Vísir - 13.07.1963, Side 16
VÍSIR
MERKILíGT RANNSÓKNARTÆK!
Laugardagur 13. júlí 1963.
Fundur
bluðumunnu
Fundur verður haldinn i
Blaðamannafélagi Islands um
iaunamálin í Nausti, uppi, kl. 3
á mánudag. -— Áríðandi að allir
félagsmenn mæti.
fPresfskosning á
Húsavík
Prestskosningar fóru fram f Húsa
vikurprestakaili sl. sunnudag og
roru atkvæði talin í skrifstofu bisk
ips í gær. Á kjörskrá voru 976,
xar af kusu 381.
Umsækjendur voru tveir sr.
3iörn H. Jónsson, sem hlaut 245
itkvæði og Hreinn Hjartarson,
cand. theol, sem hlaut 134 atkvæði.
Auðir seðlar voru tveir. Kosning
var ólögmæt.
1 hinum nýju húsakynnum Eðlis-
fræðistofnunar Háskólans, hefir ný
lega verið lokið við að setja upp
nýtt tæki er nefnist „Massa Spec-
tometer". Teekið er notað til þess
að mæla hlutföll Isótópa. Og auk
þess rannsaka þungavatnsinnihald
venjulegs vatns.
Vísir hafði 1 gær tal af Þorbirni
Sigurgeirssyni prófessor og leitaði
helztu upplýsinga í sambandi við
tækið.
Massa Spectometerinn er gjöf frá
Alþjóða Kjamorkumálastofnuninni,
og var gefinn 1960, en ýmislegt hef
ur orðið til þess að tefja uppsetn-
ingu hans og það er fyrst nú, að far
ið verður að taka hann f notkun.
Eins og fyrr segir, er uppsetningu
lokið, en eftir er að stilla ýmis
mælitæki, og má gera ráð fyrir að
það taki nokkrar vikur. Það er
bandarískur maður, dr. Friedman,
sem hefur séð um uppsetningu tæk
isins hér. Dr. Friedman, sem unnið
hefur á vegum Vélfræðistofnuar
Bandaríkjanna lét smíða samskonar
tæki fyrir rannsóknarstofu sína,
Framh. á bls. 5.
Á myndinni eru prófessor Þorbjöm, Öm Garðarsson og dr. Friedman.
Horræna
Norræna sundkeppin stendur
yfir.
Ef 42 þúsund íslendingar synda
200 metrana að þessu sinni, jafn-
gildir það boðsundi 5j4 sinnum
kringum íslands.
Verið með í boðsundinu og
stuðlið að sigri íslands.
Framkvæmdanefndin.
AVR lokaö
á Siglufirði
Siglufirði í gær.
Gránað hefur f fjöll umhverfis
Siglufjörð og í kaupstaðnum sjálf-
um var aðeins 3ja stiga hiti f dag.
Lengst af hefur verið þoka og
súld í dag.
Til hafsins er hvassviðri og
fjöldi skipa hefur komið inn f nótt
og dag og leitað vars á Siglufirði.
Megnið af þeim eru íslenzk síld-
veiðiskip.
Þegar séð varð að landlega
myndir verða á Sigluf. og fjöldi sjó
manna í landi var gripið til þeirra
ráðstafana að loka áfengisverzlun-
inni á staðnum.
Þjóðhátíðar-
dagur Frakka
í tilefni af þjóðhátfðardegi
Frakka hinn 14. júlf mun sendi-
herra Frakklands á Islandi, hr. Jean
Strauss og frú, taka á móti gest
um að heimili sínu Skálholtsstíg 6,
sunnudaginn 14. júlf kl. 17,30—19.
Allir vinir Frakklands hjartanlega
velkomnir.
■® Bygging landshafnar f Keflavík
og Narðvfk var boðin út snemma
í vor, bæði hérlendis og erlendis.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist á næstunni og verði unnið
fyrir 5—7 milljónir króna f sumar
og á að ljúka öllu verkinu á þremur
árum.
Gólfmót íslands byrjaði á Akur-
eyri í gp.-r og voru leiknar 18 holur.
Eftir þessa umferð er Magnús
Guðmundsson, Ak, efstur í meist-
araflokki eftir að hafa leikið um-
ferðirnar í 74 höggum. Nr. 2 Óttar
Yngvason, R. 77. nr. 3 Hermann
Ingimarsson, 78, nr. 4 Pétur Björns
son, R, 83, nr. 5—6 Jóhann Eyjólfs
son R, og Arnkell Guðmundsson, R
84, nr. 7—9 Gunnar Konráðsson,
Gunnar Sólnes og Gestur Magnús- |
son 85 og nr. 10 Ragnar Steinbergs !
son Ak. 87.
Bólusótt er nú að skjóta
upp kollinum f Svíþjóð á ný,
bæði í Stokkhólmi og Arboga.
Tilboðin f þetta mikla mannvirki
voru nýlega opnuð og höfðu að-
eins borizt tvö tilboð, en auk þess
borizt margar fyrirspurnir erlendis
frá, einkum frá Hollandi. Það þyk-
ir tíðindum sæta að um helmings-
munur er á tilboðunum tveimur.
Efrafall, sem annast nú hafnargerð-
Efstir í 1. flokki eru Jóhann Guð
mundsson. Ak. og Svavar Haralds
son, Ak. 89 högg og í 2. fl. Gunnat
Berg Ak. 98 og Ragnar Jónsson
R. 99.
Þrfr efstu menn í meistaraflokki
eru taldir sigurstranglegastir.
ina í Þorlákshöfn, býðst til að taka
að sér verkið fyrir 38—46 milljónir
króna, en tilboð frá Byggingafé-
laginu Brú, sem mun vera f sam-
bandi við þýzkt fyrirtæki um þetta
j tilboð, hljóðar upp á 80—86 mill-
I jónir. Tölurnar eru ekki nákvæmar.
Fflutta látsnn
mann í land
Togarinn Loch Melford frá Huil
kom inn til Seyðisfjarðar með lát-
inn mann kl. 7,30 í gærkvöldi. Álit-
ið var að hann hefði látizt af
kransæðastíflu, en líkskoðun átti að
fara fram seint f gærkvöldi. Hinn
látni hét Edward Horsfield og var
46 ára gamall. Hann varð bráð-
kvaddur er togarinn var að veiðum
út af Seyðisfirði.
Htreifingarflugvélin
Itefur né§ að gera
Dreifingarvél Sandgræðslu ríkis-
ins hefur haft nóg að gera norður
í Þingeyjarsýslu í vor og sumar.
Hefur verið dreift áburði á hvert
sandgræðslusvæðið eftir annað.
Borin voru 18 tonn af áburði f sand
ana norður af Ásbyrgi, 9 tonn f
sandana norðan Víkingavatns í
Kelduhverfi, 18 tonn í Þeystar-
reykjaland, auk þess sem borið var
á sandana alllangt austan við Kópa
sker, alls 12 tonn. Eftir er að
bera á svæði í norðurhluta Aðal-
dals, út undir sjó og á Mývatns-
öræfum, samtals 18—20 tonn.
Byrjaður er uppblástur á Svína-
dalshálsi upp með Jökulsá að vest-
an og er það svæði talið þarfnast
skjótrar athugunar.
SALTSÍLDARAFUNN
110 ÞÚSUND TUNNUR
Mngnús Guðmundsson efsf-
ur á Golfméti íslnnds
Ásbjöm Ólafsson stórkaupmaður
í Reykjavík hefir afhent stjórn
Formaður Styrktarfélags lamaðra
250 þúsund krónur að gjöf til
minningar um föður sinn, Ólaf
Ásbjamarson frá Innri-Njarðvík,
en f dag eru liðin 100 ár frá fæð-
ingu hans. Af minningargjöf þess-
■i skal stofna sérstakan sjóð til
styrktar þeim málefnum, sem
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
beitir sér fyrir, og mun stofnandi
sjóðsins, Ásbjörn Ólafsson, síðar
setja sjóðnum skipulagsskrá og
reglur um úthlutun úr honum.
Formaður Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra er Svavar Pálsson.
Á miðnætti síðastliðið fimmtu-
dagskvöld nam bræðslusíldarmagn-
ið á öllu landinu 164625 málum hjá
Ríkisverksmiðjunum og 20200 mál-
um hjá Rauðku á Siglufirði, en
saltsíldaraflinn á sama tíma nam
110607 tunnum.
Bræðslusíldaraflinn hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins skiptist milli
verksmiðjanna sem hér segir: Siglu
fjörður 31145 mál, Raufarhöfn
78050 mál, Seyðisfjörður 8325 mál,
Húsavfk 1541 mál og Reyðarfjörður
15564 mái. Rauðka á Sigiufirði
hafði á sama tíma fengið 12700 mál
síldar til bræðslu og 7500 mál af
úrgangi.
Síldarsöltunin skiptist niður á
söltunarstöðvar sem hér segir:
Siglufjörður 37950% tunna, Ólafs-
fjörður 5549, Dalvík 6061%, Hrís-
ey 1652, Hjalteyri 1471, Grímsey
705, Húsavík 4625, Raufarhöfn
368701/2, Þórshöfn 659, Bakkafjörð
ur 140, Vopnafjörður 1521, Seyðis
fjörður 4720, Neskaupstaður 7525
og Reyðarfjörður 1158 tunnur, eða
samtals 110607 tunnur.
Á Siglufirði hafa 23 söltunar-
stöðvar tekið á móti síld. Þær hafa I
saltað sem hér segir: Pólstjarnan
3647 tunnur, Hrímnir 1326, Gunnar
Halldórsson 215, Hinriksen
2795, Sigfús Baldvinsson 638%,
Jón Gíslason 2037, Hafliði 2038,
Haraldarstöð 3449, Kristinn Hall-
dórsson 1142, Ýmir 529, Óskarssíld
1505, íslenzkur fiskur 555, Isafold
2717%, Kaupfélag Siglfirðinga
2208%. Reykjanes 1115, Vesta 374,
Sunna 874, Njörður 1963, Nöf
4059%, Síldarsöltun ísfirðinga 1803
Ásgeirsstöð 1504, Þóroddur Guð-
mundsson 1399% og Steingrímur
Matthíasson 56 tunnur, eóa
I 37950% tunna samtals.