. Farþegi var gripinn á hótelinu, framsókn- armaður, sem sagði, að allt of margir íhaldsmenn væru i Húnavatnssýslu: nánast þriðji hver bópdi. Seinna kom í ljós, að hann var sanngjarn í garð andstæðinganna eins og greind- um bónda að norðan er sæm- andi. — stgr. mönnum ríkis og bæjar, sem hafa tryggt starf okkar fjárhags lega og aukið húsnæði skólans til muna. Svo og vill ég flytja kennurum og samstarfsmönnum mínum beztu þakkir fyrir heilla drjúgt starf á þessum vetri, en einkum er mér ljúft að geta vottað nemendum okkar, að þeir hafa mikið unnið og stund- að námið af áhuga og einiægni. Meðal þeirra vil ég sérstaklega nefna stúlkurnar í Vefnaðar- kennaradeildinni. Ég hef sjald- an séð kennaraefni búa sig undir kennsiustarf sitt með meiri vandvirkni og ábyrgðar- tilfinningu. Allir nemendur úr Myndvefnaðardeild hafa þegar látið innrita sig fyrir næsta skólaár. Gæti það verið vottur þess, að a.m.k. sum hafa skilið hið fornkveðna: „ars longa, vita brevis“. En betur má ef duga skal. (Erindi þetta flutti höfundur við opnun sýningar Handíða- og myndlistaskólans s.l. laug- ardag). MYNDLIST — Framhald af bls. 17 Grafik, prentmóti í Tauþrykki, lími, pappír og leðri í Bókband- inu. Þá takmörkun, sem tækin bjóða og sem ef til vill skapa meistara, verður i myndlist að iæra með miklu erfiði og þrá- faldlegu striti. Að lokum vill ég þakka öllum þeim, sem með góðum skiln ingi og alúð hafa hjálpað til þess að árangur þessi hefur náðst, fyrst og fremst ráða- SH OXYGEN g]C BRI Rafsuðu — Logsuðu vír — Vélar — Varahiutir fyrirliggjandi. Þ. ÞORGRÍMSSON & Co. Suðurlandsbraut 6. Sími 2 22 35. iMfserwBBas*

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.