Vísir - 05.09.1963, Síða 1
VISIK
53. árg. — Fimmtudagur 5. sept. 1963. — 194. tbl.
Ráðhústeikningar
tsð verða tHbúnar
Héraðslæknir slasast:
2 Reykjavíkurheknar við
heknisaðgerð á Norðfirði
Það slys varð í Norðfirði hjá
bænum Skorrastað, í gærmorg-
un að fólksbifreið lenti út af
veginum og endastakkst. í
henni var, auk ökumanns, Þor-
steinn Ámason, héraðslæknir.
Læknirinn meiddist mikið en
ökumaðurinn slapp tiltölulega
vel.
Ekki þótti ráðlegt að fiytja
lækninn með bíl í veg fyrir
sjúkraflugvél á Egilsstöðum, og
var þess í stað beðið um lækn-
isaðstoð frá Reykjavík. Tveir
Reykjavíkurlæknar, dr. Bjami
Jónsson og Gunnar Guðmunds-
son, flugu austur að Egilsstöð-
um með flugvél frá Birni Páls-
syni upp úr hádeginu í gær,
þaðan óku þeir til Neskaupstað
ar og framkvæmdu nauðsynlega
lælcnisaðgerð á Þorsteini lækni
og voru Jóm Árnason sjúkrahús
læknir á Norðfirði og aðstoðar
læknir hans cinnig við aðgerð-
ina sem mun hafa Iánast vel.
Læknirinn ,sem slasaðist, mun
hafa brotnað í hálslið og fengið
heilahristing.
Reykjavíklæknamir komu aft
ur til Reykjavíkur með Bimi
Pálssyni laust fyrir hádegið í
dag. Þá beið flugvél austur á
Egilsstöðum frá Bimi eftir 2
sjúklingum af Vopnafirði, sem
flytja átti suður.
Bfoðid f dag
Vísir hefur eftir ömggum
heimildum að ráðhússarkitekt-
ar séu að leggja síðustu hönd
á uppdrætti sína af ráðhúss-
byggingu við norðurenda Tjam-
arinnar.
Eins og kunnugt er hefur
nefnd arkitekta starfað að þessu
verki í samræmi við ákvörðun
borgarstjórnar. Þegar þeir hafa
lagt fram teikningar sínar mun
málið verða tekið til yfirvegun-
ar borgaryfirvalda, sem mun
upp úr því taka endanlega á-
kvörðun um byggingarfram-
kvæmdir.
Nýja kjötið að
koma í verzlanir
Fyrsta slátrun hjá Sláturfé-
Iagi Suðurlands hófst í morgun á
sauðfé frá tveim bæjum, Gufunesi
I Mosfellssveit og Mjóanesi í Þing-
vallasveit, samtals rúmlega 100
jfár. 1 dag verður um 60 kindur
sóttar til slátrunar að Hálsi í Kjós.
Þetta er fyrsta sumarslátrunin í
ár, en óheimilt er að selja það fyrr
Danir taka við Grænlantisfiuginu
af Fiugféiagi ískmds
Um næstu mánaðamót renna
út samningar Dana við Flugfé-
lag íslands um Grænlandsflug
Flugfélagsins, sem undanfarið
hefur verið staðsett f Syðra
Straumfirði.
Þetta leiguflug Flugfélagsins
á vegum Grönlandsfly hefur að
mestu verið bundið við flutn-
ingaflug og að nokkru farþega-
flug milli staða á Grænlandi. Þá
hefur og þótt mikið öryggi í
því að hafa staðsetta flugvél í
Syðra Straumfirði. sem getur
auðveldlega komizt yfir Græn-
landsjökul fyrirvaralítið ef slys
ber skyndilega að höndum,
flytja varahluti og annað þess-
háttar.
Birgir Þórhallsson fulltrúi hjá
Flugfélagi íslands tjáði Vlsi I
morgun að samningar um þetta
flug hafi runnið síðast út 1.
júlí s. 1., en þeir voru fram að
þeim tíma gerðir til eins árs í
senn. Hefur það ævinlega vak-
að fyrir Dönum og verið til
umræðu hjá þeim að taka flugið
í eigin hendur jafnskjótt og þeir
hefðu möguleika til þess. Af
því hafi þó ekki orðið fyrr en
nú. Frá 1. júlí s. 1. hefur samn-
ingunum milli Flugfélagsins og
Grönlandsfly verið frestað um
nokkrar vikur I senn, en frá 1.
okt. telja Danir sig geta tekið
flugið að sér sjálfir. Þó munu
þeir verða að hafa íslenzkar á-
hafnir á flugvélinni fyrst í stað
og hefur vinsamleg samvinna
tekizt um það við Flugfélag ís-
lands. Sama flugvél verður og
höfð í förum, og kaupir hana af
Flugfélagi Islands.
Birgir Þórhallsson sagði að
enda þótt þessum samningum
hafi verið sagt upp við Flugfó-
lag íslands, stafaði það engan
veginn af óánægju á einn eða
annan hátt með flug eða þjón-
ustu Flugfélagsins. Þar hafi rikt
mikil ánægja af hálfu leigutaka
frá upphafi. En, eins og áður er
sagt, hafa Danir ekki talið það
með öllu vansalaust að fela út-
lendingum flug yfir eigin land-
svæði og hafa um langt skeið
talið það sem sjálfsagðan hlut
að þeir tækju það í eigin hend-
ur.
Framh. á bls 5
íls. 4 Grein um Lyndon
B. Johnson.
— 7 ÚraþjófnaSur
borgar sig ekki.
— 8 Jón Leifs minnist
Gunnlaugs Blöndal
listmálara.
— 9 Á Hveravöllum.
VÍSIR fylgdist með Guðrúnu
Bjamadóttur, þegar hún kom
heim til sín f Njarðvíkum í gær
og birtlr myndir og frásögn á
3. s/ðu
en 6. september, þannig að það
kemur ekki í verzlanir fyrr en n.k.
föstudagsmorgun. Ekki er vitað um
verð á því, þar eð Framleiðsluráð
Iandbúnaðarins hefur ekki enn tek-
ið ákvörðun um söluverðið. Það
mun þó verða gert annaðhvort í
dag eða á morgun.
Næstu daga er ætlunin að slátra
fé úr nærliggjandi sveitum, Mos-
fellssveitinni og Kjalarnesinu.
Aðeins ein undanþága hefur ver-
ið gerð á sumarslátrun og sölu á
nýju kindakjöti, en það var vegna
Framh. á bls. 5
Þorskahítur
farinn
Togarinn Þorsteinn þorskabítur
fór til sfldveiða frá Reykjavík í
gærkvöldi. Verður farið norður fyr-
ir land og leitað þar. Leiðangurs-
stjóri er Jakob Jakobsson, fiski-
fræðingur, en með honum verða að
stoðarmenn frá Fiskideild Atvinnu
deildar Háskólans. Einhver vand-
kvæði voru við mannaráðningar i
gær, erfiðleikar að fá menn, en úr
því rættist.
Á slysstað í Kópavogi í morgun. Brotinn staurinn og bíllinn úti f skurði. (Ljósm. Vfsis: B.G.) —
stálkur slösuðast
í Kópavogi í nótt
Skömmu fyrir kl. 2 í nótt varð
slys í sunnanverðum Kópavogs-
hálsi er drukkinn ökuinaður ók
á Ijósastaur, kubbaði staurinn,
stórskemmdi bifreiðina og slas-
aði 3 stúlkur sem I henni voru,
eina svo að flytja varð hana í
sjúkrahús.
Atburður þessi skeði rétt við
gatnamót Reykjanesbrautar og
Fífuhvammsvegar. Sex manna
bifreið af De Soto-gerð var þar
á ferð með fjóra farþega ,auk
ökumanns, þrjár stúlkur og einn
karlmann.
Bifreiðin Ienti á Ijósastaur, út
á vegbrúninni, og mun hafa ver-
ið á mikilli ferð, því að staur-
inn brotnaði í tvennt og lá efri
hluti staursins spöl fyrir utan-
veginn, þegar lögregluna bar að.
Að því búnu rann bifreiðin um
20 metra vegalengd frá staum-
um unz hún staðnæmdist. ■
Ökumaðurinn tók til fótanna
strax að árekstrinum loknum og
skildi slasaða farþega sína eftir
í bílnum án þess að hirða um
að leita þeim hjálpar. Fór hann
Framhald i bls. 5.