Vísir - 01.07.1963, Page 8
8
V1SIR . Mánudagur 1. júlf 1963.
VÍSIR
Útgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR. ' w
Ritstjórí: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjórí: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði.
1 lausasölu 4 kr. eint. — Simi 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Bjarmi nýrrar aldar
Ennþá hefir Alþýðusamband íslands ekki svarað
formlega þeirri tillögu ríkisstjómarinnar að Iátin verði
fara fram ítarleg rannsókn á greiðslugetu atvinnufélag-
anna í sambandi við kauphækkanir verklýðsfélaganna.
En á laugardaginn lýsti forseti A. S. í. því yfir hér í
blaðinu að miðstjómin hefði tekið jákvæða afstöðu í
málinu. Verður að líta svo á, að samþykki verklýðs-
hreyfingarinnar liggi því fyrir. Er hin mesta nauðsyn,
að formlegt samþykki berist sem fyrst svo unnt sé
að hefja rannsókn þessa, en Vinnuveitendasamböndin
hafa þegar lýst sig samþykka slíkri rannsókn.
Sú greiðslugetu og kjaramálarannsókn sem hér er
um að ræða er nýmæli hér á landi. Hún er það vegna
þess að ætlazt er til að væntanlegar kauphækkanir
verði ákveðnar í samræmi við niðurstöðu hennar, í
stað þess að nefnd sé tala af handahófi, eins og oft
áður hefir átt sér stað, - tala sem iðulega hefir legið
langt fyrir ofan greiðsluþol atvinnuveganna. Afleiðing
in hefir þá orðið sú að hækkuninni hefir verið hleypt
inn í verðlagið. Dýrtíðin hefir vaxið og gengisfelling
fylgt í kjölfarið nokkra seinna.
Þessi kjararannsókn er einnig nýmæli að því leyti
að nú samþykkja báðir aðilar að virða niðurstöðumar
og láta þær móta framtíðarkjarastefnu sína. Áður hef-
ir það iðulega borið við að verklýðssamtökin og mál-
gögn þeirra hafa haldi því fram að þær niðurstöður
sem ríkisstjómin hefir lagt á borðið væra rangar og
beinlínis falsaðar verklýðsstéttunum í óhag. Fyrir slíkt
á nú að vera skotið loku. Tryggt á að vera að rann-
sóknin verði algjörlega hlutlaus, enda framkvæmd af
fulltrúum og hagfræðingum verklýðssamtakanna, ekki
síður en vinnuveitenda. Því er von til þess að nú finn-
ist loks sameiginlegur óvéfengjanlegur grandvöllur,
sem frekari launahækkanir verða byggðar á. Ef í ljós
kemur að vaxandi þjóðarframleiðsla, hagræðing í at-
vinnuvegunum, kostir ákvæðisvinnu og verðlag á er-
lendum mörkuðum leyfir frekari launahækkanir en
þau TÆ%, sem þegar hafa fengizt, er sjálfsagt og eðli-
legt að laun verði enn nækkuð. Ef hins vegar kemur
í ljós að ekki er grundvöllur fyrir meiri hækkunum
þá verður að ætla að verklýðs og launþegasamtökin
sýni þá ábyrgðartilfinningu að bíða með frekari launa-
kröfur unz efnahagur þjóðarinnar leyfir þær.
Auðvitað væri það æskilegast að laun iðnaðar-
manna og annarra starfsstétta gætu þegar í stað hækk-
að um 15-20% eins og nú er í bígerð að knýja fram.
En ef í ljós kemur að þjóðarbúskapurinn þolir ekki
slíkar hækkanir þá er iðnaðarmönnum enginn fram-
tíðarhagur í þeim.
Þess vegna er það mikið fagnaðarefni að verk-
lýðssamtökin hafa tekið jákvæða afstöðu til kjara- og
greiðslugeturannsóknarinnar. Hún getur, ef vel tekst,
boðað nýja öld í íslenzkum launamálum.
hai
★
Bandarísku tillögumar um
kjamorkuflota Norður-Atlants-
hafs bandalagsins eru stöðugt
mjög á dagskrá og umdeildar.
1 vikunni sem leið, er Kenne-
dy forseti var að ljúka Irlands-
heimsókn sinni, en hann flaug
að henni lokinni til London í
fyrradag, til viðræðna við Mac-
millan, var mikið um það rætt,
að eitt þeirra mála, er þeir
myndu ræða væri tillögumar
um kjamorkuflota Norður-
Atlantshafsbandaiagsins, þótt
af opinberri hálfu væri látið
mest f það skfna, að viðræð-
umar myndu aðallega snúast
um fund þann í Moskvu, sem
haldinn verður til þess að
reyna að koma skrið á sam-
komulagsumleitanir um bann
við tilraunum með kjarnorku-
vopn. En þvf var ekki neitað,
að þeir myndu einnig ræða
kjarnorkuflotann, en tillögurn-
ar um hann em frá Bandaríkja-
mönnum komnar, og fá engan
byr hjá brezkum sérfræðingum,
en samkvæmt tillögunum verða
ofansjávarherskip f þessum
flota, mönnuð blönduðum á-
höfnum frá þátttökuríkjunum.
skuldbundið sig til aðildar að
kjamorkufiota slfkum sem þeim,
er um er rætt.
★
Fyrr f vikunni var sagt í
Washington, að þar gerðu menn
sér nú ljóst, að málið væri ekki
enn komið á það stig, að hægt
væri að hefja formlegar samn-
ingaumleitanir. Nú er að sjálf-
sögðu beðið vitneskju um hvort
eitthvað hafi gerzt í þessu máli
á viðræðufundum Macmillans
og Kennedys. Meðal annars er
spurt hversu fast Bandaríkja-
menn muni fylgja fram tillög-
um sínum þrátt fyrir andúð
brezkra sérfræðinga?
★
Einn af ræðumönnunum í
lávarðadeildinni, er málið var
rætt þar í fyrri viku, Henderson
lávarður, ræddi afstöðu Vestur-
Þýzkalands. Hann sagði að ef
til vill stefndi það ekki að þvf
að verða kjarnorku-stórveldi, en
tillögurnar um kjamorkuflotann
með blönduðum áhöfnum hefði
upphaflega komið fram til þess
að fullnægja óskum Vestur-
Þjóðverja, að verða „meðlimir i
kjamorkuklúbbnum", eins og
hann kvað að orði.
★
Þótt segja megi, þegar kjarn-
Macmillan
hann við tilraunum þeirra með
kjarnorkuvopn á næsta ári, og
svo gæti farið, að fyrir lok
þessa áratugs yrðu kjarnorku-
veldin orðin fimm — sameinuð
Vestur-Evrópa hið fimmta.
★
Jafnvel þótt samkomulag
Tillögurnar um kjurmku-
fíotu NATO sætu undbyr
Eins og í upphafi segir fá
þessar tillögur ekki byr á Bret-
landi, og ýmsir helztu sérfræð-
ingar þeirra hafa vegið þær og
fundið þær Iéttvægar. Þær voru
til umræðu í lávarðadeildinni í
vikunni. Þar talaði Montgo-
mery lávarður, sem áður hafði
farið um þær hinum háðuleg-
ustu orðum, og bætti þar nú
ýmsu 'við, svo sem, að f stað
þess að berjast við fjandmenn-
ina utan herskipanna myndu
þeir berjast innbyrðis f herskip-
unum, og hló þá allur þing-
heimur. Hann sagði líka, að
þetta væri mesta hernaðarleg
vitieysa, sem nokkru sinni hefir
komið fram o. s. frv. Nú er
Monty vanur að taka upp f sig,
en enginn ber honum á brýn,
að hann hafi ekki vit á hermál-
um, en flotasérfræðingur er
hann að vfsu ekki.
★
En það var ekki Montgomery
einn, sem fordæmdi tillögurnar,
það gerðu lfka menn eins og
jarlinn af Avon (fyrr Sir
Anthony Eden), Mountbatten
lávarður, og Home lávarður
kom sér hjá að segja neitt á-
kveðið, var greinilega ófús að
ræða tillögurnar um kjarnorku-
flota, og sneri sér að því að
ræða fyrirhugaða ráðstefnu f
Moskvu, en hana situr fyrir
Bretlands hönd Hailsham lá-
varður, „sessunatur minn“,
sagði Home lávarður, „sem nú
ætlar til Moskvu til þess að
sannfæra Rússa um, að nú sé
tíminn til þess að fallast á
bann við tilraunum með kjarn-
orkuvopn. Áður hafði hann
sagt, að málið væri ekki enn
komið á það stig, að það hafði
verið rætt í fastaráði Norður-
Atlantshafsbandalagsins. Og
það hefir verið lýst yfir af hálfu
stjómarinnar, að hún hafi ekki
orkuflotann ber á góma, að hér
sé um fyrirkomulagsatriði á
kjarnorkuvömum bandalagsins
að ræða, þá er málið að sjálf-
sögðu tengt afvopnunarmálun-
um f heild, banni við tilraunum
með kjarnorkuvopn s. r. frv.
Kennedy forseti hefir lýst
Kcnnedy
yfir ,að hann telji mikilvægt, að
samkomulag um slíkt bann
(með fullnægjandi eftirliti) ná-
ist á þessu ári, en mjög er það
dregið f efa, m. a. af U Thant
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, að slíkt samkomulag
náist. Hann ræddi vi& frétta-
menn á laugardaginn og taldi
stórveldin hafa „misst af stræt-
isvagninum", og ekki líklegt, að
þau gætu fengið Kína til þess
að hætta við áform um að
verða kjarnorkuveldi. Býst
næðist um bann, væri það
gagnslaust, nema stórveldin
þrjú gætu fengið Kína og Frakk
land til þess að hætta við áform
í þessum efnum. Afstaða De
Gaulle varðandi Frakkland sem
kjamorkuveldi, en jafnvel þótt
sú breyting yrði, að þeir draum-
ar hans rættust ekki, og vestur-
evrópskt kjamorkuveldi kæmi
til sögunnar, — hverjir ættu að
knýja Kfna til þess að hætta
við sfn áform. Það horfir að
minnsta kosti ekki vænlega um
einingu um hugsjónir ög stefnu
kommúnista, þótt halda eigi
sovézk-kínverska ráðstefnu um
það mál eftir tæpa viku. — En
f þann mund, er hún er skammt
undan, kallar Krúsév alla helztu
kommúnistaleiðtoga á sinn fund
f Austur-Berlín til þess að
treysta sig f sessi sem höfuð-
Ieiðtoga kommúnista á alþjóða-
vettvangi, og lætur birta ræðu,
sem hann flutti nýlega með
haðri gagnrýni á hina kommún-
istisku bræður f austri.
★
Þær fréttir bárust f gær af
viðræðufundi þeirra Kennedys
og Macmillans, að þeir hefðu
náð samkomulagi um afstöðu
Breta og Bandaríkjamanna á
fundinum sem hefst f Moskvu
15. júlf um bann við tilraunum
með kjamorkuvopn, og önnur
vandamál, sem um var rætt, —
nema eitt, og var það lagt á hill
una f bili. Það var kjamorkuflot
inn, sem um er rætt f þessari
grein, sem var tekin saman
fyrir helgi, að undanskildum
þessum niðurlagsorðum. —
Stjómmálafréttaritarar segja
að Kennedy hafi ekki tekizt að
breyta afstöðu brezku stjórn-
arinnar er vilji ekki taka endan
lega ákvörðun, þar sem sérfræð
ingar hafi gert ýmsar athuga-
semdir við tillögumar.