Vísir - 13.07.1963, Side 16

Vísir - 13.07.1963, Side 16
VÍSIR MERKILíGT RANNSÓKNARTÆK! Laugardagur 13. júlí 1963. Fundur bluðumunnu Fundur verður haldinn i Blaðamannafélagi Islands um iaunamálin í Nausti, uppi, kl. 3 á mánudag. -— Áríðandi að allir félagsmenn mæti. fPresfskosning á Húsavík Prestskosningar fóru fram f Húsa vikurprestakaili sl. sunnudag og roru atkvæði talin í skrifstofu bisk ips í gær. Á kjörskrá voru 976, xar af kusu 381. Umsækjendur voru tveir sr. 3iörn H. Jónsson, sem hlaut 245 itkvæði og Hreinn Hjartarson, cand. theol, sem hlaut 134 atkvæði. Auðir seðlar voru tveir. Kosning var ólögmæt. 1 hinum nýju húsakynnum Eðlis- fræðistofnunar Háskólans, hefir ný lega verið lokið við að setja upp nýtt tæki er nefnist „Massa Spec- tometer". Teekið er notað til þess að mæla hlutföll Isótópa. Og auk þess rannsaka þungavatnsinnihald venjulegs vatns. Vísir hafði 1 gær tal af Þorbirni Sigurgeirssyni prófessor og leitaði helztu upplýsinga í sambandi við tækið. Massa Spectometerinn er gjöf frá Alþjóða Kjamorkumálastofnuninni, og var gefinn 1960, en ýmislegt hef ur orðið til þess að tefja uppsetn- ingu hans og það er fyrst nú, að far ið verður að taka hann f notkun. Eins og fyrr segir, er uppsetningu lokið, en eftir er að stilla ýmis mælitæki, og má gera ráð fyrir að það taki nokkrar vikur. Það er bandarískur maður, dr. Friedman, sem hefur séð um uppsetningu tæk isins hér. Dr. Friedman, sem unnið hefur á vegum Vélfræðistofnuar Bandaríkjanna lét smíða samskonar tæki fyrir rannsóknarstofu sína, Framh. á bls. 5. Á myndinni eru prófessor Þorbjöm, Öm Garðarsson og dr. Friedman. Horræna Norræna sundkeppin stendur yfir. Ef 42 þúsund íslendingar synda 200 metrana að þessu sinni, jafn- gildir það boðsundi 5j4 sinnum kringum íslands. Verið með í boðsundinu og stuðlið að sigri íslands. Framkvæmdanefndin. AVR lokaö á Siglufirði Siglufirði í gær. Gránað hefur f fjöll umhverfis Siglufjörð og í kaupstaðnum sjálf- um var aðeins 3ja stiga hiti f dag. Lengst af hefur verið þoka og súld í dag. Til hafsins er hvassviðri og fjöldi skipa hefur komið inn f nótt og dag og leitað vars á Siglufirði. Megnið af þeim eru íslenzk síld- veiðiskip. Þegar séð varð að landlega myndir verða á Sigluf. og fjöldi sjó manna í landi var gripið til þeirra ráðstafana að loka áfengisverzlun- inni á staðnum. Þjóðhátíðar- dagur Frakka í tilefni af þjóðhátfðardegi Frakka hinn 14. júlf mun sendi- herra Frakklands á Islandi, hr. Jean Strauss og frú, taka á móti gest um að heimili sínu Skálholtsstíg 6, sunnudaginn 14. júlf kl. 17,30—19. Allir vinir Frakklands hjartanlega velkomnir. ■® Bygging landshafnar f Keflavík og Narðvfk var boðin út snemma í vor, bæði hérlendis og erlendis. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næstunni og verði unnið fyrir 5—7 milljónir króna f sumar og á að ljúka öllu verkinu á þremur árum. Gólfmót íslands byrjaði á Akur- eyri í gp.-r og voru leiknar 18 holur. Eftir þessa umferð er Magnús Guðmundsson, Ak, efstur í meist- araflokki eftir að hafa leikið um- ferðirnar í 74 höggum. Nr. 2 Óttar Yngvason, R. 77. nr. 3 Hermann Ingimarsson, 78, nr. 4 Pétur Björns son, R, 83, nr. 5—6 Jóhann Eyjólfs son R, og Arnkell Guðmundsson, R 84, nr. 7—9 Gunnar Konráðsson, Gunnar Sólnes og Gestur Magnús- | son 85 og nr. 10 Ragnar Steinbergs ! son Ak. 87. Bólusótt er nú að skjóta upp kollinum f Svíþjóð á ný, bæði í Stokkhólmi og Arboga. Tilboðin f þetta mikla mannvirki voru nýlega opnuð og höfðu að- eins borizt tvö tilboð, en auk þess borizt margar fyrirspurnir erlendis frá, einkum frá Hollandi. Það þyk- ir tíðindum sæta að um helmings- munur er á tilboðunum tveimur. Efrafall, sem annast nú hafnargerð- Efstir í 1. flokki eru Jóhann Guð mundsson. Ak. og Svavar Haralds son, Ak. 89 högg og í 2. fl. Gunnat Berg Ak. 98 og Ragnar Jónsson R. 99. Þrfr efstu menn í meistaraflokki eru taldir sigurstranglegastir. ina í Þorlákshöfn, býðst til að taka að sér verkið fyrir 38—46 milljónir króna, en tilboð frá Byggingafé- laginu Brú, sem mun vera f sam- bandi við þýzkt fyrirtæki um þetta j tilboð, hljóðar upp á 80—86 mill- I jónir. Tölurnar eru ekki nákvæmar. Fflutta látsnn mann í land Togarinn Loch Melford frá Huil kom inn til Seyðisfjarðar með lát- inn mann kl. 7,30 í gærkvöldi. Álit- ið var að hann hefði látizt af kransæðastíflu, en líkskoðun átti að fara fram seint f gærkvöldi. Hinn látni hét Edward Horsfield og var 46 ára gamall. Hann varð bráð- kvaddur er togarinn var að veiðum út af Seyðisfirði. Htreifingarflugvélin Itefur né§ að gera Dreifingarvél Sandgræðslu ríkis- ins hefur haft nóg að gera norður í Þingeyjarsýslu í vor og sumar. Hefur verið dreift áburði á hvert sandgræðslusvæðið eftir annað. Borin voru 18 tonn af áburði f sand ana norður af Ásbyrgi, 9 tonn f sandana norðan Víkingavatns í Kelduhverfi, 18 tonn í Þeystar- reykjaland, auk þess sem borið var á sandana alllangt austan við Kópa sker, alls 12 tonn. Eftir er að bera á svæði í norðurhluta Aðal- dals, út undir sjó og á Mývatns- öræfum, samtals 18—20 tonn. Byrjaður er uppblástur á Svína- dalshálsi upp með Jökulsá að vest- an og er það svæði talið þarfnast skjótrar athugunar. SALTSÍLDARAFUNN 110 ÞÚSUND TUNNUR Mngnús Guðmundsson efsf- ur á Golfméti íslnnds Ásbjöm Ólafsson stórkaupmaður í Reykjavík hefir afhent stjórn Formaður Styrktarfélags lamaðra 250 þúsund krónur að gjöf til minningar um föður sinn, Ólaf Ásbjamarson frá Innri-Njarðvík, en f dag eru liðin 100 ár frá fæð- ingu hans. Af minningargjöf þess- ■i skal stofna sérstakan sjóð til styrktar þeim málefnum, sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra beitir sér fyrir, og mun stofnandi sjóðsins, Ásbjörn Ólafsson, síðar setja sjóðnum skipulagsskrá og reglur um úthlutun úr honum. Formaður Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra er Svavar Pálsson. Á miðnætti síðastliðið fimmtu- dagskvöld nam bræðslusíldarmagn- ið á öllu landinu 164625 málum hjá Ríkisverksmiðjunum og 20200 mál- um hjá Rauðku á Siglufirði, en saltsíldaraflinn á sama tíma nam 110607 tunnum. Bræðslusíldaraflinn hjá Síldar- verksmiðjum ríkisins skiptist milli verksmiðjanna sem hér segir: Siglu fjörður 31145 mál, Raufarhöfn 78050 mál, Seyðisfjörður 8325 mál, Húsavfk 1541 mál og Reyðarfjörður 15564 mái. Rauðka á Sigiufirði hafði á sama tíma fengið 12700 mál síldar til bræðslu og 7500 mál af úrgangi. Síldarsöltunin skiptist niður á söltunarstöðvar sem hér segir: Siglufjörður 37950% tunna, Ólafs- fjörður 5549, Dalvík 6061%, Hrís- ey 1652, Hjalteyri 1471, Grímsey 705, Húsavík 4625, Raufarhöfn 368701/2, Þórshöfn 659, Bakkafjörð ur 140, Vopnafjörður 1521, Seyðis fjörður 4720, Neskaupstaður 7525 og Reyðarfjörður 1158 tunnur, eða samtals 110607 tunnur. Á Siglufirði hafa 23 söltunar- stöðvar tekið á móti síld. Þær hafa I saltað sem hér segir: Pólstjarnan 3647 tunnur, Hrímnir 1326, Gunnar Halldórsson 215, Hinriksen 2795, Sigfús Baldvinsson 638%, Jón Gíslason 2037, Hafliði 2038, Haraldarstöð 3449, Kristinn Hall- dórsson 1142, Ýmir 529, Óskarssíld 1505, íslenzkur fiskur 555, Isafold 2717%, Kaupfélag Siglfirðinga 2208%. Reykjanes 1115, Vesta 374, Sunna 874, Njörður 1963, Nöf 4059%, Síldarsöltun ísfirðinga 1803 Ásgeirsstöð 1504, Þóroddur Guð- mundsson 1399% og Steingrímur Matthíasson 56 tunnur, eóa I 37950% tunna samtals.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.