Vísir - 01.07.1963, Síða 3

Vísir - 01.07.1963, Síða 3
VlSlR . ivianudagur 1. júlí 1963. 3 Tólf þúsund vildu eigendumir fá fyrir þennan, en prangið upphófst þá þegar og væmtanlegur kaupandi bauð 8.000 krónur um leið og hann var búinn að gera allítarlega skoðun á hestinum, en þama skoðar hann hvernig járnum hestsins er háttað. „Hvað skyldir þú vera gamall, vinurinn“, segir þessi hrossaspekúlant frá Reykjavík og skoðar upp í eitt söluhrossið að Heliu. 410 þús. Hestamannafélagið Geysir i Rangárvallasýslu efndi s. 1. laug ardag til hestamarkaðs eða sölu sýningar á hestum og er það í fyrsta sinn sem slík sölusýning fer fram á hestum. Sýningin fór fram i tamningar stöð félagsins á Hellu og var þar margt um manninn meðan á sýn tngunni stóð, enda veður mjög gott. Alls voru til sölu 40 hestar og nam heildarverðmæti þeirra sam kvæmt söluskrá alls um 410 þús. krónur. Fyrirkomulag mark aðsins var þannig að hestunum var komið fyrir á tölusettum básum. Fyrir ofan hvem hest var hengd tafia með öllum helztu upplýsingum um hestinn. Sölusýningin hófst klukkan fjögur með því að hver hestur fyrir sig var leiddur út og hon- um riðið spölkorn. Tveimur stórum verðtöflum var komið fyrir utan við tamn- ingastöðina og á þeim stóð verð það sem eigendur hestanna vildu fá fyrir þá og einnig nokk rar upplýsingar um hvern hest. Hæsta verð sem sett var upp, var fyrir Goða, jarpan 9 vetra, eign Magnúsar Gunnarssonar í Artúni. Vildi Magnús selja hest- inn á 18 þúsund krónur. Ódýr- asti hesturinn á sölusýningunni var á krónur 6,500 en alls voru á sýningunni 23 hestar sem kostuðu 10 þúsund og þar yfir. Eftir að hestarnir höfðu verið sýndir, mátti reyna þá, en til þess að það yrði ekki misnotað varð að greiða 100 kr. gjald fyr ir að fá að reyna hvern hest í 10. mín. Ef einhver hugðist kaupa hest samdi hann við eigandann, al- gjörlega um kaupin. Nokkrlr hestar seldust á þessum fyrsta hestamarkaði og virtust allir vera ánægðir með þennan fyrsta hestamarkað á Islandi. Magnús í Ártúnum sýnir hér kostagrip og segir: „18 þúsund krónur og ekki eyri minna“. Væntanlegur kaupandi íiorfir á griplnn af áhuga. (Ljósm. Vísis B. G.) 1 BS5S!

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.