Vísir - 01.07.1963, Side 4

Vísir - 01.07.1963, Side 4
4 VÍSIR . Mánudagur 1. júlí 1963, Kaupmenn og kaupfélög HURÐARSKRÁR JOHNSON Utanborðsmótorar 3 hestöfl 15 hestöfl 5 - 18 - 5Vz - 28 - 10 - 40 - Viðgerða- og varáhlutaþjónusta. Gunnar Asgeírsson hf. Suðurlandsbraut 16 . Sími 35200. HEILDV. SIG. ARNALDS Stýrimannastíg 3 . Sími 14950 Ýmsar gerðir fyrirliggjandi Grn |—J ff=j |—j V//////////sm '/////////; Lélegum leik FRAM og AKRANESS lauk með 2:2 „Topplið“ 1. deildar deildu stigum jafnt í leik á Laug- ardalsvelli á laugardaginn var. Lauk leiknum með jafntefli 2:2 eftir herfilega lélegan leik, ekki sízt hjá Akranesi, sem þó hafði gjörsigrað íslandsmeistara Fram 6 dögum áður á heimavelli sínum. Þannig er íslenzk knattspyma, ó- stöðug eins og veðrið. Fram til hróss má segja að það litla, sem fannst af knattspymu kom frá þeim. Leikurinn var aðeins þriggja mín. gamall er Baldvin Baldvinsson skorar fyrra mark Fram. Hann fylgdi eftir, nokkuð sem framherj- ar íslenzkra liða trassa að gera, mistök urðu í hinni sundurleitu vörn Skagamanna og skot Baldvins rann í gegnum klofið á Helga tí'an., markverðinum og fréttaritaranum sem er sárreiður iþróttablaðá- mönnum (sbr. viðtaj við hann i Aþbl. nýlega). Fátt skeði annars merkilegt í fyrri hálfleik og enn færra í seinni. Sigurður Einarsson varð að yfir- gefa völlinn í fyrri hálfleik vegna meiðsla, en Akurnesingar áttu sitt bezta færi er Ríkharður brunaði upp miðuna og gaf boltann til Ingvars í stað þess að skjóta sjálf- ur, -— Ingvar hins vegar klúðraði herfilega. Annars áttu liðin nokkur hættuleg tækifæri en nýttu ekki. Ingvar Elísson kom síðastur við boltann, er Skagamenn jafna á 3. mínútu. Hann þrælaði boltanum inn í gegnum varnarnetið á mark- línunni, en áður hafði boltinn hrokkið í þverslá og út á mark- teiginn. Vítaspyrna á 7. mínútu færði Akranesi forystuna, 2:1. Ríkharður hafði brotizt upp, en Geir sigrað í orrustunni við hann, en boltinn hrokkið til Skúla sem skaut en Hrannar Haraldsson sem stóð á marklínunni var þegar sem ör í loftinu eftir boltanum og fékk gómað hann í horninu en víta- spyrnan var óumflýjanleg. Skúli Hákonarson skoraði auðveldlega úr henni, en Geir markvörður hjálp- aði ekki með að beygja sig niður í markinu. Á 16. mín. skoruðu Framarar jöfnunarmarkið. Aukaspyrna var tekin á Helga Daníelsson innan vítateiks og Hrannar vippaði bolt- anum yfir varnarvegg Akraness og Baldur Scheving skoraði laglega með skalla. Framarar áttu allan seinni hálf- leikinn að undanteknum nokkrum fálmkenndum tilraunum Akraness og voru óheppnir að vinna ekki með minnst tveggja marka mun. Beztu menn Fram voru þeir Björn Helgason, Hrannar og Baldur Scheving, en af Akurnesingum var aðeins einn maður góður, Jón Leósson, framvörður, en liðið í heild brást gjörsámlega. Dómari var Magnús Pétursson og hefði mátt vera mun ákveðnari. HurSur skellur á hörðum leikvelli Hafnarfjörður vann Þrótf 5:0 Liðið, sem ógnar 1. deildarlið- unum, vinnur íslandsmeistarana og Bikarmeistara og almennt hefur verið talið öruggt um sigur í 2. deild, Þróttur, hafði ekkert að gera í hendurnar á liði Hafnfirðinga, sem varla er hægt að segja að æfi nokkuð að gagni. Fimm sinnum urðu Þróttarar að sækja boltgnn í netið, fimm sinnum var lið þeirra niðurlægt og hinum tveimur stigum var kippt úr vörzlu þeirra, en engu var líkara en þau væru komin þangað, strax fyrir leikinn, svo ör- uggir voru Þróttarar um sigur, enda lauk fyrri leik liðanna 5—1 fyrir Þrótt. Fyrsta markið kom á 3. mín. fyrri hálfleiks og var það Henning Þor- valdsson miðherji að verki, en Jón Björgvinsson fór heldur illa að ráði sínu og missti boltann inn fyrir sig. 1 hálfleik var staðan 1—0, en Hafnfirðingar áttu mun hættulegri færi, en leikurinn jafn, mikið þóf á báða bóga ekkert fallegt eða lær- dómsrfkt, sannkallaðir tréhestar á hinum harða og leiðinlega knatt- spyrnuvelli þeirra Hafnfirðinga. Strax á 5. mín. síðari hálfleiks skorar Sigurður „Sídon“ Sigurðs- son, áður kunnur Valsmaður, en nú þjálfari Hauka. Hann notfærði sér mistök Þróttar i vörn. Þriðja markið skoraði hann einnig eftir að hafa sloppið upp miðjuna. 4:0 eftir 25 mín. leik I seinni hálfleik. Enn Sídon Valsmaður eftir að ungur og mjög efnilegur piltur Jóhann Larsen lék einleik upp að enda- mörkum og gerði algjört grín að Þrótturum og sendi síðan á Sfdon óvaldaðan fyrir markinu. Vita- spyrna á vísvitandi og ónauðsyn lega hönd á Grétar Guðmundsson og 5:0 var staðreynd, jafnvel þótt Hafnfirðingar yrðu að tvítaka spyrnuna. Borgþór skoraði örugg lega í bæði skiptin. Þróttur fékk sín tækifæri, en misnotaði herfilega t. d. vítaspyrnu á síðustu mín. leiks ins, grútmáttlaust skot, sem Ragn ar Jónsson, handknattleikskappi varði með því að leggjast á jörðina.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.