Vísir - 21.05.1963, Blaðsíða 6
V í SIR . Þriðjudagur 21. maí 1963.
6
Kosningaskrifstofur Sjálfstæðis-
manna um alit land
Stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins utan Reykjavlkur er bent á,
að hjá eftirtöldum aðilum geta menn fengið allar upplýsingar varð
andi kosningamar:
AKUREYRI
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Hafnarstræti 101,
simi 1578.
HÚSAVlK
Þórhallur Snædal, byggingarm., Ingvar Þórarinsson,
AKRANES
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins,
Vesturgötu 48, sími: 715.
BORGARNES
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, sfmi: 95.
STYKKISHÓLMUR
Ámi Helgason, stöðvarstjóri.
GRAFARNES
Emil Magnússon, verzlunarstjóri.
ÓLAFSVlK
Bjarni Ólafsson, símstöðvarstjóri.
HELLISSANDUR
Bragi Ólafsson, Gufuskálum,
PATREKSFJÖRÐUR
Trausti Árnason, verzlunarmaður.
AUSTUR-BARÐASTRANDASÝSLA
Jóhann Jónsson, bóndi, Mýrartungu
BÍLDUDALUR
Hjálmar Ágústsson, verkstjóri.
ÞINGEYRI
Jónas Ólafsson, framkvstjórl.
FLATEYRI
Rafn A. Pétursson, framkvæmdastjóri
SUÐUREYRI
Óskar Kristjánsson, framkvæmdastjóri.
BOLUNGARVlK
Jónatan Einarsson, framkvæmdastjóri.
ÍSAFJÖRÐUR
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins.
HÓLMAVÍK i, , imuiÍJÍiíá iú m
Séra Andrés Óiafsson.
DRANGSNES
Jakob Þorvaldsson.
DJÚPAVÍK, ÁRNESHR., STRÖNDUM
Guðbrandur Þorláksson, símstöðvarstjóri.
HVAMMSTANGI
Sigurður Tryggvason, verzlunarstjórl
BLÖNDUÓS
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, sími: 56.
SAUÐÁRKRÓKUR
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, sfmi: 23.
SIGLUFJÖRÐUR
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Gmndar
götu 11, sfmi 54.
ÓLAFSFJÖRÐUR
Jakob Ágústsson, rafveitustjóri.
DALVÍK
Kári Sigfússon, viðskiptafræðingur.
bóksali.
RAUFARHÖFN
Ólafur Ágústsson, hafnsögumaður.
ÞORSHÖFN
Helgi Þorsteinsson, kaupmaður.
VOPNAFJÖRÐUR
Sigurjón Jónsson, verkstjóri.
BAKKAFJÖRÐUR
Séra Sigmar Torfason, Skeggjastöðum.
FLJÓTSDALSHÉRAÐ
Ari Bjömsson, verzl.stj., Egilsstöðum, síml 25.
SEYÐISFJÖRÐUR
Theodór Blöndal, bankastjóri.
NORÐFJÖRÐUR
Jón Karlsson, kaupm., og Reynir Zoéga, vélstj.
ESKIFJÖRÐUR
Ingólfur Hallgrímsson, kaupmaður.
REYÐARFJÖRÐUR
Gísli Sigurjónsson, Bakkagerði.
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR
Jóhann Antonfusson, skólastjóri.
STÖÐVARFJÖRÐUR
Stefán Carlsson, kaupmaður.
BREIÐDALUR
Páll Guðmundsson, bóndi, Gilsárstekk.
HÖFN, HORNAFIRÐI
Sveinbjörn Sverrisson, vélsmiður.
VÍK, MÝRDAL
Hálfdán ^ufSn^^ndsson, verzlunarstjóri.
VESTMANNAF. Y JAR
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, sími: 33.
HELLA
Jón Þorgilsson, fulltrúi.
SELFOSS
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, sfmi: 289.
HVERAGERÐI
Herbert Jónsson.
KÓPAVOGUR
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins,
simi 19708.
HAFNARFJÖRÐUR
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins,
sfmi 50228.
KEFLAVÍK
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins,
sfmi: 92-2021.
BIFREIÐASALAN
Laugavegi 146. — Símar 11025 og 12640
BIFREIÐAEIGENDUR:
Við "iljum vekja athygli bíleigenda á, að við höfum
ávallt K..upendur að nýjum og nýlegum FÓLKSBIF-
REIÐUM, og öllum gerðum og árgerðum af JEPPUM.
Látið RÖST því skrá fyrir yður bifreiðina, og þér getið
treyst því, að hún selzt mjög fljótlega.
KAUPENDUR:
Nýir og ýtarlegir verðlistar liggja frammi með um
700 skráðum bifreiðum, við flestra hæfi og greiðslu-
getu. — Það sannar yður bezt að RÖST er miðstöð bif-
reiðaviðskiptanna.
— RÖST REYNIST BEZT —
RÖST S.F.
Laugavegi 146. — Simar 11025 og 12640
Lögfræðiskrifstofa
og fasteignasala,
Skólavörðustlg 3A III. hæð
Simai 22911 og 14624
Stangaveiðin —
Framh. af bls. 9.
arnir eru þá á bak við þetta allt
saman.
IV.
Um það verður naumast deilt,
að stangaveiði sé holl skemmt-
an innisetumönnum. Þeim er
hollt að dvelja sem mest undir
berum himni í sumarleyfum j
sínum. Segja mætti, að í því j
sambandi sé stangaveiði auka-
atriði. Mörgum innisetumanni I
er þó svo farið, að hann þarf að
lokka sig undir bert loft. Stanga
veiðin er eitt af þeim og ekki
það sízta. En hér kemur einnig
annað til og það miklum mun
veigameira.
íslenzkir kauptúna- og kaup-
staðabúar eru margir uppaldir í
sveit. Og foreldrar enn fleiri
þeirra voru uppaldir í sveit.
Mikill meirihluti þéttbýlis-
manna hefir þvf ýmist dvalið
sín fyrstu ár í sveit eða num-
ið í bernsku sögur foreldranna
úr sveitinni. Og forfeðurnir
lengra aftur voru svo að segja
allir sveitamenn eða sjómenn.
Af þessu liggur ljóst fyrir, að
borgarmenning hlýtur að standa
grunnt hér á landi. Rætur
flestra landsmanna sugu safa
sinn beint úr samskiptum
mannsins við náttúruna. Megin-
hluti þjóðarinnar verður varla
slitinn af rót sinni alveg á-
hættulaust. Nokkurn tíma tek-
ur að skjóta nýjum rótum og
treysta þær, ekki sízt ef skipt
er alveg um jarðveg. Ekki er ör-
grannt um, að í þjóðlífinu beri
á brestum, sem kynnu að eiga
þarna upptök sín.
Allt sem viðheldur sambandi
búa sér til erindi til þess að
þéttbýlismanna við náttúruna
er þjóðinni svo dýrmætt, að
það verður ekki metið til fjár.
Stangaveiðin er þó með þvf
æskilegasta f þessu efni eink-
um eins og hún tíðkast hér á
landi, þar sem töluverð rækt-
unarstarfsemi er iðulega sam-
fara henni. En ræktunin kostar
oft mikið fé til þess, að allir
geti orðið hennar aðnjótandi.
Flutningur úr sveitum í
borgir hefir að vísu vfðar gerzt
en á íslandi. Hér hefir hann þó
ef til vill verið örari og nær til
hlutfallslega fleiri en vfðast
hvar annars staðar. Flestar
þjóðir þekkja hætturnar, sem
rótskiptunum eru samfara. Við-
leitnin til að draga úr þeim
kemur meðal annars fram f þvf,
að auðvelda borgarbúunum allt
samband við landið og náttúr-
una. Er það gert með ýmsu
móti.
Sennilega standa Bandarfkja-
menn framar flestum þjóðum í
þessu efni. Þeir höfðu þama að
einu leyti ágæta aðstöðu. Þar
hafa öll vatnaréttindi verið í
eigu ríkisins frá fornu fari, þar
á meðal veiðiréttindi. Þetta
hafa Bandaríkjamenn hagnýtt
sér. Þeir tryggja borgabúunum
mjög almenna möguleika á að
nota þenna rétt.
Tala veiðimanna er ótakmörk-
uð og veiðileyfin höfðu mjög ó-
dýr. Tekjunum af sölu veiði-
leyfanna er varið til veiðieftir-
lits og fiskræktar, og flest
fylkjanna bæta drjúgum fúlgum
við af almannafé á einn og ann-
an hátt. Guðmundur getur
meira að segja annarrar afstöðu
Bandaríkjamanna en Evrópu-
þjóða, þessum efnum, en hann
virðist hvorki sjá kosti hennar
né skilja viðleitnina, sem á bak
við liggur.
Gagnvart mörgum kann að
hafa takmarkaða þýðingu að
ræða þessi mál. Og svo mikið
er víst, að ekki má vænta skiln-
ings þeirra, sem ekki hugsa
hærra en krónan hoppar, né sjá
lengra en hún veltur.
Gunnlaugur Pétursson.
Hótel Borg —
Framhald af bls. 9:
harðvið, lýsing þægileg, svo og
húsgögn og á norðurvegg er
veggskreyting. Um breytingar
á byggingunni sá Gunnar Öss-
urason en Jón Pétursson smíð-
aði innréttingar.
Barinn nær nú yfir það hús-
rými, sem hinn upphaflegi bar
var í, svo og baksalina nema
þann sem er beint inn af suður-
gangi, en úr suðurgangi verður
inngangurinn.
Á Hótel Borg leikur nú
hljómsveit Jóns Páls, söngkona
Elly Vilhjálms. Um mánaða-
mótin næstu koma hinar frægu
Princesystur og skemmta gest-
um.
Hótel Borg er þess nú full-
búin að taka á móti gestum
sumarsins hvort heldur er til
gistingar eða til þess að njóta
góðs matar og skemmtunar
Kórsöngur á
Húsavík
Karlakórinn Þrymur hélt söng-
kemmtun í samkomuhúsinu í Húsa-
vík á laugardaginn við húsfylli og
ágætar viðtökur áheyrenda. Söng-
stjóri er Sigurður Sigurjónsson en
einsöngvari Eysteinn Sigurjónsson.
Undirleik annaðist Ingibjörg Stein-
grímsdóttir frá Akureyri. Söng-
skemmtunin verður endurtekin á
miðvikudagskv.ldið. Karlakórinn
Þrymur er 38 ára á þessu ári.