Vísir - 13.07.1963, Síða 6
6
V1S IR . Laugardagur 13. júlf 1963.
AUGLÝSING
um innköíðun hlutubréfu í H.f.
Eimskipufélugi ísiunds og útgúfu
jöfnunurhlutubréfu
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands 2. júní 1962
samþykkti að nota heimilc. þá, sem veitt er í D-lið laga
nr. 70, 28. apríl 1962 um tekju- og eignarskatt, um út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa, og á aukafundi félagsins 29. des-
ember 1962 var þessi samþykkt endanlega staðfest, og
samþykktum félagsins jafnframt breytt í samræmi við
þessa ákvörðun.
Með skírskotun til samþykktar þessarar, tilkynnist hlut-
höfum félagsins hérmeð, að innköllun hlutabréfanna er
nú hafin, og verður henni hagað í aðalatriðum á þann
hátt sem hér segir:
Hlutabréfin ásamt stofnum af arðmiðaörkum skulu afhent aðal-
skrifstofu félagsins i Reykjavík, en hlutabréfunum er veitt við-
taka á 4. haeð í húsi félagsins, Pósthússtræti 2. (Ekki er nóg að
afhenda eða senda stofninn af arðmiðaörkinni einan, heldur
verður að afhenda sjálft hlutabréfið).
Þeir hlutharar, sem ekki geta komið því við, að afhenda skrif-
stofunni hlutabréf sín, geta sent þau í ábyrgðarpósti, eða afhent
þau afgreiðslumönnum félagsins úti á landi, sem síðan senda
hlutabréfin áfram til aðalskrifstofunnar.
Með því að hlutabréfin eru nafnskráð, er nauðsynlegt að skrifa
á bakhlið þeirra greinilegt nafn og heimilisfang þess, sem hluta-
bréfin skulu nafnskráð á. Hafi orðið eigehdásklpti «aðt hluta-
bréfi, skal útfyllt sérstakt eyðublað með tilkynningu um eig-
endaskiptin. Eyðublöð þessi má fá á skrifstofu félagsins í
Reykjavík, og hjá afgreiðslumönnum þess um land allt.
Hluthafar fá kvittun fyrir þeim hlutabréfum, sem þeir afhenda
eða senda skrifstofu félagsins, eða afgreiðslumönnum þess, og
verða hin nýju hlutabréf síðan gefin út og send hluthöfum beint
I ábyrgðarpósti.
Sé um að ræða mörg hlutabréf í eigu sama hluthafa, verður
aðalreglan sú, að þau verða sameinuð í stærri hlutabréfum,
nema sérstaklega sé óskað eftir að það verði ekki gert. Ef um
er að ræða skipti á stærri hlutabréfum t. d. milli erfingja, verða
gefin út smærri hlutabréf sé þess óskað, en þó eigi minni en
250 kr., sem er nafnverð minnstu hlutabréfanna. Ef hluthafar
óska af einhverjum ástæðum að halda sinum gömlu hlutabréf-
um, skal það sérstaklega tekið fram þegar hlutabréfin eru af-
hent eða send, en nauðsynlegt er að afhenda félaginu þau, svo
hægt sé að stimpla þau með ógildingarstimpli, áður en þau eru
send hluthafa aftur.
Nú hefur hlutabréf glatast eða eyðilagzt á einhvern hátt, og
skal það þá tilkynnt skrifstofu félagsins eða afgreiðslumönnum
þess. Eyðublöð fyrir slíkar tilkynningar má fá á skrifstofu fé-
lagsins I Reykjavík og hjá afgreiðslumönnum þess úti á landi. —
Um útgáfu nýrra hlutabréfa i stað glataðra og skemmdra fer
eftir ákvæðum 5. gr. félagssamþykktanna.
Reykjavík, 12. júli 1963.
HtF. EIMSKIPAFÉLAG lSLANDS.
Elgínmaður minn, faðir og tengdafaðir,
JÓHANNES HELGASON, kaupmaður,
Njálsgötu 43A,
andaðist 11. þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar.
/
Eimý Guðlaugsdóttir,
böm og tengdasonur.
Bridgeþáttur VÍSIS í
Ritstj. Stefán Guöjohnsen
Nú líður senn að því að Evrópu
mótið hefjist og fyrir þá, sem á-
huga hafa, hef ég látið búa til eft-
irfarandi töflu. Er þar hægt að
merkja inn úrslit leikjanna, en dag
legar fréttir af gangi mótsins
munu birtast hér í blaðinu.
1 SVlMQÐ HL 1 STIG RÓÐ
2 ISLAND
3 IRLAND
4 FINNLAND
5 ENGLAND
6 HOLLAND
7 AUSTURRXKI
8 ÍTALIA
9 SPANN
10 NOREGUR
11 EGYPTALAND
12 DANMÖRK -
13 FRAKKLAND —|
14 LIBANON
15 SVISS
16 ÞVZKALAND
17 BELGlA
18 POLLAND
Evrópumeistaramótið
( sín-
1. Belgía
2. Þýzkaland
3. Sviss
4. Líbanon
5. Frakkland
6. Danmörk
7. Egyptaland
8. Noregur
9. Spánn
10. Italía
11. Austurríki
12. Holland
13. England
14. Finnland
15. Irland
16. Pólland
17. Svíþjóð
Þetta er 10. Evrópumótið, sem
ísland tekur þátt I og hefur árang-
ur okkar frá upphafi verið þessi:
Kaupmannahöfn 1948. Okkar sveit
nr. 9 með 28% vinninga.
París 1949. Okkar sveit nr. 6 með
50% vinninga.
Brighton 1950. Okkar sveit nr. 3
með 65% vinninga.
Feneyjar 1951. Okkar sveit nr. 6
með rúml. 50% vinninga.
Irland 1952. Okkar sveit nr. 9 með
15% vinninga.
Stokkhólmi 1956. Okkar sveit nr.
6 með rúml. 50% vinninga.
Vínarborg 1957. Okkar sveit nr. 15
með 25% vinninga.
Skodr
-íí í."
SHooa
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐID
Vonarstrœtj 12 slmi 37881
HESTOFL
touringsport msm
EEmá
SHOOfí
AÉÉHÉS
er 4—5 m. fólksbíil, langsamiega orku
mestur sinnar stærðar. Gólfskipting.
Fyrirliggjandi í nokkrum litum.
Aðeins kt. 123.700,00.
<9CóteL ^œufux
[jodQ 1101]
-. -oaaalnog
é
■g|
J.
115 9 18 1
Osló 1958. Okkar sveit nr. 15 með
28% vinninga.
Torquay 1961. Okkar sveit nr. 5
með 63% vinninga.
Frá upphafi hefur aðeins 6 þjóð-
um hlotnazt sá heiður að sigra
á Evrópumóti, en þær eru:
England 5 sinnum
Italía 5 sinnum
Frakkland 4 sinnum
Austurríki 3 sinnum
Svíþjóð 2 sinnum
Ungverjaland 2 sinnum.
Núverandi Evrópumeistarar eru
Frakkar og unnu þeir titilinn á
Evrópumeistaramótinu i Libanon
1962.
FASTEIGNAVAL
Höfum kaupendur að einbýlis-
og tvíbýlishúsum, fokheldum og
tilbúnum undir tréverk. Höfum
kaupanda að fokheldu raðhúsi.
Höfum kaupanda að 3—4 herb.
íbúð, má vera kjallari eða gott
ris.
Höfum kaupanda að tveggja
herb. ibúð í Austurbænum, og
höfum kaupanda að 3—4 herb.
íbúð, má vera á Seltjarnarnesi
eða í Kópavogi.
Höfum kaupanda að góðri 5
herb. íbúð í Austurbæ. Höfum
kaupanda að litlu einbýlishúsi.
Mjög góðar útborganir.
Lögfræðiskrifstofa
og fasteignasala.
JÓN ARASON
GESTUR EYSTEINSSON
Skólavörðustíg 3a, III
Sími 14624 og 22911