Vísir - 21.05.1963, Side 5

Vísir - 21.05.1963, Side 5
V í S IR . Þriðjudagur 21. maí 1963. í útvarpsþætti í gærkvöldi voru geðveikramálin á dagskrá og svaraði dr. Tómas Helgason, yfirlæknir á Kleppi spurningum blaðamannanna. Þar kom ýmis- legt athyglisvert fram, og skulu hér tilfærð nokkur atriði úr upplýsingum yfirlæknisins: Neyðarástand. Segja má að algert neyðar- ástand ríki í geðveikimálum þjóðarinnar í dag. Þörf er á meira en helmingi stærra spít- alaplássi en fyrir hendi er, þannig að rúmur helmingur geðsjúklinga, er þyrftu að vera í sjúkrahúsi, er nú í heimahús- um. Ýmsar ástæður liggja til þess að aðgerðir í geðveikra- málum hafa orðið út undan, m. a. sú, að mönnum hefir hætt til að hafa lágt um þessi mál og jafnvel til að forðast að horfast í augu við staðreyndir í sam- bandi við þau. En það er síður en svo ástæða til að fara með meiri leynd með geðsjúkdóma og geðtruflanir en líkamlega sjúkdóma. Talið er að þriðji hver maður hér á landi þurfi einhvern tíma á ævinni læknis- ráð eða læknismeðferð vegna geðsjúkdóma eða taugatruflana, ] á því sést hve geðtrufianir eru f rauninnl algengar og nauðsyn- legt: að horfast í .augu við þá staðreynd . svo að hægt sé að hjálpa þeim sjúklingum eins og öðrum. Ný Iyf stórbót. Fyrir fáum árum var farið að nota ný lyf við geðlækningar, sem segja má að hafi stórbætt allar batahorfur geðsjúklinga. Fyrir daga þessara lyfja útskrif- uðust um 80% sjúklinga á Kleppi áður en árið var liðið, en | nú útskrifast þaðan 90% sjúk- ] linganna fyrir þann tíma og er það mest þakkað þessum lyfj- um. Þar að auki hafa lyf þessi orðið til þess að mjög hefir dregið úr rafmagnslosti við geðlækningar. Vantar 300—400 sj'úkrarúm. Kleppsspítalinn er raunveru- lega ekki nema fyrir 240 sjúk- inga. Auk þess dveljast um 20 geðsjúklingar annars staðar og um 30 geðsjúklingar í Far- sóttarhúsinu í Reykjavík. Eins og sakir standa þyrfti að tvöfalda sjúkrarúmafjöldann sem fyrr segir og fjölga þeim síðan árlega að meðaltali um 12 til þess að mæta eðliiegri fólksfjölgun þjóðarinnar. Bráðabirgðahús. Nú vita menn að alllangan tíma tekur að teikna, útvega fé til og byggja nýtt og full- komið geðsjúkrahús, og í milli- tíðinni er nauðsynlegt að leysa hinn bráðasta vanda í þessum málum. Hafa nokkur hús komið til orða f því sambandi, svo sem Kristneshæli og Vífilsstaða hæli, þá méð þeim fyrirvara að sjúklingar þaðan yrðu t. d. fiutt- ir í Reykjalund. En þessi sjúkra hús munu þykja gamaldags og henta miður geðsjúklingum, og virðist dr. Tómas Helgason telja að til greina kæmi að fá til bráðabirgða afnot af efstu hæð vesturálmu nýju Landspít- alabyggingarinnar fyrir geð- veikralækningar, ef þess væri kostur, en um þetta hafa ekki verið teknar neinar ákvarðanir. Geta má þess að í öðrum lönd- um er algengt við stóra spítala að þar séu geðlækningadeildir með öðrum deildum. Lögreglan gætir sjúklinga í fangahúsi. Það kom skýrt fram £ út- varpsviðtali þessu hve hörmu- lega illa menn eru settir ef ein- hver verður gripinn af geð- veikikasti og þyrfti þegar að komast í sjúkrahús. Þá er hvergi í sjúkrarúm að fá, og þrátt fyrir einlægan hjálparvilja allra, sem hlut eiga að máli verður það æði oft eina úrræðið að fá lögreglumenn til þess að gæta hins sjúka einhvern tíma í fangageymslu, eða í heima- húsum þar til um hægist eða úr raknar með einhverju móti. Sigyrð&ir — Framhald af bis. 16. kosið í nefndir. Var fundinum síðan frestað um eina viku og á framhaldsaðalfundinum voru gerðar ýmsar ályktanir. Stjórn Kaupmannasamtak- anna er skipuð 19 fulltrúum, það er einum frá hverju aðildar félagi, einum frá einstaklingum og einum..oddamanni. Á fyrsta fundi stjórnarinnar sem haldinn var að loknum aðalfundi var kosin fimm manna framkvæmdastjórn og skipa hana nú Sigurður Magnús son kjörinn af aðalfundi for- maður, ísleifur Jónsson vara- formaður, Björn Guðmundsson ritari, Jón Mathiesen og Edvard Frímannsson. Nánar verður sagt frá aðalfundinum í blaðinu á morgun. SAGA SMITHS KAPTEINS. Tíminn hefir komizt í óvenju lega feitt i morgun. „Bretar ganga á lagið“ segir blaðið yfir þvera forsíðuna og er í hátsð- arskapi. Og lesandinn spyr sak leysislega: Hvaða lag? Og ekki stendur á svörunum hjá hinum rösku Tímamönnum. Brezka stjórnin sendi íslendingum orð- sendingu hinumegin helgar- innar. í henni var sagt að brezka stjórnin harmaði að Smith kapteinn komst hjá hand töku, að hún liti alvarlegum augum á málið eins og íslenzka ríkisstjórnin og hefði hvað eftir annað lagt að Smith kapteini að standa fyrir máii sínu fyrir ís- lenzkum dómstóli. Þess vegna er erfitt að skilja fyrirsögn Tímans öðruvísi en þannig að brezka stíórnin gan'’! á það lag að leggja íslendingum lið i málinu, en samt mun það ekki hafa verið ætlun blaðsins að sú yrði niðurstaðan. Kosningar eru nefnilega fyrir fyrir dyrum og því þarf að gera Bretann sem allra tortryggileg- astan og læða því inn hjá þjóð- inni að eftir kosningar muni hann heimta nýjan landhelgis- samning og helzt afnám 12 mílna landhelginnar. STÓRA SPRENGJAN. Og það er fróðlegt að sjá hvernig blaðið snýr málinu í hendi sér til bess að fá út þessa niðurstöðu. í orðsentí‘ngunni er ekki eitt orð um 12 mílna land- helgina, eða það að Bretar vé- fengi hana. En þar segir að brezka stjómin geri fyrirvara urn Iagarök málsins, þ. e. a. s. hún getur ekki framselt brezkan ríkisborgara hingað til lands, þar sem afbrot hans er ekki þess eðlis samkvæmt lögum, enda ekki slíkur samningur i gildi milli þjóðanna tveggja. En þessa setningu notar Þórarinn sem stórsprengju og segir að þetta þýði að Bretar véfengi 12 mílurnar. EKKI Á MOKKA. Það þarf einstaklega skarpan mann, með mikil brióstheilindi. til þe~s að komast að svo diúp- viturri niðurstöðn Ungum mönn um sem hyggjast læra nólitíska blaðamennsku er ráðlagt að þrautkynna sér hetta dæmi, því betur er ekki annarstaðar hægt að sjá hvernig á að fara að því að Iumbra á andstæðingum. Að vísu er heimildin engin, en það skiptir engu máli — aðeins ef unnt er að skjóta andstæðinginn í kaf með þessari sérstæðu blaðamennsku. Sumir myndu kannski segja að slíkir afbragðs pennar ættu betur heima í hópi skáldsagnahöfunda uppi á Mokk a en það er mesti misskilningur. Þessi þjóð á nóg af mönnun. ímyndunaraflsins í rithöfunda- stétt en of fáa í hópi blaða- manna. Og það er líka önnur ekki ó- merkari hlið á þessu máli. FYRSTA DAGINN. I Alkunna er að Þórarinn Þór- ! arinsson, ritstjóri landhelgis- blaðsins, er næsta utanríkisráð- herraefni kommúnista í nýrri vinstri stjórn. Ef sú stjóm kcmst á laggirnar verður gaman að lifa í landinu. Þá fáum við landgrunnið allt á fyrsta degi, 200 mílur eins og Suður Arne- ríkuríkin. Bretar munu örugg- lega bera fram harðorð mót- mæli. En það skiptir engu máli. Hinn nýi utanríkisráðherra hefir *p'að og safit að við eigum bað einir og þá hlýtur það að vera rétt. Þannig getum við einir ráðið lögum og Iofum á úthafinu, að- eins ef réttir menn eru í stjóm. Björn Bragi Magnússon Jón Björnsson Arangurslaus leit Ekkert hefur komið fram enn® sem komið er, sem á nokkurn hátt getur gefið visbendingu um hvarf piltanna tveggja sem hurfu úr Reykjavík í vikunni sem leið, þeirra Jóns Bjömssonar og Björns Braga Magnússonar. Slysavarnafélagið hélt enn uppi leit í gærdag, en árangurslaust. Farið var á báti út í Engey, Viðey og Akurey og gengið þar allar fjörur til að kanna hvort nokkuð hafi rekið. Þá var í útvarpinu komið ú framfæri tilmælum um að fólk sem byggi nálægt sjó kannaði fjörur og léti Slysavarnafélagið vita ef eitthvað hafi rekið sem ein- hverja vísbendingu gæti gefið um hvarf trillubátsins eða mannanna tveggja. 1 Hringt var til Slysavarnafélags- ins frá nokkrum stöðum suður með sjó eftir að tilmæiin höfðu verið lesin í hádegisútvarpinu í gær og voru menn sendir allt suður að Stapa, til að rannsaka það sem fólkið hafði fundið í fjörunni, en ekkert af því benti til þess að það stæði í nokkru sambandi við týnda bátinn né mennina tvo. Loks voru gengar Seltjarnarnes- fjörur í gær, en árangurslaust eins og öll hin leitin. AfOakóngur — Framhald sl bls. 1. kunnugt er hinn landskunni afla kóngur Eggert Gislason, sem hafði árangurslaust reynt að miðla málum. Verkfallinu á bát- um Guðmundar hefur nú verið aflýst og fóra þeir á veiðar í nótt. Sömuleiðis hefur verið af- lýst vinnustöðvun í landi, sem átti að koma til framkvæmda 26. þessa mánaðar við báta Guð mundar, og hefur hann þannig haft réttinn sín megin í þess- um málum öllum: Félagsdómur dæmdi verkfall Verkalýðs- og sjómannafélags Miðnesshrepps á bátum Guð- mundar ólöglegt á þeirri fors- endu, að eigi væri heimilt, eins og félagið hafði þó haldið fram að beita ákvæðum fyrsta liðar 17. greinar laga nr. 80 frá 1938, en samkvæmt þeim ákvæðum heimilast verkalýðsfélagi að beita vinnustöðvun til að knýja fram fullnægju á áður uppkveðn um dómi félagsdóms. Hafði verkalýðsfélagið haldið þvf fram að samkvæmt dómi félagsdóms frá 18. janúar s.l. væri Guð- mundi Jónssyni skylt að skrá á síldveiðibáta sína í Sandgerði samkvæmt síldveiðisamningi frá 1958 og 1959. Félagsdómur taidi hins vegar að skylda G.J. samkvæmt fyrrnefndum dómi frá 18. janúar, væri eigi svo fullkomlega skýlaus að áður- greindur dómur gæti orðið verkaiýðsfélaginu heimild til vinnustöðvunar. Sfyrkir — Framhdd af bls. 8. þáttum, er áhrif hafa á frjósem- ina. 45 þús. kr. Dr. Georg Walker tii rann- sókna á Austfjarðablágrýtinu. 20 þús. kr. Dr. Þorleifur Einarsson, jarð- fræðingur, til greiðslu á kostn- aði við aldursákvarðanir sýnis- horna á fornskeljum og mó. 10 þús. kr. leiðréffing í Vísi sl. föstudag, birtist mynd, af Bjarna Guðjónssyni myndskera, og var hann þar nefndur Tómas- son. Þetta leiðréttist hér með. Skemmtiferð SjálfstæðiskvennafélagiÖ Hvöt fer í skemmti- för fimmtudaginn 23. (uppstigningardag). Farið verður um Suðurnes, að Reykjanesvita og til Keflavíkur. — Farmiðar og upplýsingar í dag og á morgun hjá Gróu Pétursdóttir Öldugötu 24. Sími 14374 og Kristínu Magnús- dóttir Hellusundi 7. Sími 15768 og Maríu Maack Þingholtsstræti 25 og Guðrúnu Þorkelsdóttir Sindra Seltjarnarnesi. Sími 13031. W m|

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.