Vísir


Vísir - 21.05.1963, Qupperneq 2

Vísir - 21.05.1963, Qupperneq 2
2 VISIR . Þriðjudagur 21. maí 1963. ^tc^~í5u~pv>£' ''/y/<2m^///4W^////sí JX m E2L.T^-Tm- /////////'2mk^//////</m////Æ Fram skorar eítir446mín. Eftir fimm leiki hafa íslandsmeistararnir Fram hlotið tvö stig í Reykjavíkurmótinu og skorað eitt mark, sem kom fimm mínútum áð- ur en þeir skildu jafnir við KR í gærkvöldi. Þetta kærkomna mark þeirra skoraði Ingólfur Óskarsson, sem fékk knöttinn rétt fyrir utan marklínu, eftir að knötturinn hafði hrokkið af stöng. Bæði liðin voru mjög svipuð í fyrri hálfleik, þó var sókn KR-inga mun ákveðnari. Það var þó ekki. fyrr en á 15. mín- útu fyrri hálfleiks að mark Fram komst í verulega hættu, þegar að Halldór v. útherji K.R. skaut föstu skoti frá vítateig, sem lenti rétt fyrir utan stöng. ★ Framarar byrjuðu mun á- kveðnari f síðari hálfleik og sóttu nokkuð að marki K.R., þó án þess að veruleg hætta skap- aðist. En er líða tók á leikinn varð hann þófkenndur og leik- menn urðu kærulausari, en á- horfendur skemmtu sér helzt við að sjá risana, Ellert Schram og Ingólf Óskarsson kljást á miðjum vellinum. Um miðjan síðari hálfleik varð Ellert að yfirgefa völlinn og dró þá nokkuð úr K.R.-ing- um. Fóru Framarar að sækja meira, en gekk iila að komast í gegnum öftustu vörnina. Þegar að um sex mínútur voru til leiksloka sækja K.R.- ingar og miðverði Fram mis- tekst að „hreinsa" og knöttur- inn hrekkur til Halldórs v.-út- herja, sem skaut fallegu skoti er hafnaði vinstra megin út við stöng. Við markið kom nokkuð fjör í leikinn og tveimur mínútum seinna fékk Björn Helgason knöttinn, lék síðan á tvo varn- arieikmenn K.R. og skaut föstu skoti sem hafnaði í stöng og út, en þar var Ingólfur Óskarsson fyrir og sendi í netið. Fyrsta mark Fram hafði verið skorað eftir mikil hlaup og mörg skot í alls 446 mínútur eða fimm leiki sem íslandsmeistararnir hafa leikið í Reykjavíkurmótinu í vor. ★ { heild var leikurinn lélegur og aðeins örfá spennandi augna blik voru í honum. Ef hrósa ætti einstökum leikmönnum má nefna þá Björn Helgason í Framliðinu og Þórð hinn unga og efnilega framv. K.R., sem tók stöðu miðvarðar eftir að Ellert fór út af og skilaði henni vel. Áhorfendur voru fáir, helzt sigurglaðir Valsmenn frá þvi í fyrradag. Veður var hið bezta og völlurinn mjög góður. Dóm- ari var Daníel Benjamínsson og slapp hann allvel frá leiknum. Þeir hafa fengið múrar- ann í Skíðadeild ÍR í einu vikublaðinu var nýlega 1 skýrt frá vandræðum ÍR-ing- anna í skíðaskálanum í Hamra- gili. Þar vantaði aðeins einn iðnaðarmann til að hægt væri að leggja lokahönd á verk- ið — múrarann. Skömmu síðar Reykjavíkurmeistarar Vals, 1963 fremri röð frá vinstri: Ormar Skeggjason, Árni Njálsson, Björgvin Her- mannsson, Þorsteinn Friðþjófsson, Elías Hergeirsson. Aftari röð frá vinstri: Bergsveinn Alfonsson, Björn Júlíusson, Steingrimur Dagbjartsson, Bergsteinn Magnússon, Hermann Gunnarsson Geir Guðmundsson þjálf- ari liðsins og Ægir Ferdinandsson form. knattspyrnudeildar Vals. hringdi múrarinn, ÍR-ingur auð- vitað, og vildi óður og uppvæg- ur komast í vinnu við skálann, vitanlega i sjálfboðavinnu. Er sjálfboðastarfið í þessum myndarlega skála til mestu fyrirmyndar en hún er virt á nær hálfa milljón, en kostnaður af byggingunni er orðinn 1,3 milljónir. Hefur byggingin þvi komið talsvert niöur á sjóðum félagsins og miklar skuldir safnazt á skíðadeildina. Þess vegna hefur deildin keypt glæsilegan bíl af Renault- gerð, sem hefur verið settur f happdrætti og er vinningurinn til sýnis á Lækjaretorgi, þai sem Hótel Hekla var fyrrum Verð hvers miða er 100 krónur nokkuð hátt verð, en vinnings líkurnar eru margfalt meiri, þai eð aðeins 6000 miðar verðí gefnir út og aðeins dregið ú' seldum miðum. Hagræði e; einnig að dráttur fer fram efti: mánuð, á þjóðhátíðardaginn 17 júní. Til gamans má geta þess af Skíðadeild ÍR gekkst fyrii fyrsta bílhappdrættinu, en þa? var 1938. Þá var vinningurim glæsileg Chryslerbifreið, miðinr á krónu, en miðar alls 30.000 Fyrir ágóðann var Kolviðarhól keyptur. Vonandi tekst eins ve nú fyrir Skíðadeildina og síðast hjallinn verði unninn. mm 19. firmakeppni GOLFKLTJBBS REYKJAVÍKUR Firmaeigendur og forráðamenn firma í Reykjavík hafa frá upphafi sýnt mikinn og góðan skilning á mál- efnum G.R. með þátttöku sinni í firmakeppni klúbbsins. Nú þegar eru 9 holur á golfvellinum í Grafarholtslandi leikhæfar og í haust verða allar 18 holurnar væntanlega teknar í notkun. Þýðingarmesta atriðið í uppbyggingu nýja golfvallarins, utan þess að byggja upp völlinn sjálfan, er að koma upp golfskála. Væntanlega verður hafizt handa á byggingu í sumar og með þátttöku sinni í firmakeppninni í ár stuðla firmun að því að svo verði. Golfklúbbur Reykjavíkur vill sérstaklega þakka eftirtöldum firmum þátttöku í keppninni: Óslitið frá upphafi: Almennar Tryggingar h.f., Eimskipafélag íslands h.f., Kol & Salt h.f„ Magnús Kjaran, heildv., Ólafur Gíslason & Co. h.f., Olíufélagið Skeljungur h.f., Olíuverzlun íslands h.f., Reykjavíkur Apótek, Sjóvátryggingafélag íslands h.f., Slippfélagið í Reykjavík h.f. í 17 ár: Alliance h.f., Almenna byggingafélagið h.f., Búnaðarbanki íslands, Eggert Kristjánsson & Co. h.f. Hamar h.f., vélsmiðja. Hekla h.f., heildv., Morgunblaðið, Sigfús Eymundsson, bók Tjarnarcafé, Útvegsbanki íslands, Vísir. í 16 ár: Ásgeir Ólafsson, heildv., Fram h.f., verksm., Framtíðin h.f„ verksm., Haraldur Árnason h.f., ’^rpa h.f„ málningarv "-tæðishúsið. Í 15 ár: Bernhard Petersen, Blóm & Ávextir, Gottfred Bernhöft & Co„ Haraldarbúð, Hellas, sportvöruv., Kristján G. Gíslason & CO„ Olíufélagið h.f„ Ræsir h.f„ Síld & Fiskur, Sveinn Björnsson & Ásgéirsson, Ölgerðin Egill Skallagrímsson hi. smzrjœr*

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.