Vísir - 30.07.1963, Page 8

Vísir - 30.07.1963, Page 8
8 V1S IR . Þriðjudagur 30. júU 1963. VISIR Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR. Ritstjóri: Gunnar G. Schrara. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði. í lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). '>,-«>ntsrniðja 'Ucis. — Edda h.f. Hvergi meiri fjárfesting Rannsóknir þær, sem farið hafa fram að undan- förnu á húsnæðismálum íslendinga — og skýrsla hins norska bankastjóra er einn liðurinn í — veita margar merkilegar upplýsingar. í Ijós hefur komið, að við íslendingar höfum á síðustu árum fjárfest meira í íbúðarbyggingum mið- að við brúttó þjóðarframleiðslu en flestar þjóðir aðrar. Talan fyrir ísland er 8.2%. Danmörk fjárfestir hins vegar ekki nema 3%og Noregur 3.9% miðað við þjóð- arframleiðsluna í nýjum íbúðum. Þessar tölur tala glöggu máli. Þær eru sérlega athyglisverðar fyrir þá, sem hafa talið réttar fullyrð- ingar stjórnarandstöðunnar um það, að viðreisnin væri að ganga af húsabyggingum dauðum. Sá söngur hefir glumið hátt í Þjóðviljanum og Tímanum, að hér sé samdráttur og kreppa í byggingarmálum. Tölur þess- ar sýna annað. Þær sýna, að ekkert land vinnur eins vel að íbúðabyggingum og ísland. Til grundvallar því liggur auðvitað stefna ríkisstjórnarinnar í lánamálum, ekki síður en mikið framtak þjóðarinnar á þessu sviði sem öðrum. En það má heldur ekki gleymast að ekki er nóg að festa miklu fé í byggingum. Á ríður að byggingar^- kostnaðurinn verði lækkaður að mun frá þvf sem nú er„ Við erum enn molbúar á því sviði og stöndum langt að baki nágrannaþjóðunum. Það er Húsnæðismála- stjórn, sem hér verður að hafa forgönguna, ásamt Arkitektafélaginu og stétt byggingarmeistara. ' • Flan á öræfum Þjóðin öll fylgdist af miklum áhuga með leitinni að hinni nær sjötugu konu, sem í sex sólarhringa var týnd á Arnarvatnsheiði. Og allir munu hafa glaðzt, er útilega hinnar öldruðu konu fékk svo farsælan endir. En þótt vel tækist til þá er óhjákvæmilegt að Sigríður Jóna Jónsdóttir sæti harðri gagnrýni sökum fyrirhyggjuleysis síns og vanbúnaðar til öræfaferða. Það fólk, sem hyggur á ferðir um öræfi landsins verð- ur að gera sér það Ijóst, að með fyrirhyggjuleysi sínu getur það valdið mikilli fyrirhöfn fjölda manna og jafnvel stofnað lífi annarra í nokkra hættu við langar leitir. Það er lágmarkskrafa að það stefni ekki út í tvísýnu, æði upp á öræfi fyrirhyggjulítið án nægs bún- aðar. Enginn mun telja eftir sér að leita horfinna manna, heldur bregðast vel við þeirri skyldu. En það er líka skylda ferðalanga að gera allt sem unnt er til þess að leit þurfi ekki að hefja. Bedúina situr að máltíð sinni. Níu af hverjum tíu eru ólæsir / Einn af atkvæðamestu sér- fræðingum Norðurlanda um málefni þróunarlandanna, Sví- inn Sixten Heppling, er nýkom- inn í heimsókn til Svíþjóðar frá Afganistan, „landinu, sem skortir næstum alit nema sterk- an vilja til framfara“. Hann fór þangað fyrir rúmu ári tM að vera „resident representative“ Sameinuðu þjóðanna, en komst fljótlega að raun um, að hin víðtæka hjálparstarfsemi Sam- einuðu þjóðanna í Afganistan krafðist þess beinlinis, að hann tækist einnig á hendur önnur verkefni. Sixten Heppling hafði árum saman setið f stjórn hinnar sænsku hjálparstarfsemi við þróunarlöndin, gefið út margar bækur um efnið og haldið yfir þúsund fyririestra víðs vegar um Norðurlönd, þegar honum var falið starfið í Afganistan vorið 1962. í hlutfalli við íbúa- fjölda þiggur þetta land meiri aðstoð frá Sameinuðu þjóðun- um en flest lönd önnur. Aðeins sú hjálp, sem Sameinuðu þjóð,- irnar og níu sérstofnanir þeirri veita í sambandi við áætlunina um aukna tæknihjálp, tekur til 100 sérfræðinga hvaðanæva úr heiminum og 125 Afgana. Verkefni Sixtens Hepplings er fólgið í því að samræma og hafa eftirlit með allri þessari marg- þættu hjálparstarfsemi. Hann er líka forstjóri þeirrar starf- semi, sem kostuð er af Fram- kvæmdasjóði Sameinuðu þjóð- anna (þar er um að ræða rann- sóknir, fræðslustofnanir o. þ. u. 1.), og er ennfremur í nánum tengslum við Barnahjáip Sam- einuðu þjóðanna. UPPLÝSINGASTJÓRI. En ekki nóg með þetta! Hann er forstjóri upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í höfuð- borginni — og svo er hann þar á ofan gestgjafi og verzlunar- eigandi. _ — Gistihúsið er ætlað starfs- fólki Sameinuðu þjóðanna, ný- komnum sérfræðingum og gest- komandi embættismönnum Sam- einuðu þjóðanna, og þar eru 20 rúm, segir Heppling. Þar er full- búið eldhús og borðsalur — og þessa dagana er verið að leggja síðustu hönd á sundlaug. Verzl- unin er líka ætluð starfsfólki Sameinuðu þjóðanna. Þar eru seldur vörur, sem erfitt er að fá í Afganistan en teijast verða nauðsyniegar, eins og t. d. þurr- mjólk, kjöt, niðursuðuvörur og þvottaefni. — Hvað eru Sameinuðu þjóðirnar að gera núna í Afgan- istan? Hvaða vandamál er helzt við að stríða? — Meginvandamál Afganist- ans er það, að landsmenn vita alltof lítið um land sitt; þá skortir mikilvægar upplýsingar um íbúafjöldann og hlutföll ýmissa hópa í iandinu, um auð- lindir landsins o. s. frv. Fyrsta verkefnið er því að bæta úr þessum þekkingarskorti. Sameinuðu þjóðirnar hafa gert manntalsskráningu á nokkrum stöðum í landinu. Eitt slíkt manntal leiddi f ljós, að á svæðinu voru færri íbúar en gert hafði verið ráð fyrir. Ekki er útilokað, að svipuðu máli gegni um landið í heild. íbúa- talan sem gefin er upp opinber- iega — 13 milljónir — er hrein getgáta. NÍU AF HVERJUM TÍU ÓLÆSIR. Þegar búið er að afla skjal- festra upplýsinga um aðstæð- urnar f landinu, ætlar Sixten Heppling að setja skólamálin efst á iista hjá sér. Menntun í öilum greinum og á öllum svið- um, ekki sízt iðnmenntun. Talið er, að 90 af hundraði allra landsmanna yfir 10 ára aldur séu ólæsir. Mikill skortur er á skólahúsum, en þó fyrst og fremst á kennurum. — Við leggjum nú aila á- herzlu á menntun og þjálfun kennara. Framkvæmdasjóðurinn veitti nýlega fé til kennara- skóla, sem á að mennta kennara í gagnfræðaskólum, en á þeim er tilfinnanlegur skortur. Hin aukna tækniaðstoð hefur sam- vinnu við Barnahjálpina um menntun barnakennara og kenn- ara sem þjálfa barnakennara. Því næst mun Sixten Hepp- ling ieggja áherzlu á samgöngu- vandamálin. Eins og stendur vantar að miklu leyti vegi og fjarskiptasamband í landinu. Þegar úr þvf hefur verið bætt, verður fyrir alvöru hægt að ein- beina kröftunum og fjármunum að þróun landbúnaðar og at- vinnu'Iífs yfirleitt. Án sam- Framh. á bls. 10. Spjallað um vanda mál þróunarlanda

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.