Vísir - 13.07.1963, Page 9

Vísir - 13.07.1963, Page 9
VlSIR ngMM Laugardagur 13. júlí 1963. >f Fyrir rúmlega sextíu árum bauð Sigurður Johnson, fæddur að Amhúsum á Skógarströnd, sig fram sem sjáifboðaliða til að berjast gegn Búum í Suður- Afríku. Þar var hann i njósna- og Iögregludeild um þriggia ára skeið, en nú 60 árum sfðar kom hann til íslands í fyrstu heim- sókn sína frá því er hann yfirgaf landið árið 1888. — Það hefur mikil breyting orðið hér á öllu, sagði Sigurður. — Raunar var ég svo ungur þeg ar ég fór héðan, bætti hann við, að ég man haria óljóst hvernig hér var umhorfs. Þó man ég vel eftir ýmsu að heiman. Ég man eftir kletti fyrir ofan bæinn á Bíldhóli, þar sem ég var um 2ja ára skeið. Kletturinn hét kastal inn, furðuklettur. Ég man líka þegar við Iögð- um af stað í ferðina vestur um haf. Man eftir því þegar við kom um til Narfeyrar, en þar átti amma mín heima. Ég man þegar þau kvöddust pabbi og hún. Ég man llka þegar við komum til Isafjarðar og við fórum í land til að kveðja systur pabba. Hún hét Ólöf. Hvað þeim bjó í brjósti gerði ég mér ekki grein fyrir, en fann samt að þetta var mikil örlagastund. Ég kveið ekki fyrir ferðinni, sei sei nei. Var hlutlaus með öllu og fannst sjálfsagt að taka því sem koma skyldi. En mikil und- ur fannst mér til um skipið ég gat. Ekki lærði ég neitt nema það sem pabbi kenndi mér.Skóli var þá enginn til í byggðarlag- inu. Hann var ekki byggður fyrr en ég komst yfir skólaskylduald ur. Þegar ég var 11 ára gamall var ég sendur að heiman, send- ur til snúninga á búgarði. Þar bjuggu enskir. Var hjá þeim til 15 ára aidurs. Mjólkaði kýr og var í ýmiskonar snatti, bæði úti og inni. Ævintýralöngun. — Þú fórst í Búastríðið. Hvað kom þér til þess? — Ævintýralöngun. Ekkert annað, Mig langaði ekkert til að drepa menn, né heldur til að láta drepa mig. Langaði bara til að komast eitthvað úr tilbreyting- arleysinu, eitthvað út í heim- inn. Eitthvað þangað sem eitt- hvað gerðist. Suður-Afríka var ekki verri en hvað annað. Ég var á 20. aldursári við skógarhögg í Norðaustur-Mani- toba. Það var um miðjan vetur. Þá las ég í blaði áskorun um að menn gerðust sjálfboðaiiðar í Bretaher gegn Búum. Ég hætti .við skógarhöggið og gaf kost á mér til Búastríðs. Það var samt ekki andskotalaust, því ég þurfti að fara 50 kílómetra vegalengd fótgangandi hvora leið til að láta innrita mig. Spáð að myndi farast — Var fljótlega lagt af stað úr því? — Vorum fyrst við heræfing- ar I Ottawa um 2ja mánaða sem flutti okkur. Ég hafði aldrei séð skip áður. Minnir að það héti Copland. Með því fórum við beint strik frá ísafirði tii Skotlands. Basl og óvissa. — Hvað tók við í nýju heim- kynnunum? — Eitthvað áþekkt og hjá öðr um innflytjendum, basl og ó- vissa til að byrja með. Ekki um annað að ræða en duga eða drepast. Fyrstu sex vikurnar vorum við í Winnipeg, en fiutt- um þá til Saskatchewan. Pabbi fékk lán og byrjaði búskap með tvær kýr. Seinna keypti hann naut. Það gekk erfiðlega að afla fóðurs fyrir kýrnar fyrsta vetur- inn, en þær skrimtu. Pabbi kom sér upp moldarkofa sem við bjuggum í og hann var áfastur við fjósið. Það var veggur á milli. Við svipuð kjör, og þessi, bjuggu yfirleitt innflytjendur á þessum árum, sem komu snauð- ir vestur og áttu engan að. Ég man ekki til að við liðum skort né að okkur væri kalt f þessu hreysi. Við sættum okkur við hlutskipti okkar svo sem vera bar. Seinna gekk þetta betur. Pabbi var góður smiður bæði á jám og tré. Hann var líka lista- skrifari. Þetta hjálpaði honurn nokkuð í lífsbaráttunni, en hins vegar var hann mjög farinn að heilsu eftir langvarandi strit. — Hvað gerðir þú sjálfur? — Hjálpaði til eftir þvf sem Sigurður Johnson. breytingu búnir. Höfðum aðeins eitt teppi hver og svo yfirhafn- irnar sem við breiddum ofan á okkur. En það dugði hvergi nærri til. Seinna var bætt úr þessu. Mataræðið hefði getað verið betra. Stundum var matarskort- ur í herbúðunum, en þó aldrei til langframa né tilfinnanlegur. Aðalfæðan var kex og nauta- kjöt, ástralskt, f dósum. Það má hver sem vill kalla það ljúf- fengt fyrir mér. En ég fæst aldrei til að gera það. Þorstinn var verstur. Hann ætlaði að gera út af við okkur. Það litla vatn sem við fengum daglega til drykkjar var fljótt að ganga til þurrðar. Or þvf var ekki um neitt að ræða nema bíta á jaxlinn og þrauka. Að þrauka var fyrir öllu. Flutningar allir voru mikium erfiðleikum bundnir. Einustu flutningatækin voru nautgripa- kerrur og 12—16 uxar — eða þá múlasnar — fyrir hverju æki. Þetta var hroðalegur seina gangur, ekki sízt ef koma þurfti særðum mönnum í sjúkraað- gerð. Hernaður var annar þá heldur en hann er nú. Nær hungurmorða. — Er þér nokkurt einstakt atvik sérstaklega minnisstætt? — Það væri helzt það þegar ég var sendur til að njósna um nautgripahjörð sem stolið hafði verið frá okkur. Það var langt um liðið frá því er hjörðinni hafði verið stolið og það vænti enginn neins árangurs af eftir- grennslan. Það var hins vegar formsatriði sem sjálfsagt þótti að uppfylla. Ég fékk mér Búa riuníllav !VÚ !1*C skeið en að þvf búnu lögðum við af stað með gripaskipi suð- ur til Afríku. Því hafði verið spáð áður en við lögðum af stað að farkost- urinn okkar myndi missa mann á hverjum degi fjóra fyrstu dagana, en á fimmta degi myndi það farast með rá og reiða. Það sló ofsalegum óhug á mannskapinn þegar maður dó á hverjum degi fjóra fyrstu dag- ana. Og ég held að fimmta dag- inn hafi engum verið rótt — nema mér — mér kom aldrei til hugar að trúa þessari vit- leysu. — Hvernig fór? — Nú skipið hélt leiðar sinn- ar og það tók 29 daga að kom- ast á leiðarenda. Hitinn var af- skaplegur, einkum f kringum miðjarðarbauginn. Við lágum í einni kös f skipinu og það var lítið hugsað um að gera okkur lífið þægilegt eða skemmtilegt. öðruvísi farið með hermenn þá Sker sig á háls Áfangastaður okkar var Cape Town. Há fjöll umlykja borgina. Stórkostleg og tíguleg innsigl- ing. Strax á 2. degi vorum við sendir í opinni kolalest til Transvaal. Aðbúnaður var slæm ur, hitinn illþolandi. Margir veiktust á leiðinni og ég man sérstaklega eftir einum sem fannst hann ekki geta þolað all- ar þessar hörmungar. Hann skar sig á háls. Meðal þeirra sem ur í veiktust var ég. Það greip mig samt ekkert óyndi. Einhversstaðar á leiðinni vor- um við látnir halda kyrru fyrir í 3 vikur til heræfinga. Sfðan var haldið áfram að víglínunni og þar hófst sjálf herþjónustan. — Tókstu þátt í orustum? — Nei, ég held að ég hafi sloppið úr þessari styrjöld án þess að úthella blóði nokkurs manns og án þess að mfnu blóði væri úthellt. Ég var settur í deild með hjarðmönnum og lögregluþjón- um frá Suður-Albertafylki og Saskatchewan. Það voru allt hraustir drengir hreinasta mannval. Þetta var riddaraliðs- sveit og við fengum njósnahlut- verk í hendur. Vorum sendir á undan herliðinu til að kanna hvar varnir Búanna væru veik- astar fyrir og auðveldast að sækja þá heim. Þó ég segi sjálf- ur frá held ég að þessi sveit okkar hafi verið afburða góð. Betri hestamönnum hefi ég ekki kynnzt. I hjáverkum grófum við skotgrafir. Misþyrmdu Svertingjum. — Kynntistu Búum? — í þau þrjú ár sem ég var í herþjónustu í Transvaal, kynnt ist ég Búum nokkuð. Samt of lítið. Mest eftir að friður hafði verið saminn við þá á miðju sumri 1902. Eftir það vann ég við iöggæzlu og hafði meiri eða minni afskipti af þeim. Þeir voru eins og fólk er flest, prúð- ir f framkomu, en mér virtist Þeir næsta lítið upplýstir. Mest gallinn á þeim — í mínum aug- um — var sá hvað þeir fóru illa með svertingana. Þeir mis- þyrmdu þeim meir en skepnun um. Hroðaleg meðferð. Samt töldu þeir sig vera kristna. Annars voru Búar mikium hæfileikum búnir, afburða reið- menn og skyttur að sama skapi. Mjög góðir skæruliðahermenn. í upphafi stríðsins höfðu þeir í fullu tré við Bretana. Höfðu allt aðrar bardagaaðferðir. Lögðu aldrei til stórorustu, en unnu Bretum þeim mun meira ógagn f skæruhemaði og smá- áhlaupum. Það var ekki fyrr en Bretar tóku sjálfir upp sömu baráttuaðferð að þeim tók að vegna betur. Það voru Ástralíu- menn og Kanadabúar sem kenndu Bretum skæruhemaðar- ' aðferðir. Þorstinn var tilfinnanlegastur. — Voru fleiri íslendingar en þú sem tóku þátt í styrjöld- inni gegn Búum? — Við vorum fjórir, sem ég vissi um. Einn þeirra særðist í orustu og dó af völdum sára sinna. — Hvernig var daglegt líf ykkar á þessum slóðum? — Ofsalegur hiti á daginn. Hins vegar hefur mér aldrei orðið eins kalt á nóttunni eins og þar. Fyrst í stað vorum við illa undir þessa miklu hita- til fylgdar sem var túlkur minn og negri fyrir leiðsögumann. Það var öll hersveitin. Ég og Búinn vom ríðandi en negrinn brokkaði berfættur á undan. Þindarlaus að því er virtist. Vistir höfðum við meðferðis til 3—4 daga. Við vorum 9 daga f ferðinni og nær hungurmorða þegar við komum til baka. Varð almáttugur. Við þurftum að fara yfir hin- ar verstu torfærur, ýmist f gegnum illfært kjarr eða yfir fjöll. Einhvern veginn hafðist þetta um síðir. Mér er það f fersku minni að á einum stað í kjarrlendi snar- stanzaði negrinn, augun rang- hvolfdust í höfðinu á honum. Hann fómaði höndum og rak upp angistarvein. Það var engu líkara en hann stirðnaði upp og hann fékk sig ekki hreyft af skelfingu. Fyrir framan hann reigði eiturslanga sig til höggs og hver sekúnda sem leið gat riðið á lífi hans. Ég held að á þessu augnabliki hafi ég verið viðbragðsfljótastur á ævi minni. Ég hafði riffilinn ævinlega til taks og í þetta sinn var ég fljótari en venjulega að grfpa til hans, miða og skjóta. Ég hæfði höggorminn í hausinn á sömu andrá og hann ætlaði, að höggva negrann. Hafi ég nokkru sinni öðlast tiltrú og aðdáun nokkurs manns um æv- ina var það negrans. Eftir þetta var ég ekki framar maður í aug- Framh. á bls. 10. T

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.