Vísir - 01.07.1963, Síða 5
VIS IR . Mánudagur 1. júlí 1963.
JT Æ ÍB ®
í kvöld kl. 20.30 leiða Danir og
Islendingar saman hesta sína í
frjálsum íþróttum í 6. sinn, en
keppnin fer fram á Laugardalsvell-
inum.
Danska landsliðið kom til Reykja
vikur í gærkvöldi, en í því eru 35
íþróttamenn og að auki 3 farar-
stjórar. Danirnir vooru hinir hress-
ustu, en brostu góðlátlega, þegar
þeir heyrðu um svartsýni íslenzku
bk.öamannanna í sambandi við úr-
siit keppninnar.
ísiendingar þreyttu fyrst keppni
víj Dani hér á Melavellinum 1950
og þá sigurðu íslendingar með tals-
verðum yfirburðum. Árið eftir í
þriggja landa keppninni í Osló sigr-
aði Island bæði Dani og Norð-
menn á Bislet. Næst kepptu íslend-
ingar við Dani í Kaupmannahöfn
1956 og var það jöfn og skemmti-
leg keppni, sem lauk þó með ör-
uggum íslenzkum sigri eftir frábært
boðhlaup íslenzku sveitarinnar í
4x400 m. Danir komu til Reykja-
víkur árið eftir og þá var spáð
jafnri viðureign, en það fór á ann-
an veg, ísland sigraði með 20 stiga
mun. Loks kepptu þjóðirnar f Ran-
ders 1958 og enn sigruðu Islend-
ingar, en eftir jafna viðureign. Tví-
vegis hafa íslendingar og Danir
verið með í keppni í Osló, þar sem
Jón Pétursson kringlukastari I alvöru sleggjukasti.
sex lið tóku þátt. 1 annað skiptið
hlaut ísland fleiri stig, en Danir
í síðara skiptið.
Allt bendir til þess nú, að Danir
sigri með miklum mun, en ekki er
rétt að vera of svartsýnn, íslenzkir
frjálsíþróttamenn hafa oft komið á
óvart og þó margir ungir nýliðar
séu í landsliðinu, er engin ástæða
til of mikillar svartsýni, keppni
getur orðið jöfn í mörgum grein-
um og mikið er komið undir hlið-
hollum áhorfendum.
I kvöld verður keppt í eftirtöld-
um greinum: 110 m grindahlaupi,
100 m hlaupi, 400 m hlaupi, 1500 m
hlaupi, 5000 ,m hlaupi, 4x100 m
boðhlaupi, langstökki, stangar-
stökki, kringlukasti og kúluvaarpi.
Við ætlum ekki að spá neinu um
væntanleg úrslit landskeppninnar,
en teljum það góða útkomu, þó að
Danir hefðu 10 stig yfir eftir fyrri
daginn.
Tíðindamaður íþróttasíðunnar
skrapp upp í Skíðaskálann í Hvera-
dölum á sunnudaginn, en þar dvald
ist meirihluti íslenzka landsliðsins
um helgina, æfði létt og slappaði af
fyrir keppnina í kvöld.
Þegar bifreið vor brunaði í hlað-
ið hljómaði fagur söngur, en Val-
björn Þorláksson lék undir á gítar,
aðrir voru í sleggjukasti með
„raunverulega sleggju“. Virtust all-
ir í bezta skapi og ekki var kvíða
að sjá á nokkrum manni.
Engin ásfæða
svartsýni
Við snerum okkur fyrst að Guð-
mundi Hermannssyni, fyrirliða og
aldursforseta liðsins og spurðum
hann tíðinda.
— Við höfum tekið lífinu með
ró, hlaupið létt og hvílt okkur vel.
Það hefur verið sungið, spilað og
teflt og allir hafa slappað af og
notið lífsins. Allir eru ánægðir og
vel hvíldir, en þó ákveðnir að selja
sig dýrt gegn Dönum. Ég vil engu
spá, sagði Guðmundur ,en mér lízt
bara vel á keppnina og þeir ungu
ust um ullu Akureyri
— er iÍBiinr vcsrði vifispfrnaa frá Val
Fyrsti leikur íslandsmótsins er
fram fer á Akureyri, var leikinn í
gærkveldi og var leikurinn á milli
Vals og heimamanna. Leikið var
í blískaparveðri og við metað-
sókn áhorfenda eða um 2000
IBA kaus að leika undan hægri
norðangolu og -sól, sem var mikið
til baga leikmönnum. Strax á
fyrstu mín. átti Valur hættulegt
skot, sem fór rétt fram hjá stöng.
Valur átti mun meir í fyrri hálf-
leik en nýttu ekki góð tækifæri
STAÐAN í 1. DEILD.
Staðan í mótinu og markhæstu
Mörk:
menn: Akranes 6 3 1 2 14—10 7 Skúli Hákonarson, Akranesi Skúli Ágústsson, Akureyri Bergsteinn Magnússon, Val 5 5 4
K.R. 6 3 1 2 10—10 7 Steingrímur Björnsson, Akureyri 4
Fram 6 3 1 2 7—7 7 Ellert Schram, KR 3
Akureyri 6 2 2 2 13—13 6 Ríkharður Jónsson, Akranesi 3
Valur 5 2 1 2 10—8 5 Gunnar Felixson, KR 3
Keflavík 5 1 0 4 7—11 2 Kári / .ason, Akureyri 3
I sem þeim buðust Akureyrarliðið
] með Kára, Skúla og Steingrím,
i sem \ aðalmenn, áttu góða kafla,
! með góðri aðstoð framvarðanna,
; einkanlega Guðna. En þeim tókst
ekki betur upp en Val er upp í
marki var komið, þó áttu þeir 4
hættuleg tækifæri en ekki tókst
að koma boltanum í netið.
Á 18. mín. voru Valsmenn í
sókn, og lyktaði henni með skoti
á mark, sem Jón Stefánsson varði
með hendi. Bergsteinn Magnússon
tók vítaspyrnu og sendi hægra
meginn við Einar, sem var
snöggur að vanda, og bjargaði í
horn, við þessa hornspyrnu skap-
aðist mikil þvaga við markið, en
Akureyringum tókst að hreinsa
aftur í horn. I lok hálfleiksins
urðu gróf mistök í vörn Vals, og
komst Þormóður (varamaður P'áls
Jónssonar, sem meiddist í þessum
Framhald á bls. 6.
og nýju menn ,sem nú keppa með
okkur, þessum gömlu, eiga áreiðan-
lega eftir að gera garðinn frægan,
þó síðar verði. E.t.v. verður það
gegn Dönum, sagði Guðmundur að
lokum.
Valbjörn Þorláksson keppir í sex
greinum í landskeppninni og mikið
er undir því komið hvernig honum
gengur.
— Hvað vilt þú segja um lands-
keppnina, Valbjörn?
— Þetta verður erfitt fyrir mig,
að einbeita mér í fjórum greinum
fyrri daginn, fyrst 110 m grinda-
hlaupi, siðan 100 m hlaupi, þá
stangarstökki og loks 4x100 m boð-
hlaupi. Það vjll til að ég er vanur
þessu. Ég álít að það sé örlítill
möguleiki í 110 m grindahlaupinu,
en það er allt komið undir við-
bragðinu og jafnvæginu á fyrstu
grindunum. 110 m hlaupið verður
erfiðara, en í stangarstökkinu á ég
að sigra. Seinni daginn er ég mest
spenntur fyrir 400 m grindahlaup-
inu, en þá grein hef ég ekki reýnt
síðan í fyrra. Valbjörn átti ekki
nógu sterk orð til að lýsa hinum
frábæra aðbúnaði í Skíðaskálanum,
ágætur matur, góð rúm og allt 1.
flokks.
Tapi oft ver-
/ð spóð áður
Jón Þ. Ólafsson sagði lítið. — Ég
j vonast til að sigra Danina í há-
I stökkinu, en það er ekki rét.t að
vanmeta þá, þeir eru báðir efni-
| legir og góðir íþróttamenn. Um
keppnina í heild vildi hann ekkert
segja, en sagði þó, við unnum síð-
ast og við göngum út í þessa
j keppni með þá von að sigra, þó að
allir spái okkur ósigri.
Kristleifur Guðbjörnsson var sof-
andi, er við komum uppeftir, en
hann var vaknaður, þegar við vor-
um að fara og við spurðum eins
og fávísar konur hvort hann álíti
sig hafa möguleika gegn Petersen
í hindrunarhlaupinu.
— Ekki get ég ímyndað mér ann-
að, ég hef Sigrað hann hingað til
og hvers vegna skyldi ég ekki gera
það nú? I
Kristján Mikaelsson
— ákvæðisvinna —
Vinnan fyrst,
SVÖ.........
Ekkí gátu ajlir landsliðsmennirn-
ir tekið lífinu með ró um helgina
og hvílt sig fyrir átökin í kvöld og
annaðkvöld. Einn af þeim var
Kristján Mikaelsson, sem keppir í
400 m í kvöld og 800 m annað
kvöld. Kristján hefur starfað í
ákvæðisvinnu til kl. 10 á hverju
kvöldi undanfarnar vikur og unnið
alla daga. Kristján vann þó ekki
nema til kl. 7 á laugardag og sunnu
dag og hann ætlaði að hætta
klukkutíma fyrir keppnina í kvöld.
Þetta má kalla sanna áhuga-
mennsku í íþróttum. Myndin af
Kristjár.i er' tekin 17. júní.
Halldór Guðbjörnsson er yngstur aðeins 17 ára en öldungurinn í liðinu
er Guðmundur Hermannsson um fertugt.