Vísir - 01.07.1963, Síða 6

Vísir - 01.07.1963, Síða 6
6 V í SIR . Mánudagur 1. júlí 1963. r v. I Þ R O T T I R J Kefíavík átti leikinn en KR sigraði 2-1 Keflvíkingar voru óheppn ir að sigra ekki KR, er þeir léku við þá á grasvellinum í Njarðvík í gær. Þeir áttu mun meira í leiknum, en klaufaskapur, við markið og góð markvarzla Heimis, varnaði því að stigin lentu Keflavíkurmegin. Áhorfendur, sem voru margir máttu bíða í rúmar 15 mfn. eftir að leikurinn gæti hafizt, en tðfin stafaði af slæmu viðhaldi á vell- inum. Netin í mörkunum voru rif- in og laus frá, og einnig var völl- urinn ilia strikaður. Vonandi verð- ur þetta í síðasta sinn, sem töf verður af þessum sökum, vegna vanrækslu. Keflvíkingar kusu að leika undan smágola, en KR sótti og skapaðist hætta við mark iBK þegar á fyrstu mín., Sigþór skaut á mannlaust Sandgerðing- ar hætta i 2. deild Það er auðvelt að vera leikmaður í Breiðabliki þessa dagana. Breiða- blik er nú efst með 6 stig í sínum riðli f 2. deild og hefur aðeins einu sinni þurft að eltast við boltann í 90 mínútur, hina tvo leikina hafa þeir fengið gefna. Fyrst mætti liðið Dímon til leiks, en í gærdag mætti Reynir frá Sandgerði ekki til leiks, er liðin áttu að mætast á Melavelli. Sandgerðingar höfðu safnazt sam an við samkomuhús sitt í eftirmið- daginn f gær en aðeins 7 úr kapplið inu mættu og þvf gagnslaust að mæta til keppni. Þeir sfmuðu þvf til fulltrúa KSÍ, Jóns Magnússonar og tjáðu honum sínar raunir og jafnframt að þeir mundu að öllum líkindum ekki verða með í þeim leikjum sem þeir eiga eftir að leika í deildinni, en aðeins er eftir að taka á móti bréfi þessu að lútandi frá Reynismönnum. markið en hitti ekki. Sama skeði stuttu síðar við mark KR, er Högni skaut, en hitti ekki. Keflvíkingar sóttu stfft framan af og áttu lag- legar sóknarlotur, sem runnu út f sandinn, er komið var að vítateig, og var því sjaldan mikil hætta á ferðum við mark KR. Þeir áttu mörg skot, sem flest fóru himin- hátt yfir eða framhjá. Sóknarlotur KR voru færri en þvf hættulegri, og skapaðist oft mikil hætta við mark ÍBK. Og hafði Kjartan mark- vörður nóg að starfa. Hann hirti t .d. knöttinn af tánum á Gunnari Felixsyni er hann var svo til kominn inn í markið. Stuttu sfðar varði hann skot frá Gunnari, af 2 metra færi, og enn varði Kjartan laglega skallabolta frá Sigþóri af stuttu færi. Á 30. mín. var dæmt frfspark á ÍBK, rétt fyrir utan vítateig. Gunnar Guðmannsson spyrnti há- um bolta yfir Kjartan, sem EHert Schram átti auðvelt með að skalla í netið. 10 mín. sfðar kom seinna mark KR og var það sannkölluð vasaútgáfa af því fyrra. Fríspark var dæmt á Kjartan markvörð fyrir að fara út fyrir vítateig með knött- inh. og tók Ellert sþýrnuna, sehl enn var yfir Kjartan, og Sveínn Jónsson skallaði f netið. Keflvík- ingar áttu mun meir í fyrri hálf- leik, sérstaklega framan af, en KR réði leiknum seinni hluta hálfleiks- ins. í seinni hálfleik réðu Keflvík- ingar öllu um gang leiksins og sóttu stfft, en fyrir klaufaskap tókst þeim ekki að skora. KR-ing- ar drógu framverðina aftur og áttu þvf iBK alla miðjuna, og gátu byggt upp spilið að vild, sem oft var laglegt. KR átti góð tækifæri í þessum hálfleik, sem og þeim fyrri. T. d. bjargaði vinstri bakvörðurinn naumlega f horn, er boltinn var að rúlla í mannlaust markið og Eliert Schram átti stuttu seinna hörku skot af markteig, f þverslá, einnig var opið tækifæri hjá KR, er Ellert skallaði á markið, en KR-ingar vörðu sjálfir. Garðar Árnason bjargaði á lfnu hjá KR föstu skoti frá ÍBK, sem kom fré markteig, en það var eitt það næsta er ÍBK komst að marki, vítateigslínan var erfið að komast yfir, en þar var oftast hin mesta þvaga. Er 15 min. voru til leiksloka misstu Keflvík- ingar einn mann út af um stund, en á þeim tíma tókst þeim að setja sitt eina mark leiksins. Hinn eld- fljóti útherji ÍBK, Jón Ó. Jónsson, er lék með ísafirði f fyrra, brun- aði upp kantinn og skaut föstu skoti af stuttu færi undir Heimi. Á sfðustu mínútu leiksins áttu KR-ingar gott tækifæri er Gunnar Felixson vippaði boltanum yfir markvörðinn, en hitti ekki mann- laust markið. Keflvíkingar áttu, sem fyrr segir mun meir í leiknum, en sköpuðu engar verulegar hættur, þeir léku oft Iaglega, voru fljótari á boltann, og höfðu flest návígi við KR-inga. Bezti maðu liðsins var Sigurvin miðvörður sem þegar er farinn að leika í landsliðsklassa, og fer hon- um fram f hverjum Ieik. Kjartan markvörður var góður, þó bæði mörkin megi skrifa á hann. í fram- línunni eru þeir Hólmbert, Karl og Einar ágætir, en ekki nógu ákveðn ir við markið. KR-ingar hafa oft sýnt betri leik en þennan, en voru óheppnir upp við markið. Heimir markvörð- ur var bezti maður liðsins ásamt hinum efnilega bakverði, Ársæli, en aðrir leikmenn léku fyrir neðan getu. ---rire-vy^rJv-r; Dómari í leiknum var Hannés Þ. Sigurðsson og dæmi sæmilega, en enginn er öfundsveður af því að dæma fyrir eins stóran hóp af ókurteisum áhorfendum, og voru í Keflavík. — klp — Leiðrétting 1 frásögn í Vísi 24. júnf sl. um kappleik sem fram fór milli Hafn- arfjarðar og Siglufjarðar á Siglu- firði 23. júní hafa orðið endaskipti á marktölu úr fyrri hálfleik. Hið rétta var, að á Siglfirðinga hallaði í lok þessa hálfleiks með 2 mörk- um gegn 1. En f síðari hálfleik tókst þeim að jafna metin, þannig að leiknum lauk með 2 mörkum gegn 2. Einnig var missagt, að Hafnfirðingar eigi markmanni ein- göngu að þakka hve giftusamlega tókst til fyrir þá, liðin voru mjög svipuð að styrkleika. En sérstaka athygli vakti hve góður markvörð- ur Hafnfirðinga var. (Frá Siglufirði). Síldarvinna í sumarleyfinu Óskarssíld h.f. Siglufirði vantar enn nokkrar síldarstúlkur. Ráðum einnig nokkrar í sumar- leyfi í 3—4 vikur. Ókeypis ferðir. Kauptrygg- ing. Gott húsnæði. Uppl. í skrifstofu Einars Sigurðssonar Ingólfsstræti 4. Símar 16767 og 10309 eftir kl. 6 sími 35993 og í síma 46 Siglu firði. Síldarstúlkur Takið eftir. — Söltun leyfð. Getum ennþá bætt við stúlkum til Siglufjarðar og Raufar- hafnar. Uppl. í síma 34580. Gunnar Halldórsson h.f. FleiritilMývatus- sveitar en í fyrra Siglufjörður á möguleika á árslitaleik / 2. deild Siglfirðingar halda enn áfram sigurgöngu sinmi l 2. deild og f gær unnu þeir ísfirðinga í seinni Ieik liðanna, sem fór fram f glamp- andi veðri á Siglufirði. Að þessu sinni var markatalan 3:2 og máttu bæði liðin vel við una. Siglfirðingar koma mjög á óvart með kunnáttu sinni og getu í knatt- spyrnu og er greinilegt að Þrótt- arar mega leggja sig fram eigi þeir ekki að tapa stigum fyrir þeim. — en frekari stigamissir þeirra þýðir að öllum Iíkindum að stoppmerki verður sett á sigur þeirra í sfnum riðli 2. deiidar og þar með sigur i 2. deild. Sigþór Erlendsson skoraði fyrsta markið snemma f fyrri hálfleik og var það eina mark háifleiksins. Kristmann Kristmannsson jafnaði f setnni hálfleik. Gunnar Sigurjóns son skoraði 2:1 fyrir tsafjörð. Sjálfsmark kom stuttu síðar frá Isfirðingum, boltinn hrökk af varnarmanni í netið. Sigurmark Siglfirðinga skoraði svo Sigþór er 14 mín. voru til leiksloka og tryggði hann þar með liði sínu forustusætið í B-riðlinum. Mikill fjöldi ferðamanna streymir nú til Mývatnssveitar og er útlit fyrir að hann ætli að verða meiri á þessu sumri cn nokkru sinni fyrr. /. Blaðið hafði f morgun tal af Arn- þóri Björnssyni á hótelinu í Reyni- Akrones: Fram — Framhald af bls. 5. leik), innfyrir en hitti ekki, f opnu færi. t hálfleik var því staðan 0:0 eftir þyngri sókn Vals. Á 7. mfn. síðari hálfleiks kom fyrsta mark leiksins og var Skúli Ágústsson þar að verki, er hann af greiddi boltann laglega í netið eftir fyrirgjöf frá Hauki Jakobs- syni er nú lék vinstri útherja. Valsmenn jöfnuðu á 30. mín. eftir slæm mistök hjá Jóni Stefáns- syni, er hann hleypti Bergsveini inn fyrir sig, en hann renndi bolt- anum örugglega í netið. Færðist nú mikið fjör f leikinn, með þyngri sókn Akureyringa, og lyktaði einni þeirra með sigurmarki tBA, er Kári Árnason skallaði laglega f markið fram hjá Björvin, sem hefði getað bjargað, hefði hann hlaupið á móti knettinum. Síðustu mín. leiksins voru Vals að einu og öllu, þó ekki tækist þeim að jafna. Liðs Vals var vel leikandi með útherjana Hermann og Bergstein sem beztu menn. I liði ÍBA voru þeir beztir Guðni, Kári og Einar markvörður. Dómari var Carl Bergmann og notaði flautuna samt um of, til að halda leiknum niðri. Blaðið átti tal við tvo leikmenn og dómarann eftir leikinn og fór- ust þeim þessi orð um leikinn: Carl Bergmann: Þetta var léttur leikur að dæma, sanngjörn úrslit. Kári Árnason var bezti maðurinn á vellinum. Jón Stefánsson, ÍBA: Mjög skemmtilegur leikur, og Sanngjörn úrslit. Ormar Skeggjason, Val: Við vor- um óheppnir að ná ekki jafntefli eftir tækifærunum. hlfð og sagði hann að aldrei hefði verið eins mikið um gesti á hótel- inu í júnfmánuði og nú. — Hefði hótelið alveg verið fullskipað eftir miðjan mánuðinn. Hafa gestirnir mikið verið erlendir náttúruskoð- arar. Úr þessu fara svo hinir venju- legu ferðamenn (touristar) að streyma að og sagði Amþór að f júlf og ágúst væru bókaðir hátt f tvö þúsund .gestir og hefði orðið að neita fjölmörgum um gistingu. Er þetta miklu meira en var f fyrra og er hér nær eingöngu um útlend- inga að ræða. Arnþór sagði að algengast væri að gestimir dveldust í Mývatns- sveitinni 2—3 daga og upp í viku, en dvalartími gæti líka orðið allt að þrir mánuðir. 3000 fermetra bygging á Húsavík Kaupfélag Þingeyinga hefur í smíð- um slátur- og frystihús sunnan við kaupstaðinn á Húsavik. öll bygg- ingin er 25 þúsund rúmmetrar — grunnflötur er 3000 fermetrar. Gert er ráð fyrir að hægt verði að slátra 2000 fjár á dag í nýja sláturhúsinu þarna. Byrjað er að reisa vélarsal, frystivélaklefa og frystigeymslur og standa vonir til þess að unnt verði að taka hluta af þessari miklu byggingu í notkun f haust. Ingi R. Framhaid si bis. I. Jóhannsson (íslandi). Mótið stendur til loka júlf. Til þess að hljóta hinn alþjóð lega meistaratitil þarf Ingi að fá 81A—9 vinninga út úr mótinu. Sú hlutfallstala vinninga er innan við 50% og ætti því ekki að verða mjög erfitt fyrir Inga að ná þeim vinningafjölda einkum er tekið er tillit til góðr- ar frammistöðu hans á innlend- um skákmótum s.l. vetur.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.