Vísir - 31.08.1963, Síða 4
4
V 1 S IR . Laugardagur 31. ágúst 1963.
t
I
Svífðu seglum þöndum
Seglbátar eru mjög sjaldséðir
við strendur íslands, og hafa
verið fáir sfðan afar okkar reru
til fiskjar í gamla daga. Þeir
háðu marga hildi við Ægi
gamla, og báru furðanlega oft
sigur af hólmi. Fáir myndu nú
til dags hætta sér Ut á opið
haf á litlum seglbáti, en það er
ekki þar með sagt að ekki sé
hægt að nota þá.
Það er ekki nauðsynlegt að
hafa neina sérstaka sjómennsku
kunnáttu til þess að stjórna bát,
sem Iíður mjUklega um spegil-
slétt sund, og það er nóg til af
slíkum sundum.
Skipstjórinn á fleyinu hér á
myndinni er íslendingum kunn-
ur fyrir annað en sjómennsku,
hann er MagnUs Blöndal Jó-
hannsson tónskáld. Aðspurður
kvaðst MagnUs ekki hafa lært
að sigla fyrr en hann fékk sér
þennan bát. Það hefði hann gert
í sumar, og væri nú bUinn að
fá ofurást á íþróttinni. Síðan
1957 hefur MagnUs stundað
svifflug, og má því segja að
hann sé nokkuð háður loft-
straumunum. Byrjað er að flytja
inn báta eins og þann sem
MagnUs á, og eru þeir frá Nor-
egi. Þeir eru Ur trefjaplasti, og
vegur skrokkurinn um 70 kg.
Lengd er 11 fet.
Áhöfnin getur mest verið 4
menn, en bezt siglir hann með
einn eða tvo innanborðs. Á bátn
um eru tveir fallkilir sinn á
hvorri hlið, og eiga þeir að gera
hann stöðugan. Með þvf að taka
af mastur, stýri og ef óskað er
hvalbakinn, er hægt að breyta
fleytunni í mótorbát. Bátar þess
ir munu kosta um 31.000 krón-
ur. (Ljósm. Vísis B. G.)
Vilja lengri höf-
undarréttarvernd
Islenzkir höfundar og höfundar-
rétthafar hafa skorað á ríkisstjórn-
ina að leggja til við Alþingi að
vemdartími höfundarréttar „verði
framlengdur úr fimmtíu árum eftir
lát höfundar u. p f svo mörg ár,
sem þurfa þyldr til þess að böm
höfundanna megi meðan þau lifa
hafa full umráð yfir verkum for-
eldra sinna og nái að vemda verkin
gegn allrj misnotkun."
Áskorun þessi er komin fram í
sambandi við það að ríkisstjórnin
hefur haft f undirbúningi frumvarp
að nýjum höfundalögum og mun
dr. juris. Þórður EyjóJfsson, hæsta-
réttardómari, hafa verið að vinna
að þessu verki. Greinargerð um
nauðsyn höfundarréttarverndar
meðan höfundur og böm þeirra lifa,
fylgdi áskoruninni, sem var undir-
rituð af ýmsum forystumönnum ís-
lenzkra listamanna.
í greinargerðinni er talið nauð-
synlegt að lengja verndartímann úr
fimmtíu árum eftir lát höfundar
upp í 80 ár eftir lát hans. Hvað
erlenda höfunda snertir mundi
verndun á verkum þeirra hérlendis
ekki ná yfir lengri tíma en í gildi
er í heimalandi þeirra. Ákvæði, sem
um ræðir myndu því engin áhrif
hafa á hagsmuni þeirra hérlendis.
Þetta er álit dr. juris. Þórðar Eyj-
ólfssonar, og Sigurðar Reynis Pét-
urssonar, hæstaréttarlögmanns.
í greinargerðinni eru nefnd þau
sjö Iönd, sem hafa Iengt verndar-
tímann úr 50 árum, Noregur, Frakk
Iand, Spánn, Portúgal, ítalfa, Aust-
urrfki og Brazilía.
SAMVI N NUBANKINN
hefur í dag starfsemi sína í Bankastræti 7. Bankinn er stofnaður samkvæmt heimild í iögum nr. 46, 21. aprfl
1963 og tekur við allri starfsemi Samvinnusparisjóðsins, réttindum hans og skyldum.
Bankinn annast öl! innlend bankaviðskipti og greiðir vður hæstu vexti af sparifé yðar, eins og þeir eru á
hverjum tíma-
Afgreiðslutími bankans er alla virka dage ?—4 og 6—7 fyrir sparisjóðs- og hlaupareiknings-
viðskipti, laugardaga kl. 10-12,30.
Samvinnubanki íslands
Bankastræti 7 . Sími 20 700