Vísir - 13.07.1963, Page 5

Vísir - 13.07.1963, Page 5
Ví SIR ggE3£SlCT»WBM3B Laugardagur 13. iúlí 1963. Frh. af bls. 7: voru til leiksloka og skora sigur- markið er aðeins nokkrar mínútur voru til leiksloka. Víkingur hlaut því 10 stig úr þessum flokki. Fram B hlaut 8 stig, Fram C 5 stig, Valur 4, KR 2 og Víkingur C 1 stig. Úrslit í 5. flokki hafa þegar birst hér á síðunni en þar varð KR Reykjavíkurmeistari í öllum flokkum, en þetta er í fyrsta skipti í mörg ár að KR hefur átt eins efihlegan 5. flokk. 1 5. flokki A gerðu þeir eitt jafntefli við Vlking og hlutu 7 stig, og fengu ekkert mark á sig. Vík- ingur var með 6 stig, Fram 4, Valur 3 og Þróttur með sitt lið af nýja svæðinu í Njörvasundi, hlaut ekkert stig. Þar eiga Þróttarar mikinn efnivið sem beir þurfa að stunda vel og vandlega en ekki að trassa þjálfun eins og hingað til hefur viljað bregða við. I 5. fl. B sigraði KR alla mót- herjana og fengu ekkert mark á sig, þar hlutu beir 6 stig, Fram 3, Valur 2 og Víkingur 1 stig. 1 5. fl. C hlaut KR einnig 6 stig og sigruðu alla sína andstæð- inga, en fengu 1 mark á sig þar, en það var eina markið er KR fékk á sig í þessum flokki. Valur og Fram hlutu bæði 3 stig, en Víkingur ekkert. Eftir Revk'avíkurmótin skintust stigin bannig á milli félaganna: Fram 68 stig, Valur 55 stig, KR 54 stig, Víkingur 27 og Þróttur 8 stig. seint í mánuðinum. Æfingin var geysierfið; tvöfalt stökk aftur á bak með snúningi, kallaði á máli fagmanna „flifis“. Eitthvað fór öðru visi en ráðgert var og hann missti stjórn á sér í loftinu, féll fimm metra með höfuðið undan sér og datt niður á fjaðurgrindina, en var gjörsamlega hreyfingarlaus. Ekið var með Iiann í skyndi til næsta sjúkrahúss og þar komust menn að þeirri niðurstöðu að hann væri hálsbrotinn, en við þetta Iamaðist hann frá hálsi og niður úr. „Þetta eru mikil viðbrigði“, seg- ir Sternberg, „ég vona að ég geti tekið því sem að höndum ber“. Framhald at bls. 7 einmitt að æfa fyrir keppni USA og Sovét sem fram fer í Moskvu r irsEitniftrark Þessi mynd er frá Siglufirði og gefur í senn mynd af þrótt- rniklu íþróttastarfi, síldveiði og er að auki greinilega af mark- skorun, í þessu tilfelli réði mark ið úrslitum. Það var á 30. mín síðari hálf leiks að Ásgeir Gunnarsson skor aði mark fyrir Siglfirðinga 3:2. Markvörður ísfirðinga, Kristján Guðmundsson reyndi árangurs- laust að verja. Framnalö -t bls l. Nú hefur uppfinningamaður- inn komið að máli við Vísi, en hann er nú búsettur hér í bæ. Dvaldist hann um fimm ára skeið vestra og vann þar í flug- vélaverksmiðju. Kom hann með meðfylgjandi mynd af módeli af flugbflnum — og sýnir myndin hvernig flug bíllinn lítur út, þegar hann er í keyrslu. Gert hefur verið hér tiiraunamódel, sem getur lyft 760 kg. þunga beint upp. Einar hafði þá athugasemd að gera við frásögn tímaritsins, að því er varðar flugvélaskrúfurn- ar, að þær væru alltaf í bílnum, en þannig frá beim gengið, að þær falla inn í bílinn þegar hann er ekki í notkun. Einar er fæddur í Vestmanna evium. en kom barn að aldri til Revkiavíkur og ólst hér upp og hefur dvalizt hér að undantekn- um beim tíma, er hann dvaldist vestra. Einar er starfsmaður Hita- veitu Reykjavíkur. Viðskiptasamningur við Pólverja Á hádegi í gær undirrituðu Guðmundur í. Guðmundsson utanríkisráðherra (t. v.) og Michal Kajzer, forstjóri í utan- ríkisverzlunarráðuneyti Pólverja viðskiptasamning um 20% við- skiptaaukningu frá síðasta samningstímabili. í samninga- nefndinni af íslands hálfu voru dr. Oddur Guðjónsson, við- skiptaráðunautur, Pétur Péturs- son, forstjóri, Vngvi Ólafsson, deildarstjóri, Björn Tryggvason, skrifstofustjóri, Gunnar Flóvenz forstjóri og Úlfur Siginundsson, fulltrúi. Frétt um samkomulag- ið birtist í Vísi í gær. (Ljósm. Vísis I. M.) Sk I Fpi '.lf’Hi rúmað 400 manns í sæti, og verða tekin frá sætin fyrir gest- ina alla við vígsluathöfnina, en síðar um daginn, eða kl. 3, verður almenn guðsþjónusta í kirkjunni, og þá verða engin sæti frá tekin. Þar þjónar séra Bjarni Jónsson fyrir altari, en sóknarpresturinn, Guðmundur ÓIi Ólafsson, prédikar. Hádegis verður verður framreiddur fyrir gesti kirkjumálastjórnarinnar í félagsheimilinu Aratungu þenn-! an dag. Síðar um daginn mun biskupinn yfir íslandi stinga fyrstu skóflustunguna að fyrsta áfanga kirkjulegrar skólastofn- unar í Skálholti, lýðskóla á veg- um kirkjunnar og lét biskupinn orð falla um það í blaðaviðtali í gær, að við það tækifæri yrði tíðinda von, sem ekkert yrði látið upnskátt um fyrr en þar að kæmi. Allar framkvæmdir, sem unn ið hefur verið að í Skálholti fram á þennan dag, kosta ríkis- sjóð 13.1 milljón króna, að þvi er eftirlitsmaður ríkisins með þessum framkvæmdum, Magnús Már Lárusson, prófessor, skýrði frá í viðtalinu, þar af er bygg- ingarkostnaður kirkjunnar sex og hálf milljón. Þess er og að geta, að gjafir til kirkjunnar munu nema um 2 milljónum króna. Mestar og beztar gjafir hafa borizt frá einstaklingum á hinum Norðurlöndunum, einkan lega þó í Danmörku. Eins og kunnugt er, hefur Hörður Bjarnason, húsameistari ríkisins, teiknað hina nýju Skál holtskirkju, en undirbúnings- nefnd vígsluhátíðarinnar skipa: dr. Þórir Kr. Þórðarson formað- ur, sóknarpresturinn og Guð- mundur Benediktsson stjórnar- ráðsfulltrúi, Nefndin hefur ráðið Gunnlaug Pálsson arkitekt fram kvæmdastjóra við eða umsjón- armann með skipulaginu í sambandi við hátíðahöldin. Bíla stæði verður í Skálholti fyrir 2000 bíla og veitingar framreidd ar á staðnum á vígsludaginn. IgEgisðséknsgrfæki Framhald af bls 16 og er því þess vegna kunnugur. Nokkur hluti rafkerfisins er smíð- aður hér, og var það Örn Garðars son verkfræðingur sem það gerði. Massa Spectometer, er orðinn nokkuð algengt og viðurkennt tæki til rannsókna á ógeislavirkum ísó- tópum, sagði prófessorinn að Iok- um og er okkur mikil búbót að honum. Alger eining um vestræna afstöðu ú Moskvufundinum Yfir 300 menn hafa verið hand- teknir í sókninni gegn Mafiunni — hinum alræmda leynifélagsskap á Sikiley. Ucciardonefangelsið er nú yfirfullt. Sókninni var hagað þannig í Palermo, að alvopnaðir lögreglu- hermenn í brynvörðum bifreiðam króuðu af viss hverfi í bænum cg einnig voru þorp í grenndinni um kringd og leitað að Mafia-mönnum. Það var ákveðið að láta til skar ar skriða gegn Mafiunni eftir að vítisvél sprakk í Palermo 30. júní s. 1., en af völdum hennar biðu 7 menn bana og einnig tveir lög- reglumenn. Markmiðið með sókninni er að brjóta á bak aftur fyrir fullt og allt þennan aldagamla hryðjuverka félagsskap. Lögreglan virðist rniða að því, að þeim mun fleiri sem hún handtekur, því meiri Iíkur verði til að hún nái hættulegustu mönnum leynifélagsskaparins. Sagt er að það sé nú í fyrsta sinn, sem lögreglan herji á Mafi- una án nokkurrar stjórnmálalegr- ar tillitssemi. Sem dæmi þar um er, að bróðir borgarstjórans í Bor- getto, Salvatore Valenza, er meðal hinna handteknu. Milli kristilegra lýðræðissinna og kommúnista hafa ásakanirnar seng ið á víxl um hátttöku í félags- skapnum og vernd. Meðal annars gerðist það í kosningum fyrir 2 árum, að frambjóðandi dró sig í hlé, eftir að andstæðingur hans, sem er kommúnisti, sakaði hann um að vera forsprakka Mafia-bófa- flokks, en þá voru éinnig þær sak- ir bornar á kommúnista, að þeir nytu stuðnings annarrar greinar Mafiunnar. Ásbprn ÍSnfssoii sfofnnr minsi- iniarsjoð Ásbjöm Ólafsson stórkaup- maður hefir í dag laugardaginn 13. júlí stofnað sjóö til minning ar um föður sinn Ólaf Ásbjarnar son frá Innri Njarðvík, en í dag eru 100 ár liðin frá fæðingu hans. Sjóðurinn er stofnaður með 250 þúsund króna framlagi og verður í vörzlu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Tekjum sjóðsins verður varið til stuðnings þeim málum, sem félagið berst fyrir. Nánari ákvæði um ávöxtun f járins og úthlutun úr sjóðnum 1 setur stofnandi síðar með skipu ^lagsskrá.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.