Vísir - 05.09.1963, Side 2
V í SIR . Fimmtudagur 5. sept. 1963.
'~l r TTD ‘i d
©^“Tn1 jh H2L
y., 7////^/////////^^//////m^z/Æ
t=j—czT} ,
jv
Þróttararnir, sem tóku þátt í ferðinni til Danmerkur. Myndin tekin á Gullfossi á heimleið. Piltamir
eru með félagsfánann útbreiddan fyrir framan sig.
Góð frammistaða ungra
Þróttarpilta í Danmörku
Þríöji flokkur úr knatt-
spyrnufélaginu Þrótti er
kominn heim úr ferðalagi
til Danmerkur. Flokkurinn
dvaldi í tvær sólríkar vik-
ur í bezta yfirlæti hjá
íþróttafélaginu HOLBÆK,
sem Þróttur hefur náð
mjög góðum samskiptum
við. I gær sagði einn af
fararstjórum flokksins,
Sölvi Óskarsson, okkur frá
ferðalaginu.
„Hópurinn lagði af stað frá
Reykjavík með „Drottningunni“ 19.
júlí, en kom til Kaupmannahafn-
ar 25. júlí, hátt á annan sólarhring
eftir áætlun, enda lenti skipið í
aftaka veðri á leiðinni. Flokkurinn
fékk hinar prýðilegustu móttökur
af hálfu Dana og piltarnir dvöldust
á heimilum félagsmanna i Holbæk
og lifðu í vellystingum. Við lék-
um sama dag og við komum við
gestgjafana, allir með sjóriðu og
ekki lausir við vanlíðanina. Hol-
|wj<*
Danski markvörðurinn grípur inn f. Ur Ieiknum við Taarnby Green.
bæk vann þennan leik 8:4. Meist-
araflokkur KR lék sama kvöld á
velli við hliðina og varð jafntefli,
6:6, 24 mörk á 2 tfmum!
Seinna lékum við aftur við Hol-
bæk og unnum þá, 3:1. Við lék-
um einnig við eldri pilta úr Taarn-
by Green og töpuðum 1:6, en í hálf
leik var staðan 1:1, en Taarnby-
piltarnir nutu vissulega stærðar-
munar. í Holbæk var okkur sýnd
pappírsverksmiðja mikil, sem þar
Di Stefano vill hætta
Di Stefano — knattspyrnusnill-
ingurinn heimsfrægi, sem rænt var
á dögunum af stjórnarandstæðing-
um f Venezuela, hefur nú lýst því
yfir, að hann vilji binda enda á
feril sinn sem knattspyrnumaður.
Di Stefano er enn nokkuð tauga-
óstyrkur eftir ránið á dögunum, en
eftír það hefur hann búið á heimili
spénska ambassadorsins í Caracas,
höfuðborg Venezuela.
„Auðvitað vil ég standa við samn
ing minn við Real Madrid, en eftir
að hann rennur út, hætti ég", seg-
ir hann.
Di Stefano var hylltur gífurlega,
er Real lék við liðið Sao Paulo
Leiknum iauk 0:0, en di Stefano
varð að yfirgefa völlinn í fyrri hálf
leik vegna meiðsla í öðrum fætin-
um. „Ég veit ekki ennþá hvort ég
hef áhuga á að gerast þjálfari eftir
að ég hætti, eða hvort ég flyt til
Argentínu aftur og fer að stunda
kvikfjárrækt“, sagði di Stefano.
tffiES®'..
er og búgarður fyrir utan borgina.
Einnig stunduðum við baðstrandir,
fórum til Nyköbing og skoðuðum
okkur um. Daginn fyrir brottför
okkar var okkur haldið samsæti í
ráðhúsi borgarinnar og skipzt var
á gjöfum.
Eftir vikudvö! í Holbæk fórum
við til Söborg, sem er í nágrenni
Kaupmannahafnar. — Þarna voru
tveir leikir leiknir. Söborg vann
fyrri leikinn, 2:0, en við hinn seinni
með sömu tölu. Við notuðum dvöl-
ina í Söborg til Kaupmannahafnar-
ferðar, fórum í Tivoli og Dyre-
havsbakken, dýragarðinn og skoð-
uðum fleira markvert. Farið var
heim með Gullfossi og heppnaðist
sá hluti ferðarinnar ekki síður vel
en annað.
Þess má geta að lokum, að 3.
flckkspiltar Þróttar gekk sérlega
vel í Landsmótinu eftir heimkom-
una, hafa ekki tapað einum ein-
asta leik, og f gærkvöldi unnu þeir
Vestmannaeyinga með 5:2 í æf-
ingaleik, en einmitt Vestmannaey-
ingar voru í úrslitum gegn Akra-
nesi á sunnudaginn var, en Akra-
nes vann þann leik, 3:2 og varð
meistari.
A STi'-r: . ..........
Ágæt héraðsmót Sjálf
stæðismanna nyrðra
Héraðsmót Sjálfstæðismanna í
Austur-Húnavatnssýslu var haldið
á Blönduósi sfðastliðinn sunnudag.
Samkomuna setti og stjórnaði
síðan Pálmi Jónsson, bóndi, Akri.
Dagskráin hófst með því að Gunn-
ar Gísiason alþingismaður flutti
ræðu. Síðan söng Guðmundur Guð
jónsson óperusöngvari einsöng,
undirleik annaðist Skúli Halldórs-
son píanóleikari. Þá flutti Her-
mann Þórarinsson hreppstjóri ræðu
Þar næst söng Guðmundur Guð-
jónsson nokkur lög. Að lokum var
gamanþáttur, er þeir fluttu leik-
ararnir Árni Tryggvason og Jón
Sigurbjörnsson.
Ræðumönnum og listamönnun-
um var mjög vel tekið af áheyr-
endum. Fjölmenni var og fór mótið
mjög vel fram. Samkomunni lauk
svo með dansleik.
it
Héraðsmót Sjálfstæðismanna á
Siglufirði var haldið laugardag-
inn 30. ágs. s. 1. Samkomuna setti
og stjómaði síðan Ólafur Ragnars
son.
Dagskráin hófst með því að
Jónas G. Rafnar, aiþingismaður
flutti ræðu. Þá söng Guðmundur
Guðjónsson, óperusöngvari, ein-
söng, undirleik annaðist Skúli
Halldórsson, píanóleikari. Því
næst flutti Einar Ingimundarson
alþingismaður ræðu, að lokinni
ræðu Einars var gamanþáttur, er
þeir fluttu leikararnir Árni Trygg-
vason og Jón Sigurbjörnsson. Að
lokum söng Guðmundur Guðjóns-
son nokkur lög.
Ræðumönnum og listamönnum
var mjög vel tekið af áheyrend-
um. Húsfylli var og fór mótið
mjög vel fram.
Samkomunni lauk með dansleik
Héraðsmót Sjálfstæðismanna á
Ólafsfirði var haldið iaugardaginn
30. ágúst s.l. Samkomuna setti og
stjórnaði síðan Lárus Jónsson, bæj
argjaldkeri, Ólafsfirði.
Dagskráin hófst með einsöng
Kristins Hallssonar, óperusöngvara,
undirleik annaðist Ólafur Vignir
Albertsson, píanóleikari. Þá flutti
Magnús Jónsson, bankastjóri ræðu.
Síðan söng Sigurveig Hjaltested,
óperusöngkona, einsöng. Því næst
flutti Ólafur Björnsson, prófessor,
ræðu. Að lokinni ræðu Ólafs sungu
þau Kristinn Hallsson og Sigur-
veig Hjaitested tvísöng við und-
irleik Ólafs V, Albertssonar. Að
Iokum flutti Brynjólfur Jóhannes-
son, ieikari, gamanþátt.
Ræðumönnum og listafólkinu
var mjög vel tekið af áheyrendum.
Mótið var fjölsótt og fór mjög
vel fram. Samkomunni lauk síðan
með dansleik.
Héraðsmót Sjálfstæðismanna á
Dalvík var haldið síðastliðinn
sunnudag. Samkomuna setti og
stjórnaði síðan Valdimar Óskars-
son, sveitarstjóri, Dalvík.
Dagskráin hófst með einsöng
Kristins Hallssonar, óperusöngvara,
undirleik annaðist Ólafur Vignir
Albertsson, píanóleikari. Því næst
flutti Bjartmar Guðmundsson, al-
þingismaður, ræðu. Þá söng Sigur-
veig Hjaltested, óperusöngkona,
einsöng. Síðan flutti Ólafur Björns-
son prófessor, ræðu. Að lokinni
ræðu Ólafs sungu þau Kristinn
Hallsson og Sigurveig Hjaltested
tvfsöng við undirleik Ólafs V.
Albertssonar. — Að lokum flutti
Brynjólfur Jóhannesson, leikari,
gamanþátt.
Ræðpmönnum og listafólkinu var
mjög vel tekið af áheyrendum. —
Mótið var fjölsótt og fór hið bezta
fram.
Samkomunni lauk síðan með
dansleik.
Afbmgðs síld-
veiði hjá Norsk
um bátum
Síidveiði Norðmanna við Austur-
strönd Islands hefur verið mjög
góð síðustu daga. í nótt fengu
margir norskir bátar fullfermi og
var tilkynnt í Álasundi, að 11 fiski
skip og flutningaskip væru nú á
leiðinni til Noregs með bræðslu-
síld, samtals um 40 þús. hekto-
lítra. Sum skipin voru með yfir 5
þúsund hektólítra. Síldveiðarnar
við Island eru svo góðar, að víst
þykir, að þær haldi áfram fram
eftir september.
Drengjameistaramót Reykja-
víkur hefst á Melavellinum í
kvöld kl. 19. Skráðir Þátttak-
endur eru 30. Keppt verður í
100, 400, 1500 m hlaupi, 110 m
grindahlaupi, 4x100 m boðhl.,
kúluvarpi, kringlukasti, há-
stökki og langstökki.
2. deilds
Þróttur - Breiðablik
í úrslitum á mánudag
Lokið er nú kærumáli, sem
spannst út af leik Þróttar og Sigl-
firðinga í 2. deild á Siglufirði.
Töldu Þróttarar að Siglfirðingar
hefðu haft í liði sínu leikmann,
sem hafði náð tilskyldum aldri til
að leika í meistaraflokki. Kærðu
þeir þetta til dómstólsins á Siglu-
firði, sem vísaði málinu frá á þeirri
forsendu, að kæran hefði borizt of
seint. Þróttur áfrýjaði þeim úr-
skurði til K.S.I., og var þar dæmt
í málinu og urðu endalokin þau,
að Þrótti var dæmdur sigurinn í
leiknum.
Er þá komin niðurstaða í báðum
riðlum 2, deildar og hefur Þrót-tur
unnið annan riðilinn og Breiðablik
í Kópavogi hinn. Leika þessi félög
til úrsiita n.k. mánudag á Laugar-
dalsvelli kl. 8.30. Það lið, senv fer
með sigur í þeim leik, tekur sæti
Akureyringa í 1. deildinni næsta
sumar.
n-. ' -y - iLii'F lsns*2SF!«ÉB