Vísir - 31.08.1963, Page 15

Vísir - 31.08.1963, Page 15
VlSIR . Latígardagur 31. ágúst 1963. 75 Peggy Gaddis: Kvenlæknirinn — En ég hefi skipulagt allt svo hún geti orðið hamingju aðnjót- andi í lífinu, svaraði Isabel Carling og bandaði frá sér með demants- skreyttri hendi, eins og hún vildi bægja frá öllu, er gæti hindrað framkvæmd áforma hennar. Ég ætl- aði að senda hana í frægan fram- haldsskóla, halda dansleik, til þess að hún gæti kynnzt, ungum, efni- legum mönnum af góðum ættum og stuðlað þannig að þvi, að hún yrði vel gift — — Skrauthýsi á Palm Beach, sumarheimili í Maine, skemmti- snekkja — eftirsóknarvert í margra augum, ef til vill enn í dag — og þó meira á liðnum tíma en nú, er ný viðhorf og ný viðfangsefni eru komin til sögunnar. Við erum að hressa upp á þjóðlífsbygging- una, frú Carling, vinna að umbót- um á sviðj félagsmála og menning- ar, og ungmenni landsins eru þar að gera sitt, og ungmenni eins og Jimmy og Louella fá þar sitt hlut- verk að vinna. Afi minn sagði eitt sinn, að lífið væri gjöf foreldranna til barnanna, en foreldrarnir hefðu engan rétt til að reyna að taka þá gjöf og endurmóta hana eftir sínu höfði, sínum hugmyndum. Ung- menni þurfa leiðbeininga, víst er um það, en það er þeirra eigið líf, þeirra eigin framtíð, sem um er að ræða, og þau verða að fá að móta hana sjálf, læra af mistökum, þrosk ast við það. Foreldrarnir gefa börn- unum lífið, en þau geta ekki lifað þvf fyrir þau. Og þér, frú Carling, vafalaust elskið þér dóttur yðar? — Hvernig þé spyrjið, sagði frú Garling og hnykkti til höfðinu, ég dái hana, tilbið hana! — Hvers vegna lofið þér henni þá ekki að Ieita sinnar eigin ham- ingju — - Og með því eigið þér við, að hún eigi að varpa framtíðarham- ingju sinni fyrir borð vegna þessa .. — Með því á ég við, greip Mere- dith fram í, að þér talið við dóttur yðar í einlægni og af skilningi, reyn ið að skilja hana — en reynið ekki að knýja hana til þess að gera allt eins og þér hafið — skipulagt. Frú Carling sat andartak graf- kyrr og þögul. Ef til vill voru hugs anir hennar mjög á reiki - vafi vaknaður í huga hennar, að hún hefði gert það, sem rétt var, — að minnsta kosti kom ekki orð yfir hennar varir, og svo stóð hún upp allt í einu og gekk út, án þess að segja neitt frekar. Meredith horfði á eftir henni, ypptj öxlum og andvarpaði því að hún gerði sér ekki von um, að orð hennar hefðu haft nokkur á- hrif. Það var komið hádegi og Mere dith hlakkaði til að komast heim. Rosealie lá í hengikojunni, þegar hún kom og horfði á hana alvar- leg á svip: — Þú gengur þér til húðar, sagði hún og ég ligg hér í leti — dauð- leiðist. Hún reis á fætur, stakk hendinni undir handlegg hennar, og er þær gengu inn, sagði hún: — Hvað er næst? — Sjúkravitjanir eftir hádegi — Kannski þú komir með mér? — Og hvað get ég gert, þerrað svita af enni og vöngum sjúklinga þinna og brosað blítt, Nei, þakka þér fyrir. — Jæja, ef þess þyrfti með að þerra svita og kæla heitt enni og vanga þá gæti frú Cooper annast það, en líklega vildi hann heldur, að þú sætir hjá sér og héldir í hendina á honum. t- Og hvér er sjúklingurinn, má ég spyrja? sagði Rosalié híssa, en grunsemdar kenndi I röddinni. — Nú, ég ætla að líta inn á heimili herra Hugh Prathers og sjá hvernig sjúklingunum líður — Frazier lækni. — Er hann sjúklingur?, spurði Rosalie. — Kannski of mikið sagt, en hann er hér til þess að safna kröft um, ná fullri heilsu eftir veikindi. Ég vona, að hægt sé að fella læknisúrskurð um það innan tíðar, en svo getur það líka tekið miklu lengri tíma — tíu ár. — Hljómar næstum eins og dóm ur upp á lífstíð, sagði Rosalie og fitjaði upp á nefið. — Ef gert er ráð fyrir þvi versta — ég vona þó, að hann verði vinnu fær eftir 6 — 8 mánuði, gæti jafn- vel byrjað fyrr að vera til aðstoðar, — allt miðað við það, að hann fari vel með sig og brjótj engar reglur. — Jæja þó ég sé harðbrjósta get ég ekki annað en haft samúð með honum — þetta er nú indælis piltur, finnst þér ekki? — Mjög aðlaðandi, sagði Mere- dith og beið eftir að Rosalie segði eitthvað um hann. — Kannskj ég fari með þér og tefli korta við hann meðan þú vitj- ar um hina sjúklingana. Meredith var því fegin, að Rosa- lie ákvað að koma, því að hún hugði að Frazier kynni að leiðast iðjuleysið — en Hugh var öllum stundum á skömmtunarskrifstof- unni á daginn. Rosalie mundi koma honum í gott skap. Þær höfðu ekki lokið hádegis- verði, er síminn hringdi. Meredith var beðin að koma í skyndi til konu Henry Jordans, sem var mjög lasin. — Ég set þig af við hliðið á húsi Hughs og kem svo í bakaleið inni og lít inn til Fraziers. — Fyrirtak, sagði Rosalie hressi- lega. En það var farið að skyggja, þegar Meredith gat efnt loforð sitt, og þegar hún sveigði inn að húsi Hugh Parthers heyrði hún hlátur. Þau sátu við borð fyrir ut- an húsið Rosalie, Hugh og Frazier, að tedrykkju, — það var víst Rosa lie, sem hafði komið þeim í gott skap. Meredith þóttist sjá það á svip hennar, að hún hafði verið að segja frá einhverju skemmtilegu at- viki, og eins og að vanda var það leikur fyrir hana að halda athygli karlmannanna. Á diski Fraziers voru hinar frægu, þykku pönnu- kökur og smákökur frú Coopers, og mjólkurglas stóð við disk hans. Honum var sýnilega enn betur skemmt en Hugh af frásögn Rosa- lie, þvi að hann varð ekki komu Meredith eins fljótt var og Hugh, sem hafði hverja klukkustundina af annarri verið að hlusta eftir bílnum hennar annað veifið, og hún var ekki fyrr stigin út úr bílnum, er hann . var, sprottinn á fætur og kominn til hennar. — Sæl elskan mín, það er gott að Frazier er hér, þvl I þvl felst trygging fyrir, að þú komir hér við og við. Annars, bætti hann við lægra, kann ég því ágætlega að hafa hann hér, þvl að hann er ágætis náungi. Rosalie og Frazier litu nú upp og Meredith var und:r eins komin I sama sólarskapið og þau, hún gat afþreytzt og notið þess að vera með þeim og gleymt skyldustörf- unum smástund, og Hugh þurfti ekki að ganga mikið á eftir henni til þess að neyta kvöldverðar með þeim, en hann varð að lofa henni að hringja heim, svo að henni yrði gert aðvart, ef eitthvert kall kæmi. — Það er víst ekki heiðarlegt, að gleyma að hringja til Jennie, sagði Hugh, — nei — vertu ekki smeyk — ég hringi, fiýtti hann sér að bæta við, en honum til undrunar kom ekkert sjúkrakall þetta kvöldið, svo að þau gátu ver- ið saman allt kvöldið, sem var I alla staði hið ánægjulegasta. Klukkan var farin að ganga ell- efu, er þær óku heim, Meredith og Rosalie, og mösuðu saman um hve allt hefði verið ánægjulegt , og Meredith hugsaði um það þakklát- um huga, að hafa átt heilt kvöld alveg áhyggjulaus og getað gleymt því, að hún hafði lengi unnið of mikið og haft lítinn svefn marga nóttina. — Ertu ánægð með hvernig Frazier fer fram? spurði Rosalic er þær voru komnar heim. Hann virðist vera að braggast. — Ég held nú það, sagði Mere- dith glaðlega. Hann hefur þyngzt um tvö pund og er mjög að bragg- ast, og það sem bezt er, hann er kátur og bjartsýnn. — Það er annars einkennilegt, sagði Rosalie eftir nokkra umhugs- un, hvernig fer stundum I þessu blessaða lifi. Hann er ungur og framgjarn, ágætis piltur ,stundar sitt nám af kostgæfni, lýkur lækn- isprófi og hlakkar til að geta lækn- að aðra, en veikist — meðan alls konar lýður, sem ekkert gagn er I, sp.gsporar um við beztu heilsu, — hvers vegna þarf þetta að vera svona, Merry? — Ég vildi, að ég vissi það, Rosie, svaraði Meredith. Hún hafði svo oft, síðan er hún tók við af Jónatan, spurt: Hvers vegna? Og það var sjaldnast neitt svar að finna. Og hún ályktaði að tilgangs- laust væri að reyna að svara, betra að verja kröftunum við störfin, ein- beita huganum að þeim, I stað þess að reyna að svara svona spurning- um. Þegar Meredith var komin upp I beindist hugur hennar mjög að Ronalie. Hún ól sannast að segja áhyggjur varðandi hana, en lét það ekki uppi við hana, því að Rosalic myndi hafa mislíkað það. Hún var sjálfstæð, fór sínar götur. Vildi engin afskipti annarra. Og kannski var það engin furða, þótt hún SSílSSffrhS vansæl — hafði aldrei .^erið söm eftir andlát Tims Abernethys, því að enn eimdi eftir af sektartilfinn- ingunni I huga hennar. Það var sárt til þess að hugsa, að eigin- girni og tillitsleysi skyldi verða að leiða til þess, að piltur eins og Tim Abemethy beið bana. Meredith sá hann enn fyrir hugskotsaugum sfnum eins og hún hafði séð hann I hinu ógleymanlega vorkvöldi fyr- ir næstum ári, þegar hann kom til þess að fara með Rosalie á dans- leik. Hann var hár, ljós yfirlitum bláeygur, ljós á hár, sólbrenndur, klæddur einkennisbúningi lautin- ants I flugherum. Bækistöð hans var I Fallhlífa- skólanum I fjöllunum nálægt Riv- er Gap. Tim varð ástfanginn I Rosalie. Það gat ekki duliz nein- um. Meredith var ekki I vafa um, að um djúpa, heita ást var að ræða af hans hálfu, og Rosalie beitti töfrum sínum. til að glæða eldinn I huga hans, vel vitandi hvert vald hún hafði yfir honum. Hann hafði komið snemma, til þess að segja henni, að hann hefði fengið tilkynningu um að gegna skyldustarfa um nóttina og gæti því ekki farið með hana á dansleikinn. T A R Z A i ICILL THEW, CHIEF GAKIA.1 THEIK \ CAK! 5E EEASE7 FROW.THE TEIBE J 0K7EE THEtt TEIE7— UKIFEK. CIVILIZE7 LAW' LET THEA\ BE TEIE7 AKI7 SEKITEKICE7 IKI WOABUZZI—IKI A COUET OF LAWÍ Dreptu þá ekki Gana segir Tarzan. Það er hægt að þurrka þennan smánarblett af ættbálkn- um með því að láta dæma þá í Mobuzsi. 1 sama bili geystist Captain Joe Wildcat inn f þorpið ásamt mönnum sínum, og allir með vélbyssurnar tilbúnar. — Captain Wildcat hrópar Tarzan undrandi, hvað ert þú að gera hér. Skjóttu ekki. Við héldum að mann æturnar væru búnar að kála þér líka, svarar Wildcat, glaður við að sjá að Tarzan er ómeiddur. Rosalie hafði komið illa fram og auvirðilega að áliti Meredith. Hún sagði við hann I fússi, að ef hann færi ekki með hana á dansleikinn gæti hann farið sína leið, — svo að hann hafði látið að ósk hennar, en orðið að fara I flugferð I morg- unsárið, svefnlaus og æstur á taug- um — og flugvél hans hrapað og hann beið bana. Þetta hafði mikil áhrif á Rosalie. Hún gerðist svo þunglynd, að Meredith óttaðist um hana, en með skynsamlegum fortölum hafði hún getað haft þau áhrif á hana, að hún reif sig upp úr þunglyndinu. Hún fór að ráði; Meredith og fór I verksmiðju þar sem unnið var að styrjaldarframleiðslu, vann þar að logsuðu fyrir ágætu kaupi — og var nú komin heim, óeirin og ó- ánægð — og að því er virtist til I allt. Meredith lá langa stund andvaka og hugleiddi þetta allt, en loks tókst henni að sofna. Áttundi kapituli. Marthy Peebles frænka átti heima I þriðja húsj frá mylnunni I Afdalnum. Hús hennar var gam- all, traustur bjálkakofi með fjór- um herbergjum. Kofinn hafði verið byggður af Peebles nokkrum fyrir meira en öld, en hann var með þeim fyrstu, sem settist að þarna I fjöllunum. Hann stundaði aðal- lega loðdýraveiðar til þess að sjá fyrir sístækkandi fjölskyldu sinni. RósóL 0 Odýrcsr þykkar drengjapeysur j HAGKAUP Miklatorgi AlWV

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.