Vísir - 13.07.1963, Page 7
VÍSIR . Laugardagur 13. júlí 1963,
7
y////>m'yy/7//y
_ r_.
Q ^BTn1 1 r~T
y////jmz'////////'2Mm/////ZL
m
ReykjavíBcurmótiii í knattspyrnu:
KR hiaut flesta meistarana
Reykjavíkurmeistaramótunum í
knattspymu yngri flokkanna, er
lokið fyrir skömmu, nema í 2.
flokki B en þar verður að spila allt
mótið upp að nýju þar sem öll lið-
in, KR, Valur og Fram eru jöfn
að stigum.
Flest félaganna hér í Reykjavík
geta litið björtum augum til kom-
andi knattspyrnukynslóðar, þvi öll
félögin hafa á að skipa efnilegum
drengjum en mikið er undir réttri
þjálfun, og ástundun komið með
þennan efnivið.
í 2. fl. A var VALUR Reykja-
víkurmeistari, hlutu 8 stig í 4
leikjum, en KR og Fram fylgdu á
eftir með 5 stig hvor. Öll þessi lið
eru mjög jöfn og leikir þeirra á
milli spennandi, og vel leiknir, en
þeir fóru KR—Fram 1:1, Valur—
Fram 2—0 og Valur—KR 3—2, en
sá leikur var einn skemmtilegasti
Ieikurinn í öllu mótinu.
Víkingur átti einnig ágætis lið
í þessum flokki og töpuðu sínum
leikjum naumlega fyrir ofangreind-
um liðum, en þeir sigruðu Þrótt
er rak lestina í þessum flokki.
FRAM varð Reykjavíkurmeistari
í 3. fl. A, sigruðu alla mótherja
sína auðveldlega og hlutu 8 stig.
Framliðið var vel að þessum sigri
komið. Liðið er skipað velleikandi
piltum, en slök frammistaða liðs-
ins í íslandsmótinu vekur furðu
þeirra er horft hafa á liðið leika.
Þeir töpuðu fyrsta leik sínum í
mótinu fyrir Akranesi 2—0, og
töpuðu einnig leiknum á móti Vík-
ing með 2—1; liðið sem þeir unnu
í- Reykjavíkurmótinu með 6—1.
Valur varð í öðru sæti mótsins
með 6 stig. KR varð í 3. sæti með
4 stig en Þróttur og Víkingur hlutu
1 stig hvort eftir jafnteflisleik
þeirra á milli.
3. flokk B sigruðu FRAM einnig,
"
en þar tóku aðeins 3 lið þátt í
keppni. Fram hlaut 4 stig, Valur
2 og KR ekkert stig.
Keppni 4. flokks A var geysi
spennandi. VALUR varð Reykja-
víkurmeistari þar með 6 stig í 4
leikjum, töpuðu einum leik, fyrir
KR 1—0, en sigruðu Fram með
sömu markatölu. KR og Fram
gerðu aftur á móti jafntefli 1—1
og hlutu bæði 5 stig. Víkingur
varð í 4. sæti með 4 stig, unnu
Þrótt og KR. — Þetta lið Vikings
er hið margfalda meistaralið úr
5. flokki frá 1960—61, sem Víking-
ar binda miklar vonir við á kom-
andi árum, en þeim hefur ekki farið
mikið fram á þessum tíma, miðað
við hin félögin, en allt getur þetta
skánað sé rétt haldið á spöðunum.
Víkingur átti einn meistaraflokk
eftir þetta mót, en það var 4.
flokkur B, en þar urðu þeir Reykja-
víkurmeistarar á siðustu mínútum
úrsiitaleiksins við Fram-B, en þessi
lið sendu bæði B- og C-lið til
keppni i þessum flokk. Fram hafði
yfir í hálfleik 1—0, en Víkingspilt-
unum tókst að jafna er 10 mín.
Framh. á bls. 5
Um fo€*lfjÍK8U
KNATTSPYRNA
1. deild: Akureyri Fram á Akur
eyri, sunnudag.
1. deild: KR—Akranes í Reykja
vík, sunnudag.
2. deild: Breiðablik — Vest-
mannaeyjar, í Reykjavík sunnu-
dag.
2. deild: Hafnarfjörður — Siglu-
fjörður í Hafnarfirði sunnudag.
SKÍÐI
ÍR-mótið í bruni í Kerlingarfjöllum.
GOLF
Golfmeistaramót íslands á Akur-
eyri um helgina.
SVIFFLUG
Sviffiugmót að Hellu hefst um
helgina.
STERNBERG í æfingu á „trampoIin“, sem átti eftir að verða honum
örlagaríkt.
„Dauðastökk44
heimsmeistarans
;JUi
Mjög ósennilegt er talið að
bandariski stangarstökkvarinn
Brian Sternberg muni nokkru sinni
geta stigið í fætuma, en frá þessu
sögðum við fyrir nokkrum dögum.
Sternberg er aðeins rúmlega
tvítugur að aldri, vel gefinn piltur,
og nani blaðamennsku við háskól-
ann í Washington. Hann hefur tek-
ið slysinu af einstakri geðprýði
og ekki látið hugfallast.
Sternberg hefur ahlrei tekið
sjálfan sig of hátíðljga, og nú
fyrir nokkrum dögum, þegar hann
var látinn fara á frjálsíþróttamót
: í Compton í Kalifomíu nokkrar
1 helgar i röð sagði hann að hann
væri ekki 325 dala virði fyrir á-
Ihorfendur á mótunum. Þama setti
hann samt tvö heimsmet í grein-
inni og 5.08 met hans stendur enn.
Stemberg var eins og allir
stangarstökkvarar, sem nota gler-
fíberstöng, ekki minni fimleika-
maður, enda beinist stökkið mjög
að því með tilkomu hinna sveigj-
anlegu stanga. Hann æfði reglu-
lega á fjaðurgrind (trampolin), eins
og menn hafa eflaust séð f fjöl-
leikahúsum. Trampolin er eins og
net með teygjanlegu efni og með
því að stökkva í þessu neti fara
menn hærra og hærra upp og fallið
eykst. Þarf til þess að vera ömgg-
ur I þessu mjög mikið og gott
jafnvægi og líkamsstyrk.
i Þegar slysið varð var Sternberg
Framh. á bls. 5
Víkingar komnir heim
Handknattleiksmenn Víkings
komu heim flugleiðis í gær-
kvöldi. Hafa Víkingar haft langa
stranga útivist, leikið alls 10
leiki á þrem vikum, unnið 4, tap
að 5 en gert eitt jafntefli eins
og sagt hefur verið frá í frétt
um hér á síðunni að undanförnu
Árni Árnason, fararstjóri 'seg
ir að tékknesku Iiðin hafi borið
af Þjóðverjunum, sem hefðu
ekki reynzt erfiðir fyrir Víking-
ana, enda þótt þar hafi einnig
verið um 1. dcildarlið að ræða
elcki síður en í Tékkóslóvakíu
Myndirnar sýna: Þrídálka
myndin er af Vikingshópnum
'iórfa f> '•»ih mv’iimalið' Got*
waldov í keppni. Hin myndin er
’tegar iyrirliði V.k.ngs og Gatt
waldov skiptast á gjölum áður
;n leikur hefst. Pétur Bjarnas'»’
til vinstri en hinn snjalli leik
maður Vanecek. sem hér léti
með liðinu til hægri.
k